Morgunblaðið - 17.09.1989, Side 36
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1989
tt£i
Áttu viku eftir af sumarfríinu? Finnst þér nóg komið afíslensku sumri?
Gœtirðu þegið örlítinn en ótrúlega notalegan sumarauka í góðu veðri,
við bestu aðstœður - og það sem meira er, á góðu verði?
Golf, innkaup, sólskin og skemmtun:
Vikuferðir frá 30. september.
Frábœr 9 holu golfvöllur, 10 mín. akstur frá Sa Coma.
Veður á Sa Coma fimmtud. 14. og föstud. 15. sept.: heiðskírt, 33°C.
Þú getur valið um 4 brottfarir í beinu leiguflugi.
Verð Kr. 28.300,- Verð Kr. 31.800,-
Miðað er við 4 í íbúð.
Miðað er við 2 í íbúð.
ferð eldri borgara til Majorku 30/9-28/10
Rebekka Kristjánsdóttir fararstjóri sér um að eldri borgurum líði vel á Úrvalsstaðnum
Sa Coma þar sem allar aðstœður eru eins og best verður á kosið. Nokkur sœti laus.
Verð frá Kr. 56.800,-
Miðað er við 2 í stúdíóíbúð.
FERDASKRIFSTOFAN URV
- fólk sem kann sitt fag!
Pósthússtræti 13 - Sími 26900.
yffmr
Jfy
3>
■
..
SA COMA * MAJORKA * SA COMA
HHBHuBfflSHSS
'f A * C A f* i
\ v rt&k t I I IVft &
tx
O
VIKUFEBDIR
ÍOKTÓBíR
m
BAKÞANKAR
Bragö er
að þá ...
Salvador Dali sagði að eftir-
minnilegasta tímabil ævi
sinnar hafi verið í móðurkviði.
Ekki var ég alveg jafn bráðger.
Ég á samt sæg af minningum frá
^— þeim tima er ég
var i vagni og ég
man að það sem
ergði mig einna
mest var hvað
málið hamlaði
mér. Mig dauð-
langaði oft að
ræða við fólk um
fagrar listir, en
eina svarið sem
ég fékk var: kúdsí, kúdsí, kú.
Á þessu skeiði hafði ég einn
grófan löst, mér fannst önnur
smábörn svo andsk . . . vitlaus.
Ég man sérstaklega einn fagran
vordag er systir mín trillaði mér
i vagni niður Laugaveginn. Þar
hittir hún stöllu sína og þær
ákveða að bregða sér saman inn
í búð að skoða eitthvert tjull og
dudd. Þær finna upp á því bráð-
snjalla bragði að láta barnavagn-
ana vita hvorn á móti öðrum svo
við gotungarnir höfum eitthvað
okkur til dægrastyttingar á með-
an þær eru inni í búðinni. Smá-
barnið á móti mér var algjör auli,
það hélt varla snuði svo ekki tjáði
að vera með neitt kóketteri fram-
an í það. Þetta barn gerði lítið
annað en slefa og flengja i ákafa
yfirdekkið á vagninum sínum.
Ég hafði harðneitað að brúka
snuð eins og múgurinn, hafði
fundið upp hentuga aðferð til að
sjúga putta og beitti henni þarna,
yfir mig féll notaleg værð, ég
hrökk upp við það að yfirdekks-
flengjarinn var byrjaður að
grenja, stúlkurnar komu út með
böggla, sennilega hafa þær verið
að kaupa á sig nælonsokka til
að taka sig út á balli í Silfurtún-
inu eða Vetrargarðinum.
Áfram trilluðum við niður
Laugaveginn. Þá mætir systir
mín annarri ungri konu. Sú var
með bróður sinn meðferðis í
vagni. Ógnar bolta. Þær mösuðu
og ákváðu síðan að bregða sér
inn í aðra búð til að versla með
eitthvað spennandi. Vögnunum
var stillt upp á sama máta. Ég
reyndi að vingast við þann hnöt-
tótta á móti en hann virti mig
ekki viðlits. Ég reyndi að kenna
honum að sjúga putta með minni
aðferð en hann gaf ekki fimmaur
fyrir það. Hann leit með myrkum
augum undan ullarhúfunni á
fólkið á gangstéttinni, áþekkur
rússneskum hershöfðingja á
leiðinni á samningafund. Stúlk-
urnar koma úr búðinni með sitt
ylhýra mas, þær ákveða að verða
samferða, allt í einu er stoppað
við nammibúð, þar sem önnur
þarf að kaupa sér pakka af
Chesterfield.
Ég ærist þegar ég sé nammi-
hraukana í glugganum. Ég reyni
að tala en aðeins kokhljóð og
rýtur komast út yfir varirnar. Ég
finn að málið leikur undir tung-
unni sem fljót, ég þrái að bresti
á jökulhlaup en ekkert bofs heyr-
ist, þær gera sig reiðubúnar að
halda af stað með vagnana. Þá
segir félagi minn fasmikill við
systur sína: Keyptu handa mér
brjósik, eða ég segi um þig og
kærastann.
Eitthvað hlýtur blessuð stúlk-
an að hafa haft á samviskunni,
hún stokkroðnaði, dró budduna
sína upp úr hliðartöskunni,
skaust í sjoppuna og eftir augna-
blik höfðum við félagarnir úr
töluverðu að moða.
Þær kveðjast á mótum Banka-
og Þingholtsstrætis. Vinur minn
hverfur mér skælbrosanai í
vagninum, þykkur súkkulaðilög-
urinn flýtur upp í honum. Eg
sporðrenni síðasta lakkrísbútn-
um. Við Gamla Bió varð mér loks
málið laust. Ég leit í reiði upp á
systur mína og saggði: Ég segja
um þig.
En sú hlýtur heldur betur að
hafa haft snjóhvíta samvisku.
Það eina sem hún aðhafðist var
að setja nögl undir hökuna á mér
og segja: Kúdsí litli minn. Kúdsí
kú.
eftir Ólof
Gunnarsson