Morgunblaðið - 07.09.1989, Side 31
........-... - M()H(iUNBl,A1)H) FIMMTUDAGUR 7: SEPTKMBEH l'989
------ ................................ . . . ■ . ■ -.............- ....... ...... .. ■ ....................
2000 laxa múrinn rofinn í
Kjósinni
Nú eru komnir um 2.050 laxar
á land úr Laxá í Kjós og bendir
ekkert til að aðrar ár nái slíkri
veiði. Laxá verður toppáin annað
árið í röð. Veitt er til 9. septem-
ber og spurning nú aðeins hvort
að talan 2.100 náist. Það gengur
lítið í ána þessa dagana, en dijúg-
ur lax er í ánni og fisk að finna
á flestum veiðistöðum.
Laxá á Ásum endaði með
720 stykki
720 laxar veiddust í Laxá á
Ásum og töldu kunnugir menn
ýmsir að lítið hefði verið eftir af
laxi í ánni í vertíðarlok. Þetta
gerir 360 laxa á hvora dagsstöng
í ánni á 90 dögum og sést glöggt
að það er engin neyð. Þ.e.a.s. þar
til að verð veiðileyfa er skoðað
en það er kapítuli út af fyrir sig
og þeir sem veiða í Laxá ætla sér
flestir eða allir miklu mun stærri
hlut heldur en ijóra laxa eftir
daginn.
Hér og þar og alls staðar
í fyrradag voru komnir 850
laxar úr Víðidalsá og voru þá
menn að ljúka tveggja daga veiði
með 38 laxa sem var mjög gott
miðað við afrakstur flestra hópa
í sumar. Enn verður veitt í nokkra
daga þannig að talan gæti nálg-
ast þúsund, helmingi ntinna en í
fyrra.
Selá gaf nýlega 850 laxinn. Þar
á eftir að veiða í nokkra daga og
að sögn nákunnugs Selármanns
veiðist nú fremur lítið á neðra
svæðinu, en menn séu enn að
lenda í góðurn tökum á Leifsstaða-
svæðinu. Hofsá hefur gefið heldut'
færri fiska.
Veiði er lokið í Þverá/Kjarrá
og veiddust um 1.300 fiskar. Einn
25 punda fiskur veiddist frammi
á ijalli undir lok veiðinnat', en all
nokkrir 20 til 22 punda laxar
veiddust hér og þar í sumar. í
Norðurá var léleg veiði og er ver-
ið að taka saman heildartöluna
þessa daganna. Eigi er víst að hún
nái 900 iöxum.
Loks má geta þess, að nokkuð
líf færðist í Svartá með septemb-
ermánuði, feðgarnir Garðar Þór-
hallsson og Garðar Garðarsson
veiddu í ánni daganna l.til 3. sept-
ember og drógu 9 fiska á þurrt.
Var það methollið í sumar og sáu
þeir félagar nokkuð af laxi, sér-
staklega í ármótunum við Blöndu.
Þetta voru 4 til 15 punda fiskar
og voru þá komnir um 90 laxar
á land.
Námsgagnastoftiun:
2 smábækur
HJÁ Námsgagnastofitun eru
komnar út bækurnar Lax lærir
að hlusta og Hani lærir að
fljúga. Höfundur bókanna er
Árni Árnason og er Sigurður
Örn Brynjólfsson, höfundur
myndefitis.
Báðat' eru bækurnar í flokki
svokallaðra smábóka, en það eru
bækur sem ætlaðar eru börnum
sem eru að læra að lesa.
Söguefni bó-
kanna byggir á
orðaforða sem
lagður er til með
lestrarbókinni Við'
lesum A, sem
N ámsgagnastofn-
un gefur út, og
eiga bækurnar því
að vera hentugt
framhaldslestrar-
efni við þá bók.
Bækurnar eru 24 bls. hvor í
brotinu A5 prentaðar í lit í prent-
smiðjunni Rún hf. og litgreindar
í Myndamótum hf.
(Frcttatilkynning)
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 6. september
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verðfkr.)
Þorskur • 62,00 40,00 55,52 2,155 119.643
Ýsa 127,00 80,00 97,68 3,254 317.864
Ufsi 24,00 24,00 24,00 0,199 4.776
Steinbitur 33,00 33,00 33,00 0,022 726
Lúða 310,00 270,00 295,56 0,036 10.640
Koli 49,00 46,00 46,08 0,450 20.736
Skötuselur 70,00 70,00 70,00 0,005 350
Gellur 300,00 áoo.oo 300,00 0,015 4.500
Kinnar 81,00 81,00 81,00 0,044 3.564
Samtals 78,12 6,180 482.799
1 dag verða meðal annars seld 30 tonn af þorski, 5 tonn af ýsu,
2 tonn af steinbít, 0,250 tonn af lúðu og óákveðið magn af
öðrum tegundum úr Stakkavík ÁR og fleiri bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 66,00 52,50 56,29 148,904 8.382.197
Þorskur(smár) 37,00 37,00 37,00 0,229 8.473
Ýsa 113,00 74,00 99,15 10,143 1.005.697
Karfi 37,00 35,00 36,59 23,195 848.714
Ufsi 32,00 31,00 31,47 9,956 313.330
Steinbítur 45,00 45,00 45,00 0,167 7.515
Hlýri+steinb. 45,00 45,00 45,00 1,357 61.065
Langa 37,00 34,00 34,39 3,890 133.772
Lúða(stór) 205,00 105,00 162,66 0,730 118.745
Lúða(smá) 200,00 200,00 200,00 0,045 9.000
Grálúða 45,00 45,00 45,00 '0,475 21.375
Skarkoli 52,00 50,00' 50,12 0,659 33.030
Skata 25,00 25,00 25,00 0,041 1.025
Samtals 54,78 199,792 10.943.868
Selt var úr Sigurey BA, Drangey SK og fleirum. í dag verða
meðal annars seld 130 tonn af þorski, 6 tonn af ýsu, 30 tonn
af karfa og 5 tonn af ufsa úr Engey RE, Gylli ÍS og bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 63,50 63,50 63,50 3,277 208.110
Ýsa 100,00 87,00 90,50 8,386 758.964
Karfi 34,50 15,00 30,90 0,092 2.843
Ufsi 35,00 15,00 32,48 0,755 24.525
Steinbítur 58,00 42,00 50,31 0,745 37.482
Langa 34,50 15,00 31,16 0,357 11.125
Blálanga 35,00 33,00 34,00 1,710 58.140
Lúða 320,00 210,00 257,00 0,070 17.990
Sólkoli 60,00 60,00 60,00 0,504 30.240
Keila 20,50 10,00 15,92 5,950 94.701
Skötuselur 370,00 370,00 370,00 0,011 4.070
Lax 235,00 235,00 235,00 0,035 8.225
Samtals 57,39 21,892 1.256.415
i dag verða meðal annars seld 8 tonn af ýsu, 6 tonn af karfa og
3 tonn af ufsa úr Hjalteyrinni EA, Jóhannesi KE og Reyni. Einn-
ig verður selt óákveðið magn af blönduðum afla úr bátum.
Þorsteinn frá Sjón Kristján Hrafitsson
Hamri
Ljóðaveisla Dags
DAGUR Sigurðarson, skáld og myndlistarniaður, býður í ljóðaveislu
í kvöld, fimmtudag, klukkan 21.
Veislan fer fram í nýopnuðunt sýningarsal í Hafnarstræti 4. í veislu
Dags verða lesin Ijóð auk þess sem ýmis lítið þekkt tjáningarform verða
kynnt.
Þau skáld sem lesa ljóð sín eru; Bragi Ólafsson, Þorsteinn 1‘rá Hamri,
Sjón, Birgitta Jónsdóttir, Margrét Lóa Jónsdóttir, Kristján Hrafnsson,
Jón Stefánsson, Einar Melax, Elísabet Jökulsdóttir, Þorri Jóhannsson,
Ferdinand, Jóhamar og Jón Gnarr.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúrn leyfit'. Kynnir
er Ari Bragason.
Rauða hringekj-
an komin út
RAUÐA hringekjan er nafit á
nýútkominni bók með píanóút-
setningum, sem ætlaðar eru fyr^
ir eitt píanó og Qórar hendur. I
bókinni eru 18 létt píauólög og
er • höfundur hennar Elías
Davíðsson, skólastjóri Tónlistar-
skólans í Ólafsvík.
Nöfn laganna lýsa vel þeirri fjöl-
breytni sem einkennir bókina, segir
í fréttatilkynningu, en þar er t.d.
að finna lög sem bera heitin: Viki-
vaki, París 1920, Palli prakkari og
Tína kátína, Drekahátíð, í Maura-
landi, Kafara-Ragtime og Rauða
hripgekjan.
íslensk tónverkamiðstöð gefur
bókina út á þremur tungumálum:
íslensku, þýsku og ensku. Rauða
hringekjan er önnur bókin sem
Tónverkamiðstöðin gefur út eftir
Elías Davíðsson en sú fyrri heitir
Á tíu fingrum urn heiminn.
Kápu bókarinnar hannaði Erl-
ingur Páll Ingvarsson og var hún
prentuð í ísafoldarprentsmiðju.
Rauða hringekjan fæst í íslensku
tónverkamiðstöðinni, Freyjugötu 1
og ýmsúm bókaverslunum.
SigluQörður:
Skemmdir unnar
á símaklefa
SÍMAKLEFINN á Siglufirði hef-
ur enn einu sinni orðið fyrir
barðinu á skeinmdarvörgum.
Aðfararnótt þriðjudagsins var
rúða í honunt brotin en skömmu
áður höfðu símtólið og skífan
verið slitin af símtækinu. Stutt
er síðan klefinn og síintækið
voru lagfærð fyrir 30-40.000
krónur eftir að skemmdarvargar
höfðu verið þar siðast á ferð.
Einar Albertsson stöðvarstjóri
Póst og síma á Siglufirði sagði í
samtali við Morgunblaðið að svo
virtist vera sem lögreglueftirlit
væri mjög slakt í bænum á kvöldin
og nóttunni því skemmdarvörgum
tækist .yfirleitt að eyðileggja síma-
klefann aftur um leið og búið væri
að gera við hann eftir þá síðustu.
Einar sagði að sér þætti skrítið
að Islendingar kynnu ekki að meta
þessi öryggistæki sem símaklefar
eru því hvergi fá þeir að vera í friði.
Nokkrum sinnum hefur tekist
að hafa uppi á sökudólgunum og
þeir látnir bot'ga fyt'ir viðgerð á
símakiefanum.
Fyrirlestur um
jarðtækni
NORBERT R. Morgenstern, ný-
kjörinn forseti alþjóða jarð-
tæknisambandsins, heldur fyrir-
lestur í kvöld, fimmtudag, í stofu
158 í húsi Verkfræði-og raunvís-
indadeilda Háskóla Islands.
Dr. Morgenstern er hér staddur
á vegum Alntannavarna ríkisins,
til ráðgjafar varðandi skriðuföll.
Hann er prófessor við háskólann í
Edmonton í Kanada og hefur feng-
ist við rannsóknir, t.d. á jarðstí-
flum, skriðuföllum, og grundunar-
eiginleikum jarðvegs.
Fyrirlesturinn, sem nefnist á
ensku „Limitations of slope stabi-
lity analysis in engineering prae-
tice“, hefst klukkan 16.30.
Nafinarugl í
myndatexta
NAFNARUGL varð í mynda-
texta með mynd frá afhendingu
Borgarleikhússins til Leikfélags
Reykjavíkur í þriðjudagsblað-
inu.
Þar segir að Rúrík Haraldsson
leikari sé meðal gesta á stóra svið-
inu en ntyndin vat' af Róbert Arn-
finnssyni leikara og fleirum.
Merkjasöludag-
ar Hjálpræðis-
hersins
Hjálpræðisherinn á íslandi er
nú byrjaður á nítugasta starfsári
sínu. Starfið liefiir verið marg-
þætt, bæði á líknar- og trúboðs-
sviðinu. Margir Islendingar hafa
notið góðs af þessu starfi.
Það hefur verið árviss viðburður
í tugi ára að starfsmenn Hjálpræð-
ishersins hafa staðið á götum úti
eða gengið í hús og selt blórna-
rnerki til styrktar starfi okkar hér
á landi.
Blómamerkið hefur verið lítið
gerviblóm á títupijónshaus með
íslenskum fánaborða. Ekki er leng-
ur hægt að útvega svona blóm, en
þess í stað munu liðsmenn Hjálp-
ræðishersins selja blómamerki sem
er prentað á límmiða.
Merkin verða seld á Akureyri
og í Reykjavík í þessari viku, 6.-8.
september, og munu þau kosta
krónut' 100.
Sýnir ljósmyndir
á Mokka
Á MOK-
KAKAFFl við
Skólavörðustíg
hefst sýning í
dag, fimmtu-
dag, á u.þ.b. 30
svarthvítum
ljósmyndum eft-
ir Davíð Þor-
steinsson.
Myndirnar eru
úr borgarlands-
lagi og sýna mótíf eins og tré,
glugga, múrveggi og mannfólk.
Flestar eru teknar á síðastliðnutn
fjórum árunt í gamla bænum í
Reykjavík og nokkrar á ferðalögum
í Skotlandi og Frakklandi.
Davíð hefur tvisvar áður sýnt á
31
Mokka; fyrst árið 1985, myndir frá
götum Reykjavíkur og síðastliðið
sumar portrett af gestum Mokka-
kaffis.
Sýningin stendur næstu þtjár
vikur eða til 28. september.
Davíð Þor-
steinsson
Danskar forsæt-
isráðherra-
nefiidir í heim-
sókn
UNDANFARIÐ hafa verið hér á
landi tvær nefndir á vegum
danska forsætisráðuneytisins,
alls Qórtán manns, en verkefhi
þeirra er að gera tillögur til
úrbóta á fjárhagsvandamálum
Grænlands og Færeyja. Danimir
kynntu sér ýmis skipulagsmál
hérlendis með það í huga hvort
umræddar nágrannaþjóðir geti
eitthvað af Islendingum lært.
Nefndirnar tvær bera nöfnin
Færeyjanefnd og Grænlandsnefnd
og ræddu við embættismenn og
ráðamenn auk þess að heimsækja
stofnanir og fyrirtæki. Má nefna
Hagsstofuna, Fiskmarkaði, Ha-
frannsóknarstofnun og margt
fleira. Heimsókn dönsku nefnd-
anna lauk í gær.
Sýning á
Hvolsvelli
UM þessar mundir eru til sýnis
í Hliðarenda á Hvolsvelli 30 olíu-
og vatnslitamyndir.
■ Eru þær eftir Sigurð Hauk
Lúðvíksson og verður sýningin sem
er sölusýning opin þennan ntánuð
allan.
Djasshátíð í
Norræna húsinu
Á DJASSHÁTIÐ, sem haldin
verður í Norræna húsinu fóstu-
daginn 8. september, koma fram
þeir Tómas R. Einarsson, Eyþór
Gunnarsson og Sigurður Flosa-
son og auk þeirra þeir Pétur
Ostlund trommuleikari og Jens
Winther trompetleikari.
Á efnisskrá eru lög eftir Tómas
R. Einarsson og hafa þtjú þeirra
ekki verið flutt opinberlega áður.
Lögin verða hljóðrituð af fimm-
menningunitm um helgina og gefin
út á plötu og geisladisk í haust.
Þetta verða einu tónleikar kvint-
ettsins og hefjast þeir kl. 21.
Vélskólinn:
Mikil aðsókn ný-
nema
MIKIL aðsókn er nú að Vélskóla
íslands. Við skólasetningu 1.
september kom frant hjá Andr-
ési Guðjónssyni skólameistara
að innritaðir voru um 200 nem-
ei’-tur, þar af um 100 nýnemar.
Kennsla á haustönn hefst sam-
kvæmt stundaskrá 11. september.
Fyrirhugað er að halda vélavarða-
námskeið fyrir iðnsveina, sem
kvöldnámskeið. Ef næg þátttaka
fæst mun það hefjast um rniðjan
september og ljúka í desember.
Kjarvalsstaðir:
Sýningum
sumarsins
að ljúka
Góð aðsókn hefur verið að sýn-
ingunni Alþjóðleg nútímalist, sýn-
ingu á Ijósmyndum Yosuf Karsh
og sumarsýningu á verkunt Kjarv-
als á Kjarvalsstöðum í sumar. Öll-
um þessum sýningum lýkur næst-
komandi sunnudag, 10. september.
Þangað til geta gestir virt þær fyr-
ir sér milli klukkan 11 og 18 alla
daga.