Morgunblaðið - 25.08.1989, Qupperneq 29
MQRQUNBM.DIfi TOSi;WAGjjR 25. ÁpÚgT li)8g r
Minning:
Sveinn Tryggvason
dóttir. Þau hafa lengi átt faliegt
heimili í Brekkugerði 18 hér í borg.
Þau eignuðust tvö börn. Þau eru
Þórarinn Egill, mjólkurbústjóri á
Akureyri og Auður, landslagsarki-
tekt.
Vinir og samstarfsmenn Sveins
þakka honum að leiðarlokum gott
samstarf og mikla virtnu að málefn-
um_ landbúnaðarins.
Ég og kona mín vottum Gerði,
börnum hennar og öðrum vanda-
mönnum innilega samúð.
Gunnar Guðbjartsson
Sveinn Tryggvason, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Framleiðsluráðs
landbúnaðarins, er látinn. Löngu
veikindastríði hans er nú lokið.
Sveinn var húsbóndi minn og sam-
starfsmaður í þrjátíu og tvö ár. Mig
langar að minnast hans með nokkr-
um orðum.
Hann fæddist í Reykjavík þann
12. ágúst 1916, en ólst upp á Akra-
nesi, sonur hjónanna Tryggva Beri-
ónýssonar og eiginkonu hans
Sveinsínu Sveinsdóttur. Hann átti
eina systur, Ásu, sem látin er fyrir
allmörgum árum. Var mjög kært
með þeim systkinunum og í minnum
haft hve Sveinn var henni góður
bróðir.
Sveinn hóf ungur nám í mjólkur-
fræði, fyrst í Borgarnesi, svo á
Akureyri, en fór síðan utan til fram-
haldsnáms í Statens Mejeriskole í
Þrándheimi í Noregi og lauk þaðan
prófi árið 1937 eftir tveggja ára
veru þar. Eftir heimkomuna gegndi
hann ýmsum trúnaðarstörfum á
sínu sérsviði. Hann var stöðvar-
stjóri í eitt ár í Mjólkurstöðinni í
Reykjavík og mjólkurbússtjóri í
Hafnarfirði í fjögur ár. Á Sauðár-
króki var hann um tíma, til þess
ráðinn að koma rekstri samlagsins
í betra horf en verið hafði. Ráðu-
nautur Búnaðarfélags íslands var
hann frá 1942 til 1947, en frá 1.
júlí 1947 að telja var hann ráðinn
framkvæmdastjóri Framleiðsluráðs
landbúnaðarins, þá aðeins þijátíu
og eins árs að aldri. Gegndi hann
því starfi samfellt í þijátíu og tvö
ár, er hann lét af störfum sökum
heilsubrests.
Sveinn kvæntist eftirlifandi eig-
inkonu sinni Gerði S. Þóararins-
dóttur árið 1943 og eignuðust þau
tvö börn, Auði landslagsarkitekt,
en sambýlismaður hennar er Einar
Valur Ingimundarson og eiga þau
tvö börn, og Þórarin Egil mjólkur-
samlagsstjóra á Akureyri, sem
kvæntur er Ingu Einarsdóttur og
eiga þau þijú börn. Sveinn var mjög
góður fjölskyldufaðir. Eiginkona
hans og börn voru honum afar
kær. Má með sanni segja að hann
hafi fyrst og fremst helgað líf sitt
atvinnu sinni og fjölskyldu. Hann
var stoltur af börnum sínum og
mátti líka vera það.
Fyrstu kynni mín af Sveini voru
er ég réðst til Framleiðsluráðsins í
desember 1947. Voru starfsmenn
ráðsins þá aðeins þrír, Sveinn, Jón-
mundur Ólafsson og ég. Ég hafði
ekki hugsað mér að festa mig í
þessu starfi til frambúðar, en margt
fer öðruvísi en ætlað er, og árin
urðu að lokum fjörutíu talsins. Seg-
ir það meira en mörg orð hvernig
mér líkaði vistin með þeim mönnum
sem þar störfuðu.
Mér varð fljótt ijóst hve traustur
maður Sveinn var. Bar fas hans
allt vott um festu og einbeitni.
Hann var mjög reglusamur maður
og nákvæmur í öllu sem hann fékkst
við. Dugnaður hans og ósérhlífni
einkenndu störf hans öðru fremur.
Var með ólíkindum hveiju hann
kom í verk á stuttum tíma þegar
mikið lá við. Var þá ekki verið að
hugsa um hvort venjulegur vinnu-
dagur væri liðinn. Hann var afar
reikningsglöggur og mótaði hann
m.a. þær reglur sem notaðar voru
við útreikninga á verðmiðlun úr
Verðmiðlunarsjóði mjólkur tii
mjólkursamiaganna. Annaðist hann
sjálfur framkvæmdina mörg fyrstu
árin, en það var bæði mikið verk
og vandasamt. Við sem með honum
unnum fundum mæta vel hve hann
mat mikils þegar vel og samvisku-
samlega var unnið, og hann kunni
þá list að efla menn til dáða með
því að sýna þeim traust, sem öllum
er svo mikils virði.
Ég held líka að Sveinn hafi upp-
skorið eins og til var sáð. Með sínu
dugmikla starfi fyrir íslenskan land-
búnað, sem hann vann af fullum
heilindum, leyfi ég mér að segja
að hann hafi áunnið sér og Fram-
leiðsluráði landbúnaðarins mikið
traust hjá þeim fjölmörgu fyrirtækj-
um og stofnunum um land allt, sem
samskipti þurftu að hafa við ráðið.
Ekki má heldur gleyma þeim ágætu
forystumönnum bændasamtakanna
sem þá voru í stjóm Framleiðslu-
ráðs og Stéttarsambands bænda og
unnu með Sveini að lausn hinna
íjölmörgu vandamála sem þá var
við að glíma í íslenskum landbún-
aði. Þá má og geta þess að ýmis
nefndar- og trúnaðarstörf voru
Sveini falin er snerta landbúnaðinn,
og skrifa mætti um langt mál.
Má því með sanni segja að Sveinn
hafi unnið íslenskum landbúnaði
allt er hann mátti og staðið þar í
fylkingarbijósti í meira en þijá ára-
tugi. Fyrir það á hann þakkiæti og
heiður skilið. Nú þegar hann er all-
ur og leiðir skilja, þakka ég honum
samfylgdina og langt og gott sam-
starf. Eiginkonú og börnum hans,
og öðram aðstandendum votta ég
og fjölskylda mín innilega samúð.
Gunnlaugur Lárusson
Minning:
Ásdís Sveinsdóttir
Fædd 23. október 1907
Dáin 18. ágúst 1989
í dag, föstudaginn 25. ágúst, fer
fram frá Garðakirkju í Garðabæ
minningarathöfn um Ásdísi Sveins-
dóttir og á morgun, laugardag,
verður hún jarðsett í Vestmannaeyj-
um.
Fregnin um andlát Ásdísar
ömmu kom okkur öllum í opna
skjöldu. Einhvern veginn fannst
mér dauðinn svo fjarlægur ömmu,
þó svo að hún væri á áttugasta og
öðru aldursári, svo ungleg og kvik
var hún í hreyfingum. Ég hélt að
við fengjum að hafa hana miklu
lengur hjá okkur, ég var að ímynda
mér að hún yrði jafnvel hundrað
ára eins og foreldrar hennar, en
langafi var 100 ára og langamma
98 ára er þau létust árið 1978.
Ásdís Sveinsdóttir fæddist í Vest-
mannaeyjum 23. október 1907.
Foreldrar hennar voru hjónin
Kristín Þorleifsdóttir og Sveinn
Jónsson. Ásdís giftist Alexander
Gíslasyni skipstjóra hinn 31. desem-
ber 1928, en hann lést 29. janúar
1966. Ásdís og Alexander áttu eina
dóttur, Svövu Kristínu móður mína,
en hún er gift Tryggva Guðmunds-
syni. Eiga þau fjögur börn, Gylfa
kvæntur Margréti Jóhannesdóttur;
Aldísi gift Vilhjálmi Vilhjálmssyni;
Guðmund Ásvald kvæntur Auði
Traustadóttur og Svein Orra, unn-
usta hans er Steinunn Konráðs-
dóttir. Barnabarnabörn Ásdísar era
alls 9 talsins.
Ásdís var fædd og uppalin í Vest-
mannaeyjum og bjó þar allt til árs-
ins 1973 er eldgosið varð þess vald-
andi að heimili hennar á Heimagötu
25 fór undir hraun. Eftir gos flutt-
ist hún ekki til Vestmannaeyja aft-
ur.
Ásdís amma var um margt sér-
stök persóna. Hún hafði fastmótað-
ar skoðanir um menn og málefni
og var alla tíð sjálfri sér næg.
Amma vildi frekar vera veitandi
heldur en þiggjandi. Á ári hveiju
bauð hún okkur systkinunum,
mömmu og pabba í leikhús og ekki
má gleyma matarboðunum hennar.
Hjálparhönd hennar var alltaf til
reiðu. Hún vidi ekki láta hafa mik-
ið fyrir sér, sagðist alltaf vera fær
um að bjarga sér sjálf.
Eftir að amma flutti til
Reykjavíkur tók hún þátt í félags-
starfi aldraða. Ekki lét hún sig
vanta á spilakvöldin er haldin voru
á þeirra vegum. Amma hélt tryggu
sambandi við vinkonur sínar frá
Vestmannaeyjum og hittust þær
reglulega og spiluðu saman. Árlega
hélt hún þeim matarboð á heimili
sínu og var það eitt af síðustu verk-
um hennar því í sömu viku og hún
lést hafði hún haft þær hjá sér þrátt
fyrir að hún hafi fundið að hún var
ekki vel frísk.
í æsku leituðum við systkinin
mikið til ömmu, þangað var gott
að koma, heimili hennar var okkur
alltaf sem annað heimili. Eftir að
amma flutti frá Vestmannaeyjum
hélt hún sitt heimili í Reykjavík og
þangað komum við barnabörn
hennar og síðar barnabarnabörn og
reiddi hún þá fram allt það bezta
sem hún gat hugsað sér, ekkert var
okkur of gott. Allir fóru glaðir og
mettir úr þeim heimsóknum.
Þar sem mamma var eina barn
ömmu og afa var alla tíð mikið
samband þar á milli og óijúfanleg
vinátta milli þeirra mæðgnanna.
Nú hefur amma kvatt okkur hér
og sofnað svefninum langa. Mig
langar fyrir hönd okkar systkin-
anna, maka okkar og barna þakka
henni fyrir allt. Það er okkur hugg-
un harmi gegn að vita að handan
móðunnar miklu tekur afi, foreldrar
hennar og þeir sem á undan eru
gengnir, á móti henni opnum örm-
um.
Hnígur sól
sofnar blóm
sorgin gistir minn rann.
Drýpur rep
titra tár
tregar hjarta mitt hann
sem var angan míns vors
sem, var ylur mins lífs.
Hnígur sól
sofnar blóm
sorgir gistir minn rann.
(Sr. Sigurður lí. Guðmundsson)
Guðm. Ásvaldur Tryggvason
t
ODDNÝ INGVARSDÓTTIR,
frá Laugardalshólum, Laugavegi 98, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 17. ágúst í Landspítalanum. Útförin verður frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 29. ágúst kl. 10.30.
Jarðsett í Miðdal kl. 15.00 sama dag.
Aðstandendur.
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
MARTA BJÖRIMSDÓTTIR,
lést í Landspítalanum 24. ágúst.
Magnús H. Magnússon,
Sigríður Magnúsdóttir,
Páll Magnússon,
Björn Ingi Magnússon,
Helga Bryndís Magnúsdóttir.
t
Bróðir okkar,
PÉTUR GUÐMUNDSSON
frá Fáskrúðsfirði,
andaðist í Landakotsspítala að morgni 24. ágúst.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd vandamanna,
Ottó Guðmundsson,
Guðbjörg Guðmundsdóttir.
t
Sambýlismaður minn, faðir og fósturfaðir,
HJÖRVAR ÞÓR JÓHANNESSON,
Álfaskeiði 72,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju föstudaginn 25. ágúst kl. 15.
Fyrir hönd aðstandenda,
Fríða Elíasdóttir
og börn.
t
Hjartkær móðir okkar,
KARÓLÍNA SIGURÐARDÓTTIR,
Vestmannabraut 73,
verður jarðsett frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, laugardaginn
26. ágúst kl. 14.00.
Geirlaug Jónsdóttir,
Kristin Jónsdóttir,
Margrét Jónsdóttir,
Sigurður Jónsson.
t
Minningarathöfn um móður mína, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÁSDÍSI SVEINSDÓTTUR
frá Vestmannaeyjum,
verður í Garðakirkju föstudaginn 25. ágúst kl. 10.30. Jarðsett
verður frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 26. ágúst
kl. 11.00.
Svava Alexandersdóttir, Tryggvi Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HJÖRTUR ÞORKELSSON
netagerðarmeistari,
Heiðarvegi 6,
Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 26. ágúst kl.
14.00.
Jóhann Hjartarson, Sigríður Jónsdóttir,
Hjördís Hjartardóttir, Reynar Óskarsson,
Katrín Lárusdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginkona min,
HELGA STEFÁNSDÓTTIR,
\ Hvammsgerði 4,
\ Reykjavik,
áður Hjaltabakka, A-Hún,
sem andaðist 22. ágúst, verður jarðsungin frá Blönduóskirkju
laugardaginn 26. ágúst, kl. 16.00. Þeim sem vildu minnast henn-
ar er bent á Krabbameinsfélag A-Hún.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jón Þórarinsson.