Morgunblaðið - 03.09.1989, Qupperneq 37
1
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1989
C 37
Frá Blönduósi.
Valgarð Ásgeirsson
Þverárfjall.“ Óskar var tiltölulega
bjartsýnn á framtíð Blönduóss.
„Þegar samdrátturinn í landbúnaði
er yfirstaðinn og menn hafa náð
saman um að leysa atvinnumálin
þá þarf engu að kvíða en þessi mál
verða heimamenn sjálfir að leysa,“
sagði Óskar Húnfjörð að lokum.
Það er brúin jamm og já
Á tröppunum við grunnskóla
Blönduóss urðu á vegi fréttaritara
tveir menn sem ekki voru eins djúpt
sokknir í byggðamálin og Óskar
Húnfjörð. Þar voru á ferðinni Val-
Knútur Berndsen
garð Ásgeirsson eða Valli Ásgeirs
eins og hann er kallaður, lífslista-
maður og núverandi sundlaugar-
vörður á Blönduósi, og Knútur
Berndsen húsvörður í grunnskólan-
um. „Veistu það að ég borðaði lax
fyrir nokkrum dögum sem kostaði
sextíu og fimm þúsund krónur,“
sagði Valli Ásgeirs í óspurðum
fréttum. Skýring Valla var sú að
sér hefði verið gefinn annar tveggja
laxa sem hefðu komið á eina stöng
í Laxá á Ásum fyrir nokkrum dög-
um. Valli Ásgeirs sagðist hafa haft
töluvert samviskubit að borða svo
dýran lax. Valli þarf mikið að um-
gangast erlenda ferðamenn í
tengslum við starf sitt í sundlaug-
inni og segist honum svo frá:
„Fransmenn eiga oft í miklum erfið-
leikum að skilja þá ensku sem mér
var í æsku kennd. Ég lenti í tölu-
verðum vandræðum með eina
franska konu sem ég var að reyna
útskýra fyrir að þyrfti að fara úr
fötunum áður en farið væri í laug-
ina. Hélt hún alltaf að hún þyrfti
að afklæðast fyrir framan mig en
þetta mál leystist samt allt að lok-
um.“ Valli Ásgeirs hefur gert svolí-
tið af því að yrkja og þykir kveð-
skapur hans all sérstakur og vísurn-
ar lifa. Frægastar af vísum Valla
eru eflaust „Fögur er hún Seyðisá/
séð af brúnni/ hvaða brú er það
nú þá/ það er brúin jamm og já.
Einnig vísan „Uppí Hæli voru tveir/
Jón og Tolli heita þeir./ Ef að ann-
ar þeirra deyr/ þá eru þeir ekki
lengur tveir." Aðspurður hvort vísa
hefði nýlega orðið tii svaraði Val-
garð: „Knútur Berndsen elti
sprund/ af henni dró hann kjólinn./
Faðma vildi feita hrund./ Hann er
nú meiri dóninn." Valgarð sagði að
Knútur Berndsen hefði nú lagt til
síðustu hendinguna og bæri hann
því litla ábyrgð á endi vísunnar.
Þó svo að Knútur Berndsen komi
ekki beint inn í þetta létta rabb
nema í gegnum nýjustu vísuna hans
Valla þá á hann ríkan þátt í því
að glaðværðin og óþvingað and-
rúmsloft réð ríkjum á tröppum
grunnskólans meðan þetta viðtal
átti sér stað.
Jón Sig.
Hreindýrin eru þjóðareign
Til Velvakanda.
Vegna mikilla frétta undanfarið
af hreindýraveiðiferð Karls Gú-
stafs Svíakonungs vil ég lýsa
megnri óánægju sem íslenskur
skotveiðimaður, sem hefur ekki
aðgang að hreindýraveiðum með
fyrirgreiðslu menntamálaráðu-
neytisins í þessu máli. Venja er
að svokallaðir aðstoðarmenn
hreindýraeftirlitsmanna sjái um
að skjóta hreindýrin skv. kvóta.
En nú var gefinn út aukakvóti að
hentisemi ráðuneytisins, svo að
kóngsi og meðreiðarsveinar hans
gætu náð sér í geislunarlaust
hreindýrakjöt fyrir veturinn. Ekki
hefði verið gagnrýnisvert ef kon-
ungur hefði fengið persónulega
að fella einn eða tvo tarfa, en tíu
dýr! Það er lítil hjörð! í þriðjudags-
blaði Moggans er haft eftir Birgi
Edvardssyni, vegna gagnrýni
skotveiðimanna á málinu, að ís-
lendingum sé heimilt að koma til
Svíþjóðar og veiða hirti og elgi.
Þetta eru orðin tóm. í fyrsta lagi
er óhemju dýrt að veiða í Svíþjóð,
þar er það heldrimanna íþrótt, og
í öðru lagi fá íslendingar ekki a
flytja það kjot með sér heim sem
þeir afla, en án þess er sönnum
veiðimönnum lítil ánægja af veið-
unum. Konungur lýsti yfir að hann
vildi koma aftur að ári. Við,
íslenskir veiðimenn, mótmælum
þessu allir meðan okkur er ekki
gert kleift að veiða hreindýrin sem
með réttu eru þjóðareign.
Veiðimaður
OPIÐ HUS
Blikksmiðjan, tæknideild Ó.J. & K. býður til kynn-
ingar á helstu nýjungum í loftræstikerfum dag-
ana 4. og 5. september nk.
Erlendir fyrirlesarar segja frá því nýjasta í rann-
sóknum á loftræsingu og heilbrigði á heimilum
og vinnustöðum. Fyrirlestrar verða á milli kl.
13.00 og 15.00 báða dagana.
Allir eru velkomnir á Smiðshöfða 9, Reykjavík.
BLIKKSMIÐJAN
kl JN!IU1
Smiðshöfða 9,112 Reykjavík, sími 91-685699.
BLUEBIRD
Nærfatnadur
FYRIR NUTIMA
MANNINN
Gódan daginn!