Morgunblaðið - 05.09.1989, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 05.09.1989, Blaðsíða 29
MQffGIJNEjLApiÐ J>RIE)JUDAG.UR 5. SEPTEMBER 1989 29 Geir Haarde hittir Bretadrottningu að máli: Elísabet II segist hlakka til að heimsækja Island ELÍSABET II Bretadrottning lét svo ummælt í gær að hún hlakk- aði til að koma til íslands næsta sumar, að sögn Geirs Haarde alþingismanns. Geir er formaður íslandsdeildar Alþjóðaþing- mannasambandsins (IPU) og sat því boð drottningar við upphaf ráðstefnu sambandsins sem hófst í gær í Lundúnum. „Þegar ég heilsaði drottningunni virtist heimsóknin til íslands henni ofar- lega í huga og sagði hún að maður sinn hefði sagt sér margt um land og þjóð,“ sagði Geir Haarde í samtali við Morgun- blaðið. Filippus prins hefur margsinnis haft viðdvöl á Islandi en Elísabet drottning hefur aldr- ei komið hingað til lands. Alþjóðaþingmannasambandið þingar tvisvar á ári en mikið er um dýrðir að þessu sinni því þess er minnst að hundrað ár eru frá stofn- un sambandsins. Að sögn Geirs Haarde eru 1.300 fulltrúar á ráð- stefnunni frá 108 löndum og hefur þátttaka aldrei verið meiri. Auk Geirs Haarde sitja ráðstefnuna fyr- Elísabet Englandsdrottning ir hönd íslenskra alþingismanna Geir Gunnarsson, Júlíus Sólnes, Kristín Einarsdóttir og Sighvatur Björgvinsson. Að sögn Geirs Haarde eru .helstu umræðuefni ráðstefnunnar, sem stendur í viku, hagnýting geimsins og matvæla- og fólksfjölgunar- vandamálið í heiminum. „Það kom fram tillaga frá vestur-þýsku þing- mönnunum um að ástandið í Kína yrði rætt á ráðstefnunni og greiddu fulltrúar vestrænna ríkja, og þar á meðal við, henni yfirleitt atkvæði en hún var engu að síður felld,“ sagði Geir Haarde. Einnig liggur fyrir umsókn frá líbýska þinginu um aðild en að sögii Geirs er vafa- mál hvort það þing geti talist lög- gjafarsamkunda og uppfylli þarmeð skilyrði fyrir aðild. Meðal þingfulltrúa er sendinefnd frá Argentínu sem enn á formlega í stríði við Bretland síðan barist var um Falklandseyjar. Að sögn Reut- ers-fréttastofunnar sögðu nokkrir félagar í breska Ihaldsflokknum í síðasta mánuði að nærvera arg- entínsku sendinefndarinnar gæti styggt Bretadrottningu, sem setti ráðstefnuna í gær. Breski Verka- mannaflokkurinn hefur hins vegar fagnað þessari heimsókn og sagt að hún sé skref í átt til eðlilegra samskipta ríkjanna. Reuter Leiðtogafundur óháðra ríkja í Júgóslavíu Leiðtogafundur samtaka óháðra rílqa hófst í Belgrað í Júgóslavíu í gær og stend- ur hann yfir í fjóra daga. Á fundinum tóku Júgóslavar við forystu í samtökunum af Zimbabwe-mönnum til næstu þriggja ára. Nokkur ágreiningur reis á milli leið- toga hófsamra ríkja eins og Júgóslava, Egypta og Indvetja, sem telja að tími sé kominn til að breyta orðum í athafnir hvað varðar alþjóðleg vandamál, og leið- toga kommúnískra ríkja og þróunarlanda, sem telja sig hafa borið skarðan hlut frá borði með batnandi samskiptum Sovétríkj- anna og Bandaríkjanna. Það vakti at- hygli að Muammar Gaddafí, byltingarleið- togi Líbýumanna, hafði meðferðis á fund- inn bedúínatjald mikið og 50 kameldýr. Aðspurðir sögðu aðstoðarmenn Gaddafís að kameldýrin sæu leiðtoganum fyrir dag- legum skammti hans af mjólk. Myndin af Gaddafí var tekin á blaðamannafundi sem hann hélt í bedúínatjaldi sínu. Deilan um nunnuklaustrið í Auschwitz: Gyðingar hundsa minningar- arhöfii um fómarlömb nasista LJÓSMYNDA- ALBUM frá Múlalundi... vel geymdar verða minningarnar enn ánægjulegri. é& Múlalundur £3 3 2 I 3 z z 5 5 3 Q Z c* 2 Oswiecim. Reuter. LEIÐTOGAR gyðinga sniðgengu göngu til minningar um fórn- arlömb nasista, sem farin var til fyrrum dauðabúða nasista í Birk- enau á laugardag, vegna deilu þeirra við kaþólsku kirkjuna í Póllandi um nunnuklaustur í Auschwitz. Um 100 fulltrúar kirkna og trú- katólskt nunnuklaustur úr Ausch- flokka víðsvegar um heim tóku þátt í göngunni og fóru þeir sömu leið og járnbrautalestirnar, sem fluttu fórnarlömb nasista í dauða- klefana í Birkenau og Auschwitz. Flutt var sálumessa eftir pólska tónskáldið Krzysztof Penderecki er þátttakendur lögðu blómsveiga við veggtöflur til minningar um fjórar milljónir manna, aðallega gyðinga, sem létu lífið í dauðabúðunum. Leiðtogar gyðinga neituðu að taka þátt í göngunni til að mót- mæla því að pólska kirkjan stóð ekki við samkomulag um að flytja witz. Þeir líta á þessar fyrrum dauðabúðir sem minnisvarða um tilraun nasista til að gereyða gyð- ingum í Evrópu og stærsta gyðinga- grafreit sögunnar. Aðeins tveir gyð- ingar tóku þátt í göngunni og voru þeir á eigin vegum. Gyðingar héldu eigin minningarathöfn í samkundu- húsi sínu í Varsjá á laugardag. Franciszek Macharski kardináli, erkibiskup í Kraká, minntist fórnar- lamba nasismans er hann ávarpaði þátttakendur göngunnar. Hann vildi ekki tjá sig um deiluna um nunnuklaustrið en sagðist vona að gyðingar og pólska kirkjan kæmust að samkomulagi um málið er hann ræddi við gyðingana, sem þátt tóku í göngunni. Macharski hefur hætt við áform um að flytja nunnuklaust- rið í bænamiðstöð sem ráðgert var að reisa í grenndinni. Pólska kirkjan stóð ekki við sam- komulag við gyðinga um að klaustrið yrði flutt fyrir febrúar á þessu ári. Jozef Glemp kardináli, erkibiskup Póllands, sagði í viðtali sem birt var í ítölskum blöðum á laugardag að samkomulagið hefði verið vanhugsað og semja þyrfti að nýju um klaustrið. Glemp sagði í síðustu viku að gyðingar ættu ekki að tala „eins og þeir væru yfir aðra hafnir," og vöktu þessi ummæli mikla reiði meðal gyðinga, sem sök- uðu biskupinn um gyðingahatur. 0.(5). Brídsskófirm Ný námskeii hefjast 25. og 26. september Boðið er upp á námskeið í byrjenda- og framhaldsflokki Hvert námskeið stendur yfir í 11 kvöld, einu sinni í viku. Kennsla í byrjendaflokki fer fram á mánudögum og er hægt að velja á milli tveggja tíma: (1). 16.00- 19.00 eða (2) 20.00-23.00. í framhaldsflokki er spilað á þriðjudagskvöldum frá kl. 20.00-23.30. Námskeiðin fara fram í húsi Sóknar, Skipholti 50a. Frekari upplýsingar og innritun í síma 27316 milli kl. 15.00 og 18.00 virka daga. takanna er að koma á blönduðu hagkerfi og þingbundnu lýðræði í landinu. Roszik segir að Ungveijar eigi að taka upp nýja utanríkisstefnu þótt þeir eigi á hættu að sam- skipti við bandalagsþjóðirnar í Varsjárbandalaginu stirðni. Hann segir að ungverska ríkisstjórnin geti losnað úr þeirri úlfakreppu, sem straumur austur-þýskra flóttamanna hafi komið henni í, með því að veita flóttamönnunum pólitískt hæli. Roszik telur að aust- ur-þýsk stjórnvöld myndu þá loka landamærum sínum að Ungveijal- andi, sem er eitt af fáum löndum sem Austur-Þjóðveijar mega ferð- ast til. Afleiðingarnar yrðu þær að Austur-Þjóðveijar myndu rísa upp og mótmæla og krefjast svip- aðra umbóta og átt hafa sér stað í Ungveijalandi og Póllandi, þar sem fyrsti forsætisráðherrann í 40 ár, sem ekki kemur úr röðum kommúnista, var kjörinn síðastlið- inn fimmtudag. „Það er mikilvægt fyrir Tékkó- slóvakíu og Austur-Þýskaland að lýðræðisbarátta okkar haldi áfram. Ef við leggjum árar í bát þýðir það að Austur-Evrópa þarf að þjást í önnur 100 ár,“ sagði Roszik. Skrifstofutækni Tö 1 vufræ ðslunnar er hagnýtt nám sem getur opnað þér nýjar leiðir á vinnumarkaðnum Jens Ólafsson framkvæmdastjóri Grundarkjörsverslananna: t,Hjá mér vinna m.a. tveir skrifstofu- tæknar og er greinilegt að menntun þeirra er mjög góður undirbúningur fyrir ábyrgðarstörf í fyrirtækjum. Grundarkjör er fyrirtæki í stöðugri sókn. Velgengni þess byggist á góðu starfsfólki og fólk sem lokið hefur skrifstofutækninámi er án efa fremst í þeim hópi. Það er því með glöðu geði sem ég mæli með skrifstofutækninámi Tölvufræðslunnar". Skrifstofutækni skiptist í tölvugreinar, við- skiptagreinar og tungumál. Við bjóðum upp á morgun-, eftirmiðdags- og kvöldtíma. Námið tekur 3-4 mánuði og að því loknu útskrifast þú sem skrifstofutæknir. Ásdís Þórisdóttir verslunarstj. Grundarkjörs í Stakkahlíð: „Áður en ég fór í skrifstofutækni- námið vann ég sem afgreiðslumað- ur hjá Grundarkjöri. Eg kunni lítið á tölvur og bókhald og ákvað því að drífa mig á námskeið hjá Tölvu- fræðslunni. Skrifstofutækninámið var mjög gagnlegt og skemmtilegt. Eftir að ég fékk prófskírteinið í hendurnar var mér boðin staða aðstoðarverslunarstjóra og skömmu síðar var ég orðin verslunarstjóri". Tölvufræðslan Borgartúni 28, sími 687590 Hringið og fáið sendan bækling
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.