Morgunblaðið - 13.09.1989, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 13.09.1989, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDÁGUR 13. SEPTEMBER 1989 35 KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI FÉLAGSLIÐA i Morgunblaðið/RAX Skagamanna var vel gætt er þeir nálguðust vítateig Liege. Á þessari mynd eru níu leikmenn, þar af sex Belgar. Skagamenn réðu ekki við Belgana Töpuðu 0:2 fyrir.Liege í 1. umferð Evrópukeppninnar IA-FC Liege 0 : 2 Akranesvöllur, Evrópukeppni félags- liða, 1. umferð, fyrri leikur, þriðjudag- inn 12. september 1989. Mörk Liege: Luc Emes (5.), Frederic Waseige (81.). Dómari: Dennis McArdie frá Norður- írlandi. Dæmdi mjög vel. Áhorfendur: 684. Lið ÍA: Ólafur Gottskálksson, Harald- ur Ingólfsson, Heimir Guðmundsson, Alexander Högnason, Sigurður B. Jónsson, Júlíus P. Ingólfsson (Aðal- steinn Víglundsson vm. á 85. mín.), Karl Þórðarson, Sigursteinn Gíslason, Bjarki Pétursson, Guðbjöm Tryggva- son, Stcfán Viðarsson (Bjarki Gunn- laugsson vm. á 85. mín.). Lið Liege: Jacques Munaron, Bemard Wegria, Jean-Marie Houben, Luc Er- nes, Jean-FYancois de Sart, Moreno Giusto, Danny Boffin, FYederic Wa- seige, Zvonko Varga, Jean-Marie Bos- man, Mevosja Malbasa (Angelo Nij- skens vm. á 60. mín.). MÖGULEIKAR Skagamanna á að komast í 2. umferð Evrópu- keppni félagsliða eru ekki mikl- ir eftir tap fyrir belgíska liðinu Liege í 1. umferð, 0:2, á Akra- nesi. Skagamenn voru reyndar óhepppnir, nýttu ekki ágæt færi og fengu á sig tvö ódýr mörk, en sigur Beiganna var sanngjarn. Belgarnir bytjuðu vei og náðu forystunni strax á 5. mínútu. Luc Ernes skoraði með þrumuskoti af löngu færi. Þetta mark setti Skagamenn út af FráSigþóri laginu og í fyrri Eiríkssyni hálfleik voru Belg- óAkranesi arnir mun sterkari og fengu nokkur ágæt færi en Óiafur Gottskálksson varði vel í marki Skagamanna. Sig- ursteinn Gíslason og Haraldur Ing- ólfsson áttu bestu færi Skaga- manna í fyrri hálfleik en ágæt skot þeirra fóru framhjá marki Liege. Liege fék tvö ágæt færi í upp- hafi síðari hálfleiks en eftir það tóku Skagamenn við sér og komust betur inní leikinn. Á 59. mínútu fengu þeir besta færi sitt er Bjarki Pétursson komst einn í gegn eftir sendingu frá Stefáni Viðarssyni en Jacques Munaron, markvörður Liege, varði mjög vel með úthlaupi. Munaron bjargaði vel skömmu síðar er hann komst fyrir sendingu frá Haraldi Ingólfssyni. Annað mark Liege kom á 81. mínútu og var nokkuð gegn gangi leiksins. Vasage fékk boltann rétt utan við vítateiginn og hálf mis- heppnað skot hans fór í jörðina og yfir Ólaf Gottskálksson og í netið. Guðbjörn Tryggvason, Haraldur Ingólfsson, Bjarki Pétursson og Karl Þórðarson áttu allir góðan leik í liði ÍA og Ólafur Gottskálksson varði vel. Skagamenn hefðu vissulega get- að sloppið betur frá þessum leik. Þeir fengu ágæt færi og léku á köflum mjög vel, einkum í síðari . hálfleik. Sigur Liege var þó sann- gjarn og Skagamenn eiga erfiðan leik fyrir höndum í Liege. BBB i Þrír leikmenn l.deildar í leikbann Aganefnd KSÍ kom saman til fundar í gær og voru 59 mál tekin fyrir. Þrír Ieikmenn 1. deildar verða í ieikbanni í 18. og síðustu umferð íslandsmótsins á laugar- daginn. Þeir eru: Þorvaldur Örlygs- son, KA, Guðmundur Baldursson, Val og Siguijón Sveinsson, ÍBK. Sex leikmenn úr 2. deild taka út leikbann, eða leikbönn. Kristján Davíðsson, Einheija, fékk þriggja leikja bann fyrir það sem kallað er ofsaleg framkoma í leik ÍBV og ■ Einheija um síðustu helgi. Kristján I sló til dómarans, Árna Þórðarsonar sem var að dæma sinn fyrsta 2. » deildarleik, eftir að hafa fengið að 1 sjá rauða spjaldið og fær því þriggja leikja bann fyrir bragðið. Aðrir sem fengu eins leiks bann voru: Hörður Theódórsson, ÍR, Marteinn Guð- geirsson, Tindastóli, Sævar Sveins- son, Selfossi, Hörður Benónýsson, Völsungi og Unnar Jónsson, Völs- 1 ungi. ENGLAND Stærsti sigur Liverpool M.deild - sigraði Crystal Palace 9:0! Liverpool tók nýliða Crystal Palace í kennslustund í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi, sigraði 9:0! Þetta er stærsti sigur liðsins í 1. deild frá upphafi, en fyrra metið var 7:0 sigur gegn Tottenham 1978. Fyrsta markið gerði Steve Nicol. McMahon bætti öðru markinu við og Ian Ruch því þriðja og þannig var staðan í hálfleik. Gillespie og Beardsley gerðu fjórða og fimmta markið. Liverpool fékk síðan vítaspymu sem John Barnes neitaði að taka, vildi fá John Aldridge inná sem varamann. Ronnie Whelan skipti við Aldridge sem skoraði úr vítaspymunni, hans 64. mark í 104 leikj- um. Eftir leikinn kastaði Aldridge skónum og treyj- unni upp til áhorfenda í kveðjuskyni þar sem hann mun að öllum líkindum skrifa undir samning við Real Sociedad í dag. . John Barnes gerði sjöunda markið, Glenn Hysen það áttunda - hans fyrsta mark fyrir Liverpool. Steve Nicol bætti því níunda við, en mörkin liefðu getað orðið enn fleir slíkir voru yfirburðirnir. ÚRSLIT Evrópukeppni bikarhafa US Luxemborg (Luxemborg)—Djurgarden (Svíþjóð).............0:0 Áliorfendun 429. Partizan Belgrad (Júgósl.)—Celtíc (Skotlandi).............2:1 Milojevic (21.), Djurdjevic (55.) - Galoway (41.) Áhorfendur: 15.000. Slovan Bratislava (Tékkósl.)—Grashop|>ers (Sviss) ........3K) Timko (35), Vankovic (53.), Tittel (88.). Ferencvaros (Ungveijalandi)—Valkaekosken (Finnlandi)......5:1 Kinzses (1.), Iimperger (10.), Szeibert (29. og 64.), Dzurjak (80.) - Paavola (4.) Áliorfendun 22.000 Real Valladolid (Spáni)—Hamrun (MSItu).........................5K) Albisceascoechea (22. og 70.), Valverde (38. og 46.), Ayarza (58.) Áliorfendur: 12.000. Evrópukeppni félagsliða Valetta (Möltu)—Foto Net (Ausbirriki)......................... 1:4 Zarb (72.) - Sjálfsmark (15.), Balzis (40.), Vidreis (51.), Heraf (86.) Áhorfendun 6.500 Vitosha (Búlgaríu)—Antwerpcn (Bclgíu)......................00 Áhorfendun 18.000. ÍA—FC Liege (Belgiu)..................................... 0:2 - Luc Emes (5.) og FVederic Waseigc (81.) Áhorfendur 700. Gomik Zabrzc (l’ólbuidi)—Juventus (Ítalíu).............„..0:1 - Alexander Zavarov (73.). Áliorfendun 35.000. Hibemian (Skotlandi)—Videoton (Ungveijalandi)..............ÍO Graham Mitchell (25.) Áliorfcndiu-: 14.000. Sochaux (Frakklandi)—Jeunesse (Luxemborg).......................70 Lada (6. og 24.), Silveslre (22.), Odjani (46. og 73.), Carrasco (86.), sjálfsmark (89.). Áliorfcndur: 8.000. ENGLAND 2. dcild: Portsmouth—Plymouth....................................0:3 Port Vale—Hull ........................;..............1:1 Sheffield United—Swindon..............................2:0 Wolverhampton—Brighton.......................... 2.4 Hvað sögðu þeir? „Munurinn r á atvinnu- og áhuga- mönnum“ Sigurður Lárusson, þjálfari ÍA: „Ég var að mörgu leyti mjög ánægður með leikinn. Við lékum vel í vöminni og áttum vel útfærðar skyndisóknir. Mér fannst bæði mörk Belganna af ódýrari gerðinni. Þetta belgíska lið var svipað og ég bjóst við en þeir tóku þennan leik mjög alvarlega og virtust hræddir, enda léku þeir af fullum krafti allan tímann. Þetta lið er mun sterkara en ungverska liðið sem við lékum við í fyrra. Við reynum að gera okkar besta í útileiknum og ég hef trú á að við gætum staðið vel í þeim þar eins og hér,“ sagði Sigurður. Guðbjöm Tryggvason, fyrirliði „Mér fannst leikurinn þokkalega leikinn af okkar hálfu. Ég tel að munurinn á liðunum sé einfaldlega munurinn á atvinnu- og áhuga- mönnum. Við vorum mjög óheppnir að fá á okkur þetta mark strax á fyrstu mínútunum, auk þess sem heppnin var ekki með okkur þegar við fengum okkar færi í leiknum." Dennis McArdie, dómari: „Leikurinn var mjög prúðmann- lega leikinn og því var ekki erfitt að dæma hann. Mér fannst völlur- inn og allar aðstæður ágætar enda er ég vanur að dæma á svona völl- um í Norður—írlandi. Akurnesingar léku vel, miðað við áhugamannalið, og sérstaklega at- hygli mína vakti Karl Þórðarson sem er greinilega mjög leikinn." Robert Wasage, þjálfari Liege: „Ég var ekki ánægður með leik minna manna, einkum sóknar- og miðjumanna, en vörnin var ágæt. Völlurinn og veðrið gerðu okkur erfitt fyrir, enda erum við ekki van- ir slíkum aðstæðum." Luc Emes: „Ég hef nú ekki spilað í verra veðri, í hávaðaroki á blautum velli. Það er þó heillandi að leika við slíkar aðstæður, heyra í Atlants- hafinu I nokkurra metra fjarlægð. Ég mun því seint gleyma þessum leik. Akurnesingar léku vel og komu mér ekki á óvart því þjálfari okkar hafði varað okkur við.“ Munaron, markvöröur: „Ég er nýkominn aftur í liðið en hafði nóg að gera í þessum leik. Bjarki Pétursson heillaði mig sér- staklega því ég lék með bróðir hans, Pétri, hjá Anderlecht fyrir tíu árum. Það er greinilegt að Bjarki á eftir að feta í fótspor bróður síns.“ Athugasemd I íþróttablaði Morgunblaðs- ins í gær birtist „frétt“, þar sem fjallað var um spjót, sem Sigurður Einarsson, spjótkastari hefur notað. I klausu þessari var engra heimilda getið, og órökstuddar staðhæfingar settar fram. Reynt var að ná í Sigurð Ein- arsson. Það tókst ekki og þá hefði að sjálfsögðu átt að bíða með birtingu fréttarinnar. Þessi vinnubrögð eru brot á vinnureglum blaðamanna Morg- unblaðsins og biður blaðið Sig- urð Einarsson velvirðingar á þessum mistökum: Ritstj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.