Morgunblaðið - 01.10.1989, Side 14

Morgunblaðið - 01.10.1989, Side 14
68eMðKGÖTRfi®AÐ3JJ SONNK0MUK QMH®ÖÖBKM989 5114 Framtíðartengsl EFTA og Evrópubandalagsins FRANCOIS Mitterrand, Frakklandsforseti kemur hingað til lands 17. október nk. til viðræðna við íslenska ráðamenn um málefni EFTA og Evrópubandalagsins. Þessi heimsókn forsetans staðfestir hið mikil- væga hlutverk sem Islendingar gegna í þeim könnunarviðræðum sem nú eru í gangi á milli EFTA-ríkja og EB. Viðræðum þessum sem hófust sl. vor mun ljúka með sameiginlegum fundi ráðherra bandalag- anna í desember nk. Eins og kunnugt er gegnir Island formennsku í EFTA-ráðinu út þetta ár en Frakkar gegna formennsku í EB til sama tíma. Könnunarviðræðunum er ætl- að að leggja grunn að við- ræðum um framtíðarskipan og umfang samvinnu þessara tveggja bandalaga. Gert er ráð fyr- ir að þær geti leitt til samninga milli EFTA og EB á næstu árum um rýmri flutninga á vörum, þjón- ustu, íjármagni og fólki. Þ.e. að hið svokallaða íjórfrelsi taki í meg- inatriðum gildi í Vestur-Evrópu allri og öflugt evrópskt efnahagssvæði komist á. Erfitt er að meta hvort fjórfrelsið hefur jafn mikla þýðingu fyrir smáríki eins og Island saman- borið við iðnríkin á meginlandinu. Ibúafjöldi íslands er minna en 0,1% af íbúafjölda Evrópubandalagsins og allt hagkerfið grundvallast nán- ast á einni náttúruauðlind. Mikilvægi markaðar Evrópu- bandalagsins fyrir íslendinga hefur farið ört vaxandi á síðustu árum á kostnað markaðshlutdeildar okkar í Bandaríkjunum. A árinu 1985 fóru um 49% af heildarvöruútflutn- ingi okkar til Evrópubandalagsins en um 59% á árinu 1988. Þá kaup- um við ekki síður af Evrópubanda- laginu, því um 52% af heildarvöru- innflutningi undanfarinna ára hefur komið frá ríkjum þess. Milli 75% og 80% af heildarvöruútflutningi íslendinga eru sjávarafurðir. Stærsti markaður okkar fyrir sjáv- arafurðir er innan Evrópubanda- lagsins og lýsir það best mikilvægi markaðarins. Með hliðsjón af fram- angreindum staðreyndum má segja að fiskiðnaður sé jafn mikilvægur fyrir íslenska þjóðarbúið og iðnað- arvörur eru fyrir flest ríki Vestur- Evrópu. Stefna EB í tollum á fiski hefur miðað að því að seljendur haldi sig við hrávöruframleiðslu, en að full- vinnsla og virðisauki verði sem mestur innan EB-svæðisins. íslend- ingum hefur þó að mestu tekist að ná hagstæðum viðskiptakjörum með hinni svokölluðu „bókun 6“. Innganga Spánar og Portúgal í EB árið 1985 hafði í för með sér stór- aukna tolla á íslenskan saltfisk. Það er eitt stærsta hagsmunamál íslensks sjávarútvegs gagnvart Evrópubandalaginu að fá saltfisk- tolla lækkaða og helst afnumda í næstu framtíð. Sjávarútvegsstefna Evrópubandalagsins felur í sér að fyrir aðgang að markaði EB skuli koma aðgangur að fiskimiðum við- komandi ríkis. Þessi stefna er aug- ljóslega ákaflega óhagstæð fyrir þær þjóðir sem byggja afkomu sína á fiskveiðum og vilja stunda við- skipti við Evrópu- bandalagið. Að mínu áliti er þessi stefna einnig óhagstæð flest- um íbúum bandalags- ins. Sjávarútvegs- stefna EB miðast í reynd fyrst og fremst við sérhagsmuni þeirra sem stunda út- gerð, en samanlagður floti EB-landa er allt of stór, sérstaklega eftir alþjóðlega gildi- stöku 200 mílna fisk- veiðilögsögu. Verið er að reyna að leysa vandamál flotans á kostnað neytenda. Hagur neytenda er fyrst og fremst að fá góðan fisk á sann- gjörnu verði hvort sem hann er ferskur eða í neytendapakkningum. EFTA-ríkin hafa ákveðið að frá og með 1. júlí 1990, verði fiskur ein af þeim vörutegundum sem falla undir fríverslunarákvæði EFTA. í þeim viðræðum sem nú fara fram milli bandalaganna er gengið út frá að sú skilgreining gildi. Með því móti ná íslendingar fram því gamla baráttumáli að verslun með fisk verði fijáls og jafngild verslun með aðra iðnaðarvöru. A sviði fjármagnsflutninga hefur samstarf EB-ríkja náð hvað lengst. Nokkuð ljóst er að jafn lítill fjár- magnsmarkaður og sá íslenski, verður að hafa eitthvert skjól. Taka verður tillit til þjóðaröryggis og yfirgnæfandi þjóðarhagsmuna. Um það virðist vera pólitísk samstaða hér á landi að ekki sé hægt að gefa fijálsar erlendar fjárfestingar á sviði sjávarútvegs. Á sviði félagsmála vakna spurn- ingar um sérstöðu íslands og Norð- urlandanna ef frelsin fjögur koma til með að ná til EFTÁ-landanna. Fijálsum fólksflutningum fylgja gagnkvæm réttindi einstaklinga til dvalar, starfa og vinnu ásamt tengdum félagslegum réttindum. Hvaða áhrif munu þessar breytingar hafa á það velferðar- kerfi sem Norðurlönd hafa byggt upp? Munu stjórnvöld á Norðuriöndum ekki neyðast til að draga úr sköttum til sam- ræmis við önnur lönd innan hins evrópska efnahagssvæðis til að koma í veg fyrir flótta fyrirtækja. Mun það ekki freista fyrirtækja að bæta samkeppnis- stöðu sína með því að flytja starfsemina til annarra landa efna- hagssvæðisins, þar sem skattstigið er lægra og vinnuaflið HUGSAD UPPHÁTT I dag skrifar Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsrádherra og varaformadur Framsóknarflokksins ódýrara? Munu stjórnvöld ekki neyðast til að mæta atgervisflótta hæfs og vel menntaðs fólks á sama hátt, þegar engar hömlur verða á dvalar- og starfsleyfum og öll próf viðurkennd? Mun í fyrstu ekki verða veruleg tilfærsla á fólki frá suðri til norðurs, fólki sem býr við bág kjör í heimalandi sínu og sækist eftir velferðaröryggi norðursins. Hvernig ætla Norðurlönd að mæta þessu? Verða Norðurlönd ekki að horfast í augu við þessa staðreynd hvort sem þeim líkar betur eða verr? Hvort sem þau gera samninga við EB eða ekki munu aukin samskipti. innan Vestur-Evrópu krefjast þess að Norðurlönd geri róttækar breyt- ingar á velferðarkerfi sínu og neyt- endur beri hærri kostnað. Slíkt má þó aldrei gerast á kostnað þeirra sem minna mega sín. Innan EFTA munu tengslin og afstaða til EB án efa vera mjög mismunandi. T.d. eru hagsmunir Svía sem voldugs iðnríkis annars eðlis en hagsmunir íslendinga, sem eru fyrst og fremst háðir frum- framleiðslu. Því tel ég vafasamt að EFTA-ríkin geti sameinast um eina stefnu í öllum hagsmunamálum sínum gagnvart EB. Samstarf hvers ríkis við EB hlýtur að byggjast á gagnkvæmum hag. En þegar litið er á EFTA sem eina heild má spyija hvaða hags- Allt fyrir litla barnið frá nærfötum til útigalla í mjög miklu úrvali. Alltaf í leið- inni, á besta stað í bænum. ÞUMALÍNA Sérverslun með sængurgjafir Leifsgötu 32. t QWHY Æ J$TW¥FWY YW t II? IwrjnLKJJLUXJCIA JL w JCtJLáJLJLw JL JtMmmJL TA Gabriele 100 Vel útbúinn vinnuhestur fyrir námsmanninn sem velur gæði og gott verð. VEBD AÐEINS KR. 17.900,- staðgr Komdu viö hjá okkur eða hringdu og fáðu frekari upplýsingar, það borgarsig örugglega. EinarJ. Skúlason hf. Grensásvegi 10, sími 686933 UMBOÐSMENN UM LAND ALLT Reykjavík: Penninn sf., Skólavörubúð Námsgagnastofnunar, Tölvuvörur hf., Bóka- og ritfangaverslunin Griffill sf., Aco hf., Hans Árnason, Sameind hf., Tölvuland. Garðabær: Bókabúðin Gi íma. Hafnarfjörður: Bókabúð Olivers Steins. Keflavik: Bókabúð Keflavikur. Þorlákshöfn: Rás sf. Selfoss: Ösp. Vestmannaeyjar: Bókabuðin Heiðarvegi. Höfn Hornafirði: Kaupfélag A-Skaftfellinga. Egilsstaðir: Traust. Akureyri: Bókaverslunin Edda, Jón Bjarnason úrsmíðavinnustofa. Sauðárkrókur: Stuðull. Hvammstangi: Gifs-mynd sf. ísafjörður: Bökabúð Jónasar Tómassonar. Akranes: PC-tölvan. Þrettán ára japönsk stúlka sem safnar frímerkjum og póstkortum: Kumiko Okada, 2761-127 Zaikouji, Hyuga-shi, Miyazaki, 883 Japan. Frá ísrael skrifar 28 ára verk- fræðingur vill eignast íslenska pennavini og skiptast á frímerkjum: Israel Erlichman, P.O.Box 3533, Haifa, Israel. Suður-kóreskur frímerkjasafnari vill komast í samband við hérlenda safnara: Sang Cheol Um, Tongiak Gu Sang Do 1 dong 134-174, 36/3, P.O.Box 156-031, Seoul, Korea.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.