Morgunblaðið - 13.09.1989, Page 4

Morgunblaðið - 13.09.1989, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13.' SEPTEMBER 1989 ' Baula hf. hyggst greiða hærra verð fyrir mjólkina Jón Jóhannes- son, fyrrv. stórkaup- maðurlátinn JÓN S. Jóhannesson, fyrrverandi stórkaupmaður, lést í Reykjavík síðastliðinn mánudag. áttræður að aldri. Hann fæddist á ísafirði þann 17. júní árið 1909, sonur hjónanna Pálínu Brynjólfsdóttur og Jóhann- esar Jenssonar, skósmiðs þar í bæ. Jón fluttist ungur til Reykjavíkur og átti heima þar síðan. Að loknu burtfararprófi frá Samvinnuskólan- um starfaði Jón meðal annars hjá I. Brynjólfssyni og Kvaran og Sam- bandi íslenskra samvinnufélaga uns hann stofnaði eigið fyrirtæki, Jón Jóhannesson og co. árið 1942. Jón varð snemma virkur í íþrótta- og félagsmálum. Hann lagði stund á fimleika hjá ÍR og varð íslandsmeist- ari fjónim sinnum. Hann átti sæti í stjórn ÍR um árabil. Hann beitti sér fyrir stofnun Tennis- og badminton- félags Reykjavíkur og var fyrsti for- maður þess og síðar fyrsti heiðurs- félagi. Hann átti um skeið sæti í stjóm Félags íslenskra stórkaup- manna og sat lengi í stjóm Lífeyris- Jón Jóhannesson sjóðs verslunarmanna fyrir hönd stórkaupmanna. Jón var mikill áhugamaður um vestræna samvinnu og einn af stofnendum samtaka um vestræna samvinnu. Hann átti lengi sæti í fulltrúaráði sjálfstæðisfélag- anna í Reykjavík. Jón Jóhannesson gekk að eiga eftirlifandi konu sína, Katrínu Skaptadóttur árið 1935 og áttu þau þrjú börn, sem öll eru á lífi. Þau em: Pálína, húsmóðir í Garðabæ, Sveinborg, bankastarfsmaður í Reykjavík, og Jens Agúst, sem rekið hefur fyrirtækið Jón Jóhannesson og co. síðastliðin fjögur ár. Selfossi. BAULA hf. í Hafiiarfirði er tilbú- in að flytja starfsemi sína til Hellu á Rangárvöllum, fáist já- kvætt svar frá Byggðastofnun við erindi fyrirtækisins um þátttöku stofiiunarinnar i aúkningu hluta- §ár þess. Með auknu hlutafé hyggjast stjómendur Baulu hf. fjármagna flutning fyrirtækisins frá Hafnar- firði til Hellu. Þetta kom fram í máli Þórðar Ásgeirssonar fram- kvæmdastjóra Baulu hf. á fundi sl mánudag, 11. september, á Hellu hjá Lionsklúbbnum Skyggni. Þar kom einnig fram að umbeðin hluta- fjáraðstoð nemur 10 milljónum króna og að hlutafé Baulu hf. er 12 milljónir. Verði af flutningi Baulu hf. til Hellu mun fyrirtækið starfa sem afurðastöð og kaupa óunna mjólk af bændum. Þegar liggur fyrir uppkast að samningi um slíkt við nokkra bændur en fyrirtækið notar nú um 500 þúsund lítra af mjólk á ári til framleiðslu sinnar. Örn Vig- fússon framleiðslustjóri Baulu hf. sagði að þeir gerðu ráð fyrir að greiða bændum hærra verð fyrir mjólkina en þeir fá nú hjá Mjólkur- búi Flóamanna. Þórður Ásgeirsson sagði nauð- synlegt fyrir Baulu hf. að geta keypt óunna mjólk til framleiðsl- unnar og losna þannig við að greiða 7,5 milljónir á ári fyrir vinnslu sem fyrirtækið gæti framkvæmt sjálft með eigin tækjum. Baula hf. hefur leitað eftir því við Mjólkursamsöl- una að fá keypta óunna mjólk en fengið synjun. Þórður sagði enn- fremur að með því að fá óunna mjólk inn í fyrirtækið opnuðust möguleikar á því að auka fram- leiðsluna. Aðrir möguleikar Baulu hf. að fá óunna mjólk til fram- leiðslu sinnar eru að kaupa hana af bændum í nágrenni höfuðborgar- innar og flytja til sín í tankbíl. Þá eru möguleikar á því að flytja starf- semina til Borgarness eða Húsavík- ur. Beiðni fyrirtækisins til Byggða- stofnunar tengist eingöngu mögu- legum flutningi til Hellu. Hjá Baulu hf. vinna nú 9 manns, þar af fjórir við vinnslu. — Sig. Jóns. Nefiid skip- uð um vemd eldri hverfa BORGARRÁÐ hefiir samþykkt til- lögu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar formanns skipulagsnefndar um að skipuð verði þriggja manna nefnd er Qalli um vemdun eldri byggða og mannvirlga í borginni. í tillögunni er gert ráð fyrir að nefndina skipi forstöðumaður Árbæj- arsafns, borgarverkfræðingur og forstöðumaður borgarskipulagsins. VEÐUR ÍDAGkl. 12.00: V Heimild: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurspá Id. 16.15 í gær) VEÐURHORFUR íDAG, 13. SEPTEMBER YFIRLIT í GÆR: Suövestankaldi, en stinningskaldi austantil á rnið- um í fyrstu og skúrir. Vestangola eða kaldi og léttirtil austantil í nótt. SPÁ: Breytileg átt, gola eða kaldi. Skúrir á víð og dreif um mest allt land. Hiti 4 til 11 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG: Fremur hæg vestlæg eða breytileg átt og heldur svalt. Skúrir um sunnan- og vestanvert landið en þurrt að mestu norðaustanlands. TÁKN: ■Ói 'mm m x Norðan, 4 vindstig: *' Vindörin sýnir vind- -J0° Hitastig: 10 gráður á Celsíus stefnu og fjaðrirnar • V Skúrir Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. # V El Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka / / / zzz Þokumóða Hálfskýjai * / * 9 ? 9 Súld Skýjað / * / * Slydda / * / oo Mistur # # # —j- Skafrenningur Alskýjað # # # * Snjókoma # # * K Þrumuveður w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 i gær að ísl. tíma hlti veður Akureyri 11 alskýjað Reykjavík 8 úrkoma i grennd Bergen 16 skýjað Helsinki 11 alskýjað Kaupmannah. 16 hálfskýjað Narssarssuaq 2 léttskýjað Nuuk 1 alskýjað Osló 16 léttskýjað Stokkhólmur 17 1 i Þórshöfn 11 hólfskýjað Algarve 24 skýjað Amsterdam 21 mistur Barcelona 24 mistur Berlín 20 léttskýjað Chicago 12 skýjað Feneyjar 22 þokumóða Frankfurt 23 léttskýjað Glasgow 17 skýjað Hamborg 18 hálfskýjað Las Palmas vantar London 20 mlstur Los Angeles 18 alskýjað Lúxemborg 20 mistur Madríd 22 mistur Maiaga vantar Mailorca 27 skýjað Montreal 14 þoka New York 21 skýjaö Orlando 24 léttskýjað París 21 skýjað Róm 24 þokumóða Vfn 16 rigning Washington 22 skúr Winnipeg vantar Borgarráð Qallar um afgreiðslutíma áfengis: Veitingastaðir haldi óbreyttum leyfum „ÞAÐ er ekki rétt að það sé vilji borgaryfirvalda að veit- ingastaðir, sem síðastliðin fimm ár hafa haft veitingaleyfi til klukkan 1 virka daga og til klukkan 3 um helgar, séu svipt- ir leyfinu fyrirvaralaust. Það mætti halda að við byggjum í lögregluríki," sagði ViUijálmur Þ. Vilhjálmsson fulltrúi Sjálf- stæðisflokksins í borgarráði. Á fundi borgarráðs í gær lögðu þau Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Katrín Fjeldsted og Magnús L. Sveinsson fram eftirfarandi tillögu og var hún samþykkt samhljóða: „Varðandi framkvæmd nýrrar reglugerðar um sölu og veitingar áfengis beinir borgarráð þeim til- mælum til lögreglustjóra að þeir veitinga- og skemmtistaðir í Reykjavík sem hafa haft heimild til áfengisveitinga til kl. 01:00 virka daga og sunnudaga og til kl. 03:00 og óska áfram eftir sams konar heimild haldi henni. Fyrir- varalaus breyting á opnunartíma ofangreindra staða getur haft í för með sér alvarlegar afleiðingar á rekstur þessara fyrirtækja svo og atvinnu starfsmanna þeirra." Jafnframt samþykkti borgarráð að tilnefna Vilhjálm Þ. Vilhjálms- son og Bjarna P. Magnússon, í nefnd til viðræðna við lögreglu- stjóra um nýsetta reglugerð og framkvæmd hennar. Vilhjálmur sagði að þegar hefðu tvö veitingahús verið svipt leyfum sínum fýrirvaralaust og í báðum tilvikum væri um staði að ræða sem hefðu bestu fáanleg meðmæli og aldrei hefði verið kvartað und- an. „Þama er verið að kippa fótun- um undan fyrirtækjunum með gjörbreyttum forsendum fyrir rekstri og það án nokkurs fyrir- vara,“ sagði Vilhjálmur. 2% hækkun framfærslu- vísitölunnar Framfærsluvísitala sept- embermánaðar er 2,0% hærri en í ágúst. Vísitala september er Í31,l stig, miðað við 100 stig í maí 1988. Síðastliðna 12 mánuði hefiir vísitala framfærslu- kostnaðar hækkað um 19,2%. Hækkun framfærsluvísitölu undanfarna þrjá mánuði er 4,1%, sem jafngildir 17,6% verðbólgu á heilu ári, sam- kvæmt útreikningum Hag- stofunnar. 2,7% hækkun á verði mat- vöru olli 0,5% hækkun vísi- tölunnar. 4% hækkun á verði fatnaðar olli 0,3% hækkun og hækkun á verði nýrra bíla olli um 0,2% hækkun vísitölunnar. Verðhækkun ýmissa annarra vöru- og þjónustuliða vegur 1,0% í nýrri vísitölu. Stj órnmálafræði kennd í Verslunarskólanum: Nemendurnir höfðu kennarann tiltækan Verslunarskóli íslands hefúr tekið upp kennslu í stjórnmála- fræðum og hefiir Hannes Hólm- steinn Gissurarson, lektor í stjórnmálafræðum við Háskóla íslands, verið ráðinn til kennslu- starfa þar. Þetta er í fyrsta skipti sem tek- in er upp kennsla í stjórnmála- fræðum við Verslunarskólann, en nemendur sjötta bekkjar eiga rétt á einni valgrein og óskuðu þeir eftir stjómmálafræðum. „Ég fór fram á það við nemenduma að þeir aðstoðuðu mig við að útvega kennara þar sem þessi ósk þeirra kom fram á síðustu stundu þegar skóla var að ljúka sl. vor. Ég ætl- aði hinsvegar að bera það fyrir mig að ég hefði ekki kennara til- tækan í þetta. Það kom hinsvegar á daginn að nemendur höfðu hann á reiðum höndum og var Hannes Hólmsteinn þar með ráðinn í starf- ið,“ sagði Þorvarður Elíasson, skólastjóri Verslunarskóla íslands, í samtali við Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.