Morgunblaðið - 05.09.1989, Blaðsíða 26
26
MORCíUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR á. SEPTEMBER 1989
Borgaraflokkurinn;
Samþykkt að ganga tíl
liðs við ríkisstjórnina
Morgunblaðið/Einar Falur
Frá fundi aðalstjórnar Borgaraflokksins á laugardag. Lengst til
vinstri er Guðmundur Agústsson, þingmaður, og svo ráðherraefnin
Júlíus Sólnes og Óli Þ. Guðbjartsson.
AÐALSTJÓRN Borgaraflokks-
ins ákvað á fundi síðdegis á laug-
ardag að ganga til liðs við ríkis-
sljórnina. Fundur aðalstjórnar-
innar stóð á þriðju klukkustund
og var ríkisstjórnarþátttakan
samþykkt með sautján atkvæðum
gegn einu. Var það Hörður
Helgason sem greiddi atkvæði á
móti. Jafnframt var samþykkt að
ráðherraefni flokksins verði þeir
Júlíus Sólnes, formaður flokks-
ins, sem verður ráðherra án
ráðuneytis til að byrja með, en
tekur siðan við umhverfismála-
ráðuneyti þegar það verður
stofnað, og Óli Þ. Guðbjartsson,
formaður þingflokks Borgara-
flokksins, sem verður dóms- og
kirkjumálaráðherra í stað Hall-
dórs Ásgrímssonar. Hlutu þeir
Július og Óli þrettán atkvæði
Viðbrögð stjórnar og stjórnarandstöðu:
Met þetta sem eitt stórt núll
- segir Þorsteinn Pálsson
BORGARAFLOKKUR mun um næstu helgi taka sæti í ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar. Flokkurinn. hefúr staðið í viðræðum
við ríkisstjómina allt frá síðasta ári og urðu þær samningaviðræð-
ur til þess að tveir þingmanna flokksins, þeir Ingi Björn Alberts-
son og Hreggviður Jónsson, sögðu sig úr fiokknum og stofnuðu .
sinn eigin flokk, flokk Fijálslyndra hægri manna. Nú hefúr Borg-
araflokkurinn náð saman með stjórninni og munu hinir fimm þing-
menn hans ganga til liðs við hana. Morgunbiaðið spurði nokkra
fúiltrúa stjómar og stjóraarandstöðu álits á þessu.
Eitt stórt núll
„Ég met þetta sem eitt stórt
núll. Annað er ekki hægt að segja
um þetta mál pólitískt," sagði
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins. „Þeir sem greiddu
atkvæði með og hleyptu ekkna-
skattinum í gegn í fyrra hefðu
stutt þessa ríkisstjóm á næsta
vetri til hvaða óheillaverka sem er.
Verkstjórinn í ríkisstjórninni er
eflaust að reyna að gera stöðu
uppreisnarafla í stjórnarflokkun-
um örðugari með þessu en vitað
er að mikil óánægja er í stjórnar-
flokkunum, og uppi kröfur um
breytta stefnu og kosningar. Inn-
ganga Borgaraflokksins í ríkis-
stjórnina breytir þó engu í þeim
efnum. Það á áfram að byggja á
sömu stefnunni og segir þessi við-
bót ekkert til um þáð hvort ríkis-
stjórnin lifi lengur eða skemur.
Niðurstaðan hvernig sem á málið
er litið er pólitískt núll.“
_ Þorsteinn sagði formhliðina á
málinu hins vegar vera mjög alvar-
lega. Forsætisráðherra hefði við-
urkennt að það samrýmdist ekki
stjómarráðslögum að skipa ráð-
herra án stjómardeildar. Það væri
mjög alvarlegt ásökunarefni ef
ríkisstjómin ætlaði að ganga á
svig við stjómarráðslögin og ljóst
að óveijandi væri að setja bráða-
birgðalög sem breyttu þessu
grundvallaratriði í íslenskri stjórn-
skipan. „Ríkisstjóm sem getur
ekki ráðið við útgjöld ríkisins ætti
að byrja á einhveiju öðru en að
•fjölga ráðherrum sem hafa ekki
einu sinni verkefni. Þó að þetta
virðist fyrst og fremst vera hlægi-
legur skrípaleikur sem hefur stað-
ið mánuðum saman þá er þetta í
raun mjög alvarlegt því þetta snýst
ekki um leik heldur ríkisstjóm ís-
lands,“ sagði Þorsteinn Pálsson.
Valdagræðgi og
hégómagirnd
„Maður veit ekki hvort maður
á segja að þetta sé grátbroslegt
eða bijóstumkennanlegt,“ sagði
Þórhildur Þorleifsdóttir, formaður
þingflokks Kvennalistans. „Inni-
haldsleysi þessa leikrits sem við
höfum fylgst með mánuðum sam-
an er átakanlegt en það hefur
afhjúpað þeim mun betur valda-
græðgi og hégómagirnd. Menn
hafa fylgst með hvernig enginn
vill sleppa sínu en þetta er því
miður kannski einkenni stjórn-
mála.
í raun hefur mér fundist þetta
mjög andlýðræðislegt og kannski
hættulegt lýðræðislegri hugsun.
Þama er ríkisstjórn sem hefur
ákaflega lítinn stuðning, og greini-
lega æ minni, en reynir að styrkja
sig í sessi með því að fá þetta
vesældarlega margklofna flokks-
brot til liðs við sig. Maðurinn sem
stofnaði flokkinn og átti allt fylgið
á bak við hann er ekki bara kom-
inn út í lönd heldur hefur lýst því
yfir að hann ætli að starfa með
öðmm flokki. Þetta má fólkið í
landinu horfa upp á, þessa skram-
skælingu á lýðræði þar sem vilji
fólksins er að engu hafður og bara
barist um sætin. Svona aðferðir,
sem viðhafðar hafa verið í þessu
máli vekja almenna hneykslan og
fyrirlitningu og grafa undan trú
fólks á lýðræði og stjórnmála-
mönnum og var nú ekki úr háum
söðli að detta þar.“
Þórhildur sagðist ekki halda að
innganga Borgaraflokksins í ríkis-
stjómina myndi breyta neinu. Hún
teldi hann ekki hafa burði til þess.
„Það varð sífelld gengislækkun á
málefnum Borgaraflokksins og ég
get ekki séð að þeir hafi tryggingu
fyrir einu eða neinu nema ein-
hveijum völdum sem þó era ekki
mjög merkileg," sagði Þórhildur.
Hún sagði þetta ekki koma til
með að breyta neinu hvað varðaði
þá afstöðu Kvennalistans að það
eina sem hægt væri að gera í stöð-
unni væri að fara í kosningar.
Borgaraflokkur er
vinstriflokkur
„Þetta era okkar fyrrverandi
félagar en leiðir hafa algjörlega
skilið. Borgaraflokksmenn hafa
ákveðið að staðfesta sig sem vinst-
riflokk,“ sagði Ingi Björn Alberts-
son, þingmaður Fijálslyndra hægri
manna. „Við hins vegar hörmum
að þessi stjóm skuli hafa styrksts
með þessum hætti. Væntanlega
gæti gæti það leitt til þess að
lífdagar hennar muni lengjast.
Ingi Bjöm sagðist telja að sama
skattpíningarstefnan yrði áfram
uppi á teningnum hjá ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar og
verið hefði. Innganga Borgara-
flokksins breytti engu þar um.
Þeir hefðu stutt eignaskattinn á
sínum tíma og myndu eflaust
styðja skattinn á fjármagnstekjur.
„Það er aftur á móti athyglisvert
hvað Borgaraflokkurinn fær lítið
fyrir sinn snúð. Ég sagði á Al-
þingi í vor að verðið væri ekki
hátt sem hengi á verðmiðanum á
Borgaraflokknum. Nú er hins veg-
ar komið í ljós að það er enn lægra
en ég gerði mér grein fyrir.“
Ingi Bjöm sagði að sér skyldist
sem svo að embætti forseta neðri
deildar félli í skaut Borgaraflokks-
ins. Væri hann mjög spenntur yfir
að sjá hvort það yrði Ásgeir Hann-
es Eiríksson eða Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir. Það mætti þó ætla að
það yrði Aðalheiður þar sem hún
væri koná og hefði meiri þing-
reynslu. „Það verður spennandi
fyrir okkur þingmenn neðri deildar
að sjá hvor verður fyrir valinu.“
Engin steftiubreyting
„Þetta þýðir enga stefnubreyt-
ingu,“ sagði Eiður Guðnason, for-
maður þingflokks Alþýðuflokksins
„Það er byggt á stjórnarsáttmála
fyrri stjórnar með svo litlum við-
bæti. En þetta þýðir auðvitað að
gangur mála stjórharinnar í gegn-
um þingið verður greiðari og þing-
störf ættu að geta gengið betur
fyrir sig fysrt ríkisstjórnin verður
nú með meirihluta í báðum deild-
um.“
Þingflokkur Alþýðuflokksins
kom saman til fundar síðdegis í
gær og var þar m.a. rætt um inn-
göngu Borgaraflokksins. Eiður
sagði þingflokkinn vera jákvæðan
gagnvart þessari stjórnarbreyt-
ingu enda hefði formaðurinn feng-
ið umboð á sínum tíma til þess
að ganga frá þessum samningum.
Eiður sagði að enn hefði ekki
verið gengið frá því hvernig hagað
yrði skipan ráðherra án ráðuneyt-
is. Það væri enn á athugunar-
stigi. Aðspurður sagði hann al-
þýðuflokksmenn ekki hafa tekið
endanlega afstöðu til þess hvort
rétt væri að gera það með bráða-
birgðalögum.
Styrkir stjórnina
„Ég tel þetta styrkja ríkisstjórn-
ina og auka möguleika hennar á
að koma í framkvæmd þeim mikil-
vægu umbótum sem hún hefur
unnið að,“ sagði Ólafur Ragnar
Grímsson, fjármálaráðherra og
formaður Alþýðubandalagsins.
Hann sagði það vera ljóst að fyrsta
ár stjórnarinnar hefði verið ár
björgunaraðgerða eftir það stór-
slys sem ríkisstjórn Þorsteins Páls-
sonar hefði leitt yfir þjóðina. Nú
væri komið að því að leita nýrra
leiða og takast á við þann vanda
sem hefði safnast upp á undan-
fömum áram. Til þess þyrfti að
styrkja undirstöðuna.
„Við verðum líka að líta á að
þessi Borgaraflokkur sem nú
gengur til liðs við ríkisstjómina
hefur breyst nokkuð frá sinni
upprunalegulegu mynd. Albert
Guðmundsson hefur gerst sendi-
herra og að því er virðist stjórn-
málaskýrandi í París. Þá hafa þeir
Hreggviður Jónsson og Ingi Björn
Albertsson myndað sinn eigin
hægriflokk. Það fólk sem eftir sit-
ur er margt mótað félagslegum
viðhorfum og vænti ég góðs sam-
starfs við það. Fagna ég því sér-
staklega að með Aðalheiði Bjarn-
freðsdóttur á nú baráttukona lág-
launafólks í fyrsta sinn aðild að
ríkisstjórn.“
Þegar Ólafur Ragnár var spurð-
ur um afstöðu sína til skipan ráð-
herra án ráðuneytis sagði hann
marga telja að skipan slíks ráð-
herra væri fullkomlega heimil
samkvæmt núgildandi lögum.
Þetta tíðkaðist líka í nær öllum
löndum mpð hliðstæða stjórnskip-
an og á íslandi og væri t.d. al-
gengt í Bretlandi. „Eg tel fullkom-
lega eðlilegt að taka þetta upp hér
og hef lengi verið þeirrar skoðunar
að hér þyrfti að vera hægt að
skipa ráðherra sem gæti tekið að
sér þverfagleg verkefni. Ég tel að
það sé hægt á grandvelli núver-
andi stjórnarráðslaga, einnig er
það hægt með bráðabirgðalögum
og loks má gera það með því að
tengja hinn nýja ráðherra með
formlegum hætti við Hagstofuna.
Sjálfstæðismenn ættu frekar en
að kvarta að fagna því að þetta
skuli vera tekið upp hér. En þeir
era líklega sárir yfir því að þetta
skuli ekki hafa verið tekið upp
þegar Þorsteinn Pálsson hafði ný-
lega verið skipaður formaður og
vantaði ráðherrastól."
hvor en þeir Ásgeir Hannes
Eiríksson og Guðmundur Ágústs-
son fimm atkvæði hvor.
Að loknum fundinum gekk Júlíus
Sólnes inn á skrifstofu sína og til-
kynnti símleiðis Steingrími Her-
mannssyni, forsætisráðherra, um
úrslit fundarins.
í þessari viku verður unnið að
því að bæta því við stjórnarsáttmál-
ann sem samkomulag hefur tekist
um milli ríkisstjórnarinnar og Borg-
araflokksins og í lok vikunnar er
ætlunin að æðstu valdastofnanir
flokkanna komi saman til að sam-
þykkja inngöngu Borgaraflokksins
í stjórnina.
Boðað hefur verið til fundar í
miðstjórn Framsóknarflokksins á
fimmtudagskvöld, í miðstjórn Al-
þýðubandalagsins á föstudag og
laugardag og flokksstjórn Alþýðu-
flokksins kemur saman til fundar á
laugardagsmorgun. Er stefnt að því
að nýtt ráðuneyti Steingríms Her-
mannssonar taki við um næstu helgi
eftir ríkisráðsfund sem haldinn
verður á sunnudag.
Þetta er í annað skipti sem
stjórnmálaflokkur gengur inn í sitj-
andi stjórn án þess að kosningar
fari fram. Slíkur atburður átti sér
einnig stað við myndun Þjóðstjórn-
arinnar í apríl 1939 er Sjálfstæðis-
flokkur gekk til liðs við ráðuneyti
Hermanns Jónassonar.
Albert Guð mundsson;
Lokaþáttur
í harmleik
„ÞETTA er lokaþáttur í harm-
leik,“ sagði Albert Guðmunds-
son, stofiiandi Borgaraflokksins
og fyrsti formaður hans. „Ég
held að flokkurinn sé búinn að
vera og þeir gera sér alveg grein
fyrir því. Þetta er bara þáttur í
því að koma í veg fyrir kosning-
ar því þeir vita að flokkurinn er
ekki til lengur."
Albert sagði að stefnubreyting
hefði orðið hjá Borgaraflokknum á
Alþingi síðasta vetur þegar sumir
þingmenn hans hefðu samþykkt að
standa að skattahækkunum. Síðan
hefði flokkurinn verið vinstri flokk-
ur. „Það varð bylting í flokknum.
Flokkurinn hefur ekki verið eins og
til var stofnað síðan hann klofn-
aði,“ sagði Albert.
Kaup Landsbanka á 52% hlut í Sam-
vinnubanka:
Hef ekki enn fengið
málið til umfjöllunar
- segir viðskiptaráðherra
„ÉG ER hlynntur yfirtöku Lands-
bankans á Samvinnubankanum,
enda er hún skynsamleg,“ sagði
Jón Sigurðsson, viðskiptaráð-
herra. „Hins vegar bíð ég enn eft-
ir að fá málið til umfjöllunar. Til
að af þessu verði þarf leyfi við-
skiptaráðherra og atbeina löggjaf-
ans til að Landsbankinn geti nýtt
þann hlut, sem hann ráðgerir að
kaupa, sér til atkvæðamagns í
hlutafélaginu Samvinnubanki Is-
lands hf.“ Pétur Sigurðsson, for-
maður bankaráðs Landsbankans,
segir að fyrst þurfi stjórn bankans
að samþykkja samkomulagið um
kaupin, en að því loknu verði öll
lagaskilyrði uppfyllt.
Ráðherra sagði að honum hefði
verið skýrt frá viðræðum Lands-
bankans við Sambandið fyrr í sum-
ar, en síðan ekki verið sögð á málinu
nánari deili. „Á þessu eru vafalaust
skýringar, þó ég hafi ekki heyrt
þær. Ég á von á nánari upplýsingum,
þegar bankaráð og bankastjórnin í
heild hafa fjallað um málið."
„Við verðum fyrst að kanna það,
hvort meirihluti er í stjórn Lands-
bankans fyrir kaupunum. Síðan
munu stjómendur bankans að sjálf-
sögðu uppfylla öll lagafyrirmæli, sem
fylgja þessari stækkun bankans,"
sagði Pétur Sigurðsson.