Morgunblaðið - 05.09.1989, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1989
35
Morgunblaðið/Sverrir
Þessar stúlkur voru að velta fyrir sér bókakaupum á Skólamarkaði
Eymundssonar í Mjóddinni í gær.
Skólamarkaður Ey-
mundssonar í Mjóddinni
BÓKAVERSLUN Sigfúsar Eymundssonar stendur fyrir skólamark-
aði í nýju húsnæði verslunarinnar í Mjódd dagana 4.- 16. septem-
ber. Þar verður í haust opnuð ný bókaverslun, sem verður til húsa
við hlið verslunar ATVR og Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis.
. ,Á skólamarkaðinum verður úrval félagið_ Viðskiptavinir svara nokkr-
íslenskra og erlendra námsbóka, um spurningum og þann 16. sept.
auk ritfanga. I tilefm markaðarms ember verður dregið úr réttum
gefst viðskiptavinum kostur á að lausnum. Þrír heppnir fá í sinn hlut
spreyta sig a verðlaunagetraun, 12 bindi ritraðar AB> Sögu
mann-
sem Eymundsson hefur sett a lagg- ^ ng
irnar í samvinnu við Almenna bóka-
Prestamir sem viðstaddir vom hátíðarguðsþjónustuna taldir frá
vinstri til hægri; Séra Sigmar Torfasoh fv. prestur á Skeggjastöðum
sr. Marinó Kristinsson fv. prestur á Sauðanesi, sr. Ingimar Ingimars-
son á Þórshöfn, sr. Sigurður Guðmundsson vígslubiskup Hólastiftis,
sr. Krisfján Valur Ingólfsson á Grenjaðarstað, sr. Örn Friðriksson
prófastur á Skútustöðum, sr. Gunnar Sigurjónsson á Skeggjastöðum
og sr. Sigurvin Elíasson á Skinnastað.
Sauðaneskirkja 100 ára
MINNST var 100 ára vígsluaf-
mælis Sauðaneskirkju við liátíð-
arguðsþjónustu 20. ágúst sl. Við-
staddir voru 5 prestar sem þjónað
hafa Sauðanesprestakalli lengri
eða skemmri tíma, en þeir eru:
séra Marinó Kristinsson, séra
Sigmar Torfason, séra Sigurvin
Elíasson, séra Kristján Valur Ing-
ólfsson og séra Ingiinar Ingimars-
son. Einnig voru viðstaddir séra
Sigurður Guðmundsson vígslu-
biskup, séra Örn Friðriksson pró-
fastur og séra Gunnar Siguijóns-
son á Skeggjastöðum.
Við upphaf guðsþjónustunnar
flutti séra Ingimar ávarp og þjónaði
fyrir altari fyrir prédikun en aðkomu-
prestar lásu ritningartexta og önnuð-
ust altarisgöngu. Vígslubiskup préd-
ikaði. Kirkjukór Sauðaneskirkju söng
undir stjórn frú Vigdísar Sigurðar-
dóttur og frú Margrét Bóasdóttir
söng einsöng en hún kom tveim dög-
um fyrir hátíðina og aðstoðaði kórinn
við æfingar.
Kirkjan var þéttsetin og meðal
kirkjugesta voru margir langt að
komnir.
Sóknarnefnd bauð aðkomugestum
til hádegisverðar. Formaður sóknar-
nefndar er Kristinn Jóhannsson.
Síðdegis var öllum kirkjugestum boð-
ið til veglegrar kaffidrykkju í félags-
heimili Þórshafnar. Þar flutti séra
Ingimar kveðjur frá herra Ólafi
Skúlasyni biskup og séra Guðmundi
Erni Ragnarssyni og rakti síðan sögu
kirkjustaðarins. Mörg ávörp voru
flutt og söfnuði og sóknarpresti árn-
að heilla í tilefni dagsins.
Hinn 1. september fer séra Ingi-
mar í eins árs námsleyfi og mun
séra Sigurvin á Skinnastað annast
prestverk í september en síðan mun
séra Ragnheiður Erla Bjarnadóttir
þjóna Sauðanesprestakalli í íjarveru
séra Ingimars.
Sigmý Sæ- Þóra Fríða
mundsdóttir, Sæmunds-
söngkona. dóttir, píanó-
leikari.
Listasafti Sigur-
jóns Ólafssonar:
Konsert-
aría og
ljóðasöngur
SIGNÝ Sæmundsdóttir, söng-
kona og Þóra Fríða Sæmunds-
dóttir, píanóleikari halda tón-
leika í Listasafni Sigurjóns, í
dag, þriðjudaginn 5. september.
Tónleikarnir heQast klukkan
20.30.
Fyrst á efnisskrá er konsertaría
eftir W.A. Mozart, en hún var upp-
haflega samin fyrir litla kammer-
sveit, píanó og söngrödd og verður
textinn sunginn á ítölsku. Síðan
verða flutt ijóð eftir fr. Schubert,
Richard Strauss og nokkur nútíma-
ljóð eftir Atla Heimi Sveinsson.
Signý Sæmundsdóttir lauk ein-
söngvaraprófi frá Tónlistarháskól-
anum í Vínarborg árið 1988. Hún
hefur meðal annars tekið þátt í
óperuflutningi bæði hérlendis og
erlendis. Síðastliðinn vetur fór hún
með hlutverk í Ævintýri Hoff-
manns á sviði Þjóðleikhússins og
hún fer einnig með hlutverk í ópe-
runni Vikivaka, sem tekin var upp
í Kaupmannahöfn í maí sl. á vegum
norrænu sjónvarpsstöðvanna.
Þóra Fríða lauk námi frá tónlist-
arskólanum í Reykjavík árið 1978
og stundaði framhaldsnám í Frei-
burg og Stuttgart. Frá árinu 1984
hefur hún starfað sem píanóleikari
og kennari í Reykjavík og tekið
þátt í ýmiss konar tónlistarflutn-
ingi. Þóra Fríða Sæmundsdóttir er
félagi í íslensku Hljómsveitinni.
Ættfræðinám-
skeið að heflast
NÝTT starfsár er að hefjast hjá
Ættfræðiþjónustunni, en undan-
farin ár hefúr hún staðið fyrir
ættfræðinámskeiðum í
Reykjavík og víðar um land. í
september verður farið af stað
með byijenda- og framhalds-
námskeið í Reykjavík, en þau
standa í 5-7 vikur. Einnig verða
haldin námskeið í Garðabæ, Búð-
ardal og huganlega á fleiri stöð-
um á landsbyggðinni.
Marga fýsir að vita um forfeður
sína og frændfólk, en gengur seint
og illa að fá upplýsingar með fyrir-
spurnum og eigin athugunum. í
raun geta allir rakið ættir sínar
sjálfir fái þeir næga tilsögn og
aðstöðu til að heíja leitina. A ætt-
fræðinámskeiði fræðast menn um
fljótvirkar og öruggar leitarað-
ferðir, fá leiðsögn og yfirsýn um
helztu heimildir og leiðbeiningar
um gerð ættartölu og niðjatals. Þá
fá þátttakendur tækifæri til að
þjálfast í verki við að rekja eigin
ættir og frændgarð með afnotum
af víðtæku gagnasafni, m.a. kirkju-
bókum um allt land, manntölum,
ættartöluhandritum og útgefnum
bókum. Leiðbeinandi á námskeið-
unum er Jón Valur Jensson. Innrit-
un er hafin hjá Ættfræðiþjón-
ustunni.
íFréttatilkynning)
Skorradals
hreppur áírýjar
HREPPSNEFND Skorradals-
hrepps hefúr ákveðið að fela lög-
manni sínum, Jóni Steinari
Gunnlaugssyni hrl., að áfrýja til
hæstaréttar dómi undirréttar í
máli hreppsins gegn verka-
mannafélaginu Dagsbrún og eig-
endum jarðarinnar Hvamms
vegna kaupa Dagsbrúnar á.
spildu úr Hvammslandi.
Undirréttur synjaði hrepps-
nefndinni að neyta forkaupsréttar
að umræddri spildu og. dæmdi
hreppinn til að greiða gagnaðilum
málskostnað.
SigluQörður:
Færðu heilsu-
gæslustöðinni
nuddbekk
KIWANISKLÚBBURINN
Skjöldur færði heilsugæslustöð-
inni á Siglufirði nuddbekk að
gjöf fyrir skömmu.
Nuddbekknum verður komið fyr-
ir á heilsugæslustöðinni þar sem
verið er að koma upp aðstöðu til
sjúkranudds. Von er á hollenskum
sjúkraþjálfara til Sigluijarðar sem
mun vinna við bekkinn. Bekkurinn
er talinn afar vel búinn.
Salman Kristjánsson, forseti
kiwanisklúbbsins, afhent bekkinn
fyrir hönd klúbbfélaga en fram-
kvæmdarstjóri og yfirlæknir
sjúkrahúsins veittu honum viðtöku.
Vika hárs-
ins 1989
DAGANA 2. til 10. september
er vika hársins haldin af félags-
mönnum i Sambandi hárgreiðslu
og hárskerameistara.
Hársnyrtistofur eru með sértil-
boð þessa daga og ráðleggingar
fyrir viðskiptavini um val á hár-
snyrtivörum. Þá munu margar
stofur vera með sértilboð á þjón-
ustu sinni og ókeypis hárþvott og
meðferð á illa förnu hári.
Viku hársins líkur með _ stórri
hársnyrtisýningu á Hótel íslandi
þar sem helstu hársnyrtimeistarar
sýna það helsta í hársnyrtingu.
Einnig mun landslið íslands sem
keppir á Norðurlandamóti koma
þar fram og sýna listir sínar.
Þórir Barðdal við verkið sem
hann færði Blindrafélaginu.
Blindrafé-
laginu færð
Friðardúfa
ÞORIR Barðdal myndhöggvari
færði Blindrafélaginu höggmynd
að gjöf á 50 ára afmæli félagsins
19. ágúst síðastliðinn. Högg-
myndin ber heitið „Friðardúf-
an“.
Friðardúfan er unnin úr ítölskum
marmara og stendur á svörtum
smíðajárnsfæti. Myndverkið er lag-
að mjúkum línum og með því að
fara um það höndum er auðvelt
að gera sér í hugarlund hvernig
inntak þess og iögun er..
Blindrafélagið færir Þóri Barðd-
al þakkir fyrir höfðinglega gjöf og
vonar að blindir og sjónskertir geti
notið hennar um ókomna framtíð.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 4. september
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 70,00 50,00 62,04 13,359 828.800
Þorskur(smár) 30,00 30,00 30,00 0,072 2.160
Ýsa 104,00 65,00 91,61 3,295 301.858
Karfi 30,00 30,00 30,00 0,042 1.260
Ufsi 25,00 25,00 25,00 0,264 6.600
Steinbitur 64,00 56,00 56,10 3,395 190.463
Langa 42,00 42,00 42,00 1,669 70.098
Lúða 305,00 140,00 207,44 2,899 601.273
Keila 22,00 22,00 22,00 2,240 49.280
Samtals 75,26 27,276 2.052.925
i dag verða meðal annars seld um 12 tonn af þorski úr Jóni
Vídalín, 11 tonn af ýsu, 20 tonn af ufsa frá Sturlaugi H. Böðvars-
syni, svo og óákveðið magYi af blönduðum afla úr bátum.
FAXAMÁRKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 64,00 58,50 63,13 2,786 176.884
Þorskur(1-2n.) 59,00 54,00 56,69 13,066 740.774
Siginn fiskur 80,00 80,00 80,00 0,028 2.240
Ýsa 116,00 92,00 108,63 10,964 1.191.055
Ýsa(umál) 65,00 60,00 61,96 0,683 42.320
Ufsi 30,00 30,00 30,00 0,344 10.320
Ufsi(umál) 30,00 30,00 30,00 0,301 9.030
Steinbítur 54,00 54,00 54,00 0,067 3.618
Lúða(stór) 230,00 225,00 226,78 0,143 32.430
Skarkoli 54,00 52,00 52,10 1,064 55.430
Samtals 76,86 29,446 2.263.101
Selt var úr neta- og færabátum. í dag verður selt óákveðið
magn af blönduðum afla úr Jóni Vídalín, Krossnesi SH og bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 78,00 50,00 66,34 73,623 4.884.103
Ýsa 116,00 79,00 91,61 13,261 1.214.781
Karfi 44,50 16,00 37,84 4,271 161.611
Ufsi 34,50 12,00 32,25 2,399 77.365
Steinbítur 57,50 39,00 47,75 3,190 152.330
Langa 42,50 36,00 40,52 2,285 92.593
Lúða 240,00 185,00 230,25 0,264 60.785
Sólkoli 67,00 67,00 67,00, 0,500 33.500
Keila 19,00 11,00 17,70 1,897 33.581
Öfugkjafta 30,00 30,00 30,00 1,500 45.000
Samtals 65,23 104,309 6.804.519
Selt var meðal annars úr Skarfi GK og Hópsnesi GK. i dag
verður selt óákveðið magn af blönduðum afla úr bátum.
Vikusól
VIKUFERÐIR TIL BENIDORM.
Einstakt tækifæri til að lengja
sumarið og dvelja við fróbær-
an aðbúnaó á einni p.........
fegurstu baðströnd
Evrópu. Aðeins örfá _
sæti til ráðstöfunar. '' ' •
VERÐ FRÁKR. 28.1 00,-
2 í íbúð kr. 38.900,-
[ERflRMIflSIÚeiN
HfcHB
Austurstræti 17, sími 622200