Morgunblaðið - 07.09.1989, Síða 53

Morgunblaðið - 07.09.1989, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1989 53 vallarspilari Belgíu, var ánægður eftir sigurleikinn, 3:0, gegn Port- ugal. „Við eigum ekki að gera far- ið út af brautinni - við erum á leið- inni til Ítalíu. ■ SKOTAR skoruðu tvö sjálfs- mörk - Steve Nicol og Gary Gil- lespie á tveimur mín. og tryggðu Júgóslövum sigur, 3:1. ■ „VIÐ erum búnir_ að tryggja okkur farseðilinn til Ítalíu. Leik- menn mínir vöknuðu upp þegar Skotarnir skoruðu fyrsta mark leiksins," sagði Ivica Osim, liðs- stjóri Júgóslava. ■ SKOTAR þurfa aðeins eitt sig út úr leikjum gegn Frökkum (úti) og Norðmönnum (lieima), til að tryggja sér farseðilinn til Italíu. ^ Hvað sögðu Austur-Þjóðverjar? „íslendingar hugmyndasnauðir" Eg átti von á mun betra liði og það kom mér á óvart hve lítil barátta var í liðinu. Mér fannst íslendingar mjög hugmyndas- nauðir og það var ekkert sem kom á óvart í spili þeirra nema hve slakir þeir voru,“ sagði Rainer Ernst, leikmaður austur-þýska Iandsliðsins eftir leikinn. „Við lék- um vel, allir sem einn, og vörn okkar var mjög sterk.“ „Sofnuðum á verðinum" - sagði SævarJónsson, fyrirliði KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN Englend- ingar þurfa eitt stig Englendingar og Svíar gerðu markalaust jafntefli í Stokk- hólmi í 2. riðli í gær. Englendingar eru svo gott sem er komnir í loka- keppnina á Ítalíu, þurfa aðeins eitt stig úr síðasta leik sínum gegn Pólveijum til að gulltryggja sig. Markvörðurinn, Thomas Ravelli, var hetja Svía því hann bjargaði hvað eftir annað með góðri mar- kvörslu, sérstaklega frá Gary Line- ker. „Það er hálfgerð martröð að mæta Englendingum í slíkum ham. En þrátt fyrir allt er ég ánægður með annað stigið því við erum enn með í baráttunni um sæti í loka- keppninni," sagði Ole Nord, lands- liðsþjálfari Svía. Terry Butcher var fyrirliði enska landsliðsins í fyrsta sinn í gær í fjarveru Bryans Robson sem er meiddur. Butcher, sem leikur með Glasgow Rangers, lék með skurð á enni út leikinn eftir samstuð við Johnny Ekstrom . í fyrri hálfleik. Hann var ilja útleikinn af blóði er hann gekk af velli. „Við fengum betri færi í leiknum, en Svíar vörð- ust vel og ég held að jafntefli hafi verið sanngjörn úrslit,“ sagði Bobby Robson, landsliðseinvaldur Eng- lendinga. „Leikkerfið gekk upp“ - sagði þjálfari Aust- urríkis eftir jafntefli gegn Sovétríkjunum „VIÐ náðum takmarkinu, sem var að fá að minnsta kosti eitt stig. Við iékum mjög agaðan leik, leikkerfið gekk upp gegn liði, sem var á allt öðru og hærra plani en okkar, þó úrslit- in beri það ekki með sér,“ sagði Josef Hickersberger, þjálfari Austurríkis, eftir markalaust jafntefli gegn Sov- étríkjunum í Vín í gærkvöldi. Austurríkismenn kræktu í dýr- mætt stig, sem getur komið þeim í úrslitakeppnina. Þeir lögðu áherslu á öruggan varnarleik og héldu Alexander Zavarov og Oleg Protasov, framheijum Sovétmanna, niðri — Artner og Pfeffer fylgdu þeim sem skuggar og gáfu þeim aldrei frið. „Lrtíl barátta" „Mér fannst afskaplega lítil barátta í íslenska liðinu og það var eins að það hefði ekki að neinu að keppa,“ sagði Ulf Kirsten. „Mér fannst íslendingar of vark- árir og það hefði verið eðlilegra fyrir þá að taka áhættu. En hvað okkur varðar getum við verið án- ægðir. Við lékum vel og fengum tvö dýrmæt stig.“ „Góð byrjun" „Ég er mjög ánægður með sig- urinn því þetta er fyrsti leikúV minn í undankeppni heimsmeist- arakeppninnar og byijunin lofar góðu,“ sagði Eduard Geyer, þjáif- ari austur-þýska liðsins eftir leik- inn. „Við erum að ná okkur á strik eftir slæma byijun og ég yar mjög ánægður með þennan leik. Allir gerðu það sem fyrir þá var lagt. íslenska liðið var ekki jafn gott og ég átti von á. Við sáum liðið leika vel gegn Austurríki en nú fannst mér liðið baráttulaust," sagði Geyer. Sævar Jónsson, var sáttur við fyrri hálfleikinn hjá íslenska liðinu og byijunina í þeim seinni. „Það virtist, sem við værum að ná tökum á leiknum, en við sofnuðum á verðinum. Skyndisóknir eru aðall Þjóðveijanna og við ætluðum að koma í veg fyrir þær, en sóttum of stíft, dekkuðum illa og þá losn- aði um mótheijana,“ sagði fyrirlið- inn. „Fyrsta markið sló okkur út af laginu og eftir annað markið, sem var heppni — maðurinn ætlaði ekki að gera það sem hann gerði en skaut í sjálfan sig með kunnum afleiðingum — var allur vindur úr okkur og vonleysið tók yfir. Við ætluðum að gera tvö mörk í hverri sókn, en þeir voru afslappaðir enda álagið á okkur. Austur-Þjóðveijar eru alltaf sterkir og við höfum alltaf lent í erfíðleikum með þá, en við féllum nær í sama farið og í 6:0 leiknum — þetta var fúll leikur. Samt þýðir ekki að örvænta, því árangur í einni keppni hefur sjaldan eða aldrei ver- ið eins góður. Framtíðin er björt, tuttugu og eins árs liðið er að gera góða hluti og margir ungir strákar að koma upp. Það þarf hins vegar að standa betur að undirbúningi landsliðsins. Það gengur ekki að færa til leiki í íslandsmóti og láta það bitna á landsliðinu. Mótanefnd og landsliðsnefnd verða að vinna saman. Landsliðið þarf að fá fleiri vináttuleiki til að menn öðlist nauð- synlega reynslu og næsta markmið hlýtur að vera að færast upp um styrkleikaflokk," sagði Sævar. „Uppgjöf" „Við byijuðum ágætlega og fyrri hálfleikurinn var þokkalegur. Við fengum að vísu engin færi en það vár jafnvægi. í síðari hálfleik breyttu þeir leik sínum og eftir markið gáfumst við upp,“ sagði Friðrik Friðriksson. „Annað markið var ótrúlegt og mikill heppnisstimp- ill á því. Hann skaut með vintri fæti og boltinn breytti stefnu af hægri fæti hans. Þar með fékk boltinn á sig snúning og ég náði ekki að komast fyrir hann. Það er gaman að koma aftur í landsliðið og ég hef beðið eftir tæki- færi. Það er bara leiðinlegt að geta ekki nýtt það, því í þessum leik varði ég aldrei, en fékk á mig þijú mörk,“ sagði Friðrik. Morgunblaðið/Júlíus Thomas Doll, besti maður Austur-Þýskalands, í baráttu við Ómar Torfason. HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ Morgunblaðið/Rúnar Þór Oskar Armannsson sést hér bijótast í gegnum vörn A-Þjóðveija og skora eitt af átta mörkum sínum. Byijunar- bragurá Akureyri ÞAÐ var byrjunarbragur á leik íslenska landsliðsins gegn A- Þjóðverjum á Akureyri í gær- kvöldi, þar sem A-Þjóðverjar unnu, 22:24. Allan léttleika vantaði og leikkerfi gengu ekki upp. Það var t.d. ekki fyrr en um miðjan seinni hálfleik að fyrsta markið var skorað úr horni - Bjarki Sigurðsson, en Guðmundur Guðmundsson komst ekki á blað í leiknum. Greinilegt er að landsliðið er ekki komið í leikæfingu og var leikur liðsins eftir því. Guðmundur Hrafnkelsson, markvörður, sem ■■■■■■ varði þrettán skot í Frá leiknum, var hestL. Reyni leikmaður íslenska Enkssyni liðsins og þá lék Óskar Ármannsson, sem var leikstjórnandi, ágætlega. < Óskar skoraði átta mörk í leiknum - þar af fjögur af fimm fyrstu mörkum liðsins. Líðin mætast aftur í kvöld Garðabæ kl. 20. Island - A-Þýskaland 22 : 24 Vináttulandsleikur í handknattleik. íþróttahöllin á Akureyri, miðvikudagur 6. september 1989. Gangur leiksins: 1:0, 3:3, 5:5, 8:8, 9:12. 13:16, 15:20, 21:22, 22:24. ísland: Óskar Ármannsson 8/3, Þorgils Óttar Mathiesen 5, Kristján Arason 4, Atli Hilm- arsson 2, Gunnar Gunnarsson 1, Geir Sveinsson 1, Bjarki Sigurðsson 1, Gunnar Bein- teinsson, Guðmundur Guðmundsson, Guðjón Árnasson. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 13, Hrafn Margeirsson. A-Þýskaland: Hauek 4/1, Triepel 4, FVank Wahl 3, Querengaesser 3, Winselman 3, Handschke 3, Schneider 2, Baryth 1, Fuhrig 1, Hahn. Varin skot: Gunnar Sehimi*ock 15/1, Luts Grosser. Áhorfendur: 577. Dómarar: Josef Koreg og Peter Molnar, Tékkóslóvakíu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.