Morgunblaðið - 05.09.1989, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1989
23
skelfist tilhugsunina um slíka
stjórn, því hætt er við að ítök hans
í sjóðakerfinu yrðu endaslepp eftir
að hún tæki við.
Þótt reynslan af viðreisnarsam-
starfinu hafi verið góð getur verið
að um þessar mundir séu ekki sömu
skilyrði fyrir farsælu samstarfi milli
þeirra flokka sem að viðreisnar-
stjórninni stóðu og þá, enda byggð-
ist viðreisnin á trausti milli manna.
Þá fóru fyrir Alþýðuflokknum menn
sem ekki blöktu eins og strá í vindi
við minnsta andvara.
/
Persónugervingur
gróðahyggjunnar
Stefán Valgeirsson velur mér
ýmsar einkunnir í grein sinni. Hann
kallar mig ftjálshyggjupostula og
segir mig „persónugerving gróða-
hyggjunnar í sinni vitund“. Orðið
ftjálshyggja hefur glatað allri
merkingu nema sem skammaryrði
í dægurþrasi. Ég kann því samt
engan veginn illa að vera kenndur
við ftjálsan hug eða ftjálsa lund.
Ef það er ftjálshyggja að álíta
sjálfsaflafé einstaklinganna betur
komið hjá fólkinu sjálfu en í hönd-
unum á Stefáni Valgeirssyni, þá er
ég ftjálshyggjumaður. Ef það er
ftjálshyggja að telja að ráðstöfun
ijár úr opinberum sjóðum megi
koma haganlegar fyrir en með því
að Stefán Valgeirsson þukli pening-
ana áður en þeir eru greiddir út,
þá er ég ftjálshyggjumaður.
Það gleður mig að ég skuli skipa
svo virðulegan sess í huga Stefáns
Valgeirssonar að mega kallast per-
sónugervingur gróðahyggjunnar í
vitund hans. Ef það er gróðahyggja
að vilja að fyrirtæki hagnist og
byggi sig upp, svo þau geti veitt
fólki örugga atvinnu á góðum laun-
um, þá hefur Stefán rétt fyrir sér.
Þá er ég gróðahyggjumaður.
Stefán heldur að hann sé talinn
„persónugervingur fyrir þeirri
stefnu að vilja rétta hlut lands-
byggðar og lítilmagnans". Vera má
að svo sé. Árangurinn af verkum
hans til að rétta hlut landsbyggðar
má þá væntanlega sjá í þrauta-
göngu sjávarútvegsins. Rekstrar-
• halli hraðfrystiiðnaðarins er nokk-
urn veginn nákvæmlega jafn mikill
og fyrir ári, ef millifærslupening-
arnir eru frátaldir. Vafalaust líta
ekkjurnar á Stefán sem sérstakan
málsvara sinn, ekki síst eftir að
hann greiddi ekknaskattinum at-
kvæði sitt.
Árangur ríkisstjórnarinnar
. Stefán hefur af og til haft í hót-
unum við ríkisstjórnina um að hann
léti af stuðningi við hana ef henni
tækist ekki að sýna fram á meiri
árangur af verkum sínum. Fetar
hann að þessu leyti í fótspor fyrrum
flokksformanns síns, og varpar allri
ábyrgð af eigin verkum yfir á aðra.
Hvað svo sem líður árangri eða
árangursleysi ríkisstjórnarinnar
verður ekki af henni skafið að hún
hefur náð árangri í að skýra fýrir
fólki hvað leynist að baki einkunn-
arorðum hennar, jafnrétti ogfélags-
hyggju. Sá árangur skyldi ekki van-
metinn. Jafnréttið reynist felast í
sjóðakukli og mismunun. Félags-
hyggjan birist í ekknaskattinum ill-
ræmda, sem gæti leitt til þess að
ekkjur og ekklar hrekist af heimil-
um sínum hafandi unnið það eitt
til saka að hafa misst maka sinn.
Ný atvinnustefna
Stjórnarkreppunni, sem staðið
hefur samfleytt frá því að úrslitin
í alþingiskosningunum 1987 lágu
fyrir, linnir ekki fyrr en að afloknum
næstu kosningum. Þá þurfa að taka
til hendinni stjórnmálaöfl sem
reiðubúin eru til að takast á við
stórverkefnin sem nú blasa við.
Þessi verkefni eru að lækka fram-
leiðslukostnað búvöru og fram-
færslukostnað heimilanna án þess
að sveitir landsins leggist í auðn,
að draga saman afkastagetu fiski-
skipastóls og fiskvinnslustöðva til
samræmis við afrakstur fiskistofna
án þess að komi til stórfelldrar
byggðaröskunar, og að taka að
nýju upp vestræna stjórnarháttu í
atvinnumálum og aukið samstarf
við nágranna- og viðskiptaþjóðirnar
í efnahagsmálum. En þá verður
ekki leitað ráða hjá Stefáni Val-
geirssyni. •
Höfundur er ln igfræðingur.
Hleðsla breiðþotna á Keflavíkurflugvelli:
Flugleiðir íhuga
kaup á tækjum
FLUGLEIÐIR hafa í athugun kaup á tæki til iileðslu inn á efra þil-
far breiðþotna, en fulltrúar Flugfax á íslandi, umboðsaðila flugfélags-
ins Federal Express, hafa kvartað undan því að slík tæki skorti á
Keflavíkurflugvelli og það torveldi flutninga með breiðþotum félags-
ins. Hafa þeir boðist til þess að sjá sjálfir um hleðslu og affermingu
vélanna, en Flugleiðir hafa einkarétt á því á Keflavíkurflugvelli.
„Ef það telst réttlætanlegt miðað
við þá flutninga sem um ræðir þá
verða tækin að sjálfsögðu keypt,“
sagði Gunnar Ólsen, stöðvarstjóri
Flugleiða í Keflavík, aðspurður um
þetta mál. „Það hefur þegar verið
leitað eftir tilboðum í þessi tæki,
þannig að málið er komið á rek-
spöl. Það hefur verið beðið eftir
Flugfaxmönnum til að setjast niður
og ræða málin og hefur verið
margítrekað við þá bæði bréflega
og með skeyti að fara að hittast,“
sagði Gunnar ennfremur.
Hann sagðist fastlega gera ráð
fyrir að tækið yrði keypt á næst-
unni strax og fundur fengist með
fulltrúum Flugfax og skýrðist hver
væri raunveruleg þörf fyrir það.
Ef bú ert í nánu sambandi
veistu hvar bú stendur
Þjónustusíminn veitir þér bíða eftir reikningsyfirliti Ný staða strax kostar eitt
upplýsingar um nýjustu eða hringja í bankann. Þú símtal og þú greiðir ekkert
stöðuna á tékka- hringir í síma: (91) þjónustugjald.
reikningnum og 20 síðustu Lykillinn að Þjónustu-
færslur. Þú getur hringt og færð gefna upp nýjustu símanum er leyninúmer
hvenær sem er — á nóttu stöðu strax. Hægt er að sem þú velur í bankanum
sem degi. hringja úr hvaða tónvals- þínum. Fáðu þér kynningar-
Einfalt, öruggt, þægilegt síma sem er — heima eða bækling og settu þig í
Nú þarftu ekki lengur að erlendis. samband strax.
Vertu í beinu sambandi við Þjónustusímann og þú veist alltaf hvar þú stendur
62 44 44
BEIIM LÍIMA
BAIMKA UIVI LAIMO ALLT
LANDSBANKINN ALÞÝÐUBANKINN ÚTVEGSBANKINN IÐNAÐARBANKINN
VERSLUNARBANKINN SAMVINNUBANKINN BÚNAÐARBANKINN
TÍSKULISTINN
+
Við kynnum á íslandi nýjan spennandi pöntunarlista,
MADELEINE, fyrir kvenfólk sem gerir kröfur. MADELEINE
býður klassískan þýskan tískufatnað í hæsta gæðaflokki,
ekkert er til sparað og gæðakröfurnar eru aðalatriði.
MADELEINE hefur alls staðar hlotið frábærar viðtökur og nú
getum við notið þess að versla heima' hjá okkur frábæra vöru
í meira úrvali en við sjáum almennt í nokkurri verslun.
Einnig yfirstærðir. Njóttu þess besta - gerðu áhættulaus kaup!
Pöntunarsími: 91-50200
Listinn fæst í afgreiðslu QUELLE í Hjallahrauni 8 í Hafnarfirði eða í kröfu. Verð kr. 150
burðargjald.