Morgunblaðið - 07.09.1989, Page 32

Morgunblaðið - 07.09.1989, Page 32
a Harður árekstur Morgunblaðið/Rúnar Þór Þrennt var flutt í sjúkrahús eftir harðan árekst- ur við gatnamót Norðurlandsvegar og Lauga- landsvegar, skammt norðan við Leirubrú við Akureyri rétt fyrir klukkan ijögur í gær. Tveir fólksbílar skullu saman við gatnamótin, kona og barn sem voru í öðrum bílnum sluppu ómeidd, en allir sem í hinum bílnum voru meiddust. Að sögn lögreglu var fljótt á litið talið að meiðsl hefðu ekki verið mikil. Biíreiðirnar skemmdust báðar mikið og voru fjarlægðar af slysstað með kranabíl. Frystihúsið Ólafsfirði: lands- Góðar atviimuhorf- ur fram til áramóta ALLT bendir til að takist að halda uppi fullri vinnu við frystihúsið á Ólafsfirði fi-am til áramóta og segir Agúst Sigurlaugsson á skrifstofu Verkafýðsféfagsins Einingar að þau tíðindi hafi komið mönnum gleði- lega á óvart. Atvinnuástand hefur verið gott á Ólafsfirði frá því í mars er vinnsla hófst aftur í frystihúsinu. Ágúst sagði að næg vinna hefði verið á Ólafsfirði í sumar og menn væru bjartsýnir á framhaldið. Það væri frekar að vantaði fólk til vinnu í bæinn. Nú eru 6 skráðir atvinnu- lausir á Ólafsfirði, en Ágúst sagði að þeir hefðu skerta vinnugetu og gætu ekki gengið í hvaða störf sem Að sögn Finnboga Baldvinssonar, framkvæmdastjóra Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar, eru um þúsund tonn af kvóta eftir hjá frystihúsinu og dugir það til að halda uppi fullri atvinnu út árið. „Þessi tíðindi koma okkur gleðilega á óvart," sagði Ágúst. Síðustu ár hefur komið til tímabundins atvinnuleysis á Ólafs- firði á haustmánuðum, en Ágúst sagði að útlit væri fyrir að svo yrði ekki nú. Næg atvinna hefur verið hjá iðn- aðarmönnum í sumar og sagði Ágúst að einkum hefði byggingariðnaður- inn verið blómlegur. Þá hafa fram- kvæmdir á vegum bæjarins verið með mesta móti, en nú er unnið af kappi við gerð grasvallar og einnig hefur mikið verið um að vera varð- andi gatnagerð. Fegrunarátak hefur staðið yfir í sumar og mikið áunnist í þeim efnum. Meðal annars var unnið við að græða upp eftir skriðu- föllin í fyrra og sagði Ágúst hreint ótrúlegt hversu vel hefði til tekist í þeim efnum. Fjórðungssamband Norðlendinga: Bein fólksfækkun byggðinni efltir aldamót Beta Geirs 27 þúsund manns flylja til höfuðborgarinnar af landsbyggðinni fram til ársins 2010 Bók um list Betu Geirs LISTAVERKABÓK um Betu Geirs kemur út í haust, en að útgáfunni standa fé- lagskonur úr Delta Kappa Gamma, Akureyrardeild, ásamt börnum Betu og eftir- lifandi maka hennar. Bókin verður prýdd fjölda iitmynda af listaverkum henn- ar, einnig verða þar ljóð eftir listakonuna og þau lög sem varðveist hafa, nótusett af Birgi Helgasyni söngkennara. Fremst í bókinni verður birtur nafnalisti þeirra sem gerast áskrifendur, en áskrift- arverð verður mun iægra en verð út úr búð. Þeim, sem gerast vilja áskrifendur að bókinni, er bent á að hafa samband við einhvern af eft- irtöldum: Ljósmyndastofuna Norðurmynd á Akureyri, Bókabúð Jónasar, Iðunni Ágústsdóttur, Jenný Karls- dóttur, Guðnýju M. Magnús- dóttur, allar á Akureyri, eða Hönnu Salómonsdóttur, Hrafnagilsskóla, fyrir 10. september næstkomandi. í fréttatilkynningu segir að Beta Geirs hafi verið eitt af náttúrubörnum íslenskrar listasögu, nánast ómenntuð í listsköpun hafi hún náð undra- verðum árangri á öllum þeim listasviðum sem hún lagði stund á. EFTIR AÐ hafa gengið í gegnum hreinsunareld tveggja síðustu þinga er nú almenn samstaða ríkjandi á meðal fulltrúa í Fjórðungs- sambandi Norðlendinga um að hag sambandsins sé best borgið í einu stóru sambandi beggja kjördæmanna á Norðurlandi. Fjórð- ungsþingi lauk á Akureyri á laugardagskvöld og var samþykkt að næsta þing yrði á Sauðárkróki að ári. Meginmál þingsins voru tvö, verkaskipting ríkis og sveitarfélaga annars vegar og hins vegar opinn fundur sem bar yfirskriftina; Stefhir norðlensk byggða- þróun í blindgötu? Tvö erindi voru flutt á þinginu til kynningar. Valur Þórarinsson gerði sveitarstjórnarmönnum grein fyrir staðgreiðslukerfi skatta og málefnum' gjaldheimtu og Bjarni Einarsson aðstoðarfram- kvæmdastjóri Byggðastofnunar hafði framsögu um skýrslu stofn- unarinnar til stjórnamálaflokk- anna: Byggðastefna í nýju ljósi. í erindi Bjarna kom m.a. fram að ef mið er tekið af mannfjöld- aspá og reynslu síðustu ára af fólksflutningum sýna framreikn- ingar að stöðnun verður í fjölgun fólks á landsbyggðinni til alda- móta og bein fækkun eftir alda- mót. Á hinn bóginn yrði tæplega 52 þúsund manna fjölgun á höfuð- borgarsvæðinu, þar af stafaði 27 þúsund manna fjölgun af aðflutt- um. Bjarni benti á fjölgun að- fluttra til höfuðborgarinnar væri ríflega allt Norðurlandskjördæmi eystra, sem telur um 26 þúsund manns. „Þetta er gífurleg blóðtaka fyrir landsbyggðina, en hún bitnar ekki síður á höfuðborginni,“ sagði Bjarni. Hann sagði að mikið óhag- ræði fylgdi þessum fólksflutning- um, sem kostnað hefði í för með sér fyrir þjóðina. Mannvirki og Félagslegar kaupleiguíbúðir: Fimmtán sóttu um fímm íbúðir FIMMTÁN umsóknir bárust um félagslegar kaupleiguíbúðir sem í byggingu eru við Helgamagrastræti 53 á Akureyri. Frestur til að sækja um rann út fyrir skömmu. í húsinu verða tuttugu og tvær íbúðir, fimm féiagslegar kaupleigu- íbúðir og tíu almennar kaupleigu- íbúðir, en hinar verða seldar á al- mennum markaði. Jón Björnsson félagsmálastjóri sagði að þeir sem sæktu um kaup á félagslegu kaupleiguíbúðunum væru gjarnan einstæðir foreldrar sem væru að koma sér upp þaki yfir höfuðið í fyrsta sinn. Gert er ráð fyrir að íbúðirnar verði tilbúnar til afhendingar í apríl á næsta ári. Félagsmálaráð og stjórn verkamannabústaða úthluta íbúðunum og verður það gert síðar í þessum mánuði. auðlindir landsbyggðar yrðu van- nýtt vegna fækkunar fólks, en á höfuðborgarsvæðinu þyrfti að byggja ný þjónustumannvirki sem í mörgum tilfellum væru til staðar annars staðar.., Byggðastefnu sagði Bjarni að reka þyrfti til langs tíma, menn þyrftu a.m'.k. að sjá 10 ár fram í tímann, að öðrum kosti yrði árang- ur enginn. í því sambandi benti hann á, að ef átak í vegagerð á áttunda áratugnum hefði ekki vik- ið fyrir uppbyggingu heilsugæslu- stöðva og grunnskóla víða um land sem sett var í forgang hefði mátt haga framkvæmdum varðandi þessa þætti öðruvísi og spara þannig mikið fé með samnýtingu. Erindi sem flutt voru á opnum fundi sem bar yfirskriftina Stefnir norðlensk byggðaþróun í blindgötu vöktu mikla athygli. Flutt voru fimm erindi á fundinum, Jóhann Antonsson íjallaði um sjávarútveg og varpaði fram þeirri hugmynd að skylda ætti öll íslensk fiskiskip til að landa á íslenskum fiskmörk- uðum Unnur G. Kristjánsdóttir flutti erindi um atvinnumál þar sem fram kom að ársverkum hefur fækkað nokkuð í landbúnaði á Norðurlandi, en fjölgað í fiskveið- um og vinnslu og einnig í iðnaði. Þórólfur Gíslason fjallaði um versl- un og þjónustu í dreifbýli og þar sem dregin var upp dökk mynd að stöðu dreifbýlisverslunarinnar. Margrét Bóasdóttir hafði fram- sögu um menningarmál þar sem hún hvatti menn til að rækta eigin garð og taka til hendinni heima fyrir. Að lokum flutti Pétur Reim- arsson erindi um framtíðarmálefni og sagði að hvað atvinnulífið varð- aði væri dugnaður, frumkvæði og áræðni einstaklinga, samtaka þeirra og fyrirtækja, það sem allt ylti á í framtíðinni, en til að virkja þetta frumkvæði yrði atvinnu- starfsemin að skila hagnaði. Það væri óþolandi að almenn efna- hagsskilyrði væru þannig á ís- landi, einu landa Vestur-Evrópu, að fyrirtæki í útflutnings- og sam- keppnisgreinum séu rekin með tapi eða við núllið ár eftir ár. Istess hf. • • Ollu starfe- fólki var- sag1 upp ÖLLUM starfsmönnum ístess hf. hefur verið sagt upp störíum. Guðmundur Stefánsson fram- kvæmdasljóri segir ástæðuna m.a. þá að fiskeldi eigi almennt erfitt uppdráttar og fyrifsjáan- legt að svo verði áfram. „Það er minna um að vera í fisk- eldi nú og við verðum að aðlaga okkur breyttum forsendum,“ sagði Guðmundur. Framundan er róleg- asti tími ársins í framleiðslu fóðurs og hjólin snúast þá ekki af sama krafti og yfir háannatímann, sem stendur frá vori og fram í oktober. Guðmundur sagði að það hefði einnig sitt að segja varðandi uppr sagnirnar, að fiskeldistöðvar skuld- uðu fyrirtækinu verulegar upphæð- ir sem væru í vanskilum. Upnið er að endurskipulagningu hjá ístess og sagði Guðmundur að vonast væri til að þeirri vinnu lyki fljótlega svo óvissunni yrði tétt áf starfsmönnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.