Morgunblaðið - 05.09.1989, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1989
Vímulaus æska:
Sigvrrós I.H. Gunnars-
dóttir — Minning
Hún Inga vinkona mín, Sigurrós
Inga Hannea Gunnarsdóttir, er dá-
in. Margs er að minnast, margt sem
hugurinn reikar til. Við kynntumst
fyrst fyrir rúmum 30 árum, er við
fluttumst í Sólheima 40. Mikið var
um að vera á báðum hæðum, Inga
og Dengsi með sín börn á efri hæð,
'Adð Ámi á neðri hæð með okkar
börn. Strax tókst með okkur sérstök
vinátta, sem aldrei hljóp snurða á
öll þessi ár. Seinna fluttumst við
erlendis, en alltaf var sambandið
eins á milli okkar Ingu, alltaf var
ég viss um að fá bréf frá henni
með myndum af fjölskyldunni, eftir
því sem hún stækkaði. Svo alltaf
bættist í myndaalbúmin hjá mér.
Vil ég færa hjartans þakkir fyrir
allar stundir sem ég átti með Ingu
og fjölskyldu hennar.
Inga var góð heim að sækja,
heitt kaffi á könnunni og alltaf var
hún búin að baka góðgæti, skons-
ur, vöfflur og kökur sem hún vissi
að mér þætti góðar. Inga var sér-
staklega vönduð og góð kona. Allt-
af hafði hún tíma til að hlusta á
aðra og rétta hjálparhönd í smáu
sem stóm. Enda var hún svo trygg
og kærleikur hennar til mín og
minnar fjölskyldu óendanlegur.
Inga var sérstök eiginkona, móðir,
tengdamóðir og amma og mín besta
vinkona. Svo við öll sem nutum
kærleika hennar, vitum það. Og
höfum við mikið fyrir að þakka og
missirinn mikill.
Ég tel mig lánsama að hafa átt
vinskap Ingu í gegn um Iífið. Inga
var mikil bænakona og mjög trúuð,
svo við vitum að hún var tilbúin
að mæta sínum frelsara.
Seinasta ár, er við hjónin vomm
í heimsókn í Reykjavík, dró skyndi-
lega ský fyrir sólu. Ég hafði orðið
fyrir þeirri sorg að missa mína ást-
kæm móður. En síst af öllu hefði
mér dottið í hug að ég, ári seinna,
ætti eftir að missa Ingu, mína hjart-
ans bestu vinkonu. Seinasta kvöldið
áður en við fórum til baka til
Kanada, komu Inga og Dengsi með
Sigurði syni sínum. Þau færðu mér
gjöf eins og svo oft áður, í þetta
sinn var það lítil stytta, með hendi
frelsarans og barninu. Augu mín
fyllast támm er ég hugsa um Ingu,
svo þakklát er ég fyrir kærleika
hennar sem við öll erum ríkari fyr-
ir. Við mannaböm emm aldrei við-
búin að missa þá sem við elskum.
Öll böm Ingu og Dengsa em líka
yndisleg. Sigrún, ein dóttirin, er
mikil vinkona Lindu dóttur minnar,
skrifast þær á í öll þessi ár. Sigrún
og maður hennar, Ragnar, skírðu
dóttur sína eftir mér og Ingu, heit-
ir hún Inga Hanna Ragnarsdóttir.
Þetta sýnir líka kærleika á milli
fjölskyldnanna. Siggi undi sér mikið
á mínu heimili þegar við bjuggum
Stofiiun
meðferðar-
heimilis
fagnað
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi samþykkt sem gerð
var á fúndi framkvæmdastjóraar
foreldrasamtakanna Vímulausr-
ar æsku 23. ágúst sl.:
„Vímulaus æska fagnar þeirri
ákvörðun ríkisstjórnarinnar að
stofna meðferðarheimili fyrir unga
ávana- og fíkniefnaneytendur, eins
og fram kemur í bréfi samstarfs-
nefndar ráðuneyta í ávana- og fíkni-
efnamálum, dags. 23.8.1989.
Vímulaus æska þakkar nefndinni
fyrir gott samstarf á undanförnum
mánuðum og lýsa samtökin sig
reiðubúin til áframhaldandi sam-
vinnu um þetta verkefni.“
„Mim dAQurhtf jAroty mdÆÁhjó/i {m FÁÍkmiAM.
Hváb tnéö him ? "
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SlMI 84670
ÞARABAKKI 3, SÍMI670100
í Sólheimunum, svo mér finnst hann
alltaf vera eins og sonur minn.
Alltaf þegar við komum í heim-
sókn til Reykjavíkur áttum við
ógleymanlegar kvöldstundir með
Ingu og Dengsa, það er að segja
með allri fjölskyldunni. Öll þeirra
börn hafa sama eiginleika, full af
kærleika til annarra. Öll gátum við
komið til Ingu með alla hluti, sem
okkur lágu á hjarta. Hún hugsaði
vel um allt áður en hún gaf góð
ráð. Það var númer eitt hjá Ingu
að gleðja og hjálpa öðrum.
í þessari miklu sorg bið ég Guð
að gefa þér styrk, elsku Dengsi ög
fjölskylda. Guð blessi og varðveiti
minningu Ingu, elsku vinkonu
minnar.
Hanna Ragnarsdóttir Jónsson
HEILBRIGÐIS- og tryggingamálaráðherra Guðmundur Bjarnason heP'-
ur skipað nefiid sem hefúr það hlutverk að endurskoða lög um vátrygg-
ingastarfsemi. Lög nr. 50/1978 um vátryggingastarfsemi hafa verið í
gildi í meira en áratug.
„Miklar breytingar hafa átt sér
stað í þjóðfélaginu á þessum tíma,
bæði í vátryggingastarfsemi og á
öðrum sviðum, og þróunin ör hin
síðari ár. Því er nauðsynlegt að end-
urskoða ýmis ákvæði nefndra laga
og einnig að fjalia um ný svið sem
ekki eða að litlu leyti er fjallað um
í núgildandi Iögum. Einnig þarf að
taka mið af þeirri reynslu sem feng-
ist hefur af framkvæmd laganna á
þeim tíma sem þau hafa verið í gildi“,
segir í frétt frá ráðherra.
Því hefur tryggingamálaráðherra
skipað þessa nefnd sem í eiga sæti:
Sigmar Ármannsson framkvæmda-
stjóri, fulltrúi Sambands íslenskra
tryggingafélaga, Jón Magnússon
lögfræðingur, fulltrúi Neytendasam-
takanna, Bjarni Þórðarson ti-ygg-
ingafræðingur, Guðný Björnsdóttir
lögfræðingur og Erlendur Lárusson
forstöðumaður Ti-yggingaeftirlitsins
og er hann formaður nefndarinnar^*
Ritari nefndarinnar er Rúnar Guð-
mundsson lögfræðingur.
Lög um vátrygging-
ar endurskoðuð
.Orkin/sIa