Morgunblaðið - 07.09.1989, Qupperneq 7
7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1989
Umboðsmaður Alþingis:
Hækkun á póstburðargj öldum
óheimil meðan verðstöðvun gálti
Utgáfa gjaldskrár Bifreiðaskoðunar tslands í bága við lög
GAUKUR Jörundsson, umboðsmaður Alþmg-is, hefur komist að þeirri
niðurstöðu að hækkun á póstburðargjöldum, sem kom til fram-
kvæmda 16. október 1988 á meðan verðstöðvun var í gildi, hafi ver-
ið óheimil. Þá álítur hann að útgáfa gjaldskrár fyrir Bifreiðaskoðun
Islands, sem gefin var út 2. janúar siðastliðinn, hafi einnig farið í
bága við lög um verðstöðvun.
Neytendasamtökin sendu um-
boðsmanni Alþingis kvörtun í jan-
úar síðastliðnum vegna hækkunar
á póstburðargjöldum og ákvarðana
stjórnvalda um hækkanir bensín-
gjalds, þungaskatts og bifreiða-
gjalds í árslok 1988. Óskuðu Neyt-
endasamtökin eftir áliti hans á lög-
mæti hækkananna með tilliti til
ákvörðunar stjórnvalda um verð-
stöðvun á tímabilinu 27. ágúst 1988
til 28. febrúar 1989.
Gaukur Jörundsson segir í áliti
sem hann hefur sent frá sér vegna
kvörtunar Neytendasamtakanna,
að hann telji að ákvarðanir stjóm-
valda um hækkanir bifreiðagjald-
anna hafi ekki farið í bága við þá
verðstöðvun sem í gildi var. Hins
Reykjanesskóli við ísafjarðardjúp:
Skólasljóráin í ársleyfi
SKARPHÉÐINN Ólafsson skóla-
stjóri Reykjancsskóla við Isafjarð-
ardjúp hefúr ákveðið að taka árs-
Kindakj ötssalan;
1000 tonn
seld í ágúst
SALA á kindakjöti í ágúst er
talin hafa verið um 1.000 tonn,
um 100 tonnum meira en í júlí.
Sala kindakjöts innanlands á
verðlagsárinu verður því væntan-
lega nálægt 8.700 tonnum, en það
er svipuð sala og var næstu tvö
verðlagsár á undan.
leyfi frá störfum en Svavar Gests-
son menntamálaráðherra bauð
honum að fara í leyfí eða verða
vikið úr stöðunni. Búið er að aug-
lýsa stöðuna lausa til umsóknar.
í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Skarphéðinn að hann væri
ósáttur við þau vinnubrögð mennta-
málaráðuneytis að auglýsa stöðuna
án nokkurs samráðs við sig. Hann
hefði viljað láta starfsfólk og kenn-
ara skólans vita um það sjálfur að
ráða ætti annan skólastjóra.
Skarphéðinn segist ekki vilja vera
á staðnum áfram og hyggst því flytja
með fjölskyldu sína frá Reykjanesi.
Ætlast er til að þeir skólamenn sem
fá ársleyfi frá störfum nýti það til
að setjast á skólabekk en vegna þess
hve fljótt þetta ber að segist Skarp-
héðinn ekki vita hvar eða hvenær
hann komist til náms.
vegar hafi ekki verið heimilt að láta
hækkun á póstburðargjöldum koma
til framkvæmda á meðan verðstöðv-
un var við líði. í svari samgöngu-
ráðuneytisins við bréfi Gauks, þar
sem hann óskaði skýringa ráðu-
neytisins vegna kvörtunar Neyt-
endasamtakanna, kemur fram að
hækkun póstburðargjaldanna sem
gildi tók 16. október hafi verið sam-
þykkt á ríkisstjómarfundi 5. júlí
1988. Um hafi verið að ræða hluta
af gjaldskrárbreytingu sem gildi tók
16. júlí, og þar sem hækkunin hafi
verið samþykkt og auglýst áður en
bráðabirgðalög um verðstöðvun
tóku gildi þá hafi hún ekki brotið
í bága við þau. Gaukur kemst hins
vegar að þeirri niðurstöðu að fyrir-
mæli í bráðabirgðalögunum verði
að skýra á þann veg, að óheimilt
hafi verið að hækka gjaldskrár fyr-
irtækja á vegum ríkis og sveitarfé-
laga á meðan verðstöðvun var í
gildi nema undantekningarákvæði
í þeim hefðu átt við. Svo hafi ekki
verið í þessu tilfelli, og hann telji
því umrædda hækkun á póstburðar-
gjöldunum hafa verið óheimila fyrr
en eftir 28. febrúar 1989.
Gaukur Jörundsson tók að eigin
frumkvæði til athugunar hækkun á
gjöldum fyrir skráningu ökutækja
og skráningarmerki, svo og á gjöld-
um fyrir skoðun ökutækja sam-
kvæmt gjaldskrá fyrir Bifreiðaskoð-
un íslands, sem birt var í Stjórnar-
tíðindum 6. janúar síðastliðinn.
Hann kemst að þeirri niðurstöðu
að telja verði Bifreiðaskoðun ís-
lands fyrirtæki á vegum ríkisins,
og því hafi gjaldskrárhækkunin
brotið í bága við lögin um verð-
stöðvun.
Saltað hjá Pólarsíld.
Síldveiðar má
hefla 8. október
Kvótinn nemur 1.100 tonnum á hvern bát
Sjávarútvegsráðuneytið hefúr ákveðið að síldveiðar megi almennt
heQa þann 8. október nk. Þeir aðilar, sem tryggt hafa sér móttöku
á síld til frystingar, um borð eða í landi, fyrir þann tíma, geta
þó hafið veiðar 20. september, en þurfa áður að sækja sérstaklega
um slíka undanþágu til ráðuneytisins, að sögn Jóns B. Jónasson-
ar, skrifstofustjóra í sjvarútvegsráðuneytinu.
Heildarsíldarkvóti á vertíðinni,
sem stendur til áramóta, nemur
90 þúsund lestum og koma 1.100
lestir í hlut hvers síldarbáts, eitt
hundrað tonnum meiri kvóti heldur
en í fyrra.
Alls hafa nú 87 skip síldveiði-
réttindi, en vitað er að nokkur
skip fara ekki til veiða. Skip hafa
mátt framselja veiðiheimildir sínar
þrjú ár í röð. Hinsvegar hafa tíu
skip af þessum 87 skipum, sem
nú hafa veiðiréttindi, ekki rétt til
framsals lengur. Ef þau hyggjast
nýta kvóta sína, þurfa þau sjálf á
síldveiðar. Þau tíu skip, sem um
ræðir, eru: Elliði GK, Helga RE,
Sólfell EA, Siguijón Arnlaugsson
HF, Helguvík AR, Hilmir SU,
Þórunn Sveinsdóttir VE, Una í
Garði GK, Sæþór EA og Hvanney
SF.
Ali álegg ■ . ■ hefurðu smakkað eitthvað betra?
Rúllupylsa ■ Spœgipylsa ■ Hamborgarahryggur ■ Skinka ■ Malakoff ■ Pepperoni • MortadeUa