Morgunblaðið - 01.10.1989, Qupperneq 35
35
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGÚR 1. OKTÓBER 1989
stund, en brúðguminn hafði séð til
þess að hvorki skorti blómin eða
kampavínið. „Sunnudagurinn fór í
að opna pakkana og það var nóg
að gera. „Svo má ekki gleyma morg-
ungjöfinni, perlur og demantar,"
segir Þóra. „Brúðkaupsferðin verður
að bíða, en helgina eftir giftinguna
héldum við okkar nánustu vinum
gleðskap. Við vildum deila þessu
með þeim með þessum hætti, því
stóri dagurinn var okkar dagur,“
segja hin nýbökuðu hjón...
ReykjaviMeild RKl
heldur námskeið í skyndihjálp sem hefst
miðvikudaginn 4. október kl. 20.00 í Ár
múla 34 (Múlabæ) og stendur yfir í 4
kvöld. Kennt verður4., 5., 10., og 12. okt.
Skráning í síma 28222.
Leiðbeinandi: Guðlaugur Leósson.
Öllum heimil þátttaka 15 ára og eldri.
Rauói Krosslslands
Þú svalar lestrarþörf dagsins
‘ Ijöum Moggans!
íHl
....:
mm
Viftur sem falla inn í
innréttingar og stakir háfar.
Uppþvottavélar í litum
eða með viðarhurð.
Einar Farestveit & Co hf
Borgartúni 28 — S 16995 og 622900
Kæliskápar i litum
eða með viðarhuró.
Blomberg heimilistæki breyta
eldhúsinu í vistarveru fyrir alla
fjölskylduna.
Blomberg heimilistæki hafa
glæsilegt samræmt útlit og mjúkar
línur.
Blomberg heimilistæki eru hönnuð
af danskri smekkvísi og framleidd
af þýskri nákvæmni.
-1 r«TiTI «I^ »>
Blomberg heimilistæki
Glæsilegt samræmt útlit
Kvillar ogkukl
Eins og við er að búast af
manni á miðjum aldri er
ég orðinn hálfgert skar til
heilsunnar. Þetta veldur vita-
skuld stöðugum áhyggjum hjá
mörgum kon-
um sem ég
þekki því
áhyggjan er eðl-
isbundinn eig-
inleiki kvenna.
Þær hafa hvatt
mig til þess að
leita mér ýmiss
konar lækn-
inga. Og af því þetta eru upp-
lýstar konur og gagnrýnar,
hafa þær flestar einlæga van-
trú á færibandaafgreiðslu
læknastéttarinnar. Sú stað-
reynd að læknar eru hálaun-
aðir laxveiðimenn og karl-
rembur á líka þátt í þessu. í
staðinn hafa þær bent mér á
ýmis konar punktanudd, á ilj-
ar, eyru og þumía, jurtate,
heilun, slökun, nálarstungur
og yang/ying. Svo hafa þær
skýrt gigtina í mér, hægða-
vandamálin og húðsjúk-
dómana með lærðum tilvitn-
unum í stjörnumerkjafræði í
bland við tilvistarlegar — og
hæfilega óljósar — tengingar
við streitu karlaheimsins og
ónáttúrulega grimmd hans.
Þessu fylgir vorkunnsamt
augnaráð.
Af minni hálfu hefur
ábendingunum verið tekið
með vantrú og ég hef lítið
þroskast síðan ég fylgdi vin-
konum mínum til spákvenna
á unglingsárum og þær sáu
rauðan sportbíl og glæsilegan
ungan mann birtast i leifum
af bragakaffi. Tortryggni á
fijómögn náttúrunnar og dul-
aröfl hins óþekkta eru nefni-
lega kynfylgja karlmanna.
Þeir eru flestir jarðbundnir
efnishyggjumenn sem fara
með margföldunartöfluna á
kvöldin í staðinn fyrir bænir.
Karlar hafa líka kallað þessi
fræði eins lengi og elstu merin
muna hjátrú, bábiljur og kerl-
ingabækur. Þetta síðasta al-
gengast.
En konur eru fjölkunnug-
ar. Svo sem ekkert nýtt. Mið-
aldamenn — þ.e.a.s. miðalda-
karlmenn — gerðu sér grein
fyrir þessu. En svo er eins og
verði einhver umpólun í
íslensku samfélagi. Þegar far-
ið er að brenna fólk fyrir
galdra á íslandi eru nær ein-
göngu brenndir karlar —
öfugt við það sem gerðist alls
staðar annars staðar. Engin
skýring er á þessu.
í þjóðsögunum er urmull
frásagna af göldróttum körl-
um — en ég man ekki eftir
nema tveim kerlingum sem
gæddar voru þessum hæfi-
leika: Galdra-Manga og
Straumfjarðar-Halla. A seinni
árum fara svo konur að eigna
sér kuklið aftur en karlar
sýna þessu dútli megnustu
fyrirlitningu. Vinur minn
einn, sem ekki verður sakað-
ur um óþarfa sanngirni í garð
hins veikara kyns, heldur því
fram að konur hafi lagt af
kukl, um það leyti sem það
gerðist lifshættulegt. Þá tóku
karlar við. Þegar svo aftur var
óhætt að stunda ýmsan hvíta-
galdur, grasalækningar og
særingakukl án þess að eiga
bálið á hættu fóru konur að
stunda þetta að nýju. Það er
sko ekki að ástæðulausu, seg-
ir þessi vinur minn, sem kon-
ur eru langlífari en karlar.
eftir Sigurð G.
iómasson