Morgunblaðið - 07.09.1989, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1989
verslunin að Laugavegi 13, býður
upp á sófa, stóla,
púða, sængurver,
handklæði og
vefnaðarvörur í
miklu úrvali.
habitat
Vörulistinn frá Habitat er þægUegur
verslunarmáti sem býður upp á
mikið úrval af gjafavörum og
húsbúnaði fyrir heimilið.
habitat
Laugavegi 13 — 101 Reykjavík
W 91-625870
V/SA
EUROCARD
HYBREX
FVUKOMW
SIMAKERFI
Amjöggömiverm
Bíður fyrir þig og gerir viðvart,
man og minnir á, sendir skilaboð og svarar
þeim. Eitt handtak leysir mörg af hólmi
HYBREX - ÓDÝRT, FJÖLHÆFT
OG FULLKOMIÐ SÍMAKERFI
Heimilistæki hf
LEITIÐ UPPLÝSINGA
Á TÆKNIDEILD
HEIMILISTÆKJA.
TæKnideild • Sætúni8
SÍMI: 69 15 00
'SOMUHgjUM
MARGT SMÁTT
GERIR EITT STÓRT
Siálfstæðisflokkurinn kemur á fót styrktarmannakerfí
eftir Friðrik
Sophusson
Um þessar mundir er Sjálfstæðis-
flokkurinn að koma á fót styrktar-
mannakerfi. Þátttakendum er gef-
inn kostur á að greiða reglulega
viðráðanlega upphæð, sem rennur
til flokksstarfseminnar. Framlög
styrktarmanna renna annars vegar
til þeirra félaga, sem flokksmenn
eiga aðild að og hins vegar til mið-
stjórnarskrifstofunnar, sem sér um
sameiginlega starfsemi og þjónar
félögrim um land allt.
Meiri tilkostnaður
- minni tekjur
Þótt langmestur hlutj starfsemi
Sjálfstæðisflokksins sé unninn af
áhugafólki, sem leggur á sig mikla
vinnu án umbunar, þarf flokkurinn
á fjármagni að halda til að standa
-straum af alls kyns tilkostnaði. Á
síðustu árum hefur kostnaðurinn
aukizt í takt við nýjar og auknar
kröfur, sem gerðar eru. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur þess vegna eins
og aðrir stjórnmálaflokkar átt í erf-
iðleikum með að ijármagna rekstur-
inn og safnað nokkrum skuldum.
Kosningabaráttan fyrir alþingis-
kosningarnar 1987 varð flestum
stjórnmálaflokkum afar dýr.
SJALFSTJEDISFLOKKURINN
() II Á R A
Styrktarmaður
| sjAlfstædisflokksins |
Sjálfstæðisflokkurinn er um þess-
ar mundir að koma á fót styrktar-
mannakerfi til að tryggja fjár-
hagslegan grundvöll þróttmikils
sljórnmálastarfs.
Ástæðan var sú, að sjónvarpsaug-
lýsingar í stórum stíl héldu innreið
sína og hleyptu kostnaðinum upp
úr öllu valdi.
Vor- og hausthappdrætti hafa
verið helztu tekjulindir Sjálfstæðis-
flokksins. Stjórnmálaflokkarnir
gjalda þess eins og svo mörg önnur
félagasamtök, að hefðubundin
happdrætti eiga erfitt uppdráttar í
samkeppni við skafmiða, lottó og
getraunir. Þeir, sem njóta afrakst-
urs þessarar fjáröflunar, eiga það
fyllilega skilið, en um leið verða
stjórnmálaflokkarnir að finna nýjar.
Á að styrkja
stjórnmálaflokka af
opinberu fé?
Innan stjórnmálaflokkanna háfa
að undanförnu farið fram umræður
um ijárhagslegan grundvöll stjórn-
málastarfseminnar í landinu.
Vitað er, að forystumenn sumra
stjórnmálaflokka á vinstri væng
stjórnmálanna telja eðlilegt og
æskilegt að stjórnmálaflokkarnir
njóti framlaga úr ríkissjóði til starf-
semi sinnar. Þeir telja það lýðræðis-
lega skyldu ríkisins að sjá til þess
að stjórnmálaflokkar, a.m.k. þeir,
sem hlotið hafa þingsæti í kosning-
um, njóti fyrirgreiðslu ríkisins til
að geta haldið úti starfsemi sinni.
Sjálfstæðismenn hafna þessum
sjónarmiðum. Það er að vísu rétt,
að stjórnmálaflokkar og starfsemi
þeirra eru forsendur lýðræðis, þar
sem það hefur þróazt og lýðræði
og mannréttindi eru í hávegum
höfð. Það er hins vegar skoðun
flestra sjálfstæðismanna, að flokk-
arnir eigi ekki að byggja tilveru
sína á fjármunum skattborgaranna
heldur á framlagi flokksmanna og
stuðningsmanna. Opinberir styrkir
til stjórnmálaflokka, umfram sér-
fræðiaðstoð til þingflokka, gera þá
háða rikisvaldinu og veita þeim for-
Hver á sök á
verðbólgunni?
vera 308,77 á kg til bænda, en
skv. grundv. 1/10 1983 kr. 95,42,
þ.e. 3,2 föld hækkun. Ég keypti
dilkakjöt niðursagað eftir minni ósk
haustið 1983 á kr. 106,00, en í júní
1989 á kr. 384,70, þ.e. 3,6 föld
hækkun.
Ég vil nú benda á nokkur dæmi
um hækkanir á vörnverði rar þjðn. ustu frá árinu 1983 þar til nú: Jóhann Þórðarson
Kr. ’83 Kr. ’89 Hækkun
Mjólk per Iítra 17,10 60,00 3,5 föld
Kaffipakki 26,95 97,00 3,6 föld
Haframjöl 950 g 41,70 128,00 3,0 föld
Ýsa slægð og hausuð 36,30 187,00 5,2 föld
Smjörlíki per kíló 49,40 194,00 3,9 föld
Hrísgijón 500 g 17,15 58,00 3,4 föld
CocoaPuffs481g 102,85 245,00 2,4 föld
Cornflakes 500 g 53,55 164,00 3,0 föld
Lýsi, flaska 36,30 188,00 5,2 föld
Lúx handsápa 9,95 46,00 4,6 föld
Burðar- og áb.gj.bréfa 20,50 84,00 4,0 föld
Afnotagjöld sjónvarps 2.999,00 18.000,00 6,0 föld
Áskrift dagbl. íjúlí 230,00 900,00 3,9 föld
Skoðunargjald bifreiða 120,00 1.960,00 16,0 föid
Heimilistrygging 725,00 3.556,00 4,9 föld
Líftrygging 810,00 5.249,00 6,5 föld
Hiti frá hitav. R. p/rm3 6,32 32,70 5,17 föld
Flugfargj. Rvík.-Isaij. 1.148,00 4.218,00 3,67 föld
eftir Jóhann
Þórðarson
í Morgunblaðinu 30. júlí sl. er
fjallað um landbúnað á Islandi og
á það bent að verð á t.d. dilkakjöti
og mjólk hafi hækkað langt umfram
verðbólgu. Niðurstaða greinarhöf-
undar er sú að ástæðan fyrir þess-
ari hækkun, sem sé óeðlileg miðað
við aðra vöru, stafi af óhagkvæmum
rekstri í landbúnaði og bændum
kennt um eins og fyrr _að þeir eigi
aðalsök á verðbólgu á íslandi.
Ég tel mig hafa fylgst nokkuð
með þróun á vöruverði og þjónustu
í gegnum tíðina og fór því að kanna
mitt heimilisbókhald með því að
bera saman verð á árinu 1983 og
eins og það er nú. Niðurstaða mín
var sú eins og mig grunaði að ekki
væri rétt með farið í tilvitnaðri grein
því fram kom að dilkakjöt og mjólk
hafði ekki hækkað meira en önnur
vara og var hækkunin frekar í neðri
kantinum. Að sjálfsögðu tók ég til
viðmiðunar verð á nýmjólk á fernum
og verð á dilkakjöti, þegar keyptir
eru heiiir skrokkar sundurteknir
eftir ósk kaupanda, þ.e. í kótelett-
ur, lærisneiðar, grillsneiðar og þess
háttar. Frekari úrvinnsla á vöru
þessari tel ég ekki að tilheyri land-
búnaði, heldur iðnaði eða verslun.
Að sjálfsögðu er vinna við niðursög-
un á kjötinu og verslunarálagning
innifalin í verði því sem ég tilgreini
hér á eftir. Ég vil benda á að í
nokkrum tilvikum styðst ég við verð
það sem auglýst hefur verið á vör-
unni í Lögbirtingablaðinu, en aðal-
lega við verð það sem ég hef fært
inn í mitt heimilisbókhald hverju
sinni.
Ég vil benda á að lánskjaravísi-
tala var 727 stig í ágúst 1983 en
er nú 2.557 stig í ágúst 1989, þann-
ig að vísitala þessi hefur hækkað
3,5 falt.
Skv. verðlagsgrundvelli 1. okt.
1988 átti verð á dilkakjöti DIA að
Svo að ógleymdum ryksugupok-
unum, sem ég frétti af nú á dögun-
um, sem kostuðu í júní 1983 kr.
30,00, en nú eitthvað á fjórða
hundrað krónur, þ.e. sem næst 11
föld hækkun.
Til viðbótar þessu vil ég benda á
að þann 10. sept. 1981 kostaði
tonnið af sementi kr. 983,00 en nú
2. ágúst 1989 kr. 10.250, hækkun-
in er er 10,43 föld. Dilkakjötið kost-
aði þá 41,05 en nú skv. auglýstu
verði 404,10 (ekki tilboðsverðið),
hækkunin er 9,8 föld. Ýsan kostaði
3. ágúst 1981 kr. 9,95 en nú
187,00, hækkunin er 18,79 föld.
Mjólkin kostaði 21. sept. 1981 kr.
6,05 1, en nú kr. 60, hækkunin er
9,91 föld. Flugfargj. Rvík-Ísafj..
kostaði 1983 í nóv. 376, nú kr.
4.218, hækkunin er 11,2 föld.
„Það sem mér fínnst
aðallega villa um fyrir
mönnum sem fjalla um
hagræðingu er það að
þeir telja nauðsynlegt
að stækka rekstrarein-
ingarnar og þá sama
hvers eðlis reksturinn
er. Ljóst er að þetta er
ekki algild lausn. Það
gildir ekki sama reglan
hvort verið er að fram-
leiða eldspýtur eða
dilkakjöt og mjólk, það
hljóta allir að sjá.“