Morgunblaðið - 31.08.1989, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. AGUST 1989
17
Krabbameinsfélag íslands:
Merkjasala um allt
land um næstu helgí
KRABB AMEIN SFÉLAG ís-
lands efiiir til merkjasölu um
allt land um næstu helgi.
Merkin, sem eru hnappnælur,
verða seld á 200 krónur og
rennur helmingur andvirðis-
ins til krabbameinsfélagsins í
hverju byggðarlagi en hinn
helmingurinn rennur til starf-
semi Krabbameinsfélags ís-
lands.
I fréttatilkynningu frá Krabba-
meinsfélagi íslands segir, að þessi
helgi sé ekki valin af handahófi,
því um nokkurra ára skeið hafi
félagið staðið fyrir fjársöfnun með
mérkjasölu fyrstu helgina í sept-
ember. Þessu hafi verið hætt en
þráðurinn verði nú tekinn upp að
nýj.u.
I fréttatilkynningunni kemur
einnig fram, að fyrirkomulag
merkjasölunnar um helgina verði
með þeim hætti, að hvert merki
verði selt á 200 krónur. Hin 29
aðildarfélög Krabbameinsfélags
íslands muni sjá um söluna og
helmingurinn af andvirði hvers-
selds merkis að renna til þeirra,
en heimingurinn til starfsemi
Krabbameinsfélagsins sjálfs, til
dæmis leitarstarfs og rannsókna.
I Reykjavík verði sölunni hagað
þannig að stuðningshópar sjúkl-
inga standi fyrir sölunni en utan
Reykjavíkur muni krabbameins-
félögin á hverjum stað sjá um
söluna. Stefnt sé að því að sjálf-
boðaliðar selji merkin.
Lionsmenn aðstoða á
Akureyri
Halldóra Bjarnadóttir hjá
Krabbameinsfélagi Akureyrar og
nágrennis segir að félagið muni
seija merki á Dalvik, Grenivík,
Fnjóskadal, Svalbarðseyri og Ól-
afsfirði. Þar muni félagsmenn í
Krabbameinsfélaginu selja merk-
in og jafnvel verði gengið í hús.
Á Akureyri verði sá háttur hins
vegar hafður á, að sölufólk verði
í miðbænum, fyrir utan stórmark-
aði, svo sem Hrísalund og Hag-
kaup og verslun_ ÁTVR síðdegis
á föstudaginn. Á laugardag og
sunnudag verði sölufólk í Vín og
hugsanlega víðar. Hún segir að
síðasta vetur hafi heill Lionsklúb-
bur gengið í Krabbameinsfélagið.
Hús Krabbameinsfélags íslands við Skógarhlíð í Reykjavík.
t
Verjumst
vkrabbameini!/
Þeir hafi sérstaklega verið beðnir
um aðstoð við söluna og hafi þeir
tekið því vel.
Halldóra segir, að starf
Krabbameinsfélags Akureyrar og
nágrennis beinist einkum að
fræðslu og forvörnum, meðal ann-
ars sjái það um reykingavarna-
fræðslu í öilum skólum við Eyja-
fjörð og standi fyrir fyrirlestrum
um krabbamein.
Salan á Austflörðum
Aðaibjörg Magnúsdóttir hjá
Krabbameinsfélagi Austfjarða
segir að gengið verði með merkin
í hús á þéttbýlisstöðum á Aust-
fjörðum. Það geri félagsmenn í
Krabbameinsfélaginu, en það séu
einkum konur. Salan muni hefjast
síðdegis á föstudaginn og standi
hún yfir alla helgina.
Aðalbjörg segir að Krabba-
meinsfélag Austfjarða taki þátt í
þeirri krabbameinsfræðslu, sem
fari fram í skólum á starfsvæði
þess, auk þess styrki það sjúkl-
inga, sem þurfi að fara til
Reykjavíkur í eftirlit, leggi fram
fjármagn til starfs Krabbameins-
félags Islands og hafi að auki í
gegnum árin staðið fyrir tækja-
kaupum fyrir heilsugæslustöðvar
á svæðinu. Meðal annars hafi fé-
lagið aflað fjár til þessa með
merkjasölu á síðustu tveimpr
árum.
Stómasamtökin
Einn þeirra stuðningshópa
krabbameinssjúklinga, sem tekur
þátt í merkjasölunni um helgina,
eru Stómasamtökin. Þar er um
að ræða stuðningshóp þeirra
sjúklinga, sem fengið hafa stómu
eða opnun í gegnum kviðarholið.
Að sögn Arnar Agnarssonar,
formanns samtakanna, er hlut-
verk þeirra fyrst og fremst að
styðja við bakið á þessum sjúkl-
ingum, bæði fyrir og eftir aðgerð.
Samtökin muni nota það fé, sem
þeim áskotnist með söfnuninni .til
að standa straum af starfsemi
sinni, svo sem útgáfu fréttabréfs.
Almenn tölvubraut
Tölvunámskeiö fyrir fólk á öllum aldri í fremsta Macintoshtölvuskóla landsins.
Einstakt tækifæri til aö fá á 10 vikna námskeiöi þjálfun í öllum grunnatriöum
tölvunotkunar í starfi og leik.
Flest fyrirtæki gera þær kröfur til starfsmanna sinna að þeir hafi almenna þekkingu á tölvum og tölvunotkun.
Oftar en ekki hefur fólk ekki tækifæri til aö nálgast þá þekkingu sem þarf til aö nota tölvur. Til aö koma til
móts kröfur þeirra höfum viö komið á fót námskeiöi sem sniöiö er aö endurmenntunarþörfum þeirra.
Dagskrá:
Ritvinnsla og vélritun «.
Umbrot og skýrslugerö
Almenn tölvufræöi og umgengni viö tölvur
Tölvuteiknun og myndgerö
Gagnagrunnar og töflureiknar
Tölvusamskipti og gagnabankar
Tölvubókhald
%
Viö bjóðum upp á 90 kennslustunda hagnýtt nám meö úrvalskennurum. I hverjum hóp eru 10
nemendur. Hægt er að velja um hóp mánudaga og miðvikudaga k). 19.30-22.30, þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 19.30-22.30 og laugardaga kl. 9-16. Námsgögn og hressing á námskeiöi innifalin t
sanngjörnu námskeiösverði. Kennt er á Macintosh tölvur. Námskeiö byrja um miöjan september.
Tölvu- og
verkfræðiþjánustan
Tölvuskóli Halldórs Kristjánssonar
Skráning og allar frekari upplýsingar I
síma 688090 eöa á Grensásvegi 16
Kreditkortaþjónusta
Hagstæö greiöslukjör
• «
á laugardag
handaþér, ef þúhittír
á réttu tölumar.
Láttu þínar tölur ekki
vanta í þetta sinn!
Sími 685111. Upplýsingasímsvari i
iutxí ltm>i