Morgunblaðið - 07.09.1989, Side 56
Wt
■WINCHESTER 12
r
BYSSUR OG SKOTFÆRI
Heildsöludreifing:
l.Guðmundsson, sími :24020
SAGA CLASS
Fyrir þá sem eru aðeins
á undan —■—
FLUGLEIÐIR
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1989
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Þrotabú Fiskvinnslumiar-Norðursíldar;
Tilboð um leigu eigiia
verður lagt fram í dag
Forráðamenn Gullbergs vilja reka vinnsluna
Seyðisfírði. Frá blaðamanni Morgunblaðsins, Birgi Ármannssyni.
FORRÁÐAMENN Gullbergs hf. á Seyðisfirði hafa látið í ljós áhuga
á að leigja eignir þrotabús Fiskvinnslunnar-Norðursíldar og halda
rekstri fyrirtækisins áfram. Formlegt tilboð þessa eftiis verður
lagt fram í dag.
I gær óskuðu eigendur útgerð-
arfyrirtækisins Gullbergs hf. á
Seyðisfirði eftir því við bústjóra
þrotabús Fiskvinnslunnar-Norð-
ursíldar, Árna Halldórsson, að
hefja viðræður um leigu á eignum
þrotabúsins. Óformlegar viðræður
áttu sér stað í gær, en að sögn
Adolfs Guðmundssonar, fram-
^ívæmdastjóra Gullbergs, verður
formlegt tilboð lagt fram í dag.
Adolf segir, að forráðamenn Gull-
bergs-hafi áhuga á að leigja eign-
ir þrotabúsins fram að áramótum,
meðal annars til þess að missa
ekki af síldarvertíðinni, sem hefst
um næstu mánaðamót.
Þeirri hugmynd hefur verið
hreyft að Seyðisfjarðarbær og
Verkamannafélagið Fram ættu
aðild að stofnun hlutafélags, sem
tæki yfir rekstur fiskvinnslunnar.
Þessi hugmynd hefur þó hvorki
verið tekin til umræðu í stjórn
Verkamannafélagsins eða bæjar-
ráði.
Togari Gullbergs, Gullver, hefur
til þessa landað hjá Fiskvinnsl-
unni-Norðursíld, og eigendur út-
gerðarfyrirtækisins eru einnig
meðal eigenda fiskvinnslunnar.
Kindakjöt:
Gert ráð fyrir
7,5% hækkun á
verði til bænda
GERT er ráð fyrir að grundvallar-
verð kindakjöts til bænda hækki
um 7,5%, en það er sama hækkun
og varð á verðlagsgrundvelli í
mjólkurframleiðslu um síðustu
mánaðamót. Rciknað er rneð að
nýr verðlagsgrundvöllur liggi fyr-
ir um næstu helgi.
Að sögn Guðmundar Sigþórssonar
ritara sexmannanefndar á eftir að
ákvarða hækkanir á ullar- og gæru-
verði, en þar er um að ræða um
10-15% af grundvallarverðinu.
Fimmmannanefnd á síðan eftir að
ákveða slátur- og heildsölukostnað
kindakjöts. Þar sem undanfarnar
hækkanir eru ekki taldar hafa fylgt
verðlagsþróun, mun hann væntan-
lega hækka meira en vinnslu- og
heildsölukostnaður mjólkur.
ISAL:
Starfsmenn
Utgerðarfélag Akureyringa:
-Yfir 50 starfsmenn
vantar í fískvinnslu
Útgerðarfélag Akureyringa
auglýsir þessa dagana eftir
starfsfólki og sagði Gunnar Lór-
enzson verkstjóri að unnt væri
að bæta við á milli 50 og 60
manns svo vinnslusalurinn verði
fúllskipaður. Nú eru eftir um
4.000 tonn af kvóta ÚA, en Vil-
helm Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri sagði aflabrögð
og veðurfar haustmánaðanna
Jráða mestu um hvenær kvótinn
yrði búinn.
Skólafólkið sem unnið hefur hjá
ÚA í sumar er nú að hætta störf-
um, en um 40 manna hópur skóla-
nema er enn við vinnu í frystihús-
inu. Þar er um að ræða nemendur
framhaldsskólanna, sem ýmist
hætta næsta föstudag eða siðar í
mánuðinum. Einkum vantar konur
til starfa hjá ÚA, en Gunnar sagði
reynsluna þá að erfitt væri að fá
konur til starfa í september, eða
um svipað leyti og skólar væru
að fara af stað.
Af 18.900 tonna heildarkvóta
Útgerðarfélagsins eru nú eftir um
1^000 tonn. Vilhelm Þorsteinsson
framkvæmdastjóri ÚA sagði
ómögulegt að spá fyrir um hvern-
ig mál æxluðust fram að áramót-
um. I fiystihúsinu eru unnin að
jafnaði frá 2.200 tonnum upp í
3.000 tonn á mánuði, en í síðasta
.mánuði fóru 1.200 tonn í gegnum
húsið.
Morgunblaðiö/Rúnar Þór
Festar leystar í Sandgerðisbót
óska verk-
fallsheimildar
Á FUNDUM starfsmanna ÍSAL í
gær var samþykkt að beina því til
stjórna og trúnaðarmannaráða að
afla verkfallsheimildar.
Starfsmenn ÍSAL eiga samtals
aðild að tíu verkalýðsfélögum og
fundaði hver hópur í gær. Gylfi Ing-
varsson, aðaltrúnaðarmaður, sagði
að það tæki nokkurn tíma að ganga
frá þessum málum í öllum félögum,
en þau ættu að skýrast í næstu viku.
Þó óskað hafi verið verkfallsheimild-
ar hefur engin dagsetning verið
nefnd í því sambandi.
Stálskip féll frá tilboði
sínu í togarann Sigurey
Ekki tókst að ná samkomulagi við veðhafa um greiðslur
STÁLSKIP hf. í Hafnarfirði hef-
ur fallið frá tilboði sínu í togar-
ann Sigurey frá Patreksfírði.
Sem kunnugt er var Sigurey
slegin Stálskipum á 257 milljón-
ir króna fyrir skömmu. Stefáni
Skarphéðinssyni sýslumanni á
Patreksfirði barst símskeyti í
gær frá Guðrúnu Lárusdóttur
framkvæmdastjóra Stálskipa
þar sem honum var tilkynnt um
ákvörðun fyrirtækisins.
Tilraunir með nýtt slitlag
VEGAGERÐ ríkisins hefúr að undanförnu unnið
að endurnýjun á slitlagi á Reykjanesbraut við
Engidal ofan við Hafnarfjörð. Að sögn Rögn-
valds Jónssonar umdæmisverkfræðings er einnig
verið að kanna með hvaða hætti er ódýrast og
best að gera við Reykjanesbrautina, sem víða
er mjög illa farin. Beitt er sömu aðferð og þeg-
ar malbik er lagt, en í þess stað kemur þunnt
lag af steypu.
Á um 100 metra kafla hefur Reykjanesbrautin
verið tekin upp til móts við Engidal og steypt á ný
og gerðar tilraunir með tvær ólíkar aðferðir. Tilgang-
urinn er að reyna að finna slitlag sem þolir betur
áraun nagladekkja heldur en malbik og einnig hvaða
aðferð er best að beita þegar slitlag Reykjanesbraut-
ar verður endurnýjað.
■ Morgunblaðið/Sverrir
Njörður Ti*yggvason ft*amkvæmdastjóri Sér-
steypunnar sf. og Rögnvaldur Jónsson við vélina
sem leggur út steypu í stað malbiks.
í símskeytinu segir að ástæður
þess að Stálskip féll frá tilboði
sínu séu einkum þær að vanskil
áhvílandi lána á skipinu hafi verið
meiri en eigendur Stálskipa hafi
gert sér grein fyrir í bytjun. Þar
að auki hafi Stálskipum ekki tek-
ist að semja við veðhafa um
greiðslur af þessum lánum. Veð-
hafar eru einkum Byggðastofnun
og Landsbankinn, en einnig Fisk-
veiðasjóður.
Stefán Skarphéðinsson sýslu-
maður var uppboðshaldari á upp-
boðinu þar sem Sigurey var seld.
Hann getur sem slíkur tekið næsta
tilboði ef svo ber undir en það var
frá heimarnönnum sem stofnuðu
hlutafélagið Stapa til þessa. Stef-
án segir að háldinn verði fundur
með veðhöfum togarans á mánu-
dag og þar rætt um framhald
málsins. Stefán segir að hann geti
ekkert sagt til um framhald þessa
máls fyrr en vilji veðhafa liggi ljós
fyrir.
Sigurður Viggósson varaform-
aður stjórnar Stapa hf. segir að
með þessu hafi þeim opnast ný
leið í skipakaupamálum sínum.
Hinsvegar sé erfitt að segja til um
hvort Stapar hf. muni halda við
sitt fyrra tilboð. í því tilboði hafi
þeir í raun teygt sig lengra en
þeir mögulega gátu í tilraun sinni
til að halda Sigurey áfram á Pat-
reksfirði.
„Málið er nú í höndum uppboðs-
haídarans og fyrr en vilji hans
liggur fyrir getum við lítið tjáð
okkur um málið,“ segir Sigurður.
„Við höfum að undanförnu verið
að skoða önnur skip og Sigurey
var ekki inn í myndinni hjá okkur
áðúr en þetta mál kom upp.“
Sigurður segir að forráðamenn
Stapa hf. muni koma til fundar
um mál þetta um næstu helgi eða
strax í byrjun næstu viku. Þá
ættu línur að vera skýrari.
Sveinn Sveinsson bústjóri þrota-
bús Hraðfrystihúss Patreksíjarðar'
segir að málið sé sem stendur í
höndum uppboðshaldarans og veð-
hafa. Það kæmi ekki til hans kasta
fyrr en þeir aðilar hefðu afgreitt
það frá sér.
Morgunblaðinu tókst ekki að
ná tali af Guðrúnu Lárusdóttur í
gærkvöldi.