Morgunblaðið - 07.09.1989, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 07.09.1989, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1989 Frá athafiiasvæði hinnar nýju laxeldisstöðvar Morgunbiaðið/bj Ný laxeldisstöð í Oxarflarðarhreppi Benedikt Kristjánsson verk- stjóri Rætt við Benedikt Kristjánsson verkstjóra Framkvæmdir standa nú yfir við nýja laxeldisstöð í Öxarfjarðar- hreppi í Norður-Þingeyjarsýslu. Fyrir réttu ári var byijað að byggja hús yfir starfsmenn og í vor sem leið var byijað að reisa sex 1.000 rúmmetra ker og tvö 500 rúmmetra ker. Einnig er fyrirhugað að koma upp fjórum 1.400 rúmmetra kerjum og tveim- ur 600 rúmmetra keijum. Þegar er kominn lax í tvö ker. Fullbúin á stöðin að geta skapað fimmtán ársverk. Þegar blaðamaður Morgun- vatn í nær ótakmörkuðu magni blaðsins var á ferð þar nyrðra fyrir skömmu hitti hann að máli Benedikt Kristjánsson verkstjóra umræddra framkvæmda, sem við vinna um 15 manns. Að sögn Benedikts eru kerin ætluð hvort sem er fyrir lax eða bleikju. Ef gert væri ráð fyrir helmingi af hvoru gæti ársframleiðsla orðið milli 7 og 8 hundruð tonn. Að- stæður þarna eru taldar mjög ákjósanlegar fyrir slíka starfsemi. Þarna er nærhendis kalt ferskt og í næsta nágrenni er einnig 35 gráðu heitt vatn. Skammt frá framkvæmdastaðnum er svo tek- inn sjór upp úr sandinum gegnum sigtisrör (drenkerfi). Að byggingu þessara nýju laxeldisstöðvar standa m.a. einstaklingar úr þremur hreppum þar í nágrenni, Óxarljarðarhreppi, Keldunes- hreppi og Presthólahreppi. Eig- endur Seljalax hf., sem er félag heimamanna, á 35 prósent í þessu fyrirtæki. Byggðastofnun á 20 prósent, Fiskeldisþjónustan á 35 prósent og landeigandinn, Jón Ingimundarson á Núpi á 10 pró- sent. Kpstnaður við þessar fram- kvæmdir er áætlaður á bilinu 150 til 160 milljónir króna. Kerin eru framleidd hjá Byggingariðjunni en botnar þeirra eru steypir á staðnum. Hönnun er í höndum verkfræðistofunnar Varmaverks hf. og heimamanna. Menn gera ráð fyrir að laxeldisstöðin skapi fimmtán ársverk. Að sögn Bene- dikts er talið að stöðin geti fljót- lega skilað hagnaði ef tekst að koma henni á laggirnar fyrir ofan- greinda fjárhæð. Þegar er kominn fiskur í tvö ker og gert er ráð fyrir að slátra þeim fiski seinni hluta næsta árs. -gsg Vetraráætlun innanlandsfLugs Flugleiða: Sætabil aukið í Fokkervélunum VETRARAÆTLUN innanlandsflugs Flugleiða gengur í gildi hinn 11. september nk. og gildir til 20. maí 1990. Með gildistöku vetrará- ætlunar fækkar ferðum nokkuð frá því sem var í sumar. Til nokk- urra staða verða fleiri ferðir en í fyrravetur. Samkvæmt vetraráætluninni verður ferðafjöldi til einstakra staða frá Reykjavík sem hér segir: Til Akureyrar verða 34 ferðir í viku, þ.e. fjórar til sex ferðir á dag. Til ísafjarðar verða tvær ferð- ir á daga alla daga, samt. 14 ferð- ir. Til Vestmannaeyja þijár ferðir á fimmtudögum, föstudögum og sunnudögum og tvær ferðir aðra daga, samtals 17 ferðir í viku. Til Sauðárkróks verða níu ferðir í viku, þ.e. ferðir alla daga nema laugardaga en tvær ferðir á mánu- dögum, fimmtudögum og föstu- dögum. Til Egilsstaða verður morgunferð og kvöldferð alla daga, samt. 14 ferðir í viku. Til Hornafjarðar verða fimm ferðir í viku, daglega nema mánudaga og laugardaga. Til Norðfjarðar verð- ur flogið á mánudögum, fimmtu- dögum og laugardögum. Til Pat- reksfjarðar verður flogið alla daga nema laugardaga og sunnudaga. Til Húsavíkur verður flogið alla dag nema laugardaga og tvær ferðir verða á mánudögum, fimmtudögum og föstudögum. Til Þingeyrar verður flogið á mánu- dögum, miðvikudögum og föstu- dögum. Sú breyting sem gerð var á sætaskipan í Fokker Friendship flugvélunum í innanlandsflugi, að fækka sætum úr 48 í 44 og auka sætabilið sem því nam hefir mælst mjög vel fyrir meðal farþega. Stjórnendur innanlandsflugs Flug- leiða fylgjast grannt með óskum viðskiptamanna og má segja að þær breytingar sem nú eru gerðar frá fyrri vetraráætlunum byggist að verulegu leyti á skoðanaskipt- um og viðtölum við frammámenn ýmissa bæjar- og sveitarfélaga. Prentuð áætlun kemur út bráð- lega og verða í henni auk innan- landsáætlunar Flugleiða, vetrar- áætlanir Flugfélags Austurlands, Flugfélagsins Ernis og Flugfélags Norðurlands.(FrcttatiIkynning) ÆTTFRÆÐINÁMSKEIÐ í næstu og þarnæstu viku hefjast ný ættfræðinám- skeið hjá Ættfræðiþjónustunni, bæði fyrir byrjendur og lengra komna^Notið tækifærið og leggið grunninn að skemmtilegri, fræðandi tómstundaiðju. Öll undir- stöðuatriði ættrakningar tekin fyrir. Þátttakendur fá þjálfun og aðstöðu til ættarleitar með afnotum af al- hliða heimildasafni. Leiðbeinandi er Jón Valur Jens- son. Uppl. og innritun í síma 27101 kl. 9.30-19.30. Höfum mikið úrval ættfræðibóka til sölu, m.a. mann töl, niðjatöl, ættartölur, ábúendatöl, stétfartöl o.s.frv. Hringið eða skrifið og fáið senda ókeypis nýútkomna bókaskrá. ÆTTFRÆÐIÞJÓNUSTAIM - ÆTTFRÆÐIÚTGÁFAN, Sólvallagötu 32a, pósthólf 1014, 121 Rvík., sími 27101 Léttu þér róðurinn hjá Málaskólanum f GRE- og GMAT-prófum þurfa allir að ná sem ætla í framhaldsnám í bandaríska háskóla. Próftími er afar naumur og allar skýringar eru á ensku. Markmið nám- skeiðanna hjá Málaskólanum er að gera nemendur fullkomlega undirbúna fyrir prófin sjálf. Farið er niður í saumana á öllum þáttum prófanna, nokkur æfingapróf tekin og sérstök áhersla lögð á próftækni. GRE Námskeiðið hefst 21. sept. ENSKA: Orðaforði, framsetning og lestrarskilningur STÆRÐFRÆÐI: Flatarmálsfræði, algebra og reikniaðgerðir RÖKHUGSUN: Æfingar og uppsetning skema GMAT Námskeiðið hefst 27. sept. ENSKA: Orðaforði og lestrarskilningur. RÖKHUGSUN: Æfingar og uppsetning skema. STÆRÐFRÆÐI: Flatarmáls- fræði, algebra og almennar reiloiiaðgerðir. ÞRAUTIR: Að- ferðir við úrlausnir. FRAMSETNING ritaðs máls. Hvort námskeið tekur þrjár vikur. Kennt verður þrisvar í viku, þrjá tíma í senn. Kennarar á námskeiðunum verða Bjarni Gunnarsson M.A., Friðrik Eysteinsson M.B.A og Guðmundur Arnason B.S. Þú færð allar nánari upplýsingar um námskeiðin hjá Málaskólanum. Málaskólinn Borgartúni 24, sími 62 66 55 í- fA l mUFUGLS tilM til FLURIUU Verö frá kr. 47.610,- Sértilboó í 7 0 daga ferðir til Orlando Brottför frá íslandi: 7., 14. og 21. sept., 12. og 19. okt. Brottför frá Orlando: 17. og 24. sept., 1., 22. og 29. okt. *lnnifaliö i veröinu er viku notkun á FORD ÞRUMUFUGLI „ THUNDERBIRD“ (án bensíns og söluskatts af bílnum). *Mióaó vió aó a.m.k. tveir feróist saman. Flugvallaskattur ekki innifalinn. FLUGLEIDIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.