Morgunblaðið - 17.09.1989, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 17.09.1989, Qupperneq 26
Guðrún J. Guð- mundsdóttir MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1989 i§~ð Minning: Fædd6. september 1932 Dáin 17. apríl 1989 Það haustar og blómin eru tekin að fölna. Það er búið að kalla eina dýrmæta rós burt frá okkur. Hugur- inn reikar til baka, til birtunnar og hlýjunnar, sem ávallt var að finna hjá Gunnu frænku. Minningarnar streyma fram. Ég man þegar ég fimm ára gömul sat í eldhúsinu hjá henni í Eyjum, sötrandi kaffi með mjólk og miklum sykri. Strax á þessum árum töluðu Gunna og Olli við mig sem jafningja og leyfðu mér að taka þátt í því sem þau höfðu fyrir stafni hveiju sinni. Þau fengu mér hlutverk. Ég, litla mann- eskjan, tók hlutverk mitt alvarlega, hvort sem var að hræra í pottunum, skreyta borðið með servíettum eða skjótast í sendiferðir. Gunna og Olli voru sannir vinir mínir. Tilhlökkunin og spenningurinn sem fylgdi því að fara til Eyja og halda þjóðhátíð með þeim var ólýs- anlegur. Alltaf þegar við landkrabb- arnir, ég og Þórhildur systir, kom- um þá var allur undirbúningur í höfn. Aðeins eftir að fara í nýju sjoarifötin og laga hárgreiðsluna. Eg gleymi aldrei systrunum Gunnu, mömmu, Baddý og Sellu túberandi hver aðra, spreyjandi hárlakkinu um allt á fallega speglabaðinu hennar Gunnu. Að sjálfsögðu gleymdist ég ekki í öllu tilstandinu. Það voru settar í mig rúllur og meðan hárið þornaði í hárþurrkunni lakkaði Gunna á mér neglurnar. Við tók uppljómaða ævintýralandið; Herjólfsdalur. Spennan náði há- marki þegar ég fór á barnaballið og frændi minn, hann Guðmundur Jóhann, spilaði og söng í unglinga- hljómsveitinni. Mikið var ég stolt af honum. Gunna og Olli eignuðust fimm börn. Guðmundur Jóhann var orð- inn tólf ára þegar hann eignaðist fjórar systur á sex árum. Eg man eftir prinsessuvöggunni sem þær voru lagðar í, fóðruð bleiku satíni. Gunna nostraði við dætur sínar. Sífellt saumandi á þær eins kjóla, krullaði á þeim hárið og setti viðeig- andi slaufur í. Allt virtist þetta koma af sjálfu sér. Sjaldan sá mað- ur þreytumerki á henni. Börnin og Olli voru hennar líf og yndi. Þau hjónin voru óvenju samhent í heim- ilishaldinu. Unnu allt af einstakri kostgæfni. Ef mamma var ekki heima leitaði ég ávallt til Gunnu þegar ég þurfti á aðstoð eða ráð- leggingum að halda. Einkennilegt, en ég tengi Gunnu svo við jólin. Hún sló alla út í jóia- undirbúningnum. Alltaf var hún til- búin með aðventukransinn í tíma. Svo kveiktu þau Ollí hátíðlega á fyrsta kertinu með stelpunum sínum. Húsið var skreytt hátt og lágt. Allt gegnum hreint. Hún kunni að gera svo fínt. Gunna var fallegt, viðkvæmt blóm. Hún var mikil tilfinninga- manneskja, hjálpfús og tilbúin að gera allt fyrir vini sína og vanda- menn. Hún fæddist að vori og dó að hausti. Elsku Olli og fjölskylda. Orð megna lítils á svona stundu. Missirinn er svo sár. En veganestið sem hún hefur gefið okkur er ómet- anlegt. Brosið er sagt vera fegursta blóm lífsins. Brosinu -hennar Gunnu gleymi ég aldrei. Kristbjörg Hrund „Tilvera okkar er undarlegt ferðalag", kvað Tómas Guðmunds- son. Já, undarlegt ferðalag er þessi tilvera okkar. Elskuleg mágkona mín, Guðrún J. Guðmundsdóttir, og svili, Olgeir Jóhannsson, komu í heimsókn til okkar hjónanna að kvöldi fimmtudagsins 31. ágúst sl. Þau voru að koma til þess að kveðja okkur og ræða um verðandi sum- arfrí. Þau flugu til Kaupmanna- hafnar á laugardagsmorgninum og á sunnudeginum skyldi flogið til Aþenu. Eftirvæntingin, sem bjó í bijóstum vina minna þennan laug- ardag í Kaupmannahöfn, snerist í nístandi angist, er líða tók á nótt. Guðrún veiktist skyndilega, og þrátt fyrir snör viðbrögð lækna og hjúkr- unarliðs tókst ekki að bjarga lífi hennar. Hún andaðist að morgni 6. september aðeins 57 ára gömul. Banameinið var heiiablóðfall. Ekki er undarlegt, þótt ljóðlínur Tómasar komi upp í huga minn. Langþráð sumarfrí fimm barna for- eldra varð „Ferðin sem aldrei var farin“. Undarlegur er vilji örlag- anna. Sesselja, yngsta systir henn- ar, fórst í bílslysi 9. janúar 1987 á leið í frí erlendis. Guðrún Jónína Guðmundsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 17. apríl 1932, elst sjö barna hjónanna Sigr- únar Þórhildar Guðnadóttur og Guðmundar Hróbjartssonar skó- smiðs frá Landlyst í Vestmannaeyj- um. Gunna, en svo var hún ávallt kölluð af vinum og ættingjum, ólst upp í glöðum systkinahópi umvafin elsku góðra foreldra. Snemma komu einstakir húsmóður- og móð- ureiginleikar hennar fram, sem birt- ust í umhyggju og ábyrgð fyrir yngri systkinum sínum og hjálpsemi við foreldrana. Þegar Gunna var aðeins sex ára gömul veiktist Guð- mundur faðir hennar af lömunar- veiki. Lömunarveikin olli fötlun, sem reyndi á samtakamátt fjöl- skyldunnar og var samstaða systk- inanna annáluð. Hún Gunna mín varð kjarninn í því að gera Land- lystarfjölskylduna að samhentri fjölskyldu, og þess hefi ég notið í ríkum mæli. Árin liðu og systkinin flugu hvert af öðru úr hreiðrinu og stofnuðu heimili með mökum sínum. Fyrr en varði var hópurinn orðinn að stór- fjölskyldu, og fyrri samstaða systk- inanna varð aðalsmerki hópsins. Stórfjölskyldan hélt ekki jóla- og afmælisboð af skyldurækni heldur af innri þörf fyrir að koma saman og gleðjast. Þessi fjölskyldusam- kvæmi voru glaðvær og oft á tíðum hávaðasöm, en yngri kynslóðin lék í kringum hina eldri með ærslum sínum og barnagleði. Það skapaðist snemma sú hefð að ganga saman í kringum jólatréð. Jólasöngvarnir voru æfðir og sungnir ijórraddað saman undir öruggri stjórn yngsta bróðurins, Guðna organista í Bú- staðakirkju. Fyrir um það bil 10 árum fór ég að taka þessar fjölskyldusamkomur upp á myndsegulband. í dag er þetta ómetanlegur fjársjóður, og einkum nýtur yngsta kynslóðin þess að geta séð sjálfa sig vaxa úr barn- æsku til þroska unglingsáranna á einni kvöldstund. Við Gunna og Olli áttum margt sameiginlegt. Við svilarnir kynnt- umst systrunum, eiginkonunum okkar, um svipað leyti. Þær deildu saman herbergi í 18 ár eða þar til við skildum þær að. 17. júní 1954 opinberuðum við fjórmenningarnir trúlofun okkar. Húsmóðirin í Land- lyst bakaði stóra „Hnallþóru“, við kölluðum tertuna reyndar Draum- tertu. Þetta var bjartur og fagur dagur og síðan höfum við sameigin- lega minnst þessa dags. Olli svili er ættaður frá Fáskrúðs- firði, sonur sæmdarhjónanna Jósef- ínu Þórðardóttur og Jóhanns Jónas- sonar. Ekki er ofsagt, að Gunna var lánsöm að kynnast slíkum öðl- ingsdreng sem hann er. Þau gengu í hjónaband 20. desember 1955 á silfurbrúðkaupsdegi Landlystar- hjónanna. Þau byggðu sér myndar- legt einbýlishús í Eyjum á Heiða- vegi 60 og bjuggu í því þar til þau fluttu til Reykjavíkur í ágúst 1972. Síðan hefur heimili þeirra verið á Háaleitisbraut 51 hér 'í borg. Börnin urðu fimm, Guðmundur Jóhann fæddur 14. janúar 1956, starfandi læknir á Höfn í Horna- firði, kvæntur Eddu Björk Arnar- dóttur kennara og eiga þau þrjú böm, Sigríður Bína fædd 26. janúar 1968 nemi í líffræði við HI, Þór- hildur Ýr fædd 14. febrúar 1969 nemi í MH, Gyða Björg fædd 20. júní 1970, nemi í MH, og Olga Hrönn faádd 27. febrúar 1973 nemi í MS. Dæturnar eru allar í foreldra- húsum. Ólýsanlegur harmur heltekur alla þá, sem komust í nána snertingu við hana Gunnu. En sárastur er harmurinn fyrir eiginmanninn, son- inn og dæturnar ungu, sem máttu ekki af móður sinni sjá. Hún Gunna var falleg og glæsileg kona. Hún var ekki aðeins falleg, heldur gjaf- mild og góð. Hún var einstaklega gestrisin og framúrskarandi hús- móðir. Heimilið var henni allt og bar snyrtimennsku hennar fagurt vitni. Vissulega stóð hún Gunna ekki ein með hann Olla sér við hlið. Hjálpsamari eiginmann þekki ég ekki og sem faðir og uppalandi er hann einstakur. Þessir góðu eigin- leikar hans gera það að verkum, að hann er nú fær um að takast á við föður- og móðurhlutverkið og skila því með sóma með Guðs hjálp. Með Gunnu er fallin frá mæt kona. Skarð er fyrir skildi og fjölskyldu- hátíðirnar verða ekki þær sömu án hennar. En minningin um hana og allt það, sem hún var fjölskyldu sinni og vinum, mun lifa í hjörtum okkar og lýsa okkur um ókomin ár. Guð blessi minningu hennar Gunnu. Sigtryggur Helgason Það haustar að í lífi hvers manns, misfljótt að vísu. Að minnsta kosti finnst mér það þegar ég nú stend frammi fyrir þeirri óhagganlegu staðreynd að mamma skuli vera horfin svo skyndilega, svo ótíma- bært. Hún lagði af stað í ferðalag ásamt föður mínum nú í byijun septembermánaðar. Ferðinni var ekki heitið til ákveðins áfangastað- ar að þessu sinni. Allt átti þetta að ráðast enda kom á daginn að enginn ræður sínum næturstað. Mamma veiktist snögglega og það illa að ekkert í mannlegu valdi gat lagst nógu sterklega á sveif með henni í baráttunni fyrir lífinu. Þrátt fyrir alla þá tækni sem við höfum yfir að ráða í dag lést hún eftir fjög- urra sólarhringa legu á Hvidovre- sjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn. Mamma, Guðrún Jónína Guð- mundsdóttir, fæddist í Vestmanna- eyjum 17. apríl 1932 og var elst sjö systkina. Hún kynntist því fljótt að lífið er enginn dans á rósum. Faðir hennar veiktist af lömunar- veikinni þegar hún er 6 ára gömul. Þá voru systurnar orðnar þijár og fjögur börn áttu síðar eftir að bæt- ast í hópinn. Það var því fljótt sem mamma þurfti að axla þungar byrð- ar, en aldrei heyrði maður hana tala um æsku- og uppvaxtarár sín í mæðutón heldur með ánægju. Það eina sem hún taldi sig hafa farið á mis við voru tækifæri til þess að menntast. Því hafði hún það sem sitt aðalmarkmið að koma okkur systkinunum til mennta. Stöndum við í mikilli þakkarskuld við hana, ásamt föður okkar fyrir það. Mamma var mikill vinnuþjarkur og virtist alltaf geta á sig bætt ef svo bar undir. Hún vann í nokkur ár sem dagmamma eftir að við flutt- um til Reykjavíkur en síðan hjá Hagkaup hf. í sjö ár. Var alltaf gaman að koma til hennar á ávaxta- torgið í Kringlunni sem hún lagði t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, fósturfaðir og afi, JÓN SÆDAL SIGURÐSSON, Rauðarárstíg 32, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 19. septem- ber kl. 13.30. Áslaug Jónsdóttir, Vignir Jónsson, Sigrún Sveinsdóttir, Hreiðar Jónsson, Helga M. Sigurjónsdóttir, Vigdis Jónsdóttir, Hafsteinn Jónsson, Gunnhildur Arnardóttir, Kristján Jónsson, Birgir Guðmundsson og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐNI BJARNASON fyrrverandi verkstjóri, Öldugötu 33, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 18. september kl. 13.30. Jónina Davfðsdóttir, Sigrún Guðnadóttir, Tyrfingur Sigurðsson. Guðni Tyrfingsson, AuðurÓlsen, Sigurður J. Tyrfingsson, Hrönn Hreiðarsdóttir, Þórunn J. Tyrfingsdóttir og barnabarnabörn. t Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma okkar, FRIÐBJÖRG HANNESDÓTTIR, Álfheimum 66, lést í Landspítalanum 8. sept. sl. Útför hennar fer fram miðvikudaginn 20. september kl. 15.00 frá Fossvogskirkju. Blóm og kransar afþakkaðir en þeir sem vildu minnast hennar láti Reykjalund njóta þess. Hörður Sigurjónsson, Hulda Harðardóttir, Meyvant Meyvantsson, Erla Harðardóttir, Þórður Walters, Hörður Þórðarson, Katrfn Guðmundsdóttir, Arnar Þórðarson, Svava Björg Þórðardóttir, Anna Rós Þórðardóttir, Sigurður Frímann Meyvantson t Útför systur okkar, HELGU JÓNSDÓTTUR, Týsgötu4B, verðurgerðfrá Fossvogskirkju þriðjudaginn 19. septemberkl. 15.00. Guðrún Jónsdóttir, Guðfinna Jónsdóttir, Kristfn Jónsdóttir, Steinunn Jónsdóttir, Jóel Jónsson, Karl Frfmannsson, Ari Björn Steindórsson, Kristfn Nóadóttir. t Faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, mágur, afi og langafi, BJÖRN KJARTANSSON, frá Seli, Grímsnesi, til heimilis að Efstasundi 31, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn 19. september kl. 15.00 Sigurður Björn Björnsson, Sigrfður Björnsdóttir, Guðrún Guðjónsdóttir, Ólafur Kjartansson, Sigrfður Elsa Óskarsdóttir, Sigurþór Þorleifsson, Ellinor Kjartansson, Sveinn Kjartansson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns mins, föður, tengdaföður, sonar og bróðurs, HJÖRTS VIÐARS HJARTARSONAR, Hrefna Víglundsdóttir, Hjörtur Kr. Hjartarson, Svava Hjartardóttir, Jóhanna Hjartardóttir, Hjörtur Kr. Hjartarson, Marfa Hjartardóttir, Arndís Hjartardóttir, Ósk Hjartardóttir, Kristfn Hjartardóttir, og aðrið aðstandendur. Hrafnhildur Hilmarsdóttir, Þórarinn Hannesson, Jóhanna Arnórsdóttir, Jón Marteinsson, Francisco Fernander Bravo, Viggó Jóhannsson, Ingvar Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.