Morgunblaðið - 07.09.1989, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1989
25
Getgátur um tildrög flugslyssins í Brasilíu:
Knattspyrnuáhugi flu g-
mannsins ástæða slyssins?
Rio de Janeiro. Frá SigTÍöi Sundin, fréttaritara Morgnnblaðsins.
FLAK Boeing 737 farþegaþotu brasilíska flugfélagsins Varig, sem
saknað var siðastliðinn sunnudag, hefiir fundist í Mato Grosso,
víðs (jarri áætlaðri flugleið hennar og komust 46 maður lífs af
úr slysinu. 8 létust. Tildrög slyssins eru vægast sagt óljós, en
orðrómur er á kreiki um flugmaðurinn hafi sett sjálfstýringu
vélarinnar á til þess að hlusta á lýsingu á landsleik Brasilíu og
Chile. Hann hafi hins vegar matað hana á alröngum upplýsingum.
Farþegavélin var á leið frá Sao
Paulo til borgarinnar Belem, sem
er stærsta borgin á Amazon-svæð-
Fífliðfeer-
ir sig upp
á skaftið
London. Daily Telegrapli.
HIRÐFÍFLI sem skemmt hef-
ur gestum á sýningunni
„Breska konungdæmið" í
London hefiir verið skipað að
hætta að gera gys að núlif-
andi kóngafólki og einskorða
fyndni sína við Hinrik VIII og
konur hans.
Kim Keble-White er markaðs-
stjóri sýningarinnar sem sett er
upp af einkafyrirtæki og fjallar
um breska konungdæmið í þús-
und ár. Hann segist óttast að
breska konungsfjöiskyldan
móðgist við gamanmál hirðfífls-
ins sem notaði tækifærið á með-
an yfirmaðurinn var í fríi og
sneri sér að skopsögum um nú-
lifandi kóngafólk.
Maður að nafni James Lovell
leikur hirðfíflið og er Will So-
mers, hið fræga hirðfífl Hinriks
VIII, fyrirmyndin. Lovell segist
ekki hafa séð tilganginn í því
að tyggja gamla brandara um
kvennamál Hinriks VIII því eng-
inn myndi skilja þá. Hann segir
að markaðsstjórinn sé barnaleg-
ur og einfaldur og er staðráðinn
í að halda áfram að gera grín
að „skilnaði Önnu prinsessu og
blómaást Karis prins“.
að koma saman tillögum um eftir-
litsákvæði, sem þeir segja væntan-
legan samning standa og falla með.
Eftirlitsákvæði þessi eiga að koma í
veg fyrir að annar hvor samnings-
aðila geti farið í kring um samning-
inn eða brotið hann.
NATO-þjóðirnar vilja að hernað-
arsérfræðingar þeirri geti reglulega
farið í eftirlitsferðir til þúsunda hern-
aðarlega mikilvægra svæða í Sov-
étríkjunum og leppríkja þeirra í Aust-
ur-Evrópu.
Sum NATO-ríkjanna vilja að auki
einhveijar takmarkanir á fjölda her-
flugvéla Sovétmanna austan Ural-
fjalla, en á hættutímum væri hæg-
lega unnt að fljúga þeim vestur á
bóginn með litlum sem engum fyrir-
vara. Herþotur Bandaríkjahers
þyrftu hins vegar að komast yfir
Atlantshafið fyrst, þánnig að á
hættutímum glataðist þar tími, auk
þess sem þoturnar væru berskjald-
aðri fyrir árásum en flugfloti Sovét-
manna.
Önnur aðildarríki NATO telja hins
vegar að slíkar kröfur NATÖ muni
einungis tefja og flækja umræðurn-
ar, sem nú þegar eru gífurlega viða-
miklar og flóknar, og segja þær einn-
ig vísan veg til þess að Sovétmenn
geri gagnkröfur á umsvif NATO utan
meginlands Evrópu.
■ Þá munu NATO-ríkin ekki á eitt
sátt um hugsanlegt eftirlit vest-
rænna sérfræðinga í skriðdrekaverk-
smiðjum Austantjaldslandanna, en
Bretar og Frakkar munu ekki reiðu-
búnir til 'þess að leyfa samskonar
eftirlit kommúnistaríkjanna í skrið-
drekaverksmiðjum sínum.
inu. Flugleiðin er 4.000 km löng,'
en millilent var í nokkrum bæjum
og borgum á leiðinni.
Það var leitarvél frá brasilíska
flughernum, sem fann flakið, en
erfitt var að koma björgun við
vegna óveðurs. Vistum og lyijum
var varpað niður að því í fallhlíf.
Svarti kassinn svonefndi hefur
enn ekki fundist, þannig að ekki
er hægt að segja nákvæmlega fyrir
um hvernig slysið bar að höndum.
Helst er talið að flugmaðurinn hafi
sett sjálfstýringuna á, en matað
hana áröngum upplýsingum þannig
að vélin flaug suður en ekki norð-
ur, eins og vera bar. Flugmaðurinn
hafi ekki uppgötvað mistök sín fyrr
en löngu síðar rammvilltur og þá
hafi hann hringsólað í tvo tíma í
stað þess að senda þegar út neyðar-
kall. Þegar eldsneytið þraut nauð-
lenti hann svo í Mato Grosso, í þétt-
um frumskógi.
Fjórir farþeganna gengu til
byggða, en þar reyndist engin leið
að koma skilaboðum, svo þeir héldu
áfram til næsta bæjar, þar sem loft-
skeytaáhugamaður gat komið boð-
um til yfirvalda.
Vonast er til þess að björgunar-
aðgerðir beri árangur í dag, en
gífurlegar rigningar og óveður hafa
hamlað þeim, auk þess sem frum-
skógurinn tefur þær mjög.
Tölvumistök:
41.000 París-
arbúar sakað-
ir um morð
París. Keuter.
MISTÖK við tölvuvinnslu urðu
nýlega til þess að 41.000 París-
arbúar voru ekki sektaðir fyrir
umferðarlagabrot heldur sak-
aðir um morð, fjárkúgun og
hórmang.
Talsmaður borgaryfiivalda
sagði að send hefðu verið bréf
til þeirra sem sekta átti fyrir að
leggja ekki bifreiðum sínum eins
og lög gera ráð fyrir. Einhver
mistök hefðu hins vegar orðið við
tölvuvinnsluna því í bréfunum
hefði Parísarbúunum verið til-
kynnt að þeim bæri að greiða
sekt fyrir morð, Qárkúgun og
hórmang.
, 41.000 afsökunarbeiðnir hafa
nú verið sendar.
mk
Siðustu bílarnir af Suzuki Swifl árgerð 1989
VERÐ ÚTSALA AFSLÁTTUR
599.000,- 549.000,- 50.000,-
650.000,- 590.000,- 60.000,-
711.000,- 653.000,- 58.000,-
682.000,- 626.000,- 56.000,-
745.000,- 683.000,- 62.000,-
SWIFT GA 3ja dyra, 5 gíra
SWIFT GL 3ja dyra, 5 gíra
SWIFT GL 3ja dyra, sjálfskiptur
SWIFT GL 5 dyra, 5 gíra
SWIFT GL 5 dyra, sjálfskiptur
Við seljum þar að auki 4 Swift GTi árgerð 1988
með ótrúlegum 202.000,- iar. afslætti.
Verð áður kr. 997.000,-, nú kr. 795.000,-
Útborgun frá kr. 150.000,-. Eftirstöðvar lánaðar til allt að 36 mánaða.
Suzuki Swift traustur og sparneytinn bíll.
$ SUZUKI
--V/M-----------
SVEINN EGILSSON HÚSI FRAMTÍÐAR
FAXAFENI 10 ■ SlMI 689622 OG 685100