Morgunblaðið - 25.08.1989, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1989
23
Oskar Lafontaine
kemur til Islands
• Morgunblaðið/Árni Sæberg
Feðgarnir Stefán Ólafsson og Jóhannes Stefánsson í stækkuðum og nýinnréttuðum Hallargarði.
Hallargarðurinn:
Opnaður eftir breytingar
Veitingastaðurinn Hallar-
garðurinn í Húsi verslunarinnar
verður opnaður á hádegi í dag
eftir miklar breytingar. Hann
hefiir verið stækkaður, innrétt-
aður að nýju og gerður hefur
verið sérinngangur inn á stað-
inn.
Hallargarðurinn hefur verið
rekinn frá 17. júní 1983 af Veit-
ingahöllinni, sem rekin er af sömu
Leiðrétting
Við messu á Hólahátíð 1989 var
vígður nýr hökull, íslenskur að
aílri gerð, en í rómönskum stíl.
Höklinum fylgdi stóla af_ sömu
gerð og einnig rikkilín. I frétt
Morgunblaðsins í gær var rang-
lega farið með nafn konunnar, sem
saumaði rikkilínið, en það gerði
Vilborg Stephensen, kjólameistari
í Reykjavík. Vilborg saumaði einn-
ig hökul og stólu. Morgunblaðið
biðst velvirðingar á þessum mis-
tökum.
eigendum. Nú hefur verið lokað á
milli veitingastaðanna tveggja og
sérinngangur gerður inn í Hallar-
garðinn með brú, sem er við hlið
inngangsins inn í Veitingahöllina.
Hallargarðurinn sjálfur hefur ver-
ið stækkaður og tekur nú 80—90
manns í sæti, nýjum og stærri bar
hefur verið komið fyrir í rúmgóð-
um sal með aðstöðu til flutnings
lifandi tónlistar og inn af honum
er hliðarsalur fyrir 40—50 manns.
Eftir þessar breytingar er hægt
að halda 150—200 manna veislur
í Hallargarðinum.
Breytingarnar á Hallargarðin-
um voru gerðar vegna mikillar
aðsóknar að staðnum, vegna óska
viðskiptavina um sérinngang og
til að þjóna gestum Borgarleik-
hússins en þar hefjast leiksýningar
í október.
Eigendur Hallargarðsins og
Yeitingahallarinnar eru Stefán
Ólafsson og fjölskylda hans. Stef-
án hefur einnig rekið Múlakaffi í
26 ár. Breytingarnar á Hallargarð-
-inum hafa engin áhrif á rekstur
Veitingahallarinnar sem verður
eins eftir sem áður.
OSKAR Lafontaine, forsætis-
ráðherra Saarlands og vara-
formaður Þýska jafiiaðar-
mannaflokksins, kemur til
landsins 27. ágúst nk. í boði
Alþýðuflokksins.
I fréttatilkynningu frá Alþýðu-
flokknum segir að Lafontaine sé
án efa einn af umtöluðustu stjórn-
málamönnum í Evrópu um þessar
mundir. Kenningar hans og rit um
þjóðfélagsmál hafa vakið athygli
langt út fyrir Þýskaland einkum
bókin Gesellschaft der Zukunft
eða Þjóðfélag framtíðarinnar sem
kom út árið 1988. Þar leggur
Lafontaine áherslu á að jafnaðar-
menn verði sífellt að endurskoða
stefnu sína í samræmi við þjóð-
félagsbreytingar.
Oskar Lafontaine, sem fæddur
er árið 1943, er nú formaður
stefnunefndar Þýska jafnaðar-
mannaflokksins, sem hefur það
verkefni að marka stefnu flokksins
næsta áratuginn undir yfirskrift-
inni „Framfarir 90“.
Dskar Lafontaine mun dvelja á‘
íslandi fram á miðvikudaginn 30.
ágúst nk. Hann mun eiga fund
með Jóni Baidvin Hannibalssyni,
utanríkisráðherra og formanni Al-
þýðuflokksins og öðru Alþýðu-
flokksfólki. Hann mun einnig hitta
aðra ráðamenn, þ.á.m. Steingrím
Hermannsson, forsætisráðherra,
og Ólaf Ragnar Grímsson, fjár-
málaráðherra. Mánudaginn 28.
ágúst kl. 17.00 gengst Alþúðu-
flokkurinn fyrir opnum fundi í
Ársal, Hótel Sögu, þar sem öllum
íslenskum jafnaðarmönnum er
sérstaklega boðið að hlýða á Oskar
Lafontaine gera grein fyrir hug-
myndum sínum um nýja jafnaðar-
stefnu.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 24. ágúst
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 54,00 40,00 49,58 26,095 1.293.763
Þorskur(smár) 20,00 20,00 20,00 0,-465 9.310
Ýsa 84,00 50,00 79,57 1,161 92.346
Karfi 35,00 15,00 31,01 7,455 231.148
Ufsi 24,00 11,00 22,40 2,992 67.024
Ufsi(smár) 15,00 15,00 15,00 0,466 6.990
Steinbitur 55,00 50,00 53,95 0,986 53.169
Langa 15,00 15,00 15,00 0,177 2.655
Langlúra 25,00 25,00 25,00 0,110 2.750
Lúða 300,00 145,00 179,45 462,00 82.905
Kolaflök 120,00 120,00 120,00 0,120 14.400
Kinnar 91,00 91,00 91,00 0,077 7.007
Gellur 230,00 230,00 230,00 0,015 3.450
Samtals 46,00 40,596 1.867.517
i dag verður selt óákveðið magn af blönduðum afla úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík '
Þorskur 62,50 49,00 52,78 58,206 3.072.400
Þorskur(smár) 15,00 15,00 15,00 0,282 4.230
Ýsa 92,00 72,00 81,56 5,702 465.033
Karfi • 15,00 9,00 9,30 0,301 2.799
Ufsi 29,00 14,00 22,61 39,759 898.848
Hlýri 20,00 20,00 20,00 0,047 940
Hlýri+steinb. 55,00 55,00 55,00 0,728 40.040
Langa 25,00 23,00 23,87 0,129 3.079
Blálanga 25,00 23,00 24,31 0,211 5.129
Lúða(stór) 250,00 180,00 207,76 0,416 86.430
Lúða(smá) 205,00 160,00 182,46 0,472 86.120
Sólkoli 25,00' 25,00 25,00 0,044 1.100
Skarkoli 56,00 28,00 45,91 4,079 187.277
Samtals 43,99 110,291 4.851.225
Selt var úr Jóni Baldvinssyni, Skagaröst, Krossnesi, Freyju, Hjalt-
eyrinni og netabátum. í dag verður selt úr neta- og faerabátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 56,00 47,00 54,19 8,123 440.181
Ýsa 81,00 80,00 80,49 1,217 97.960
Karfi 25,50 15,00 23,66 0,524 12.399
Ufsi 30,00 15,00 21,74 0,473 10.284
Steinbltur 50,50 27,00 44,53 0,127 5.655
Hlýri 27,00 27,00 27,00 0,031 837
Langa 26,00 26,00 26,00 0,150 3.900
Blálanga 15,00 15,00 15,00 0,024 360
Lúða 175,00 115,00 127,45 0,053 6.755
Skarkoli 35,00 35,00 35,00 0,015 525
Sólkoli 35,00 35,00 35,00 0,026 910
Keila 14,00 14,00 14,00 0,150 2.100
Skata 40,00 40,00 40,00 0,029 1.160
Skötuselur 130,00 130,00 130,00 0,014 1.820
Humar 770,00 770,00 770,00 0,019 14.630
Samtals 54,62 10,975 599.476
í dag verður selt óákveðið magn af þorski og ýsu úr Hópsnesi
og óákveðið magn af blönduðum afla úr bátum.
Ráðstefna
um gæða-
sljórnun
VINNUHÓPUR á vegum
staðlastofiiana á Norðurlönd-
um heldur samráðsfund á ís-
landi 28. til 29. ágúst næst-
komandi en á fundinum verður
ljallað um uppbyggingu gæða-
kerfa og vottun, segir í frétta-
tilkynningu.
í tengslum við samráðsfundinn
verður haldin ráðstefna á vegum
Staðlaráðs íslands um hag
íslenskra fyrirtækja af því að taka
upp gæðastjórnun og gæðavottun.
Ráðstefnan verður haldin 28. ágúst
í Borgartúni 6 og er öllum opin.
Þátttakendur eru skráðir hjá
staðladeild Iðntæknistofnunar.
Málning datt
af sendibíl
Rannsóknarlögreglan í Hafnar-
fírði óskar eftir að ná tali af öku-
manni sendibifreiðar sem að kvöldi
föstudagsins ll.þessa mánaðar
missti olíumálningarfötur af bíl
sínum á Vífilsstaðavegi.
Listmunir úr
steindu gleri
Hraftihildur Ágústsdóttir opn-
ar sýningu á listmunum úr
steindu gleri í Gallerí List að
Skipholti 50B á morgun, laug-
ardag, kl. 15.00. Þar sýnir hún
fjórar glermyndir og tólf
lampa, allt verk sem hún hefúr
unnið á síðasta ári.
Hrafnhildur lauk prófi frá Hjúkr-
unarskóla íslands árið 1967, en
hefur búið í New York með fjöl-
skyldu sinni mörg undanfarin ár.
Hún hóf nám í glerlist árið 1978
við Arc en Ciel, glervinnustofu í
Larchmont, síðar í teikningu við
School of Visuai Art og í hönnun
við Glassmasters Guild í New York.
Hrafnhildur tók fyrst þátt í sam-
sýningu í New York árið 1981, en
sýndi fyrst verk sín hérlendis árið
1987. Síðastliðið sumar hélt hún
einkasýningu í Hudson River Muse-
um í Yonkers, New York, og sl.
haust í Gallery RBF í Mamar-
oneck, N.Y.
Sýningin í Gallerí List verður
opin alla virka daga frá kl. 1Q.30
til 18.00 og um helgar frá kl. 14.00
til 18.00. Sýningunni lýkur þann
3. september.
Síðasta hestamót
sumarsins
Syðra-Langholti.
• Hestamannafélögín Smári,
Geysir og Sleipnir halda sitt
árlega suðurlandsmót í hesta-
íþróttum um helgina, 26. og
27. ágúst. Keppt verður í öll-
um greinum hestaíþrótta og
er þáttaka ágæt, enda öllum
heimil.
Margir kunnustu knapar lands-
ins taka þátt í mótinu. Áðstaða er
ágæt á Flúðum til að halda slíkt
mót. Mikið hefur verið um ferða-
menn á Flúðum í sumar, einkum
útlendinga. Að sögn Margrétar
Brynjólfsdóttur, hótelstjóra, hefur
straumur útlendinga aldrei verið
svona mikill áður.
Sig. Sigm.
Dúkkukerran
um Vestfirði
Brúðuleikhúsið Dúkkuker-
ran fer leikferð um Vestfirði
dagana 26.-30. ágúst með æv-
intýrið „Bangsi". Leikhúsið
reka þær Ásta Þórisdóttir og
Lilja Sigrún Jónsdóttir, ásamt
aðstoðarmanni sínum Einari
Hauki Þórissyni.
Ævintýrið fjallar um vinina Bangsa
og Rebba, sem fara í ævintýralega
bónorðsför í Þursaskóginn. Leikið
er með bæði hand- og stengjabrúð-
um. Sýningin er fyrir börn á öllum
aldri.
Sýningar verða í Bamaskólanum
Súðavík 26. ágúst klukkan 13,
Bamaskólanum Bolungarvík 26.
ágúst klukkan 18, Barnaskólanum
ísafirði 27. ágúst klukkan 11 og
14, Leikskólanum Suðureyri 28.
ágúst klukkan 13.30, Félagsheimil-
inu Flateyri 28. ágúst klukkan 17,
Barnaskólanum Þingeyri 29. ágúst
klukkan 13, Bamaskólanum
Bíldudal 30. ágúst klukkan 10,
Dunhaga Tálknafirði 30. ágúst
klukkan 13.30 og í Barnaskólanum
Patreksfirði 30. ágúst klukkan
17.30.
Listamannahúsið:
Dagur Sigurðar-
son sýnir 30
myndverk
SÝNING Dags Sigurðarsonar
á um 30 myndverkum í Lista-
mannahúsinu í Hafiiarstræti 4
í Reylqavík verður opnuð
næstkomandi laugardag
klukkan 15.
Verkin á sýningunni hafa verið
máluð bæði hérlendis og erlendis á
undanförnum ámm, segir í frétta-
tilkynningu frá Listamannahúsinu.
Hrafhhildur Ágústsdóttir við eitt af glerverkum sínum.
Gígja Baldursdóttir
Gígja Baldurs-
dóttir í Ásmund-
arsal
GÍGJA Baldursdóttir opnar á
morgun klukan 16 myndlistar-
sýningu í Ásmundarsal við
Freyjugötu.
Gígja fæddist í Reykjavík 3. des-
ember 1959. Lauk stúdentsprófi
frá Fjölbraut við Ármúla 1979.
Stundaði nám við Myndlistaskól-
ann í Reykjavík 1980-1981, Oslo
Maleskole 1981-1982 og og Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
1982-1986.
Myndirnar á sýningunni em
málaðar með akrýllitum á pappír
og em gerðar á ámnum 1988-
1989.
Sýningin verður opin virka daga
klukkan 16-20, um helgar frá
klukkan 14-20 og lýkur sunnudag-
inn 10. september.