Morgunblaðið - 25.08.1989, Side 20
20
MOíRGUNBLAÐIÐ ' FXÍSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1989
MORGUNBLAÐIÐ RÖSTU1)AGI?R 25. 'ÁGÚST 1909 ..
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstj.órar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúarritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 90 kr. eintakið.
Sjálfstæðisbarátta
Eystrasaltsríkjanna
Rúmlega tvær milljónir
manna efndu til friðsam-
legra mótmæla í Eystrasalts-
löndunum á miðvikudag, þegar
50 ár voru liðin frá því að þeir
Molotov og Ribbentrop, ut-
anríkisráðherrar einræðisherr-
anna Stalíns og Hitlers, rituðu
undir griðasáttmála, sem hafði
að geyma leyniákvæði um inn-
limun landanna þriggja í Sov-
étríkin. Þegar til þess er litið
að íbúar landanna þriggja,
Eistlands, Lettlands og Lithá-
ens, eru innan við átta milljón-
ir og þar af fjölmargir af rússn-
eskum uppruna, sýnir þátttak-
an í mótmælunum, að andstað-
an við ólögmæt sovésk yfirráð
á gífurlegan hljómgrunn.
Kremlveijar hafa í 50 ár
leitast við að réttlæta yfirráð
sín yfir Eystrasaltslöndunum
með yfirlýsingum um, að þær
hafi sjálfar ákveðið inngöngu
í Sovétríkin. í skjóli leyni-
ákvæða griðasáttmálans, en
sovésk stjórnvöld hafna ekki
lengur tilvist þeirra, var sov-
éski herinn sendur til landanna
þriggja. Undir byssukjöftum
hans neyddust þjóðimar síðan
til að ganga í sovéska ríkja-
sambandið. Þessar staðreyndir
ættu að vera óumdeildar og
með vísan til þeirra er aug-
ljóst, að lagalegar forsendur
fyrir því að ríkin þrjú séu so-
vésk lýðveldi með verulega tak-
markað vald í eigin málum eru
með öllu brostnar.
Örlög Eystrasaltsríkjanna
hafa löngum vakið deilur á
Vesturlöndum. Hér á þessum
stað hefur hvað eftir annað
verið vakið máls á því á und-
anfömum 50 ámm hvílíkum
órétti þjóðimar þrjár vom og
hafa verið beittar. Bent hefur
verið á sögu þeirra þegar leitað
er fordæma fyrir því, hvemig
grimm valdafíkn einræðisherra
getur leikið fámennar þjóðir,
sem hafa ekki gert öflugar
ráðstafanir til að tryggja sjálf-
stæði sitt og öryggi. Um þetta
efni hefur Morgunbiaðið deilt
við andstæðinga sína, ekki síst
á Þjóðviljanum, hinu gamla
málgagni Kommúnistaflokks
íslands og þeirra, sem tóku upp
hanskann hér á landi fyrir
griðasáttmála þeirra Stalíns og
Hitlers og héldu því fram, að
smáþjóðir ættu ekkert betra
hlutskipti í vændum en lenda
í faðmi Stalíns. Þess er enn
beðið að málsvarar drottnunar-
stefnu Kremlverja í íslenskum
stjórnmálum geri með sóma-
samlegum hætti upp við fortíð-
ina, til dæmis með því að biðja
Eystrasaltsþjóðirnar þijár af-
sökunar á málflutningi sínum.
Fyrir sex árum var gefið út
opinbert rit í Sovétríkjunum,
þar sem það er dásamað með
hástemmdum orðum, hve
lenínisminn hafi dugað vel til
að uppræta spennu vegna þjóð-
erniskenndar innan Sovétríkj-
anna. Þar er lögð áhersla á,
að sovéska þjóðin líti á sig sem
eina stóra flölskyldu. Þróun
mála í Eystrasaltslöndunum og
annars staðar í Sovétríkjunum
bendir til þess að þarna hafi
verið farið með rangt mál eins
og svo oft endranær í sovésk-
um áróðri. Raunar eru ekki
nema fáeinar vikur liðnar síðan
Míkhaíl Gorbatsjov Sovétfor-
seti flutti sjónvarpsávarp og
varaði fólk við hættunum af
þjóðernishyggju; hún kynni að
leiða til hins mesta ófarnaðar.
Fjöldamótmælin á miðviku-
dag voru friðsamleg. Þau sýna
að almenningur í Eystrasalt-
slöndunum sættir sig ekki við
óbreytt ástand. Er undravert á
hve skömmum tíma og af hve
miklum þrótti íbúar þessara
fámennu landa, sem hafa í
hálfa ö!d lifað í ótta og mátt
sæta hvers kyns ofsóknum og
tilraunum til að uppræta tungu
þeirra og menningu, rísa upp
til vamar þjóðerni sínu og sjálf-
stæði. Af hálfu sovéskra yfir-
valda hefur verið leitast við að
slá á þessa þróun meðal ann-
ars með því að vísa til Vestur-
Evrópu, þar sem ríki séu að
renna saman í stærri heild.
Málflutningi á þessum nótum
hefur verið svarað á þann veg,
að mikill munur sé á Moskvu
og Brussel.
Barátta Eystrasaltsríkjanna
sýnir, að menning smáþjóða
verður ekki upprætt og vilji
þeirra til að láta að sér kveða
sem sérstök heild verður ekki
brotinn á bak aftur, nema þær
sætti sig við það sjálfar. Það
eru ekki ytri aðstæður heldur
innri þróttur, sem ræður úrslit-
um í baráttu þjóða, stórra og
lítilla, fyrir tilvist sinni og
áhrifum.
Hreppsnefnd Kjalarness samþykkir sorpurðun í Álfsnesi:
Samkomulag um kaup
borgarímiar á Alfenesinu
HREPPSNEFND Kjalarnes-
hrepps samþykkti í gær á fundi
sínum að heimila sorpurðun í Alfs-
nesi. Borgarsljóri og Jón Ólafsson
oddviti hreppsins undirrituðu í
gær áður gerð samkomulasgsdrög
sem fela meðal annars í sér að
Hitaveita Reykjavíkur yfirtaki
hitaveitu hreppsins. Eigendur
Álfsness og borgarsljóri undirrit-
uðu samkomulag um kaup borgar-
innar á landinu í gær; kaupverðið
Utanríkismálanefiid SUS:
Sjálfstæðis Eystra-
saltsþjóðanna krafist
FIMMTÍU ár voru liðin á miðvikudág, 23. ágúst, frá því að griðasátt-
máli Sovétríkjanna og nazistaríkis Adolfs Hitlers í Þýskalandi var undir-
ritaður. Alræðisríkin tvö komust þá að samkomulagi um skiptingu Pól-
lands, Eystrasaltsríkjanna þriggja og Finnlands í áhrifasvæði, þar sem
annað hvort ríkjanna hafði sérstakra hagsmuna að gæta. Utanríkismála-
nefhd Sambands ungra sjálfetæðismanna hefur sent ft-á sér fréttatilkyn-
ingu þar sem segir að enn gæti áhrifa þessa samnings með hernámi
Sovétmanna á Eystrasaltsríkjunum. Tekur SUS undir sjálfstæðiskröfur
þessara ríkja.
í fréttatilkynningu frá utanríkis-
málanefnd Sambands ungra sjálf-
stæðismanna segir: „Ungir sjálf-
stæðismenn styðja frelsisbaráttu
Eystrasaltsþjóðanna, krefjast þess
að Sovétmenn geri hreint fyrir sínum
dyrum í máli þessu og vilja nota
tækifærið til að minna Islendinga á
hversu auðglatanleg gæði frelsi og
lýðræði geta verið.
Með gerð griðasáttmálans má full-
yrða að kommúnistastjómin í
Moskvu hafi beinlínis stuðlað að
heimsstyijöldinni síðari, sem einræð-
isherrann Jósef Stalín .kornst að full-
keyptu, þegar nazistar töldu sig hafa
komið ár sinni svo vel fyrir borð á
vígstöðvunum, að hægt væri að ráð-
ast inn í Sovétríkin.
Ungir sjálfstæðismenn taka heils-
hugar undir sjálfsagðar kröfur Eist-
lendinga, Letta og Litháensbúa um
að fá að njóta ófrávíkjanlegs sjálfsá-
kvörðunarrétts þjóða, frelsis og lýð-
ræðis, enda eru launráð þau, sem
brugguð voru í leyniákvæðum þess
eðlis, að lagalegur grundvöllur veru
ríkjanna í Sovétríkjunum er enginn
— ekki síst þegar litið er til réttar
Sovétlýðvelda til þess að ganga úr
Sovéríkjunum, sem tryggður er í
stjórnarskrá Sovétríkjanna."
Segir síðan að ef Míkhaíl Gorbatsj-
ov og ríkisstjórn hans vilji að mark
sé tekið á tali um „glasnost" og „per-
estrojku" verði sovésk stjórnvöld að
sýna meintan vilja í verki. Skora
ungir sjálfstæðismenn á sovéska
valdamenn að Sovétríkin geri opinber
skjöl, sem lúta að griðasáttmála
þeirra við Þriðja ríki nazista í Þýska-
landi, sem undirritaður var hinn 24.
ágúst, 1939, þar með talin leyniá-
kvæði samningsins.
er tæpar 100 milljónir, að sögn
Jón G. Tomassonar borgarritara.
Að sögn borgarritara er stefiit að
því að finna stað í nágrenni Áburð-
arverksmiðjunnar við Gufunes
fyrir sorpböggunarstöð og er talið
líklegt að hugmyndir um böggun-
arstöð í Hafiiarfirði verði nú gefii-
ar upp á bátinn. Formleg ákvörð-
un heftir þó ekki verið tekin í
sljórn Sorpeyðingar höfuðborgar-
svæðisins b.s..
Hreppsnefnd Kjalarness sam-
þykkti með 3 atkvæðum gegn einu
og með hjásetu eins fulltrúa sam-
komulagsdrög oddvita og borgar-
stjóra um að fallið yrði frá forkaups-
rétti hreppsins á Álfsnesinu, heimiluð
verði þar urðun jafnframt því sem
Hitaveita Reykajvíkur yfirtaki hita-
veitu hreppsins. í liðinni viku hafði
hreppsnefndin fellt með þremur at-
kvæðum gegn tveimur samkomu-
lagsdrögin.
Aðspurður hvað valdið hefði sinna-
skiptum hreppsnefndarinnar sagði
Jón Ólafsson oddviti að þar hefði
fyrst og fremst komið til mikil um-
ræða um orkumál og fleiri hluti í
hreppnum. „Menn höfðu mikið litið
til norðursvæðisins og höfðu sam-
þykkt urðun þar en það kom í ljós
að það var ekki í dæminu að hálfu
byggðasamlagsins. Þá mátu menn
stöðuna þannig að gefa leyti til urð-
unar í Alfsnesi. Það höfðu breyst
vissar forsendur, það voru undir-
skriftarlistar og fleira í- gangi í
hreppnum."
Böggunarstöð í Gufimesi
Að sögn Jóns G. Tómassonar borg-
arritara var í gær undirritað milli
borgarinnar og eigenda Álfsnessins
samkomulag um kaup á landinu.
Ekki er um endanlegan kaupsamning
að ræða heldur samkomulag um
hvernig skuli að kaupunum staðið,
þar á meðal fjárhæðir og greiðslu-
. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sænska akademían færði íslenskri málnefnd 100 þúsund krónur sænskar að gjöf í gær. Það var Sture
Allén (t.v), fastaritari akademíunnar, afhenti Krisljáni Árnasyni, formanni málnefndarinnar, gjöfina við
hátíðlega athöfii í íslenskri málstöð við Aragötu I Reylyavík.
Sænska akademían:
Gaf níuhundruð þúsund
krónur í málræktarsjóð
SÆNSKA akademian færði í gær íslenskri málnefiid að gjöf eitthundr-
að þúsund sænskar krónur, eða rúmlega níuhundruð þúsund krónur
íslenskar. Peningarnir eiga að renna í málræktarsjóð, sem komið verð-
ur á fót af menntamálaráðuneytinu.
Sænska akademían færði íslenskri
málnefnd gjöfina í tilefni af 25 ára
afmæli nefndarinnar. Við athöfn,
sem haldin var í íslenskri málstöð í,
gær, fjallaði Sture Allén, fastaritari
akademíunnar, um málræktarstarf
Islenskrar málnefndar og benti á,
að akademían hefði meðal annars
verið stofnuð til að gegna sama hlut-
verki. Hann aflienti síðan Kristjáni
Árnasyni, formanni málnefndarinnar
bók sem gefin var út í tilefni af 200
ára afmæli akademíunnar 1986 og
var í henni ávísun upp á 100 þúsund
sænskar krónur, eða rúmlega 900
þúsund íslenskar, sem renna eiga í
málræktarsjóð, sem menntamálaráð-
herra hyggst stofna.
Kristján Árnason þakkaði þessa
gjöf og færði akademíunni ljósprent-
að eintak af Skarðsbók. Sagði hann
meðal annars, að akademían hefði
unnið merkt starf til eflingar litlum
tungumálasamfélögum með veitingu
nóbelsverðlaunanna i bókmenntum.
kjör. Kaupverðið er tæpar 100 millj-
ónir króna. „Það er nánast fram-
reiknað kaupverð þeirra á jörðinni
með óhjákvæmilegum kostnaði sem
fýlgdi kaupunum,“ sagði borgarrit-
ari.
Borgin hafði keypt landið af Sigur-
birni Eiríkssyni á síðasta ári en kaup-
in gengu til baka þegar urðunarleyfi
fékkst ekki. Þá keypti Ragnar Guð-
mundsson-, ásamt fleirum, landið af
Sigurbirni á sambærilegu verði og
samningurinn við borgina hafði kveð-
ið á um. Jón G. Tomasson sagði að
ekki hefði verið tímasett hvenær
hafist yrði handa við framkvæmdir
í Álfsnesinu, stjórn Sorpeyðingar
höfuðborgarsvæðisins, byggðasam-
lags, ætti eftir að ákveða það. „Við
teljum að haugarnir í Gufunesi séu
ekki nothæfir nema í um það bil eitt
ár enn, þannig að þetta verður að
gerast á næsta ári,“ sagði hann.
Aðspurður hvort með þessu væri
úr sögunni að reisa sorpböggunar-
stöð í Hafnarfirði, sagði Jón G. Tóm-
asson: „Það er mjög trúlegt að reynt
verði að finna stað fyrir sorpböggun-
arstöð í Reykjavík." Borgarritari
sagði að einkum væri um að ræða
svæði í nágrenni Áburðarverksmiðj-
unnar á Gufunesi. Hann vildi ekki
tilgreina nákvæmlega um hvaða land
væri að ræða en sagði að ekki væri
um svæðið, þar sem núverandi sorp-
haugar stæðu, að ræða.
Greiddi atkvæði gegn
urðun í Alfsnesi
Inga Margrét Árnadóttir á Skraut-
hólum greiddi ein hreppsnefndarfull-
trúa atkvæði gegn samþykkt meiri-
hluta hreppsnefndarinnar í gær. Hún
sagði að hún hefði alla tíð verið á
móti urðun sorps í Álfsnesi, og
ákvörðun meiríhluta hreppsnefndar-
innar hefði komið eins og þruma úr
heiðskíru lofti, vegna fyrri sam-
þykktar frá 18. þessa mánaðar þar
sem því var hafnað að sorp yrði urð-
að á þessum stað.
„Afstaða mín í þessu máli hefur
á engan hátt breyst, og því greiddi
ég atkvæði gegn samkomulaginu.
Ég frétti lauslega af því með skömm-
um fyrirvara að þetta lægi í loftinu,
en þegar ég leitaði eftir upplýsingum
um það til oddvitans neitaði hann
mér um þær, og því fékk ég ekki
að sjá þær fyrr en á fundinum, sem
boðað var til með mjög skömmum
fyrirvara."
Morgunblaðið/RAX
Teikning hefur verið gerð af innsiglinu, sem fannst í Viðey. Innsig-
lið er úr kopar, um tveir sentimetrar í þvermál og rúmir fjórir á
hæð.Á innfelldu myndinni sést embættisinnsigli Skúla. Stafagerðin
er sú sama, stafirnir S og M fléttaðir saman með miklu flúri, og
kóróna yfir. Kórónuna vantar á innsiglið, sem fannst við uppgröft-
inn, en í hennar stað er einhvers konar sívalningur eða sporbaugur.
Fornleifauppgröffcurinn í Viðey:
Innsigli Skúla Magn-
ússonar fógeta fiindið
TORKENNILEGUR málmklumpur, sem kom upp við fornleifaupp-
gröft í Viðey í fyrrasumar reyndist vera hinn merkilegasti gripur,
þegar búið var að skafa hann og hreinsa. Þar er komið innsigli
Skúla Magnússonar landfógeta, sennilega til persónulegra nota.
Innsiglið er svo vel varðveitt að það er eins og Skúli hafi haldið á því
í gær, eins og Margrét Hallgrímsdóttir fornleifafræðingur segir.
Innsiglið fannst í yfirborðslögum
austan við Viðeyjarstofu. Það er
áreiðanlega yfir 200 ára gamalt
þar sem Skúli lézt í Viðey árið
1794. Forvörzlu innsiglisins lauk
fyrir nokkrum dögum. Margrét
ságði í samtali við Morgunblaðið
að hún væri gott dæmi um árangur
þeirrar rannsóknar- og hreinsunar-
vinnu, sem fram færi á veturna á
meðan ekki væri hægt að grafa
eftir fornleifum.
Annað innsigli úr eigu Skúla er
varðveitt, í einkaeign. Það er emb-
ættisinnsigli landfógeta, fanga-
mark Skúla með kórónu yfir. Inn-
siglið, sem grafið var upp í Viðey,
er með sömu stafagerð en kórónu-
laust. Björk Ingimundardóttir,
skjalavörður á Þjóðskjalasafni,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að gerð innsiglisins styddi þá til-
gátu að um persónulegt innsigli
Skúla væri að ræða. Frekari rann-
sóknir á skjölum og bréfum frá
Skúla þurfa þó líklega að koma til
áður en það er endanlega staðfest.
Margir kassar af forngripum
hafa komið upp úr rústum Viðey-
jarklausturs undanfarnar vikur.
Ýmsir bera þeir vott um íburð og
góð efni klaustursins. Margrét
Hallgrímsdóttir sýndi Morgun-
blaðsmönnum til dæmis hringnælu,
sennilega úr silfri, sem kom upp
fyrir nokkrum dögum. Fornleifa-
fræðingar telja sig nú geta aldurs-
greint elztu hleðslur klausturrús-
tanna nokkuð nákvæmlega með
samanburði við öskulög. Veggur,
sem grafinn hefur verið upp, er
hlaðinn einhvern tímann á tímabil-
inu frá 1100 til 1226, en síðan þá
er elzti máldagi klaustursins. Svo
heppilega vill til að sama ár féll
öskulag, sem fornleifafræðingar
nota til aldursgreiningar.
Færri setjast á skóla-
bekk á landsbygg'ðinm
FÆRRI grunnskólanemar setjast á skólabekk á Vesturlandi og Suðurl-
andi í haust en í fyrrahaust að sögn fræðslustjóra umdæmanna. Grunn-
skólanemar á Norðurlandi vestra og Reykjanesi eru álíka margir og
í fyrra. Á Suðurlandi og Norðurlandi vestra fækkar nemendum í
dreifbýlisskólum en flölgar í þéttbýlinu.
„Nemendafjöldi hefur haldist
svipaður undanfarin ár. Þó má
greina nokkra fækkun,“ sagði Jón
R. Hjálmarsson, fræðslustjóri á
Suðurlandi, í samtali við Morgun-
blaðið í vikunni. „Fækkunin kemur
einkum fram í sveitaskólunum. í
bæjar- og þéttbýlisskólum fjölgar
nemendum. Fjölgunin nægir þó
ekki til að nemendum fjölgi á svæð-
inu í heild.“ Jón sagðist búast við
að grunnskólanemendum héldi
áfram að fækka á Suðurlandi. Um
4000 grunnskólanemendur stun-
duðu nám í umdæminu í fyrra. Að
sögn Jóns hefur verið ráðið í flestar
ef ekki allar lausar kennarastöður.
Færri réttindalausir kennarar
starfa við skólana en áður.
Á Norðurlandi vestra hefur nem-
endum sem sækja dreifbýlisskóla
einnig fækkað. Að sögn Guðmundar
I. Leifssonar, fræðslustjóra, hefur
fjölgun nemenda I þéttbýli vegað
upp á móti fækkuninni. 2016 stun-
duðu grunnskólanám í umdæminu
síðastliðin vetur eða álíka margir
og veturna á undan. Guðmundur
sagði árganga sem von væri á í
skólana fámenna en benti á að bú-
ferlaflutingar hefðu áhrif á fjölda
nemenda I skólum. Kennararáðn-
ingar hafa gengið vel á Norður-
landi vestra. Fræðslustjóri kvað
sparnaðarráðstafanir ríkisstjórnar-
innar koma niður á þjónustu við
nemendur. Rætt hefði verið um að
minnka kennslu í einhveiju
kennslugreinum og stækka bekkj-
ardeildir. Auk þess kæmi til greina
að skerða kennslu sex ára barna.
Á Reykjanesi setjast 11.123
grunnskólanemendur á skólabekk í
haust. í fyrravetur voru nemendur
11.028. í Hafnarfirði fjölgar nem-
endum um 3% og í Mosfellssveitum
2.3%. Annars staðar í umdæminu
er svipaður fjöldi nemenda og í
fyrra. Að sögn Helga Jónassonar,
fræðslustjóra, hefur ekki þurft að
fjölga nemendum í bekkjardeildum
í haust. „Við höfum beitt almennu
aðhaldi og því hefur verið tekið vel.“
Á Vesturlandi hefur grunnskóla-
nemendum fækkað um 150 síðast-
liðin 3 ár. Að sögn Snorra Þor-
steinssonar, fræðslustjóra, er von á
fjölmennari árgöngum í skólana
eftir 1-2 ár. Um 2850 grunnskóla-
nemar setjast á skólabekk á Vest-
urlandi í haust. Snorri sagði að erf-
itt yrði að spara í grunnskólakerfinu
án þess að það bitnaði á nemendum.
Meðal aðhaldsaðgerða nefndi hann
að reynt yrði að auka samkennslu.
inn í Bjarnarfirði
Laugarhóli.
SLÁTTUR er nýlega hafinn í Bjarnarfirði, en um þetta leyti var hon-
um að ljúka í fyrra. Þurrt vor hindraði grassprettu, auk þéss sem
beita varð fénaði á túnin lengur en venja er til, vegna snjóþyngsla
síðastliðins vetrar. Þegar svo leið að því að hægt væri að slá, lagðist
hann í rosa, með regni og roki svo að ekki hefir orðið mikið úr
slætti ennþá.
Sláttur hófst í lok annarrar viku
ágústmánaðar. Er hann aðallega í
vothey og er það víða bundið í rúll-
ur. Þó þarf að vera þurrt á þegar
slegið er. Fréttamaður spurði Ingi-
mund Ingimundarson á Hóli um
slátt, en hann hafði slegið blettinn
sinn fyrr í sumar/ „Slætti hér var
lokið um þetta leyti í fyrrasumar,
en nú er hann rétt að hefjast", voru
svör Ingimundar.
Veturinn var með eindæmum
snjóþungur og sér þess enn víða
merki. Fannir eru í fjöllum, alveg
niður undir tún ennþá. Þá er beija-
spretta svo lítil og léleg, að annað
eins þekkist vart á Ströndum. Veg-
ir norðan Hólmavíkur eru holóttir
og iélegir, svo að ekki hvetur það
ferðamenn til þess að sjá alla þá
náttúrufegurð sem annars er hér.
í júnímánuði var unnið að því
að bæta umhverfi Gvendarlaugar
við Klúkuskóla. Var steypt ný stétt
framan við sundskýlin og lagður
hiti í hana. Þá var lögð stétt með-
fram allri lauginni og hún afgirt
svo að nú verður aðeins komist að
henni í gegnum sundskýlin. Þá var
steypt stétt að heitum potti. Verk-
taki við þetta var Jón Magnús
Magnússon. Klúkuskóli verður sett-
ur föstudaginn 1. september. Áætl-
að er áð skólastarf hefjist jafnvel
viku fyrr, með sundnámskeiði.
- SHÞ
Samkomulag í launa-
deilu HIK og ríkisins
LAUNASKRIFSTOFA ríkisins hefiir fallist á túlkun Hins íslenska
kennarafélags á samkomulagi sem gert var eftir verkfall félagsins í
vor um kennslu síðustu daga skólaársins, vikuna 18.-25. maí. Ágrein-
ingur hefiir verið upp síðan laun voru greidd út í júlí og leystist með
munnlegu samkomulagi fulltrúa félagssins og Qármálaráðherra um
túlkun á samkomulaginu.
Guðmundur H. Guðmundsson hjá
launaskrifstofu ríkisins, sagði að
stefnt hefði í óefni með hugsanlega
vinnu kennara í haust til að ljúka
síðustu önn og því hefði verið
ákveðið að vægja í þessu máli og
fallast á túlkun félagsins. Það hefði
auk þess í för með sér að önnur
atriði skýrðust, en skrifstofan teldi
þessa ákvörðun ekki fordæmisvald-
andi, þar sem þarna væri um sérs-
takt tilfelli að ræða.
Túlkun HÍK á því samkomulagi
sem gert var um kennslu í þessari
viku felur í sér að öll kennsla er
greidd með álagi. Þannig að ef
kennari hefur til dæmis kennt tíu
stundir þá margfaldast þær með
stuðlinum 0,6 og kennarinn fær
greiddar 6 klukkustundir í auka-
vinnu til viðbótar sínum föstu laun-
um. Kennsla umfram kennslu-
skyldu er greidd í aukavinnu með
stuðlinum 1,6. Rök félagsins fyrir
þessu voru þau að sérstakt álag
fylgdi kennslunni eftir verkfallið
sem stóð í rúmar sex vikur.
Túlkun launaskrifstofunnar á
hinn bóginn var sú að kennarar
hefðu kennsluskyldu þessa viku og
bæri því ekki álagsgreiðslur fyrr
en þeir hefðu kennt í 16,25 kennslu-
stundir.
Lélegar heimtur á hafbeitarlaxi í ár;
Laxinn á góðum
vöxtum í hafinu
- framkvæmdastjóri Vogalax
„TEKJURNAR af hafbeitarlaxi verða minni í ár en við reiknuðum með
en laxinn er á góðum vöxtum í hafínu, þar sem hlutfallslega hærra
verð fæst fyrir stóran fisk en smáan,“ sagði Vilhjálmur Guðmundsson,
framkvæmdasljóri Vogalax, í samtali við Morgunblaðið. Vilhjálmur sagði
að 3 til 4% heimtur væru á hafbeitarlaxi hjá Vogalaxi í ár, sem væri
helmingi minna en búist var við. Aftur á móti væri líklegast að stöðin
endurheimtí þeim mun meira af tveggja ára gömlum laxi á næsta ári.
Vilhjálmur Guðmundsson sagði að
tæplega 9% heimtur hefðu verið á
laxi sem Vogalax sleppti vorið 1987.
Vilhjálmur sagði að hrygnurnar væru
seinþroska í ár og 80% af þeim laxi,
sem Vogalax hefði endurheimt í sum-
ar, væru litlir hængar. Stöðin myndi
hins vegar heimta hrygnurnar á
næsta ári og þá tvöfalt þyngri en
þær væru nú. Hann sagði að meðal-
vigt á slægðum eins árs gömlum
laxi væri nú einungis um 2 kíló en
hún væri hins vegar yfirleitt 2,4 til
2,5 kíló.
Vilhjálmur sagði að Vogalax hefði
sleppt einni milljón seiða í fyrravor
og tæpum tveimur milljónum í vor.
„Við erum að hefja strandeldi tíl að
dreifa þeirri áhættu sem fylgir haf-
beitinni og nýta fjárfestinguna bet-
ur,“ sagði Vilhjálmur.
Jón Sveinsson, framkvæmdastjóri
Láróss, sagði að það stefndi í að
endurheimtur á laxi hjá stöðinni yrðu
5 til 6% í ár. í fyrra hefðu þær ver-
ið rúm 9% en bestu heimtur hjá stöð-
inni hefðu verið 12%. Jón sagði að
laxinn væri einnig seinna á ferðinni
en hann hefði verið undanfarin ár.
Ástæðumar gætu verið margar, til
dæmis kaldur sjór.
„Við erum hins vegar mjög vel
settir og sígandi lukka er best,“ sagði
Jón. Hann sagði að nú væri meðal-
vigt á eins árs gömlum laxi hjá Lá-
rósi 2,7 til 2,9 kíló, sem væri mjög
gott. Jón sagðist hafa sleppt um 40
þúsund sjógönguseiðum árið 1987,
113 þúsund í fyrra og á fórða hundr-
að þúsund í ár. ^
Júlíus B. Kristinsson, fram- 1
kvæmdastjóri Silfurlax, sagði að
stöðin hefði sleppt 160 þúsund seið-
um i sjó í fyrra. „Ég reikna með að
við endurheimtum 5.000 til 5.500
laxa núna sem eru mun lakari heimt-
ur en í fyrra. Við treystum hins veg-
ar ekki á miklar tekjur í ár vegna
þess að það er svo stutt síðan við
byrjuðum," sagði Júlíus.