Morgunblaðið - 13.09.1989, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1989
H
Hjartans þakkir fœri ég öllum þeim, sem glöddu
mig með heimsóknum, gjöfum, blómum og
skeytum í tilefni af 80 ára afmœli mínu þann
11. ágúst sl. GitÖ blessi ykkur öll.
Guðný Jónsdóttir Bieltvedt,
Bólstaðarhlíð 41,
Reykjavík.
Þakka fmndfólki vinum og vandamönnum
innilega fyrir að gleðja mig með heimsóknum,
gjöfum, skeytum, kveðjum og simtölum á 90
ára afmœlinu. Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Tyrfingsdóttir,
Litlu-Tungu, Holtum.
TIL SOLU
MERCEDES BEIMS 190E árgerð 1988.
Til Velvakanda.
í heilagri ritingu kristinna
manna, Biblíunni, má lesa eftirfar-
andi vers í Sálmunum: „því að þín
vegna bíður hann út englum
sínum, til þess að gæta þín í öllum
vegum þínum.“ (Sálm. 91:11)
Svo hughreystandi og upplífg-
andi orð er unaðslegt að mega
lesa á göngu okkar í gegnum lífið,
þar sem svo oft mæta okkur hætt-
ur og ógnir við hvert fótmál. Þá
er gott að vita af þessu fyrirheiti
Guðs, englum sem fylgja okkur,
svo að við steytum ekki fætur við
steinum og hrösum.
Þegar allt virðist blása á móti,
örvænting í hugans fjötrum,
líkamlegir sjúkdómar, dauðans
angist og lífvana tilvera, er oft
eina von mannsins að leita í auð-
mýkt til Guðs í bæn. (Sálm. 86:7).
Hann hefur gefið okkur fyrirhei-
tið, að heyra bænir okkar, sem við
berum fram falslaus og velviljuð
í huga, og svara þeim. Áfram
stendur skrifað: „Ég leitaði Drott-
ins og hann svaraði mér, frelsaði
mig frá öllu því er ég hræddist.“
(Sálm. 34:5).
Himneskar hersveitir Drottins
eru tugþúsundir á þúsundir ofan.
Það er dásamlegt að fá að biðja
um hjálp englanna. Hvílík forrétt-
indi sem Guð hefur gefið þeim er
trúa.
Einar Ingvi Magnússon
Sjálfskiptur, centraliæsingar,
topplúga, hljómflutnings
tæki, álfelgur, glæsilegurbíll.
EgiII Vilhjálmsson hf
Smiðjuvegi 4, Kópavogi,
símar 77200 og 77202.
FLOTT
FORM
í Kramhúsinu
Flottform-æfingakerfið styrkir, liðkar,
grennir og veitir góða slökun.
Tækin eru hönnuð með það í huga að veita
alhliða þjálfun án of mikils álags.
Auknar birgðir súrefnis og bætt blóðstreymi
hjálpa til við að brjóta niður erfiða
appelsínuhúð og losa um vöðvabólgu,
bakverk svo og aðra álagssjúkdóma.
Verið velkomin í áhrifaríka og þægilega
líkamsrækt. Tímabókanir standa yfir
í símum 15103 og 17860.
VIÐ BERGSTAÐASTRÆTI
Gullkort veita ekki áfslátt
Til Velvakanda.
Eru svokölluð „gullkort" blekk-
ing ein og eingöngu ætluð til að
auka á gróða kreditkortafyrirtækj-
anna?
Fyrir um 2 árum tóku kredit-
kortafyrirtækin að auglýsa upp
svokölluð „gullkoit". Þetta kort
var eingöngu ætlað skilvísum not-
endum og átti að sýna traust kort-
hafans. Hann átti í vændum betri
þjónustu og ýmsan afslátt auk
betri ti-ygginga, sem átti að gera
hátt árlegt kortagjald (kr. 5.400)
réttlætanlegt.
Ég fékk „gullkort“ hjá Eurocard
í mars 1988 og hugðist njóta betri
fyrirgreiðslu og afslátta á ferðum
mínum um Luxemburg, Þýskaland
og Frakkland, sumarið 1988.
Hvergi þar sem þessu „Gullkorti“
var framvísað, varð maður var við
betri þjónustu eða að afsiáttur
væri gefinn vegna kortsins.
Reyndar varð ég undrandi yfir
hvað óvíða var boðið upp á
greiðslukortaviðskipti.
Ég endurnýjaði þó „gullkortið“
’89, þar sem ég hafði ákveðið ferð
til Bandaríkjanna og hélt að þar
mundi kortið nýtast mér ög ég
fengi afslætti sem réttlættu hátt
kortagjald. Hvergi varð ég var við
að „gullkortið" veitti nokkuð um-
fram hið venjulega kreditkort og
engan afslátt út á „gullkortið“ var
að fá í þessari ferð, frekar en í
þeirri fyrri.
Sem dæmi um þetta, þá tók ég
bílaleigubíl í 4 vikur hjá bílaleig-
unni AVIS. Samkvæmt upplýsing-
um frá Eurocard bar mér 15%
afsláttur hjá þessari bílaleigu, út
á fylgikort „gullkortsins" þ.e.
IAPA- kortið. Þessu var algjörlega
hafnað hjá bílaleigunni þegar ég
gerði við þá samninginn. Þegar
ég kom heim til íslands, setti ég
mig í samband við. Eurocard, þar
sem ég var fullvissaður um að
mér hefði borið afsláttur hjá AVIS.
Þeir tóku ljósrit af reikningi AVIS
og sendu út telex. Svarið kom
fljótt og vel, enginn afsláttur var
veittur.
Eru greiðslukortafyrirtækin að
blekkja viðskiptavini sína, með
útgáfu þessa svokallaða „gull-
korts“?
Bjarnþór Aðalsteinsson
Víkverji skrifar
Yíkveiji ætlar að þessu sinni að
birta úr tveimur bréfum, sem
honum hafa borist.
íslensk kona, sem hefur verið bú-
sett í Svíþjóð síðan 1979, segir að
það hafí löngum verið gott að vera
Islendingur í Svíþjóð, en því miður
hafí það verið að breytast undanfar-
ið. Telur hún að æ fleiri íslendingar
sem flytja til Svíþjóðar líti þannig
á, að það sé sjálfsagt að láta „sósíal-
inn“ sjá fyrir sér. Þetta hljómi
kannski fínt en í þessu felist ekkert
annað en segja sig á bæinn eða sveit-
ina.
Telur bréfritari auk þess að nú sé
svo komið að á stöðum, þar sem hún
þekkir til og íslendingar áttu áður
auðvelt að fá vinnu, sé sagt þvert
nei, um leið og vinnuveitendur heyra
að umsækjandi sé íslenskur. Það
sama eigi við um húsnæði. Segir hún
að margir íslendingar hafí stungið
af án þess að greiða húsaleigu eða
lán, sem þeir hafí tekið. Þetta bitni
síðan á þeim, sem vilja standa sig
vel. Þeir sem flytja út verði að gera
sér grein fyrir að þeir eru að byija
frá gi-unni. Enginn verði ríkur á því
að flytja.
Með bréfinu sem hér hefur verið
vitnað til fýlgdi síðan úrklippa
úr sænska blaðinu Smálandsposten
frá 30. ágúst, þar sem segir frá því
að félagsskapur AA-manna í Norr-
hult hafí orðið gjaldþrota og hafí
ógreidd einkasamtöl íslensks starfs-
fólks á vistheimili fyrir eiturlyfjaneyt-
'endur sem félagsskapurinn rak riðið
baggamuninn. Er þetta haft eftir
Evie Söderberg, sem er forstöðumað-
ur fyrir heimilið „Tallhagens Half-
Way-House“ Kemur fram að á fjór-
um mánuðum hafí AA þurft a'ð borga
um 3.000 sænskar krónur eða um
.28.000 íslenskar fyrir síma, en við
venjulegar aðstæður hefði upphæðin
átt að vera 800 s.kr. eða 7.500 ísl.
kr. Segir Evie enga aðra skýringu á
þessum háa símareikningi en þá, að
íslensku ráðgjafamir á heimilinu
hefð.u notað símann til einkasamtala
við ísland.
Víkveiji hefur í sjálfu sér engu við
þessa sendingu frá Svíþjóð að bæta.
Hann tekur undir að blaðaskrif af
þessu tagi eru óskemmtileg fyrir land
og þjóð og vonandi sjá þeir sem hlut
eiga að máli sér skylt að bregðast
við þessum opinberu kvörtunum með
viðeigandi hætti og leiðréttingu, ef
þær eiga ekki við rök að styðjast.
Hitt bréfíð var frá lesanda Morg-
unblaðsins sem sá orðið kamel-
dýr í texta með mynd af Gaddafí
líbýuforseta. Segist lesandinn hafa
fyllst skelfingu vegna fákunnáttunn-
ar sem í notkun þessa orð felst, þar
sem þessi. skepna heiti úlfaldi á
íslensku. Úífaldinn greinist í tvær
undirtegundir, drómedara með eina
kiyppu og kamel með tvær. Þetta
hafí verið kennt í bamaskóla. Þá
hefði átt að vera gott að muna þetta,
því að myndin á Camel-sígarettu-
pökkunum væri vitlaus. Þar væri
skepnan — úlfaldinn — aðeins með
eina kryppu, en ætti að hafa tvær.
Samkvæmt enskri málvenju væri
þetta að sjálfsögðu rétt, því að á
ensku er camel samheiti.
Telur lesandinn að íslenskir fjöl-
miðlungar átti sig ekki á því að úlf-
aldinn skiptist í tvær undirtegundir,
þar sem þeir minnist aldrei á drómed-
ara. Og hann hrópar: „Ekki gera
íslenskuna fátækari! Úlfaldi er hið
meraksta orð, og veit enginn ná-
kvæmlega hvemig það varð til í
íslensku mjög snemma á öldum.
Líklega hefur það fyrst orðið til fyrir
misskilning — afbökun á elefant',
en það dýr köllum við fíl.
Skrifstofutækninám
Betra verð - einn um tölvu
Tölvuskóli íslands
S: 67 14 66
í
í
<
i
(
(
i
(