Morgunblaðið - 01.10.1989, Page 24
ja pj| pj| ■ ■ a / /^-—•/ vc/K tr^A P
J« l v ■l^mVAVUvj7L T O/í \L7/Aí\
íslenskt-franskt
eldhús
Vegna mikilla anna óskum við að ráða tvo
kjötskurðarmenn í kjötvinnslu okkar.
Upplýsingar á staðnum.
íslenskt-franskt eldhús,
Dugguvogi 8.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI i
-------------------,
Sjúkraþjálfara
bráðvantar í fullt starf á nýja og vel búna
endurhæfingadeild
(tækjasalur, bekkjasalur fyrir strekkmeðferð,
nudd, bakstra, hljóðbylgjur, leiser o.þ.h.,
sundlaug og nuddpottur).
Upplýsingar veitir deildarsjúkraþjálfari alla
virka daga í síma 94-4500 frá kl. 8.00-16.00.
Starfsfólk
íprentsmiðju
Viljum ráða prentara til starfa sem fyrst.
Prentnemi kemur til greina. Einnig vantar í
aðstoðarstarf fyrir hádegi við frágang o.fl.
Upplýsingar í síma 44260.
PrenlleeKni hf
KÁRSNESBRAUT 108 • 200 KÓPAVOGI
Aðstoðarfólk
íbókband
Óskum eftir aðstoðarfólki í bókband nú þegar.
Upplýsingar veitir verkstjóri milli kl. 13.00
og 19.00 mánudag (ekki í síma).
ísa foldarpren tsmiðja.
W
Hafnarfjörður
Fóstrur -
þroskaþjálfar
\
Getum bætt við fóstrum og þroskaþjálfum
eða öðru uppeldismenntuðu starfsfólki til
starfa á leikskólum bæjarins, þar sem að-
stæður eru góðar fyrir gott uppeldisstarf.
Erum að leita að:
1. Deildarfóstrum á almennar deildir
2. Fóstru með þekkingu og/eða áhuga fyrri
að starfa eftir Montessori-kerfi.
3. Þroskaþjálfa á sérdeild fyrir fötluð börn,
svo og til stuðnings börnum á almennum
deildum.
Um er að ræða heilar eða hálfar stöður fyrir
og eftir hádegi.
Upplýsingar hjá dagvistarfulltrúa á Félags-
málaskrifstofu Hafnarfjarðar og í síma 53444
milli kl. 11.00-12.00 daglega í næstu viku.
Umsóknum ber að skila á sama stað.
Félagsmálastjóri.
Húsvarsla
Starfsmaður óskast til húsvörslu við fram-
haldsskóla í Reykjavík.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
6. október nk. merktar: „Húsvarsla - 8062“.
Starfsfólk óskast
Viljum ráða fólk til starfa við leirmuriagerð.
Engar upplýsingar gefnar í síma.
Umsóknir sendist til Glit hf.
Höfðabakka 9, 112 Reykjavík.
Iðnþróunarfélag
Kópavogs
óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra.
Starfið felur í sér daglegan rekstur skrifstofu
félagsins og umsjón með verkefnum.
Við leitum eftir viðskipta- eða verk/tækni-
fræði menntuðum manni sem kleift er að
starfa sjálfstætt.
Umsóknum skal skilað til Iðnþróunarfélags
Kópavogs, pósthólf 437 í Kópavogi, fyrir 16.
október 1989.
Ritari
Útflutningsfyrirtæki í miðborginni óskar að
ráða sem fyrst ritara til símavörslu og al-
mennra skrifstofustarfa. Æskilegt er að um-
sækjandi hafi bíl til umráða. Góð laun í boði
fyrir hæfan starfskraft. Umsækjandi þarf að
hafa lokið prófi frá Verslunarskóla, Sam-
vinnuskóla, viðskiptasviði fjölbrautaskóla eða
hafa sambærilega menntun.
Handskrifaðar umsóknir með uppl. úm ald-
ur, menntun og fyrri störf sendist auglýsinga-
deild Mbl. merkt: „Útflutningur - 2823.“
BORGARSPITALINN
Lausar stödur
Uppeldisfulltrúi
Meðferðarheimilið við Kleifarveg óskar eftir
uppeldisfulltrúa til starfa.
Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun
eða starfsreynslu á uppeldissviði (þroska-
þjálfar, fóstrur eða kennarar).
Upplýsingar í síma 82615.
ST. JÓSEFS3PÍTALI, LANDAKOTI
Röntgentæknar
athugið!
Staða röntgentæknis við röntgendeild spítal-
ans er laus til umsóknar. Um er að ræða
hlutastarf en fullt starf kemur til greina.
Æskilegt væri að umsækjandi gæti byrjað
15. október eða eftir nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í
síma 54325 og deildarröntgentæknir í síma
50966 (16).
Atvinna óskast
Þrítug kona óskar eftir vel launuðu skrifstofu-
starfi strax. Hefur 3ja ára reynslu við almenn
skrifstofustörí.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„DE-9046".
Snyrtivörur
Viljum ráða snyrtifræðing eða áhugamann-
eskju um snyrtivörur í deildarskipta sérvöru-
verslun annarsvegar og stórmarkað með
sérstaka snyrtivörudeild hinsvegar. Góð
vinnuaðstaða. Æskilegur aldur frá 20-45
ára. Um heils- og hálfsdagsstörf er að ræða
og jafnvel breytilegan vinnutíma.
Áhugasamir sendi upplýsingar til auglýsinga-
deildar Mbl. merkt: „Spennandi starf - 7231 “
fyrir 4. okt. nk.
Húsvörður óskast
Húsvörður óskast að Grandavegi 47,
Reykjavík. Húsnæði fylgir. Aðeins reglusam-
ur og áreiðanlegur aðili kemur til greina.
Öllum umsóknum svarað.
Upplýsingar um aldur og allt sem máli skipt-
ir (sími), sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
10. október 1989 merkt: „JH - 4747“.
Hússtjórn.
RÍKISSPÍTALAR
Kópavogshæli
Starfsmenn óskast í 100% starf sem fyrst.
í starfinu felst umönnun vistmanna, útivera,
þátttaka í þjálfun, almenn heimilisstörf, þrif
og ræsting. Æskileg starfsreynsla við sam-
bærileg störf og að umsækjandi sé orðinn
18 ára.
Athugið launahækkandi námskeið fyrir fast-
ráðið starfsfólk.
Upplýsingar gefa yfirþroskaþjálfi og hjúkrun-
arforstjóri í síma 60 2700.
Reykjavík, 1. október 1989.
Bifvélavirki
Stór opinber stofnun óskar að ráða bifvéla-
virkja til viðgerða á bifreiðum stofnunarinn-
ar. Fyrirtækið býður upp á góða og snyrti-
lega vinnuaðstöðu. Mötuneyti er á staðnum.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu bif-
vélavirkjar og/eða með langa reynslu af við-
gerðum. Ráðning verður sem allra fyrst.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
V
Afleysmga- og rádnmgaþionusta
Lidsauki hf. W
Skóla^ordustig lá - 101 Reyk/avik - Simi 621355
Ritari
Endurskoðunarskrifstofa óskar að ráða ritara
til starfa sem fyrst. Starfið felst í vélritun,
ritvinnslu og frágangi ársreikninga og
skýrslna. Krafist er góðrar vélritunarkunnáttu
og einhverrar tölvuþekkingar. Vinnutími er
frá kl. 9-17, en viðkomandi yrði að geta
unnið aukavinnu á vissum árstíma, laun eru
samningsatriði með hliðsjón af hæfni og
starfsreynslu.
Væntanlegir umsækjendur eru beðnir að
senda umsóknir, sem innihalda upplýsingar
um aldur, menntun og fyrri störf, til auglýs-
ingadeildar Mbl., merktar: „Endurskoðun -
7745“, fyrir kl. 17, fimmtudaginn 5. október.