Morgunblaðið - 01.10.1989, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ, SUNKUDAGUK 1. OKTÓBER 1989
ERLEIMT
INNLEIMT
260 raf-
iðnaðarmenn
í verkfalli
Milli 260 og 270 rafiðnaðar-
menn, sem starfa hjá ríkinu, fóru
í verkfall aðfaranótt fimmtudags.
Verkfallið raskar starfsemi
Ríkisútvarpsins mjög, en hefur
minni áhrif á aðrar opinberar
stofnanir. Ríkislögmaður teljur
verkfall rafiðnaðarmanna ólög-
legt, en þeir hafa hafnað því að
skjóta deilunni um lögmæti til
félagsdóms.
Mitterrand í heimsókn
Francois Mit-
terrand, forseti
Frakklands,
kemur í opinbera
heimsókn til ís-
lands 17. októ-
ber til þess að
ræða samskipti
og framtíð Evr-
ópubandalagsins
og EFTA. Mitterrand boðaði
komu sína óvænt og með skömm-
um fyrirvara.
Fleiri leita á náðir
Félagsmálastofiiunar
Skjólstæðingum Félagsmála-
stofnunar Reykjavíkurborgar hef-
ur fjölgað um 27% á árinu. Út-
gjöld stofnunarinnar í krónum
hafa aukizt um 64%.
Ráðherra endurgreiðir
áfengi
Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra hefur endur-
greitt Áfengis- og tóbaksverzlun
ríkisins 74.300
krónur fyrir
áfengi, sem hann
keypti á kostn-
aðarverði til þess
að hálda Ingólfi
Margeirssyni,
ritstjóra Alþýðu-
blaðsins, afmæli-
sveizlu. Ráð-
herra sagðist telja að reglur hefðu
ekki verið brotnar, en hann teldi
að honum hefðu orðið á mistök.
Þau hefðu verið dómgreindars-
kortur sem hann bæðist velvirð-
ingar á.
Sanitas kærir Vífilfell
Sanitas hf., framleiðandi
Pepsi-cola og fleiri gosdrykkja,
hefur kært verksmiðjuna Vífilfell,
sem meðal annars framleiðir
Coca-Cola, fyrir að bjóða kaup-
mönnum vörur frá Vífilfelli með
sérstökum afslætti, gegn því að
vörur Sanitas séu ekki hafðar til
sölu í verzlunum þeirra. Verð-
lagsráð hefur málið til athugunar.
Fimm sjónvarpsrásir?
Stöð tvö hefur nú sótt um aðra
sjónvarpsrás. Sýn hf. og ísfilm
hafa einnig fengið íeyfi til sjón-
varpsrekstrar. Því gæti orðið úr
fimm sjónvarpsrásum að velja
sums staðar á landinu ef nýju
rásimar komast á legg.
ERLENT
Stefiiubreyting
Sovétmanna °
í afvopnunar-
málum
Edúard She-
vardnadze, ut-
anríkisráðherra
Sovétríkjanna
lýsti því yfir á
fundi með Ja-
mes Baker,ut-
anríkisráðherra
Bandaríkjanna, í
Wyoming-ríki í síðustu viku að
Sovétríkin setji ekki lengur það
skilyrði fyrir samningi um fækkun
langdrægra eldflauga að bann
verði lagt við geimvarnarann-
sóknum. Þá lagði Shevardnadze
til á Allsheijarþingi SÞ á þriðju-
dag að efnavopnum í vopnabúrum
stórveldanna verði algerlega út-
rýmt. Áður hafði George Bush
Bandaríkjaforseti lagt fram tíu
ára áætlun um eyðingu allra efna-
vopna stórveldanna. Bush minnt-
ist einnig í ávarpi sínu á fyrir-
hugaðan fund sinn og Míkhaíls
Gorbatsjovs Sovétforseta í Was-
hington á næsta ári.
Stjórnarskrá Slóveníu
breytt
Þing Slóveníu samþykkti breyt-
ingar á stjómarskrá lýðveldisins
sem fela í sér að leiðtogar þess
taka sér rétt til að segja það úr
ríkjasambandi Júgóslavíu. Mið-
stjóm júgóslavneska kommúni-
staflokksins hélt næturlangan
neyðarfund og samþykkti áskorun
til þingmanna Slóveníu um að
fýrirhuguð stjórnarskrárbreyting
gæti leitt til þess að ríkjasam-
bandið liðaðist í sundur.
Aðstoð við Ungverja og
Pólveija
Framkvæmdastjórn Evrópu-
bandalagsins hefur kynnt áætlun
þar sem gert er ráð fyrir því að
bandalagið vetji um 18,6 milljörð-
um ísl. kr. til efnahagsaðstoðar
við Ungveija og Pólveija á næsta
ári. Gert er ráð fyrir að ríki utan
EB geri slíkt hið sama þannig að
aðstoðin nemi um 40 milljörðum
króna.
Viðræður um hvalveiðar
Norskir ráðamenn hafa rætt við
starfsbræður sína í Bandaríkjun-
um um að stjómvöld vestra breyti
afstöðu sinni til hvalveiða í at-
vinnuskyni. Thorvald Stolten-
berg tók málið upp í viðræðum
við viðskiptaráðherra Banda-
ríkjanna og kom þar fram að
Bandaríkjastjóm væri reiðubúin
til að taka málið til athugunar á
ný en Norðmönnum hefur verið
hótað refsiaðgerðum sökum
þessa. Gro Harlem Brundtland
forsætisráðherra ræddi málið
einnig við Bush Bandaríkjafor-
seta og norsk stjórnvöld hafa i
undirbúningi mikla upplýsinga-
herferð í þeim aðildarríkjum Al-
þjóðahvalveiðiráðsins sem hafa
verið andvíg hvalveiðum.
Eldsvoði í danskri feiju
Tveir menn létust og tíu slösuðust
þegar eldur kom upp í dönsku
Norðursjávarfeijunni Tor Scand-
inavia. Dönsk lögregluyfirvöld
telja fullvíst að um íkveikju hafi
verið að ræða.
Marcos látinn
Ferdinand
Marcos, fyrrum
forseti Filipps-
eyja, lést sl.
föstudag á Hon-
olulu á Hawaii-
eyjum þar sem
hann hafði dva-
list í útlegð í
hálft íjórða ár. Corazon Aquino,
forseti Filippseyja, hefur bannað
að greftrun Marcosar fari fram á
Filippseyjum.
Papandreou ákærður
Gríska þingið hefur samþykkt að
svipta Andreas Papandreou,
fyrrum forsætisráðherra Grikk-
lands, þinghelgi og ákæra hann
fyrir aðild að bankahneyksli og
200 miljón dollara fjárdrætti.
Verði hann fundinn sekur á hann
yfir höfði sér lífstíðardóm. í
síðustu viku ákvað þingið að
ákærá Papandreou fyrir ólöglegar
símhleranir.
Svört skýrsla frá breska samveldinu:
Meðalhiti hækkar o g sjór-
inn færir láglendið á kaf
London. Reuter.
MEÐALHITI um heim allan og
yfirborð sjávar munu hækka mikið
á næstu áratugum með alvarleg-
um afleiðingum fyrir allt mann-
kyn. Láglendi mun víða færast á
kaf og aðrar náttúrhamfarir eru
óhjákvæmilegar. Kemur þetta
liram í nýrri skýrslu frá breska
samveldinu.
A
Iskýrslunni, sem verður lögð fram
á fundi samveldislandanna 49 í
Malasíu í næsta mánuði, segir, að
manninum einum sé um að kenna
þessar loftslagsbreytingar, sem hafa
muni gífurleg áhrif á framtíð hans
og alls lífríkisins. Er sagt, að vísinda-
menn séu almennt sammála um, að
meðalhitinn, sem hafi hækkað um
hálfa gráðu á celsíus á þessari öld,
rtiuni hækka um 1-2 gráður á næstu
40 árum.
„Um 2030 verður hlýrra á jörðinni
en verið hefur siðustu 120.000 ár,“
segir í skýrslunni, „og það veldur
aftur útþenslu sjávar og bráðnun
heimskautaíss og jökla." Á síðustu
100 árum hefur sjávarborð hækkað
um 10-15 sm en því er spáð, að fram
til 2030 hækki það enn um 17-26
sm. Þá yrðu sum lönd orðin óbyggi-
leg að mestu, til dæmis samveldisrík-
in Guyana, Bangladesh, Maldíveyjar,
Kiribati, Tuvalu og fleiri. Aðrar af-
leiðingar yrðu, að úrkoma ykist á
úrkomusömum svæðum, þurrka-
svæðin yrðu þurrari og hitabeltis-
stormar yrðu enn ofsafengnari.
Öllu þessu valda gróðurhúsaáhrif-
in svokölluðu, samsöfnun ýmissa
gastegunda í andrúmsloftinu. Segir
í skýrslunni, að þótt mengunin hætti
að aukast myndi samsafnaður hiti í
sjónum valda áframhaldandi hækkun
meðalhita á jörðinni í einhveija ára-
tugi.
Reuter
Mótmæli íBúdapest
Um 2.000 manns komu saman í höfuðborg Ungverjalands, Búdapest,
á fostudagskvöldið til að krefjast þess að „sjálfboðaliðasveitir verka-
manna" yrðu afvopnaðar og Ieystar upp. Sveitir þessar heyra beint
undir Kommúnistafiokkinn og voru stofnaðar árið 1956 er uppreisn
ungverskrar alþýðu hafði verið brotin á bak afltur með hervaldi.
40 ár firá stofiiun Alþýðulýðveldisins Kína:
Hugmyndafiræði Þrándur
í götu aukins hagvaxtar
STJÓRNVÖLD í Peking hafa I mörg ár áformað að minnast þess
með eftirminnilegum hætti að í dag eru 40 ár liðin frá því að Maó
Tsetung lýsti því yfir á Torgi hins himneska friðar að kommúnistar
hefðu tekið völdin í Kína. En þess í stað hafa stjórnvöld ákveðið
að beita sér fyrir mikilli áróðursherferð til að réttlæta 40 ára valda-
einokun sína. Talið er að hátt í 100.000 hermenn muni gæta þess
að þeir sem ekki hafa sannfærst um ágæti þjóðskipulagsins láti að
sér kveða. Hátiðarhöldin áttu að vera til marks um breytt viðhorf
kínverskra ráðamanna sem þar til fyrir skemmstu virtust hafa áttað
sig á því að einungis raunsæi í stjórnarháttum gæti ýtt undir heil-
brigðara þjóðfélag en ekki hugmyndafræði.
Atburðirnir í júní síðastliðnum
þegar hemum var beitt gegn
lýðræðissinnum sýna að nú, 40
árum eftir
stofnun AI-
þýðulýðveldis-
ins, er flokks-
leiðtogunum
meira umhugað
að tryggja eigin
völd en færa landið til nútímalegri
hátta og konia á grundvallarlýð-
réttindum.
Eitt er það vandamál sem
kínverski kommúnistaflokkurinn
hefur staðið andspænis allt frá
stofnun Alþýðulýðveldisins: Hvem-
ig verður stuðlað að hagvexti í
landinu án þess að valdaeinokun
kommúnistaflokksins sé stofnað í
hættu?
Maó Tsetung
formaður hratt
af stað vakn-
ingu meðal
þjóðarinnar
seint á sjötta
áratugnum
undir slagorðinu „Stóra stökkið
fram á við“. Markmiðið var að leysa
úr læðingi gífurlegt afl meðal vinn-
andi stétta undir forystu valinna
manna úr kommúnistaflokknum.
Stökkið stóra leiddi til efnahagsleg-
ar kollsteypu. 70 miljónir bænda
unnu hörðum höndum við stál-
bræðsluofna við nánast enga verð-
mætasköpun en enginn var til að
líta eftir ökrunum. Síðan tók við
stutt tímabil raunsærri stjómar-
hátta sem lauk með Menningar-
byltingunni 1966.
Eftir fráfall Maós 1976 beitti
Deng Xiaoping sér fyrir víðtækustu
efnahagsumbótum í sögu Alþýðu-
lýðveldisins. Hann hvatti til einka-
framtaks, laðaði að erlent fjármagn
og afnam viðskiptahömlur. Um
tima trúðu menn því að hægum
en stöðugum hagvexti í Kína á
níunda áratugnum myndu fylgja
stjórnmálalegar umbætur en at-
burðimir í Peking 4. júní síðastlið-
inn bundu á svipstundu enda á
þann draum. Lífskjör miljóna
Kínveija bötnuðu stórlega en efna-
hagsumbótunum fylgdi einnig mik-
il verðbólga, allt upp í 30% á síðasta
ári í stærstu borgum landsins. Það
kynti undir almennri óánægju að
verðhækkanir urðu tíðar, launamis-
rétti jókst og spilling dafnaði innan
flokksins og á meðal embættis-
manna. Fráfall Hus Yaobangs, hins
brottrekna leiðtoga kommúnista-
flokksins, 15. apríl sl. varð kveikjan
að Iýðræðisvakningunni sem síðar
fann sér farveg í friðsamlegum
mótmælum mörg hundmð þúsunda
manna á Torgi hins himneska frið-
ar gegn aldurhniginni forystusveit
kommúnistaflokksins.
Nýverið gripu stjórnvöld til þess
að velja 2.793 fyrirmyndarverka-
menn og heiðra þá í ríkisfjölmiðlun-
um. í ávarpi sínu vitnaði Li Peng
forsætisráðherra Kína til orða Ma-
ós formanns er hann sagði að
verkamennirnir væru máttarstólp-
ar Alþýðulýðveldisins og hvatti
hann landsmenn til að taka þá sér
til fyrirmyndar. Þetta er í fyrsta
sinn í 30 ár sem vinnuhetjudýrkun
er tekin upp af stjórnvöldum.
Sumir óttast að hin óbrúanlega
gjá á milli > væntinga margra
Kínveija og steingerðra hugmynda
leiðtoga kommúnistaflokksins leiði
fyrr eða síðar til borgarastyijaldar
í landinu. Kínverskum kommúnist-
um hefur ekki skilist að efnahags-
legar og þjóðfélagslegar umbætur
standa og falla með stjórnarfars-
breytingum.
Frá Torgi hins himneska friðar.
BAKSVIP
Eftir Guðjón Guðmundsson