Morgunblaðið - 17.09.1989, Page 5

Morgunblaðið - 17.09.1989, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1989 C 5 ansi hvekktir af kaffiskorti. Ég hef vanið mig á annan bragðgóðan holl- ustudrykk, lýsi.“ Kl. 12 713 km. Vestan við 02 Hellu. Það sést í bláan himin. Umferðin er farin að aukast. — Er ekki þreytandi að þurfa allt- af að hleypa bílum fram úr? „Jú það getur verið það en verst er hvað þeir eru seinir þegar þeim er gefinn sjans. Annars er stærsti gallinn við akstursmáta íslendinga sá að þeir vita ekki hvar hægra hjól- ið er. — Þ.e.a.s. Þeirn finnst þeir þurfa að aka á mjðjum vegi.“ wmmmmmm 803 km. Ekið í hlað VI 1030 hjá Vöruflutningamið- lil. lu stöðinni í Borgartúni. Hafist er handa við að afferma þá lausavöru sem á að fara í vörumót- tökuna af tengivagninum, þar er fiutningurinn flokkaður á bretti til mismunandi viðtakenda. Rúnar og Ólafur Alfreð Sigurðsson afgreiðslu- maður athuga að nóturnar stemmi. „Það er pappírsvinnan! Nótan eða vörufylgibréfið er í fimmriti. Frum- rit, hleðsluseðil, tveir fyrir bókhaldið og einn sem er kvittun sendanda og nú stendur til að setja þetta líka inn á tölvu.“ Tómur bíll. er ekið í hlað við vöru- |l| <142 geymslu Sölumið- ’ stöðvar hraðfrystihús- anna við Héðinsgötu. Þar eru 48 kassar af umbúðaborðum afhentir þ.e.a.s. 240 km af borðum. Samband íslenskra samvinnufélaga fékk sama skammt í umbúða- og veiðarfæralag- er sinn við Holtaveg. Milli fjögur og fimm var ýsan frá Síldarvinnslunni losuð á Faxamarkað. Flutningurinn tókst vel; daginn eftir seldist hún á 92,79 krónur kílóið. Þótt ýsan sé ákaflega fríður fiskur og vinsæl á borðum landsmanna lætur Rúnar ekki dragast að þrífa bílinn. er bíl og tengivagni VI 1156 ut-an v*ð hin nýju nl. I/ heimkynni hjónanna Gísla Gylfasonar og Önnu Bjarna- dóttur í Mávahlíð 17. Búslóðin er í góðu ásigkomulagi enda vel innpökk- uð. Það tekur ekki nema stundar- fjórðung að afferma tengivagninn. Túrnum er lokið; tómur bíll. — Og hvað ætlar þú að fara að gera núna? „Ætli ég fari ekki til systur minnar að sofa. Svo verður að undirbúa túr- inn austur. Alltaf gott að fara heim.“ BÍLSTJÖRINN Rúnar Gunnarsson er 32 ára, borinn og barnfæddur á Neskaupstað. Sonur hjón- anna Gunnars Davíðssonar úr Norðfjarðarsveit og Nikólínu Halldórsdóttur frá Mjóafirði. Sambýliskona Rúnars er Inga Þorláksdóttir frá Reykjavík. Rúnar á 97% hlutafjár í vöru- flutningafyrirtækinu Viggó hf. Fyrirtækið á tvær vöruflutn- _ ingabifreiðir og tengivagna. Á þriðjudögum og föstudögum fara bílarnir af stað; annar frá Neskaupstað en hinn frá ReykjavSc. Auk Rúnars starfa Loftur Magnússon bílstjóri og Linda Guðmundsdóttir af- greiðslumaður við fyrirtækið. Rúnar sér ekki einungis um flutninga til Neskaupstaðar heldur einnigtil Eskiijarðar, Fáskrúðsfjarðar, Stöðvarfjarð- ar, Breiðdalsvíkur og Djúpa- vogs. Kl. 0004 Einhvers staðar í Suðursveit. Kind skýst yfir veginn. — Hefurðu einhvern tímann keyrt niður rollu? „Tvisvar og í annað skiptið borg- aði ég vitlausum manni. Fór með skrokkinn á næsta bæ og spurði hver ætti þennan grip og bóndinn hélt nú heldur betur að hann ætti þetta óbætanlega metfé. Ég mátti þakka fyrir að borga. Fór svo í burtu sæll og glaður. Um haustið var svo hringt þar af næsta bæ og spurt hvort ég ætlaði ekki að borga rolluna sem ég hefði sálgað.“ — Það er orðið dálítið áliðið, hvar ertu vanur að sofa á suðurleiðinni? „Ég legg bílnum oftast einhvers staðar í Óræfasveitinni og sef í koj- unni hér fyrir aftan. Ekkert mál og bíllinn er góður.“ — Nokkuð farinn að finna fyrir atvinnusjúkdómum, t.d. verkjum í baki og öxlum? „Nei, ekki svo heitið geti. Það sem gildir er að sitja rétt. En maður er kannski aðeins farinn að eldast.“ — Hvernig? „Þegar ég byrjaði í þessu starfi var ekki þessi stranga áætlun; núorð- ið bregður maður sér ekki lengur á ball á Klaustri í túrunum eða milli túra suður í Reykjavík. Núna fer ég eins hratt yfir heiman og heim eins og ég get.“ — Ef ekki böllin, hvað er það sem gefur þessu starfi gildi, er svona gaman að keyra? „Mér finnst hundleiðinlegt að keyra bíl. — En mér finnst enn verra að gera það ekki, á erfitt að sitja í farþegasætinu. Ég held að það séu ferðalögin sem halda mér í starfinu. Ég er með ferðaáráttu. Ef maður á frí fer maður á fjöll." — En þú ert alltaf að aka sömu leiðina? „Nei. Þetta er aldrei sama leiðin. Umferðin er mismunandi, fragtin er breytileg, vegurinn og færðin breyt- ist. Túrarnir eru misjafnlega erfiðir. Og veðrið breytist; það yrði leiði- gjarnt ef það væri sól alla leiðina en maður kemst í rigningu fyrir sunn- an.“ — Hefur þá ekki verið leiðinlegt að aka alltaf í sólskini um Austfirð- ina í sumar? „Tja. Stundum hefur orðið full heitt á Neskaupstað. Á tímabili vakn- aði ég klukkan 5-6 og byijaði að vinna fyrr og tók svo frí milli 12 og 3. Það var ekki hægt að vinna í góðviðrinu." 457 km. Rúnar leggur 52 bílnum við Freysnes í Öræfasveitinni og leggst til svefns í fleti aftan til í stýr- ishúsinu. Það er myrkur og úrhelli. Kl. 1 Kl. 7 er farið á fætur og 00 haldið af stað. Öræfa- sveitin skartar ekki sínu fegursta, að vísu rignir ekki í augnablikinu en skúrir eru í grennd- inni. — Segðu mér. Er ekki erfitt að vera kapítalisti á Neskaupstað, „rauða bænum“, „litlu Kreml“? „Ég forðast öll pólitísk afskipti og einbeiti mér að mínu fyrirtæki. Þar er um nóg að hugsa; stöðvargjöldin hjá Vöruflutningamiðstöðinni eru t.d. 207 þúsund á mánuði. Þungaskattur- inn 16 krónur á kílómetrann. — Annars þýðir ekkert að grenja. Það hjálpar manni enginn þótt mað- ur barmi sér. Ég fengi alveg að fara á hausinn. Það sem gildir er að fylgj- ast með kostnaðarliðunum." — Mikil samkeppni, t.d. við Ríkis- skip? „Já, Ríkisskip siglir vikulega aust- ur. Þeir tilkynntu 14 milljón króna rekstrarafgang á fyrri hluta ársins. — En þeir gleymdu að segja frá 90 milljón króna styrknum sem þeir fengu og trúlega fara þeir að venju fram yfir styrkinn. Það er erfitt að keppa við svona lagað. Leggja Ríkis- skip niður? Ekki endilega en þeir ættu að hugsa um hagkvæmnina; fækka frekar ferðum og leggja meiri áherslu á þungavöruna, fóðurbæti, sement og þess háttar." Kl. 9 599 km. Bíllinn stöðv- 55 aður í rigningarsudda í Vík í Mýrdal og litið inn í veitingaskálann. Samloka og kaffi pantað. „Nei, ég er lítill kaffimaður. Hef tekið eftir því þegar við höfum verið að bijótast hérna yfir sandinn á vetr- um að sumir bílstjórarnir eru orðnir 50% verðlækkun út september, takmarkað magn 'efnsTr-^sa® *r- e.9so FACIT HÚSGÖGN Á HÁLFVIRÐI Scensk gæðavara " M a á ótrúlegu verði. \ ** *'■ 7.s5s“ -tdRQi- Smiðjuvegi 5 - 200 Kópavogi Int.tel +354-1-43211 - Telefax +354-1-42100 L

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.