Morgunblaðið - 05.09.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1989
19
er því fyrir hendi löng reynsla, bæði
í námsefnisgerð, kennslu og rekstri
fjarkennslustofnunar.
Ein af ástæðunum fyrir því að
menn t.d. sækjast eftir að stunda
nám í Bréfaskólanum er sú að þar
geta þeir ráðið námshraðanum sjálf-
ir og eru lausir við að sitja í hóp þar
sem ríkir samanburður og sam-
keppni. Sumir vilja ekki láta nokkurn
mann vita að þeir séu í námi, biðja
um ómerkt umslög eða sækja sjálfir
svör kennaranna í stað þess að láta
senda sér þau. Af þessu má sjá að
það er ekki vandkvæðalaust að höfða
til þeirra sem mest þarfnast mennt-
unar. Náms- og starfsráðgjöf er t.d.
nauðsynleg í fullorðinsfræðslu, sér-
staklega í íjarkennslu.
Bréfaskólinn hefur nú í eitt ár
boðið upp á námsráðgjöf í síma og
hafa nemendur óspart nýtt sér það.
Finnar, Norðmenn og. Svíar hafa
undanfarin ár þróað fjarkennslu í
fullorðinsfræðslu og nýtt margs kon-
ar tæknibúnað svo sem tölvur í neti,
tölvupóst, síma, sjónvarp og útvarp
fyrir utan ritað námsefni. Sumt af
þessum tæknibúnaði er dýrt í notkun
t.d. sjónvarp og er aðeins notað þeg-
ar sjónvarpskennsla getur verulega
bætt við ritað námsefni, kastað nýju
ljósi á inntak námskeiðsins. Reynsla
þessara þjóða er sú að skipulagning
og hönnun námskeiðsins í rituðu
máti, sem nemendur fái í hendur,
skipti langmestu máli um árangur
af námskeiði. Þetta kemur heim og
saman við reynslú þeirra í Open
University í Bretlandi. Námsgögnin
(textar) þurfa að vera vandlega og
fagmannlega unnin ef námskeið á
að ganga vel. Til þess þarf ekki að-
eins þekkingu í viðkomandi náms-
grein heldur líka og ekki síður kunn-
áttu og þjálfun í kennslufræði og
námsgagnagerð.
Bréfaskólinn
Af þessu má sjá að nýta má Bréfa-
skólann í starfsmenntun fyrir full-
orðna nemendur í vel skipulagðri
fjarkennslu. Það er bæði ódýr og
hentug lausn miðað við aðrar leiðir
sem hafa fram til þessa verið notað-
ar. Hlutverk Bréfaskólans í starfs-
menntun með Ijarkennslu hefur verið
vaxandi undanfarin misseri og hefur
skólinn tekið upp samvinnu við marg-
ar aðrar menntastofnanir. Nemenda-
ijöldi hefur aukist á þessu ári þrátt
fyrir mikið annað framboð af mennt-
un og sýnir það tvírætt að hans er
þörf. Nú er einnig notast við hljóð-
bönd og myndbönd í kennslunni auk
kennslubréfanna. Síminn er líka mun
meira notaður í samskiptum kennara
og nemenda en áður var og fyrir-
hugað er að skipuleggja fundi eða
kennsludaga í ákveðnum námskeið-
um á næsta ári. Með námsráðgjöf
er betur stutt við bakið á nemendum
og nú er í athugun að reyna líka á
næsta ári að taka tölvur í notkun
sem hjálpartæki í ijarkennslu. Eink-
um eru þá hafðar í huga þarfir sjó-
manna en þeir fylla stóran hóp nem-
enda í Bréfaskólanum. Síðan í októ-
ber í fyrra hafa 58 manns tekið þátt
í námskeiði í siglingafræði. Þetta er
dæmi um hvernig Bréfaskólinn getur
komið til móts við þarfir fóiks hvar
svo sem þeir eru búsettir á landinu.
Fleiri starfsmenntunarnámskeið
ganga nú líka vel s.s. bókavarðanám,
sauðfjárrækt, landbúnaðarhagfræði,
bókfærsla o.fl. Auk þess er alltaf
ásókn í önnur námskeið, t.d. skóla-
greinar og erlend tungumál.
Við stöndum nú á tímamótum.
Fyrir hendi er að móta stefnu um
fullorðinsfræðslu í landinu. Margs
er að gæta eins og drepið hefur ver-
ið á hér að framan og mikið er í
húfi. Þó að mest hafi verið rætt um
starfsmenntun í þessari grein verður
að hafa í huga í allri fræðslustarf-
semi að gildi menntunar felst fyrst
og fremst í betri sjálfsþekkingu ein-
staklingsins, víðari sjóndeildarhring
og meiri lífsfyllingu.
Höfundur er skólastjóri
Bréfaskólans.
æ Ármúla 29 símar 38640 - 686100
£ Þ0RGRÍMSS0N & C0
Armstrong LDFTAPLUTUR
KOBKORAST GÓLFFLÍSAR
T^fÁRMAPLAST EINANGRUN
GLERULL STEINULL
** BSANKANS
Verðbréf
areikningur
nr.
07.8
300
Á Verdbréfareikning er hœgl ad skrá
öll verðbréf sem VIB hefur á boðstólum:
Sjóðsbréf 1,2,3 og 4, bankabréf skulda-
bréf Glitnis, Iðnlánasjóðs og spari-
slárteini. Einnigmáskrá hlutabréfsem og
önnur verðbréf á markaðnum.
VIB
1 * 06.89 til 3i,
’fgun
SKATTFRAMTAL1389
400.000
400.000
0
0
Í.08.89
Nafnverð/ '• f 3 • staka Kaupverð Eign
314,5923 100.000 800.000 ’ 600.000 300.000 , 294,1176 jn 300.000 i6®.Ooo 810.350 1 591.882 273.44,] 400.000 418.670' 191.904 •037.680 ?42.3eo 337.149 404.705
Þeim sem þwfa
að hugsa um eignar-
skattinn stendur til
boða að kaupa spari-
skírteini ríkissjóðs sem
eru eignarskattsfrjáls og
hlutabréf sem eru eign-
arskattsfrjáls upp að
vissu marki.
---——
ÍSSiÍ___
sanitals
32,488
Lágmarksupphæð sem þarf til að
stofna Verðbréfareikning er 500.000
krónur. Þóknun fyrir umsjón með
Verðbréfareikningi er 0,6% af heild-
areign undir 3 milljónum, 0,4% af
heildareign sem er 3-6 milljónir og
0,2% af heildareign sem er hærri
en 6 milljónir. Þóknunin er tekin
tvisvar á ári, 1. júní og 1. desem-
ber; 0,3, 0,2 eða 0,1% íhvort
skiptí.
Helga Valfells ráðgjafi VIB sér
um Verðbréfareikninganá og alla
þjónustu við eigendur þeirra. Þannig
kynnist hún vel þörfum og sér-
stökum óskum hvers viðskiptavinar
og getur fyrir vikið veitt erm betri og
persónulegri þjónustu.
Hver og einn hinna 9 ráðgjafa
VIB getur þó gefið allar upplýsingar
um Verðbréfareikninginn og aðra
þjónustu VIB. Það er líka velkomið
að koma við á skrifstofu okkar að
Armúla 7 eða hringja og fá upp-
lýsingabækling um Verðbréfareikn-
ing sendan heim.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ármúla 7, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30
Heildarupphæð vinninga
02.09. var 8.153.404.
Enginn hafði 5 rétta, sem
var kr. 4.641.487.
Bónusvinninginn fengu 1
og fær hann kr. 520.416.
Fyrir 4 tölur réttar
fær hver kr. 8.235
og fyrir 3 réttar tölur
fær hver um sig kr. 549.
Sölustaðir loka 15 mínútum fyrir út-
drátt í Sjónvarpinu.
Sími 685111.
Upplýsingasímsvari 681511
Lukkulínan: 99 1002