Morgunblaðið - 05.09.1989, Blaðsíða 57
MORGUNBLADIÐ ÞRIÐ.JUDAGUR 5. SEPTEMBER 1989
SL
Börnin þyrpast í kringum Bob
Cunningham því þau halda að
hann sé leikarinn Pee-wee Her-
man.
' ' ■ '
Nancy Casey er innanhúsarkitekt. Hún segist lenda í mörgu skemmti-
legu eingöngu vegna þess hve mjög hún líkist leikkonunni Elizabeth
Taylor.
HVERVANN?
Vinningsröðin 2. september:
111-1X1-XXX-X1X
Heildarvinningsupphæð: 771.493 kr.
12 réttir = 619.496 kr.
2 voru með 12 rétta - og fær hvor 309.748 kr. í sinn hlut.
11 réttir = 151.980 kr.
34 voru með 11 rétta - og fær hver 4.470 kr. í sinn hlut.
EFTIRLAUNAMAÐUR
Brando í
helgan stein
Kvikmyndaleikarinn Marlon
Brando er þessa dagana að
leika í myndinni „Freshman“ sem
tekin er upp í Toronto í Kanada.
Brando meiddist lítillega á hálsi
er hann féll við á skautum í einu
atriða myndarinnar og þarf að
ganga með hálskraga þegar hann
er ekki fyrir framan kvikmynda-
vélarnar. Aðspurður sagði Brando
við fréttamenn að hann væri dauð-
leiður á því að leika í kvikmynd-
um. Hann væri búinn að fá sig
fullsaddan og að hann myndi
hætta að leika í kvikmyndum að
loknu þessu verkefni.
„Mér líkaði í raun aldrei við
starfið, en þetta var eina leiðin til
að þéna slíkar upphæðir fyrir
viðlíka heimskulæti," sagði hann.
Brando hlaut Óskarsverðlaun fyrir
bestan leik í kvikmyndunum „Við
sjávarbakkann“ (On the Waterfr-
ont), og Guðföðurnum. Hann sendi
fulltrúa sinn af indíánakyni til að
taka á móti verðlaunum sínum
fyrir Guðföðurinn og vildi með því
vekja athygli á málstað indíána í
Bandaríkjunum og lýsa fyrirlitn-
ingu sinni á bandarísku kvik-
myndaakademíunni. Hann lék
meðal einnig í kvikmyndunum
Sporvagninn Girnd, Uppreisnin á
Bounty og Síðasti tangóinn í París.
^OMA AFTUR
og skemmta í Hótel Islandi 21. og 23. og
í Sjallanum Akureyri 22. september.
LlI ;WOK er ein allra, allra skemmtilegasta
hljómsveit sem hingað hefur komið, enda eru lögin
stórkostleg, félagarnir hressir
og framkoman einstaklega lífleg.
Missið nú ekki af hrikalega góðu stuði með
LLkHOOK
Mióosala og boróapantanir daglega í
Hótel íslandi frá kl. 9-17 og íSjallanum.
SJJL&uijaus—
mother
HOTEL W.I.AND