Morgunblaðið - 07.09.1989, Side 45

Morgunblaðið - 07.09.1989, Side 45
45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1989 ----«-----j----i-----(----H------‘-------- urflugvelli, ég á skrifstofu eldneytis- deildar, en hún var skrifstofustjóri á skrifstofunni, sem sá um búslóða- flutning hermanna (Household Go- ods Office). Einn daginn bauð hún mér starf, sem var að losna á skrif- stofu hennar. Ég hikaði í fyrstu, en tók svo boðinu eftir nokkra um- hugsun. Því hefi ég aldrei séð eftir. Eins og bömin mín segja í dag, hún átti stærstan þátt í því að koma mér upp úr sorginni og söknuðinum með glaðlyndi sínu og elskulegheit- um. Við fórum margar ferðir saman til útlanda og var Austurríki okkar uppáhaldsland. Vínaróperan, Lista- hátíð í Salzburg og margt fleira kem- ur mér í huga. Sumardvöld við Gardavatn, útileikhúsið í Verona. Búnar að sjá Aidu kvöldið áður og komnar aftur til að sjá Svanavatnið. Við sáum sko vatnið, en það var nú án svana, því skyndilega brast á hræðilegt veður með þrumum, eld- ingum og voðalegu vatnsveðri. Við sátum sem fastast í regnkápum okk- ar með vatnið rennandi sem fossa- föll niður stallana, sem við sátum á og hreyfðum okkur hvergi, fyrr én sýningunni var aflýst seint um kvöld- ið. Og hérna heima, sinfóníutónleikar, kammertónleikar, óperu- og leikhús- ferðir, að ógleymdum ferðum innan- lands, einni skemmtilegri vestur í Isafjarðardjúp, að heimsækja systir mína og mág. Kristján sonur hennar við stýrið og minnist hann enn þann dag í dag á ferðina, sem hann varð að hlusta á Pavarotti syngja í belg og biðu, án þess að geta nokkrum vörnum við komið, en við vorum nýbúnar að fá segulbandsspólu, sem við þurftum að hlusta á. Námskeiðin, sem við fórum á, til að reyna að fá svör við ýmsum spurn- ingum, svo sem hvaðan við kæmum og hvert við færum, að loknu þessu lífi og ýmislegt um andleg mál. Heimilið hennar að Unufelli 23. Shangri-La kallaði ég það. Þangað var hægt að koma hvenær, sem manni datt í hug, án þess að gera boð á undan sér og alltaf mætti manni sama ljúfa viðmótið hjá henni og Kristjáni syni hennar. Þar gleymdist amstur hversdagsins á yndislegu heimili, góðgerðir þegnar, rabbað saman eða hlustað á góða tónlist, en hún átti mikið og gott plötusafn, og alltaf fór maður þaðan ánægður með lífið og tilveruna. Vinkona mín hafði yndi af góðri tónlist og hafði mjög þroskaðan tón- listarsmekk. Hún hlustaði ekki á hvað sem var og var alls ófeimin við að segja sitt álit ef henni líkuðu ekki þau verk, sem hún var að hlusta á og datt mér oft í hug saga H.C. Andersen um Nýju fötin keisarans, þegar fólk var að hæla einhverjum verkum, en hún var eins og litla barnið í þeirri sögu og þorði að segja sitt álit umbúðalaust, á sinn hrein- skilna hátt. Börnin hennar fjögur Jóhann, Kristján, Anna Ruth og Guðrún sanna það fornkveðna ... að sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. Prúð og elskuleg bera þau uppeldi móður sinnar fagurt vitni. Samband hennar við börnin og fjöiskyldur þeirra var einstakt og einkenndist af væntum- þykju og virðingu og barnabörnin sín sex elskaði hún heitt. Þau eiga nú öll ásamt móður henn- ar Önnu Bergmann, stjúpföður henn- ar Áka Jenssyni og stjúpmóður Önnu Óiafsdóttur um sárt að binda. Sendi ég þeim öllum innilegar samúðar- kveðjur mínar og barna minna um leið og ég þakka forsjóninni fyrir að hafa kynnst og átt vináttu þessarar indælu konu. Lilja Hjartardóttir Howser Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér sinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Sb. 1886 - V.Briem) Nú er hún horfin sjónum okkar, mín ástkæra vinkona Esther. Minnin- gamar um þessa elskulegu konu munu fylgja mér ævina út. Á stund sem þessari skortir mann orð, en samt er svo margt að segja. Okkar fyrstu kynni urðu, er við sóttum námskeið hér í bæ. Esther vakti strax athygli mína, hún var mjög glæsileg kona og við kynningu reyndist hún jafn góð og hún var falleg. Hún hef- ur ætíð sýnt mér og fjölskyldu minni mikla tryggð og vináttu. Það eru sannarlega mikil forréttindi að hafa átt hana að vini. Esther var óvenjulega sterkur per- sónúleiki, hún háfði ákveðriár skoð- anir og hélt þeim fram með prúð- mennsku og stillingu. Þótt ekki yrði komist hjá ýmsu andstreymi í lífi hennar var henni lítt tíðrætt um sín fyrri kjör og leit svo á að manni bæri að draga lærdóm af því sem fyrir kæmi á lífsleiðinni. Fyrir tæpum þremur árum lét hún af starfí sínu sem deildarstjóri hjá varnarliðinu en þar hafði hún unnið um tuttugu ár og hóf störf hjá heilbrigiðisráðuneyt- inu. Hún hafði lengi hlakkað til að minnka við sig og hafa meiri tíma fyrir áhugamálin og fjölskylduna. Én þá barði sá vágestur að dyrum, sem nú hefur lagt hana a'velli. Ekki kvartaði Esther undan veikindum sínum, heldur lét sem lítið væri og gekk full atorku til baráttu við sjúk- dóminn með bros og bjartsýni að vopni. Esther var mikill fagurkeri og unni góðri tónlist og bókmenntun, sótti mikið tónleika og ballettsýning- ar bæði hér heima og erlendis. Tón- listin var hennar líf og yndi. Einnig var hún mikil hannyrðakona og lista- kokkur og liggja margir fallega unn- ir hlutir eftir hana og er undirrituð svo lánsöm að eiga slíka hluti í fórum sínum. Framlag Estherar til þeirra sem hún unni var ávallt mikið og ríkulega veitt bæði á andlegu og veraldlegu sviði, enda var hún sannur vinur vina sinna. Hún var ætíð mjög nátengd börnum sínum, tengdabörnum og barnabömum og var alltaf boðin og búin til að hjálpa, styðja og hugga, þegar erfiðleikar steðjuðu að. Eins sýndi hún mikla ræktarsemi við móður sína og stjúpa og aldraða stjúpu. „Svo uppskerðu sem þú sá- ir.“ Þessa setningu hafði hún oft yfir. Kom þetta hvað best fram í veikindum hennar, hún var umvafin ástúð og kærleika barna sinna sem aldrei viku frá henni, tóku hana inn á heimili sín og reyndu hvað þau gátu að létta henni þessa erfiðu bar- áttu. Henni var fullljóst að leikslok væru skammt undan og hafði því gengið vel frá öllum sínum málum. Esther er nú farin í þá ferð sem bíður okkar allra. Við sem kynntumst Esther mun- um aldrei gleyma brosinu hennar bjarta og augunum sem geisluðu af lífsgleði og atorku. Sú birta og ylur sem stafaði frá henni smitaði út frá sér og gerði tilveruna bjartari og betri fyrir okkur hin. Ég votta bömum hennar, tengda- börnum, barnabömum, móður og stjúpa mína dýpstu samúð. Guð blessi ykkur öll. Hrafnhildur Minning: Stefán Ólafsson veitingamaður I gær kvaddi ég vin minn og tengdaföður, Stefán Ólafsson, sem lést langt fyrir aldur fram. Þegar ég kynntist honum, fyrir um það bil fjór- um árum, fann ég að þar fór óvenju- legur maður. Hann var maður sem geislaði af starfsorku og lífsgleði og var bjartsýnn á lífið og tilveruna. Hann sá alltaf eitthvað gott út úr öllum hlutum. Orðið uppgjöf var ekki til í hans huga. En hvers vegna þurfa þá svona menn að fara svo snemma? Þeirri spurningu fáum við seint svar- að, en ætla má að hans uppbygging- arstarfi hér á jörðu hafi verið lokið og að hann hafi verið kvaddur á vit nýrra og stærri verkefna. Stefán var einn af þeim fáu mönnum sem ég hef kynnst í lífínu sem bar ekki öf- und til annarra manna yfír því sem þeir gerðu og eignuðust, heldur var hann lítillátur og ánægður með það sem hann hafði, sem er í raun veldi út af fyrir sig. Þær stundir sem ég átti með Stefáni voru alltaf góðar, alltaf hafði hann tíma til að hlusta á mig og frjálslega miðlaði hann reynslu sinni til mín. Hann var góður maður, og kom fram við mig sem jafningja, þannig að maður fann fyr- ir væntumþykju. Stefán beindi lífi mínu inn á stærri og betri brautir og kenndi mér margt. Þess vegna verður söknuður- inn svo mikið meiri. Þetta er stór missir og sár missir. Ég þakka fyrir að fá að hafa þekkt þennan mann. Með foreldrum mínum, Iðunni og Kristjáni G. Kjartanssyni, og Stefáni og Jóhönnu konu hans, tókst náin vinátta, og sáu þau fram á margar gleðistundir með þeim hjónum. Öll biðjum við að minningin um Stefán Ólafsson megi styrkja hans yndislegu eiginkonu, Jóhönnu, og bömin þtjú, Jóhannes, Ingvar og Kristínu, svo og aðra ástvini. Blessuð sé minning hans. „Láttu smátt, en hyggðu hátt, heilsa kátt, ef áttu bágt. Leik ei grátt við minni mátt. Mæltu fátt og hlæðu lágt.“ (Einar Ben.) Halldór K. Kristjánsson og Qölskyldan Einimel 7 t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, MARÍU LILJU JÓNSDÓTTUR, Nónvörðu 2, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Vífilstaðaspítala. Guðný Gunnarsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Sigurður Gunnarsson, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Gunnar Gunnars, barnabörn og barnabarnabörn. Hilmar Harðarson, Elsa Júlfusdóttir, Frímann Guðmundsson, LAUSBLAÐA- MÖPPUR frá Múlalundi... § . þær duga sem besta bók. > Z> Q Múlalundur Endurbœtt námskeib fyrir konury sem reka lítilfyrirtceki eba hyggjast stofna jyrirtœki. Námskeibib Stofnun og rekstur fyrirtcekja verburhaldib 12.—23. september. Mebal efnis: Frumkvödullinn, stofnácetlun, stefnumótun, markabsmál, fjármál, formfyrirtcekja og reiknisskil. Námskeiðið fer fram í kennslusal Iðntæknistofnunar í Keldnaholti. Kennt er þri., fim. og lau. Þátttaka tilkynnist í síma 687000. nlÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS rekstrartæknisvið. Ræðumennska og mannleg samskipti. Kynningarfundur Kynningarfundur verður haldinn í kvöld kl. 20.30 á Sogavegi 69, gengið inn að norðanverðu. ★ Námskeiðið getur hjálpað þér að: ★ Öðlast HUGREKKI og meira SJÁLFSTRAUST. ★ Láta í Ijósi SKOÐANIR þínar af meiri sann- færingarkrafti í samræðum og á fundum. ★ Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér VIRÐINGU og VIÐURKENNINGU. ★ Talið er að 85% af VELGENGNI þinni séu komin undir því, hvernig þér tekst að um- gangast aðra. ★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI — heima og á vinnustað. ★ Halda ÁHYGGJUM í skefjum og draga úr kvíða. Fjárfesting í menntun gefur þér arð ævilangt. Innritun og upplýsingar í síma: 82411

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.