Morgunblaðið - 05.09.1989, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1989
Gagnrýni Sundsambands-
ins byggð á misskilningi
- segir Vilhjálmur Vilhjálmsson,
framkvæmdastjóri Islenskrar getspár
VILHJÁLMUR Vilhjálmsson framkvæmdastjóri íslenskrar get-
spár telur gagnrýni Sundssambands Islands á fyrirhugaðar bygg-
ingarframkvæmdir í Laugardal í samvinnu við íþróttasamband
íslands, vera á misskilningi byggða. „Þessi samþykkt Sundsam-
bandsins kemur mjög á óvart,“ sagði Sveinn Björnsson forseti
Iþróttasambands Islands. „Formaður Sundsambandsins sam-
þykkti þessa framkvæmd á sambandsstjórnarfundi í Borgarnesi
í apríl árið 1988 en þar var hún samþykkt einróma.“
Morgunblaðið/lílfar Ágústsson
Halldór Ásgrímsson og Kaj Egede, sjávarútvegsráðherra Grænlands, kynntu sér í gær starfsemina
Rækjuverksmiðjunni hf. á Isafírði.
Fyrirhuguð bygging verður um
2.400 fermetrar að stærð og koma
rúmir 1.200 fermetrar í hlut ís-
lenskrar getspár en í dag he'fur
fyrirtækið 800 fermetra til afnota
á tveimur stöðum í borginni. Að
sögn Vilhjálms hefur verið kannað
hvort hægt væri að notast við eitt-
hvað af því húsnæði sem laust er
í borginni en svo var ekki. „Það
húsnæði sem í boði er reyndist
óhentugt með tilliti til tölvubúnað-
arins. Hann er í hættu þar sem
hann er nú vegna vatnsaga og
kominn tími til að endumýja loft-
kælibúnaðinn. Þá má ekki gleyma
VEÐUR
öllum símalínunum, sem við verð-
um að hafa aðgang að inn í húsið
og erfitt er að koma fyrir í eldri
húsum,“ sagði Vilhjálmur.
Allt frá stofnun fyrirtækisins
hefur 1% af tekjum þess runnið í
sérstakan sjóð og er hann nú orð-
inn 30 milljónir króna. Sagði Vil-
hjálmur að vonir stæðu til að það
fé nægði til að koma upp fok-
heldri byggingu og standa vonir
til að þeim áfanga verði náð á
næsta ári. Áframhaldandi bygg-
ingarframkvæmdir tækju mið af
því fé sem í sjóðnum væri hveiju
sinni.
Landhelgi Grænlands:
íslendingum býðst að
veiða loðnu gegn gjaldi
íslendingum býðst nú í fyrsta
sinn að veiða 31.000 lestir af loðnu
í landhelgi Grænlands gegn gjaldi
sem enn hefúr ekki verið endan-
lega ákveðið, en verður væntan-
/ DAG kl. 12.00: r 'r 'r r
r r
f f Heimild: Veðurstofa Islands
/ / (Byggt á veðurspá kl. 16.15 I gaer)
VEÐURHORFURIDAG, 5. SEPTEMBER
YFIRLIT í GÆR: Við Jan Mayen er 986 mb. lægð sem þokast norð-
norð-austur og á vestanverðu Grænlandshafi er 995 mb. lægð sem
mun hreyfast aust-norð-austur. Heldur mun hlýna í veðri í biii.
SPÁ: Fremur hæg suð-vestanátt um mestallt landið. Lítils háttar
súld eða skúrir öðru hverju á Suðvestur- og Vesturlandi en þurrt
að mestu norðanlands. Bjart verður á Suðaustur- og Austurlandi
framan af degi en þykknar upp síðdegis og fer að rigna. Hiti 9-14
stig, hlýjast austan til á landinu.
í/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Fremur hæg vestan- og norð-vestan-
átt. Skúrir um vestanvert Norðurland og vestanlands, en bjartari
suðaustan- og austanlands. Hiti 5-8 stig.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Suð-vestan gola við suðurströndina en
víðast annars staðar hægviðri. Skýjað en að mestu úrkomulaust.
Hiti 6-9 stig.
TAKN:
x Norðan, 4 vindstig:
* Vindörín sýnir vind-
■J0° Hitastig:
10 gráður á Celstus
Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður • V Skúrir
er 2 vindstig. * Él
V
Léttskýjað r r r / / / / Rigning = Þoka
/ / / zzz Þokumóða
Hálfskýjað * / * 5 5 9 Súld
Skýjað r * r * Slydda oo Mistur
r * r
* * * 4 Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
Itkit VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 14 skýjað Reykjavík 9 úrkoma
Bergen 12 alskýjað
Helsinki 14 hálfskýjað
Kaupmannah. 17 léttskýjaö
Narssarssuaq 4 rigning
Nuuk 2 súld
Ósló 18 léttskýjað
Stokkhólmur 16 léttskýjað
Þórshöfn 11 súld
Algarve 28 þokumóða
Amsterdam 16 skýjað
Barcelona 23 skýjað
Berlín 18 skýjað
Chicago 16 alskýjað
Feneyjar vanar
Frankfurt 17 skýjað
Glasgow 15 skýjað
Hamborg 16 skýjað
Las Palmas 26 léttskýjað
London 19 skýjað
Los Angeles 16 heiðskírt
Lúxemborg 16 skýjað
Madrid 25 léttskýjað
Malaga 26 skýjað
Mallorca 28 skýjað
Montreal 10 léttskýjað
New York 17 heiðskírt
Orlando 24 alskýjað
París 18 skýjað
Róm vantar
Vín 13 skúr
Washington 17 hálfskýjað
Winnipeg vantar
Iega líkt því sem Færeyingar
greiða, en það er nú um 72 dan-
skar krónur fyrir tonnið.
Sjávarútvegsráðherrar íslands og
Grænlands funduðu á ísafirði í gær.
Þeir voru sammála um að sjávar-
spendýr væri auðlind sem bæri að
nýta, en þó hefur engin ákvörðun
verið tekin um að hefja hvalveiðar
að nýju.
Ráðherramir leggja mikla áherslu
á að rannsóknir á fiskistofnum verði
auknar. Þá ræddu þeir um aukið
samstarf þjóðanna vegna samninga
við Efnahagsbandalagið.
Kaj Egede sjávarútvegsráðherra
Grænlands sagði að Grænlendingar
hyggðu á loðnuveiðar innan fárra
ára, en í vetur yrði unnið að undir-
búningi. Hann sagði Grænlendinga
ekki hafa tekið þátt í hvalatalning-
unni sem farið hefur fram undanfar-
in ár, en þeir hefðu fylgst vel með,
því þeir vildu nýta hvalastofnana eins
og aðrar auðlindir hafsins.
Hann sagði að nú væru þjóðimar
farsællega búnar að semja um loðnu-
veiðarnar og þá bæri að taka upp
samninga um aðra stofna. Hann gat
þess einnig að líklega myndu græn-
lensk veiðiskip ekki landa rækju til
vinnslu á íslandi eftirleiðis, þar sem
grænlenskar rækjuverksmiðjur
þörfnuðust meiri rækju til vinnslu
og væru nú þegar farnar að kaupa
rækju af Kanadamönnum.
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra sagði að Landssamband
íslenskra útvegsmanna hefði undir-
búið samninga um lodnukaupin. Þó
sagði hann að nokkrir einkaaðilar
hefðu leitað samstarfs við Grænlend-
inga beint, svo sem loðnuverksmiðja
Einars Guðfinnssonar í Bolungarvík.
Voru ráðherramir sammála um
að loðnukvótanum yrði að einhveiju
leyti skipt milli LÍÚ og þessara aðila.
Úlfar
Byggmgarmenn gera
samning til áramóta
SAMBAND byggingarmanna undirritaði í gær kjarasamninga, sem
gilda til áramóta, en samningar Sambandsins runndu út um síðastlið-
in mánaðamót. Að sögn Benedikts Davíðssonar, formanns Sambands
byggingarmanna eru þeir í öllum megindráttum gvipaðir samningum
Alþýðusambands íslands frá því í vor, en þeir samningar gilda til
1. desember.
Samkvæmt samningnum hækka
laun um 2.500 krónur frá 1. septem-
ber, en ASÍ samningamir kváðu á
um 1.500 króna hækkun 1. septem-
ber og 1.000 krónur 1. nóvember.
Orlofs- og jólauppbót sem éru ein-
greiðslur samkvæmt ASÍ samning-
unum er dreift jafnt á samningstí-
mann vegna eðlis starfa byggingar-
manna. Aðildarfélög Sambands
byggingarmanna eru 21 um allt lanti.
Mjólkurfræðingar funduðu með
viðsemjendum sínum hjá ríkissátta-
semjara í gær. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins ber talsvert í
millum aðila. Samningar mjólkur-
fræðinga eru lausir frá 1. september
og hafa þeir aflað sér heimildar til
verkfallsboðunar. Þetta er fyrsti
fundurinn eftir að deilunni var vísað
til rikissáttasemjara á föstudaginn
var.
Jón Ingimarsson látínn
LÁTINN er á sextugasta og sjötta
aldursári Jón Ingimarsson skrif-
stofústjóri heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytisins. Jón fæddist að
Mosfelli í Grímsnesi 27. október
1923, sonur hjónanna Ingimars
Jónssonar, prests og síðar skóla-
stjóra í Reykjavík, og Elínborgar
Lárusdóttur skáldkonu.
Jón Ingimarsson lauk stúdents-
prófi frá MR 1943 og embættisprófi
í lögfræði frá Háskóla íslands 1953.
Hann starfaði hjá Tryggingastofnun
ríkisins frá 1953-1963 og við sjálf-
stæð lögfræðistörf 1963-1970 er
hann réðst til heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytisins, fyrst sem
deildarstjóri en síðan sem skrifstofu-
stjóri. Því embætti gegndi Jón til
dauðadags.
Jón Ingimarsson gegndi um ævina
ýmsum trúnaðarstöðum fyrir íþrótta-
hreyfinguna og Alþýðuflokkinn, auk
þess sem hann sat í alþjóðlegum
nefndum á sviði heilbrigðis- og
tryggingamála fyrir íslands hönd.
Þá sat hann um árabil í stjórnar-
nefnd Ríkisspítalanna og var formað-
Jón lngimarsson
ur stjórnar Atvinnuleysistryggingar
sjóðs.
Jón Ingimarsson kvæntist eftirlil
andi eiginkonu sinni, EÍínu Guf
mannsdóttur tannlækni, árið 1951
Þau eignuðust þijú börn.