Morgunblaðið - 07.09.1989, Side 2

Morgunblaðið - 07.09.1989, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. SEFrEMBER 1989 Vörugjald fellt niður af nokkrum vöruflokkum: Yöruverð ætti að lækka um rúm 8% Fjármálaráðherra kynnti í gær niðurfellingu vörugjalds af nokkrum vöruflokkum, sem tók gildi 1. september sl. Gjaldið var 9% af inn- lendri iramleiðslu annarri en sælgætis- og gosdrykkjaframleiðslu. Áætlað tekjutap ríkissjóðs vegna þessa er 350 milljónir króna á þessu ári og yfir 1.000 milljónir á því næsta. Vöruverð ætti að lækka um rúm 8% vegna þessa. Vöruflokkarnir eru meðal annars öll húsgögn, innréttingar, hurðir, gluggar, miðstöðvarofnar, loftræsti- kerfi, þakjárn, þakrennur, raf- magnsvír, plaströr, pípulagningar- efni, spónaplötur, krossviðarplötur, heflaður viður, stengur og leiðslur úr stáli, jámi og áli. Miðað var við að gjaldið félli niður af innlendri framleiðsiu og ýmsum erlendum að- föngum til hennar, en á þau var lagt 11,25% gjald. Niðurfelling gjaldsins Mosfellsbær: Fundur um sorpurðun BÆJARSTJÓRN Mosfellsbæjar samþykkti á fundi í gær að boða til almenns fúndar um sorpurðun í Álfsnesi. Samþykktin er í fram- haldi af kröfu 370 bæjarbúa. Þeir töldu að atriði sem lúti að frá- gangi sorpsins, staðsetningu þess og mengunarhættu hafi ekki verið skýrð almenningi. Forráðamönn- um Sorpeyðingar höfúðborgar- svæðisins verður boðið á fundinn. Að sögn Páls Guðjónssonar bæjar- stjóra skýrist um komandi helgi hve- nær fundurinn verður. „Það þarf að safna saman upplýsingum um málið, svo hægt verði að svara öllum spum- ingum almennings," sagði hann. Bæjarráð Mósfellsbæjar sam- þykkti í síðustu viku einróma bókun þar sem segir að vegna nálægðar urðunarstaðarins við Leirvog og byggð í Mosfellsbæ áskilji ráðið sér allan rétt til að setja fram ábending- ar og kröfur um umgengni, aðbúnað, og aðrar ráðstafanir' til að tryggt sé að urðunin valdi ekki ekki ónæði, óþægindum eða mengun gagnvart íbúum Mosfellsbæjar og umhverfi. er í samræmi við ákvörðun ríkis- stjómarinnar frá síðastliðnu vori til þess að greiða fyrir kjarasamningum. Áætlað er að vegna þessara að- gerða verði byggingarvísitala 1-1,5% lægri en ella. Það hefur síðan áhrif á vísitölur framfærslu og lánskjara, þannig að lánskjaravísitalan ætti að verða um 0,5% lægri en ella. Þorleifur Jónsson framkvæmda- stjóri Landssambands iðnaðarmanna kvaðst fagna því að menn hefðu séð að sér. „Það er dreginn til baka vem- legur hluti af breytingunni sem gerð var á vörugjaldslögunum, hins vegar era eftir einstakir vöraflokkar sem við hefðum viljað sjá vöragjaldið hverfa af,“ segir hann. Fjármálaráðherra hefur óskað eft- ir því að viðskiptaráðherra feli Verð- lagsstofnun að fylgjast með verð- lækkunum framangreindra vörateg- unda á næstunni. Morgunblaðið/Frimann Ólafsson Verkstæðið kvikmyndað íHöftium Grindavík. Byrjað er að kvikmynda Verkstæðið við bæinn Kalmannstjörn í Höfiium, sem er gamalt eyði- býli. Kvikmyndin byggir á leikgerð Bílaverk- stæðis Badda, sem sýnt hefúr verið við góða aðsókn á litla sviði Þjóðleikhússins. Ólafur Hauk- ur Símonarson hefiir gert nýtt handrit sem bygg- ir að hluta til á leikgerðinni og Lárus Ymir Óskarsson leikstýrir verkinu. Þeir tveir, ásamt Sigurjóni Sighvatssyni, sem er framleiðandi myndarinnar, standa að fyrirtækinu Verkstæði hf., en það var stofnað um þessa kvikmynd. Bessi Bjarnason, Sigurður Sigurjónsson og Egill Ólafs- son eru í aðalhlutverkum. Þetta mun vera fyrsta íslenska kvikmyndin sem byrjað er á á þessu ári og gæti orðið sú eina. FÓ Lúðvík gagnrýnir vinnubrögð við kaupin á Samvinnubanka Meirihluta bankaráðs var gerð grein fyrir málinu daginn fyrir undirskrift LÚÐVÍK Jósefsson, einn af bankaráðsmönnum Landsbank- ans, gagnrýnir vinnubrögð þau sem bankastjórn Landsbankans viðhafði við kaupin á hlut Sam- bandsins í Samvinnubankanum. Lúðvík segir að samkvæmt lög- um sé það verkefni bankaráðs en ekki bankastjómar að kaupa eignir, þ.m.t. hlutabréf. Telur hann vinnubrögð bankastjórnar í málinu óeðlileg, einkum þar sem hann var ekki látinn vita fyrirfram af samkomulaginu um kaupin á Samvinnubankanum. Sverrir Hermannsson banka- sljóri, sem bar hitann og þungan af samningunum við Sambandið, segir að hann muni ekki svara þessum orðum Lúðvíks að sinni. Rannsókn tveggja kókaínmála lokið: Lagt hald á 600 g kókaíns, bíl og 330 þúsund krónur NÚ ER ljóst, að 23 menn verða kærðir fyrir aðild að kókaínmálij sem fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík heíúr rannsakað síðan í lok apríl. Samtals var lagt hald á tæp 434 grömm'af kókaíni, auk bifreiðar, sem hafði verið keypt fyrir ágóða af sölu efúisins. Þá lagði lögreglan hald á um 140 grömm af kókaíni í tengslum við rannsókn annars máls, sem kom upp í lok júlí. í síðara tilfellinu var um hreint kókaín að ræða og í því fyrra var efnið nær hreint. Kókaín er gjaman blandað til að drýgja það og auka þannig sölu- verðmæti. Gramm af kókaíni er selt á 8-12 þúsund krónur. Sölu- verðmæti þeirra rúmu 600 gramma af kókaíni, sem lagt var hald á, er því a.m.k. um 5-7 millj- ónir króna. Fyrstu handtökur í fyrra málinu voru í lok apríl og fékk lögreglan 16 húsleitarheimildir í framhaldi af því. Lagt var hald á 433,9 grömm af kókaíni, sem fannst víða, meðal annars í bankahólfi. Þá var lagt hald á eina bifreið, sem er talin keypt fyrir ágóða af sölu kókaíns. Komið hefur fram við rannsókn málsins, að um eitt kíló af efninu var flutt til landsins frá Bandaríkjunum í nóvem- ber á síðasta ári, faíið í bifreið, en rúmlega hálft kíló var komið í dreif- ingu. Alls sátu 7 manns í gæsluvarð- haldi vegna málsins, mislangan tíma. Þrír menn, tveir 25 ára og einn 28 ára, stóðu að innflutningnum og sit- Morgunblaðið/Þorkell Fíkniefnalögreglan lagði hald á þessa bifreið, sem hún taldi keypta fyrir ágóða af sölu kókaíns. Taki dómarinn undir sjónarmið lögregl- unnar og geri bifreiðina upptæka með dómi verður hún seld og andvirði hennar rennur í ríkissjóð. ur einn þeirra enn inni. Þeir hafa ekki komið við sögu í fíkniefnamálum áður. Meirihluti þeirra 23, sem kærð- ir verða fyrir aðild að málinu, era kaupendur efnisins hér á landi. Mál- ið verður sent nkissaksóknara til umfjöllunar á næstu dögum. Síðara kókaínmálið kom upp í lok júlí. Maður, sem búsettur hefur verið í mörg ár í Bandaríkjunum, var hand- tekinn þann 28. júií. Við húsleit á dvalarstað hans fundust um 60 grömm af efninu. Lögreglan leitaði í sex húsum í framhaldi af þessum fundi og fann 80 grömm til við- bótar. Auk þess var lagt hald á um 330 þúsund krónur, sem var hagnað- ur af sölu efnisins. Tveir menn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald þann 29. júlí og var öðrum sleppt 8. ágúst, en gæsluvarðhald hins, þess sem fyrstur var handtekinn, var fram- lengt að kröfu ríkissaksóknara til 27. október næstkomandi. Hann hefur viðurkennt dreifingu á 180 grömm- um af efninu. Sá sem látinn hefur verið laus hafði keypt kókaín af hon- Málið verður tekið til umræðu á fúndi bankaráðs á sunnudaginn. Morgunblaðið ræddi við banka- ráðsmenn Landsbankans um þetta mál, utan Eyjólfs K. Siguijónsson- ar, sem er staddur erlendis. Kristinn Finnbogason segir að Sverrir hafi boðað bankaráðið á sinn fund á fímmtudag í síðustu viku, eða dag- inn áður en fyrrgreint samkomulag var gert. Á þeim fundi, sem var óformlegur, gerði Sverrir bankaráð- inu grein fyrir stöðu málsins. Þrír bankaráðsmenn sátu þennan fund með Sverri, þeir Kristinn, Pétur Sigurðsson formaður bankaráðs og Jón Þorgilsson. Eyjólfur er erlendis sem fyrr greinir. Kristinn segir að ekki hafi tekist að ná í Lúðvík þar sem hann hafi verið í laxveiði á þessum tíma, en Lúðvík segir að hann hafi komið til borgarinnar á miðvikudagskvöld og hafi verið í Landsbankanum fimmtudag og föstudag. í máli Lúðvíks kemur fram að hann kunni ekki við þau vinnubrögð að hafa ekkert fengið að vita um kaupverð, greiðsluskilmála eða ann- að sem í samkomulaginu felst. Hann segir að meðferð þessa máls sé ekki í samræmi við lög um við- skiptabanka frá árinu 1986. Þar sé kveðið á um að það sé í verkahring bankaráðs að taka ákvarðanir sem þessar. Hann bendir einnig á að ekki hafi enn verið aflað heimildar frá bankamálaráðherra til kaup- anna á Samvinnubankanum en samkvæmt fyrrgreindum lögum geti ríkisbankastofnun ekki yfirtek- ið aðra innlánsstofnun án heimildar ráðherra. Pétur Sigurðsson formaður bankaráðs segir að ekkert sé óeðli- legt við vinnubrögð bankastjómar í þessu máli. Undir það sjónarmið taka bæði Kristinn Finnbogason og Jón Þorgilsson. Pétur segir að menn verði að átta sig á því að engin kaup hafa farið fram og muni ekki fara fram fyrr en bankaráðið leggur blessun sína yfir þau. Því hafi lögin um viðskiptabanka ekki verið brot- in, „Ákvæði laganna taka ekki til málsins fyrr en bæði kaupandi og seljandi hafa samþykkt sölu bank- ans fyrir sitt leyti,“ segir Pétur. Hann segir það einnig rangt að ekkert hafi verið rætt um málið innan bankaráðs því þar hafi það oft borið á góma. Kristinn Finnbogason segir að á hinum óformlega fundi með Sverri á fimmtudag hafi meirihluta banka- ráðs verið gerð grein fyrir stöðu málsins í stórum dráttum og þróun þess fram að þeim tíma. Kristinn segir að hann telji að kaupin á Samvinnubankanum séu Lands- bankanum til hagsbóta og geti orð- ið bankanum hagstæð, einkum með tilliti til þeirrar endurskipulagning- ar sem nú stendur fyrir dyrum þar. Jón Þorgilsson segir að hann hafi ekkert við vinnubrögð banka- stjómar að athuga í þessu máli. Telur hann að framgangsmáti þess hafi verið eðlilegur. Samkomulag það sem gert var er með fyrirvörum um samþykki bankaráðs og það muni svo ráðast af vilja ráðsins hvort samkomulagið verður sam- þykkt. Félagsstofinun stúdenta: Þrír deildar- stjórar segja upp störfum ÞRÍR deildarstjórar hjá Félags- stofúun stúdenta, yfirmenn Bók- sölu og Ferðaskrifstofu stúdenta og húsnæðisdeildar FS, hafa sagt störfúm sínum lausum. Að sögn framkvæmdastjóra FS eru manna- breytingar hluti af fyrirhugaðri endurskipulagningu. Eiríkur Ingólfsson framkvæmd- stjóri sagði að næstu 6-8 mánuði yrði rekstur fyrirtækisins endur- skipulagður til að lækka kostnað, minnka yfirbyggingu og fækka í yfir- stjórn. „Tveir deildarstjóranna höfðu þegar áformað að hætta störfum á næstu mánuðum. Þrír sögðu upp, en aðeins einn er hættur nú þegar. Hin- ir hætta einhvern tímann fyrir ára- mótin,“ sagði Eiríkur. „í húsnæðis- málunum ætlum við að leggja meiri áherzlu á tæknimálin og setja hér upp eins konar tæknideild með tæknifræðingi til að annast viðhald á húsunum."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.