Morgunblaðið - 25.08.1989, Page 37
37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1989
Þessir hringdu . . .
Kettir
Grábröndóttur fressköttur með
rauða ól og bjöllu er í óskilum hjá
konu í Bustaðahverfinu. Eigandi
hafi samband við Jónínu í síma
39073.
Gulur og hvítur þriggja mánaða
högni fæst gefíns. Upplýsingar
gefur Alda í síma 641616.
Tveir svartir og hvítir kettling-
ar fást gefins. Upplýsingar í síma
686875 eftir kl. 19 á kvöldin.
Ung svört læða, hvít á tánum,
týndist í Safamýri fýrir stuttu.
Hún var með rautt band og merkt
í eyra með númerinu R-9104.
Finnandi hringi í síma 30321.
Prins, bröndóttur högni með
hvíta bringu, týndist í Seláshverfi
fýrir mánuði. Hann var merktur
og með bláa hálsól. Finnandi hafi
samband við Unni í síma 79898.
Sólgleraugu
Svört sólgleraugu af gerðinni
Aiain Mikli töpuðust 15. ágúst.
Finnandi hafi samband við Kol-
brúnu í sírha 10677.
Úr
Úr með eirlitaða umgjörð og
brúna leðuról fannst í Húsadal í
Þórsmörk fyrir stuttu. Upplýsing-
ar gefur Ásmundur í síma 36039.
Hálsmen
Hálsmen fannst í stigagangi í
Borgartúni 31 fyrir um það bil
viku. Eigandi getur haft samband
við Sigríði í síma 627222.
Telpuhjól
Rautt telpuhjól með þremur
lásum fannst á Víðimel fyrir tæp-
um hálfum mánuði. Upplýsingar
gefur Álda í síma 23441.
Lyklakippa
Lyklakippa með þremur Assa-
lyklum, bíllykli og tveimur smærri
lyklum tapaðist í Vatnsdal í
Vatnsfirði mánudaginn 7. ágúst.
Finnandi hafi samband við Svein
í síma 91-10483.
Lúga af sportbát
Topplúga af sportbát tapaðist
á leiðinni frá Mosfellsdal til
Reykjavíkur fyrir rúmri viku.
Finnandi hafi samband við Guð-
laugu i síma 666958.
Giftingarhringur
Giftingarhringur fannst í Aust-
urstræti fyrir rúmri viku. Upplýs-
ingar gefur Svava í síma 10437.
Reiðhjól
Blátt karlmannsreiðhjól af
gerðinni DBS týndist í Hlíðunum
fyrir rúmri viku. Finnandi hafi
samband við Þorstein í síma
13842.
Um póstáritun
Til Velvakanda.
Arngrímur Sigurðsson Iagði það
nýlega til í bréfi til þín, að tekin
verði upp póstáritunin ísland í stað
þess að nota þýðinguna Iceland eða
frönsku útgáfuna Islande. Gæti það
e.t.v. komið í veg fyrir, að bréf frá
Ameríku til íslands bæri síður af
leið, lentu til írlands, svo sem oft
gerist. Mér finnst þetta góð hug-
mynd, sem vel mætti reyna, þótt
engan veginn sé víst, að hún bæri
tilætlaðan árangur.
Við hjónin höfðum staðið í stöðug-
um bréfaskiptum við vandamenn og
vini í Bandaríkjunum í meira en 40
ár. Það er þó fyrst á síðustu 10 árum
eða svo, sem það hefur færst í vöxt,
að bréf til okkar séu „Missent to
Ireland", og nú er það orðið ótrúlega
algengt, hvernig svo sem á breyting-
unni stendur. Náttúrlega er munur-
Kæri Velvakandi.
Ég er mikill aðdáandi U2 og
finnst alltof lítið spilað með hljóm-
sveitinni og of lítið fjallað um hana.
Ég vil taka undir með þeim, sem
hafa skrifað áður um það sama.
Mig langar að biðja Ríkissjónvarpið
um að endursýna þættina um U2
og bæta meira efni við. Það heyrist
alltof lítið í hljómsveitinni, bæði í
inn á_ orðunum Iceland og Ireland
lítill. I fyrra orðinu er annar stafur-
inn c, í hinu r, annað ekki.. Þess
vegna væri kannski í fljótu bragði
hægt að villast á löndunum. Reynd-
ar væri í þessu sambandi fróðlegt
að vita, hvort einhver brögð væru
að því, að amerísk bréf til írlands
slæddust til íslands.
En nú koma vondu fréttirnar. í
sumar sá ég bréf frá Þýskalandi til
íslands, áritað: IS — 600 Akureyri,
Island.
Hafði það, eins og amerísku bréf-
in, villst til írlands, fengið sinn
stimpil þar og tafist töluvert í túm-
um, eins og að líkindum lætur. Má
því með sanni segja, að nú séu góð
ráð dýr
Virðingarfyllst,
Aðalsteinn Sigurðsson
útvarpi og sjónvarpi, miðað við hvað
hún á stóran aðdáendahóp hér á
landi.
Svo langar mig að taka undir
með E.E., sem skrifaði grein 16.08
s.l. um að unglingar ættu að borga
hálft gjald í strætó vegna þess hve
lág laun þeir hafa.
Aðdáandi U2
.
Eigum
fyrirliggjandi
PASLODE
loftverkfæri
KAMBSAUMSBYSSUR
NAGLABYSSUR
DÚKKSAUMSBYSSUR
HEFTIBYSSUR
GASBYSSUR
SALA-SALA-SALA-SALA
LEIGA-LEIGA-LEIGA-LEIGA
Pallar hf.
Dalvegi 16 -
200 Kópavogi.
Símar 42322-641020
Of lítið spilað af U2
Viö hjónin þökkam af alhug góðar gjafir og
hlýjar kveðjur í tilefni 80 ára afmœlis míns
þann 16. ágúst s/. Énnfremur þökkum við öll-
um þeim, sem glöddu okkur með nœrveru sinni.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurður Ingi Sigurðsson,
Víðivöllum 4,
Selfossi.
Ég þakka af alhug öllum þeim, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og skeytum á afmœlisdegi mínum þann 2. ágúst sl. Gœfan fylgi ykkur. Helgi Thorvaldsson.
Sovéskir dagar 1989: Moldavía - land og þjóð Laugardaginn 26. ágúst kl. 16, á Vatnsstíg 10, munu gestir frá Sovétlýðveldinu Moldavíu spjalla um land og þjóð og sitthvað það, sem nú er að gerast í Sovétríkjunum. Allir sem áhuga hafa, eru velkomnir. MÍR
r I ogsmáRÁÐ \ - aaákyei'in9arver 1 ^0*0-03*«^ s" Ife&u 1 * smaB^ 1 Hvuuow^r1 1 * taðten9> 1 \ „ QamhU&a- 09 \ »''uN5>^„t p-«"" *<-*' \ 1 15 6.0°°'' \ 39.900’- l Kynn'n • ruákynning^' \ ^—-—
Tilkynning um skuldabréfaútboð
Lýsing hf.
1. flokkur A 1989, gjalddagi 15. 05. 1992
kr. 50.000.000,-
- krónur fimmtíu milljónir 00/100 -
Bréfin eru gefín út í 100.000,- kr. einingum.
Sala hefst 25. ágúst 1989.
VerðbréfaviÓskipti
Landsbankans
Suðurlandsbraut 24, st'mi 606080
1. flokkur B 1989, gjalddagi 15- 05. 1993.
kr. 50.000.000,-
- krónur fimmtíu milljónir 00/100 -