Morgunblaðið - 07.09.1989, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1989
Gjaldþrot Holiday Inn:
Heildarkröfur í búið nema
um 710 milljónum króna
30 milljónir eftir til greiðslu 270 milljóna skulda
SKIPTAFUNDUR I þrotabúi Guð-
björns Guðjónssonar hf., sem átti
Holiday Inn hótelið, var haldinn á
mánudag. Heildarkröfúr námu um
710 milljónum. Kaupverð hótels-
ins, um 396 milljónir, rann til veð-
hafa að frátöldum 22 milljónum,
en um 30 milljónir eru eftir af
eignum búsins til úthlutunar í 271
milljón króna kröfúr, sem bústjóri
mælir með að verði samþykktar.
Við gjaldþrotið lá fyrir tilboð frá
bresku hótelkeðjunni Trusthouse
Forte í hótelið upp á 7 milljónir doll-
ara. Miðað við gengi 1. apríl nam
það 370 milljónum króna. Að frátöld-
um 22 milljónum króna rann kaup-
verðið allt til veðhafa, en skuldir
vegna veðsetningar og kaupleigu-
samninga námu rúmum 420 milljón-
um. Fram kemur hjá bústjóranum,
að þótt eignimar hefðu selst fyrir
allt að 60 milljónum meira, það eru
þær kröfur sem kaupendumir lýstu
ekki, hefðu veðhafar á eftir Iðnaðar-
banka og Glitni ekki fengið neitt í
V élstj órasamningnr felldur
FÉLAGAR í Vélstjórafélagi Suðumesja felldu samhljóða nýgerðan
kjarasamning félagsins við viðsemjendur á fúndi á mánudagskvöld.
Samningurinn gilti til áramóta og
var á svipuðum nótum og samningur
ASI frá því í vor. Vélstjórar höfðu
boðað verkfall frá 4. september, en
frestuðu því þegar samningar tókust
á föstudaginn var.
Jón Kr. Olsen, formaður félagsins,
sagði að þýðingarmikil atriði hefðu
ekki fengist inn í samninginn og því
hefði verið samstaða um að fella
hann. Hann sagði að fundur hefði
verið ákveðinn með vinnuveitendum
í gærkveldi og eftir hann yrði tekin
ákvörðun um framhaldið.
sinn hlut, þar sem þeir lýstu ekki
um 60 milljóna kröfum í búið. Að
frádregnu söluverði hótelsins og
greiðslu til veðhafa, nema lýstar
kröfur rúmum 317 milljónum króna
en bústjóri mælir með samþykkt
271,2 milljóna króna.
Til greiðslu á þeim kröfum koma
30,3 milljónir króna, þar af renna
11,5-20,6 milljónir til greiðslu for-
gangskrafna, allt eftir niðurstöðu
skiptaréttarmáls sem Gjaldheimtan í
Reykjavík höfðar gegn búinu vegna
ágreinings um hvort 9,1 milljóna
króna vanskil á staðgreiðslu opin-
berra gjalda beri að flokka með for-
gangskröfum eða almennum.
Ogreiddar kröfur utan skuldaraðar
nema 71,7 milljónum króna, sam-
kvæmt afstöðu bústjóra, og aðrar
almennar kröfur 188 milljónum, þar
með talin fyrrgreind krafa Gjald-
heimtunnar. í nokkrum tilfellum hef-
ur afstöðu bústjórans verið mótmælt
og kunna því almennar kröfur enn
að hækka.
VEÐURHORFUR íDAG, 7. SEPTEMBER
YFIRLIT í GÆR: Búist er við stormi á Austur- og Færeyjadjúpi.
Austur víð IMoreg er 978 mb lægð á leið aust-norðaustur og minnk-
andi 998 mb lægð skammt vestur af Reykjanesi þokast austur.
Heldur kónar í veðri.
SPÁ: Norðan- og norðvestan gola eða kaldi og smáskúrir á annesj-
um norðan- og austanlands, en hægviðri og þurrt og bjart veður
sunnan- og suðvestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Hæg suðvestan átt, smáskúrir á Suðvest-
urlandi en léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Fremur svalt.
HORFUR Á LAUGARDAG: Stíf sunnanátt og hlýnandi veður. Þurrt
á Norðausturlandi en annars rigning víða um land.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
híti veður
Akureyrí 6 alskýjað
Reykjavik 8 úrkoma
Bergen 13 skýjað
Helsinki 17 skýjað
Kaupmannah. 17 skýjað
Narssarssuaq 3 léttskýjað
Nuuk 2 þoka
ósia 21 léttskýjað
Stokkhólmur 18 skýjað
Þórshöfn' 11 skýjað
Algarve 26 léttskýjað
Amsterdam 22 mistur
Barcelona 24 alskýjað
Berlín 20 léttskýjað
Chicago 21 alskýjað
Feneyjar 23 léttskýjað
Frankfurt 19 léttskýjað
Glasgow 15 rigning
Hamborg 16 mistur
Las Palmas vantar
London 24 léttskýjað
Los Angeles 17 heiðskírt
Lúxemborg 19 léttskýjað
Madrid 16 súld
Malaga 25 skýjað
Mallorca 23 úrkoma
Montreal 16 skýjað
New York 16 skýjað
Orlando 26 iéttskýjað
Paris 21 léttskýjað
Róm 25 skýjað
Vín 19 léttskýjað
Washington 19 alskýjað
Winnipeg 17 skýjað
Morgunblaðid/Magnús Gíslason
Þórir B. Guðjónsson, viðgerðarmeistari ferðarinnar, Jóhann Pétur
Sveinsson, formaður Sjálfsbjargar, Erla Sandholt, eldabuska og skrif-
stofústúlka og Gunnar Siguijónsson, aldursforseti ferðarinnar, í Stað-
arskála, þar sem hópurinn gisti í fyrrinótt.
Hj ólastólaferðin:
Rúmlega ein milljón
hefur safiiast í ferðinni
„OKKUR sækist ferðin vel, en veðrið hefúr að vísu verið ansi kulda-
legt,“ sagði Jóhann Pétur Sveinsson, formaður Sjálfsbjargar og einn
fjögurra hjólastólaökumanna, sem nú eru á leið frá Akureyri til
Reykjavíkur. í nótt gistu þeir og aðstoðarmenn þeirra á Hvanneyri
í Borgarfírði.
Ferðin í gær hófst frá Reykja-
skóla í Hrútafírði og það var aldurs-
forsetinn Gunnar Sigurjónsson, 69
ára, sem fór fyrsta spölinn, þriggja
klukkustundar ferð að Brú. Hann
lauk ferðinni í gærkvöldi, þegar
komið var að Hvanneyri á tíunda
tímanum. „Við lentum í dálitlum
erfiðleikum við Dalsmynni, þar sem
nýbúið var að hefla veginn og hann
var erfiður yfirferðar,“ sagði Jó-
hann. „Áheitasöfnunin gengur vel
og nú hefur safnast rúmlega 1 millj-
ón. Vegfarendur hafa stöðvað bíla
sína og gefið okkur fé og ekki má
gleyma að minnast á frábærar við-
tökur alls staðar. Þannig var okkur
boðin gisting og fæði í Staðarskála
og hópurinn leystur út með 10 þús-
und krónum. Sama var uppi á ten-
ingnum á Blönduósi, Víðigerði og
í Hreðavatnsskála. Á síðastnefnda
staðnum var stödd rúta með eldri
borgara og þeir söfnuðu í snarhasti
tæpum 12 þúsund krónum. Ef ég
ætti að telja upp alla þá sem hafa
lagt eitthvað af mörkum, þá efast
ég um að Morgunblaðið dygði til.“
Hópurinn verður um klukkan
10.15 í dag í Borgarnesi, um klukk-
an 14.15 við Akranesafleggjarann
og endar klukkan 22.30 við Laxá
í Kjós. Á morgun lýkur ferðinni í
Reykjavík.
Ólafiir Ólafs-
son ráðinn
forstjóri
Alafoss
STJÓRN Álafoss hf. hefiir
ákveðið að ráða Ólaf Ólafsson,
framkvæmdastjóra Álafoss
USA, sem forstjóra fyrirtækis-
ins í stað Jóns Sigurðarsonar,
sem senn lætur af störfúm að
eigin ósk.
Ólafur lauk prófi frá Samvinnu-
skólanum árið 1976 og hóf strax
að því loknu störf hjá bresku ullar-
fyrirtæki. Fljótlega stofnaði hann
sitt eigið fyrirtæki, Icewear, sem
seldi íslenskan ullarfatnað erlend-
is. Samhliða því stundaði Ólafur
nám við Háskóla Islands og lauk
þaðan prófi í viðskiptafræði. í maí
1986 réðst hann sem fram-
kvæmdastjóri til Samband Ind-
ustries í Ohio og tók síðan við
hliðstæðu starfi hjá Álafoss USA,
eftir stofnun Álafoss hf. í desem-
ber 1987.
Ekki hefur verið ákveðið hve-
nær forstjóraskipti hjá Álafoss
verða, en í frétt frá stjóm fyrir-
tækisins segir, að það verði til-
kynnt á næstunni.
Larsen til
íslands
DANSKI skákmeistarinn Bent
Larsen kemur til íslands um
miðjan mánuðinn og mun tefla
talsvert hér á Iandi meðan hann
stendur við.
Larsen dvelur hér dagana
16.-25. september, en 29. septem-
ber hefst í Danmörku keppni
hans, Margeirs Péturssonar og
fínnska skákmeistarans Jouni Yq'-
öla um rétt til þátttöku á milli-
svæðamóti á næsta ári.
Larsen teflir fjöltefli á Akur-
eyri sunnudaginn 17. september
á vegum Skákfélags Akureyrar.
19. september keppir hann við
gesti og gangandi í Kringlunni
og síðan teflir hann við banka-
menn 21. september. Þá mun
hann taka þátt í helgarskákmóti
á vegum tímaritsins Skákar, sem
væntanlega fer fram í Keflavík,
dagana 22.-25. september.
Þrefaldur
vinningur
í lottóinu
TVO síðustu laugardaga hefúr
enginn unnið hæsta lottóvinn-
inginn og verður potturinn því
þrefaldur á laugardaginn. Um
miðja þessa viku var vinnings-
upphæðin komin upp í tæpar
fimm milljónir króna og býst
Vilhjálmur Vilhjálmsson fram-
kvæmdastjóri Islenskrar get-
spár við að hún nemi að minnsta
kosti átta milljónum þegar dreg-
ið verður í lottóinu á laugardags-
kvöldið.
Vilhjálmur sagði að þegar pott-
urinn væri tvöfaldur ykist sala lot-
tómiða til muna og jafnvel enn
meira þegar hann er þrefaldur.
Annars væri erfitt að sjá hversu
stór potturinn verður fyrr en komið
er að drætti. Venjulega fer helm-
ingur sölunnar fram fyrri hluta
vikunnar og til klukkan tvö á laug-
ardögum og afgangurinn frá
klukkan tvö og þar til sölu er hætt.
Þetta er í sjötta sinn frá því að
byijað var að draga í lottóinu sem
potturinn er þrefaldur og í þriðja
sinn á þessu ári. Stærsti vinningur
sem hefur komið á einn miða er
ellefu milljónir króna, en 119 hafa
unnið milljón eða meira.