Morgunblaðið - 01.10.1989, Page 6
6 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUN'fiI,AÐlÐ SÚnWÚDAGUR 1. ÓkTÓBER 1089
'í s * # * *i fvfi fty fv • (výS|
Haukur Halldórsson, formaður Stétlarsambands bænda.
stórt upp í sig varðandi landbúnað-
armálin á þeim tíma, og því hafi
hann ekki öðlast það fylgi sem
hann sóttist eftir á vettvangi
stjórnmálanna.
Haukur var í mörg ár formaður
Sambands íslenskra loðdýrarækt-
enda, og vann að sögn ötullega að
uppbyggingu félagasamtakanna í
loðdýraræktinni. Hann þykir hafa
fylgst vel með allri uppbyggingu
búgreinarinnar, og að sögn Jóns
Ragnars Björnssonar, fram-
kvæmdastjóra SÍL, þá vann hann
vel að'þeim hagsmunamálum sem
berjast þurfti fyrir þegar búgreinin
var að öðlast viðurkenningu, meðal
annars sem útflutningsatvinnu-
grein. „Hann hafði gott auga fyrir
nauðsyn þess að flytja inn þá þekk-
ingu sem ekki var til staðar hér á
landi í loðdýraræktinni, og einnig
Vinnuþj arkur
með góða yfirsýn
UNDANFARIN misseri hefur gætt vaxandi gagnrýni á ríkjandi
stefiiu í íslenskum landbúnaði, og víða hafa komið fram kröfur um
verulega stefnubreytingu og uppstokkun í þessum málaflokki. Hátt
búvöruverð, offramleiðsla og óhagkvæmni eru meðal þeirra vanda-
mála sem landbúnaðurinn á við að etja, og munu, að margra áliti,
óhjákvæmilega leiða til verulegrar fækkunar í bændastéttinni á
næstu árum. Samningaviðræður bænda og stjórnvalda um gerð nýs
búvörusamnings eru þegar hafnar, en núgildandi samningur rennur
út að tveimur árum liðnum, og er Ijóst að á brattann verður að sækja
í þeim viðræðum fyrir bændur. Haukur Halldórsson í Sveinbjarnar-
gerði er formaður Stéttarsambands bænda, og verður hann í eldlín-
unni fyrir hönd bændastéttarinnar í samningaviðræðunum við stjórn-
völd.
Haukur er fæddur og uppalinn
í Sveinbjarnargerði, Sval-
barðsstrandarhreppi, sonur hjón-
anna Halldórs Jóhannessonar og
Axelínu Geirsdóttur. Hann stund-
aði nám við Héraðsskólann á Laug-
um í Reykjadal, Lýðháskólann í
Biskopsarnö,
nærri Gauta-
borg í Svíþjóð,
og búfræðinám
við Bændaskól-
ann á Hvann-
eyri. Hann hef-
ur verið bóndi í Sveinbjarnargerði
síðan 1967, en búið þótti hann
byggja mjög hratt upp á sínum
tíma. Síðari árin hefur hann ein-
göngu verið með kúabú, en áður
bjó hann einnig með sauðfé, hænsni
og loðdýr.
Afskipti af félagsmálum hóf
Haukur ungur, og var hann meðal
annars formaður ungmennafélags-
ins í heimabyggð sinni og átti sæti
í stjórn Ungmennafélags Eyjafjarð-
ar. Þá tók hann einnig virkan þátt
í starfi Ungmennafélags íslands
bæði heima og á erlendum vett-
vangi. Jóhannes Geir Sigurgeirsson
bóndi á Öngulsstöðum hefur starf-
að mikið með Hauki að félagsmál-
um, fyrst innan ungmennafélags-
hreyfingarinnar og síðan á vegum
bændasamtakanna. Hann segir að
ágætt hafi verið að vinna með
Hauki, og hann telji sterkustu hlið
hans vera mikinn dugnað sem hann
hafi sýnt í öllum störfum. „Haukur
heldur ætíð fast við skoðanir sínar
og fylgir þeim eftir af einurð, en
þó aldrei þannig að ekki sé hægt
að ná samkomulagi við hann,“ seg-
ir Jóhannes Geir.
í nokkur ár var Haukur formað-
ur Búnaðarsambands Eyjafjarðar,
og var nokkur ágreiningur um
hann þar í fyrstu vegna skoðana
hans á land-
búnaðarmálum,
og einnig vegna
þess að hann
þótti nokkuð
stór í sniðum í
búskapnum.
Eftir því sem árin liðu urðu menn
þó sáttir við Hauk, og með tíman-
um aflaði hann sér vinsælda og
trausts. Ævarr Hjartarson, ráðu-
nautur hjá Búnaðarsambandi Eyja-
fjarðar, segir að þó Haukur hafi
haft ákveðnar skoðanir á hlutun-
um, þá hafi hann alltaf verið tilbú-
inn að ræða önnur sjónarmið, og
átt auðvelt með að ná fram farsæl-
um lausnum á málum ef til ágrein-
ings kom.
Haukur er sagður hafa haft
áhuga á pólitískum frama þegar
hann var yngri, en hann hefur
starfað mikið innan Framsóknar-
flokksins. Hann hefur verið for-
maður framsóknarfélagsins í
heimabyggð, formaður kjördæmis-
sambands framsóknarfélaganna í
Norðurlandskjördæmi eystra og átt
sæti í miðstjórn Framsóknarflokks-
ins. Samherji hans á þessum árum
segir að skoðanir hans hafi ekki
átt upp á pallborðið hjá mönnum.
Margir hafi litið á hann sem frama-
gosa, og þótt hann taka heldur
fyrir því að koma á skipulegum
samskiptum við systurfélög SIL á
Norðurlöndum," segir Jón Ragnar.
Haukur hefur um árabil verið
fulltrúi SÍL hjá Stéttarsambandi
bænda, og árið 1987 var hann kjör-
inn formaður Stéttarsambandsins
á aðalfundi þess á Eiðum. Hann
er einnig formaður Framleiðsluráðs
landbúnaðarins og á sæti í mörgum
nefndum á vegum bændasamta-
kanna. Árið 1987 var hann kjörinn
formaður NBC, sem eru heildar-
samtök bænda á Norðurlöndum,
og gegndi hann formennskunni í
tvö ár.
Þeir sem starfað hafa með Hauki
Halldórssyni innan bændasamtak-
anna eru á einu máli um að hann
njóti almennra vinsælda meðal
bænda í dag, og hann þykir ötuli,
di’ífandi og þægilegur að vinna
með. Hann er sagður fljótur að
setja sig inn í öll mál og öðlast
heildarsýn yfir þau, og hann kasti
engri hugmynd frá sér án þess að
skoða hana. Þá eru menn samm-
mála um að fáir standi honum á
sporði þegar sætta þurfi ólík sjón-
armið, og þó hann sé ákveðinn í
skoðunum, þá sé hann diplómat.
„Haukur er alveg einstakur samn-
ingamaður, án þess þó að þurfa
að gefa alltof mikið eftir, og hann
á auðvelt með að tala menn á sitt
band án þess að þeim finnist vera
á þeim troðið," segir Jón Ragnar
Björnsson. Hákon SigUrgrímsson,
framkvæmdastjóri Stéttarsam-
bandsins, segir að Haukur sé
vinnuþjarkur og komi miklu í verk.
„ Þá hefur hann mjög góða yfir-
sýn yfir það sem er að gerast í
landbúnaði í öðrum löndum og því
sem er að gerast á alþjóðavett-
vangi í landbúnaðarmálum. Það
hjálpar honum síðan til að öðlast
mjög glögga yfirsýn _ yfir land-
búnaðarmál okkar íslendinga,"
segir Hákon.
Haukur er fæddur 25. janúar
1945. Hann er kvæntur Bjarneyju
Bjamadóttur frá Veigastöðum í
Svalbarðsstrandarhreppi, og eiga
þau þijú börn.
SVIPMYNP
eftirHall Þorsteinsson
Taka ekki til ratsjárstöðva
Afvopnunarviðræður:
RATSJÁRSTÖÐVAR þær sem rcistar hafa verið hér á landi eru liður
í varnarkerfi gegn hugsanlegum árásum flugvéla og falla því ekki
undir neinar þær viðræður sem fram fara milli risaveldanna á vett-
vangi afvopnunarmála, að sögn Alberts Jónssonar, framkvæmdastjóra
Öryggismálanefndar. Sovétmenn hafa krafist þess að fá að skoða rat-
sjárstöðvar sem Bandaríkjamcnn reka í Thule á Grær.iandi og í Fyllings-
dale í Bretlandi og falla undir svonefndar START-viðræður risaveld-
anna um fækkun langdrægra kjarnorkuvopna.
Albert Jónsson sagði að í stöðv-
unum í Thule og Fyllingsdale
væri ratsjárkerfi sem ætlað væri
að vara við yfirvofandi árás með
langdrægum kjarnorkueldflaugum.
Tilgangurinn með rekstri ratsjár-
stöðva hér á landi væri sá að fylgj-
ast með ferðum flugvéla sem kynnu
að reynast óvinveittar til að unnt
væri að búast til varnar. Ratsjár-
kerfum þessum væri á engan hátt
unnt að líkja saman.
Sovétmenn hafa lýst yfir áhyggj-
um sínum vegna stöðvarinnar í
Thule og í Fyllingsdale en verið er
að endurnýja tækjabúnað þeirra.
Árið 1972 gerðu risaveldin með sér
sáttmála sem kveður á um tak-
markanir gagneldflaugakerfa og
telja Sovétmenn hugsanlegt að end-
Finnst mjög gam-
an að leika og túlka
Eygló Góa Magn-
úsdóttir 12 ára
fer bæði með leik-
og sönghlutverk
í Vikivaka
Selfossi.
„Mér finnst þetta allt mjög gam-
an,“ sagði Eygló Góa Magnús-
dóttir 12 ára sem fer ineð hlut-
verk Ásdísar, lítillar stúlku, í
Vikivaka. Eygló Góa er sú eina
sem bæði fer með leik og söng í
sjónvarpsóperunni Vikivaka.
Hún fær góða dóma meðleikar-
anna og stjórnenda og þegar
fylgst er með henni er greinilegt
að henni tekst vel að túlka hlut-
verk sitt.
etta er allt öðruvísi en ég er
vön, það er alltaf verið að taka
upp aftur og aftur en mér finnst
mjög gaman að leika og að fá að
túlka eins og maður gerir í mynd-
inni, sagði Eygló.
Hún sagði persónuna Ásdísi vera
10 ára stúlku sem dó af kulda,
vosbúð og veikindum. Hundurinn
hennar hefði þá orðið svo sorg-
mæddur að hann hefði lagst á leið-
ið og dáið. Eygló sagðist ekkert
vera myrkfælin þó hún færi með
hlutverk sem þetta. Hún sagðist
Morgunblaðið/Heidi Kokki.
Eygló Góa í hlutverki Ásdísar.
hafa farið i gegnum söguna með .
mömmu sinni sem hefði sagt henni
frá persónunni.
Eygló Góa er í kór Öldutúnsskóla
og var valin í sönghlutverkið eftir
próf hjá Atla Heimi Sveinssyni og
Petri Sakari. Hún var því við hljóð-
upptökurnar í Kaupmannahöfn í
maí í vor. Hún er í fríi frá skólanum
á meðan vinna við myndina stendur
yfir en segist líta í námsbækurnar
þegar færi gefst á milli upptakanna.
— Sig. Jóns.
Yves le Roux látinn í
Paimpol í Frakklandi
LÁTINN er í Paimpol á Bert-
agneskaga í Frakklandi ís-
landssjómaðurinn Yves le Ro-
ux, 96 ára að aldri. Tonton
Yves, eins og hann var nefndur
á efri árum, var einn hinn
síðasti þeirra íranskra sjó-
manna, sem drógu þorsk á
frönskum skútum við Island.
Yves le Roux varð skipreika á
Skeiðarársandi árið 1912 og
gleymdi aldrei björguninni og að-
hlynningunni, sem skipbrotsmenn
nutu. Varð hann fyrir vikið ís-
landsvinur alla ævi og þreyttist
aldrei á að segja í ræðu og riti frá
íslandi og þorskveiðum Frakka hér
við land, meðal annars í ævisögu
sinni sem í íslenzkri þýðingu Jóns
Óskars hlaut nafnið: Yves frændi,
íslandssjómaður.
Yves le Roux.
Útför Ives verður gerð frá
Paimpol á mánudag.
Austurlandi
Hitabylgja á
Egilsstöðum.
IBUAR á austanverðu landinu
fengu óvæntan en kærkominn
sumarauka nú í lok seplember
þegar hitinn fór i um 20 gráður.
Þessum hita fylgdi sól og sunnan-
á íslandi
urnýjun tækjabúnaðarins bijóti
gegn ákvæðum þess samnings.
Danska ríkisstjórnin kveðst vera
reiðubúin til að heimila fulltrúum
Sovétstjórnarinnar að skoða Thule-
stöðina og tækjabúnað hennar.
Áður hafði James Baker, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, hvatt bæði
Dani og Breta að leyfa Sovétmönn-
um að kynna sér stöðvarnar í Thule
og Fyllingsdale.
gola. Hiti í Evrópu á föstudag
mældist mestur á liádegi 20 stig
á Dalatanga. Samkvæmt upplýs-
ingum Veðurstofu Islands er ekki
óalgengt að mestur hiti í Evrópu
mælist hér á landi að haust- og
vetrarlagi.
Bragi Jónsson, veðurfræðingur,
sagði að hitann mætti rekja til
þ'ess, að hlýtt loft bærist lengst
sunnan úr höfum. „Þegar þetta loft
kemur upp að vesturströndinni er
það um 10 stiga heitt og mjög
rakt,“ sagði hann. „Síðan fer það
austur yfir landið og úrkoman fellur
úr því vestan fjallgarðanna. Við það
hlýnar loftið enn og þegar niður á
láglendið kemur þá er ekki nóg með
að það hafi hlýnað mikið, heldur
er einnig léttskýjað á austanverðu
landinu. Það bætir enn við hitann.“
Bændur hrósa happi yfir þessari
veðurblíðu, sem léttir öll hauststörf
og gerir smalamennsku skemmti-
legri en ella.
- Björn