Morgunblaðið - 08.10.1989, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.10.1989, Blaðsíða 7
ÍSLíSSKA AUCIÝSINGASTOFA V’ HF MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. OKTOBER 7 Áskrifendur Stöðvar 2 fá að njóta ávaxtanna af velgengní stöðvarinnar og afmælisskapinu sem gerir okkur lífið svo létt á Krókhálsí. Stöð 2 er þriggja ára á morgun, 9. október Prjú ár þykja kannski ekki hár aldur. En fyrir sjónvarpsstöð, sem margir töldu í upphafi að tœkist aldrei að sigrast á nær óyfirstíganlegum örðugleikum, er þriggja ára afmæli mikilsverður áfangi. Stöð 2 kom til þess að vera Stöð 2 átti brýnt erindi við íslendinga. Stöð 2 hefur reynst vinsœll og vel þeginn kostur á íslenskum sjónvarpsmarkaði þar sem var aðeins um eina sjónvarpsdagskrá að ræða áður en Stöð 2 tók til starfa. Stöð 2 hefur bœtt þjónustu við íslenska sjónvarps- áhorfendur Stjórnendur og starfsmenn Stöðvar 2 hafa á liðnum þremur árum haft forgöngu um ýmsar nýjungar í íslensku sjónvarpi. Það var Stöð 2 sem réðst gegn gamalli bábilju ríkisforsjármanna um sjónvarpslaus fimmtudagskvöld. Það var Stöð 2 sem lengdi útsendingartíma sjónvarps á lslandi og kom þannig til móts við óskir landsmanna sem ríkisforsjármenn höfðu ekki séð neina ástæðu til að sinna. Það var Stöð 2 sem ruddi brautina í talsetningu á erlendu barnaefni og kom þannig til móts við óskir barna ogforeldra sem ríkisforsjármenn höfðu hummaðfram afsér í mörg ár. 1. Félagi í Áskrifendaklúbbi Stöðvar 2 fær fleiri og betri tœkifæri til þess að hafa áhrifá dagskrárstefnu og efnisval Stöðvar 2. 2. Stöð 2 mun efna til sérstakra samráðsfunda með félögum í Áskrifendaklúbbi Stöðvar 2. 3. Félagar í Áskrifendaklúbbi Stöðvar 2 ogfjölskyldur þeirra njóta gegn framvísun klúbbskírteinis verulegs afsláttar í fjölmörgum verslunum, þjónustufyrir- tækjum og veitingahúsum víða um land. 4. Félagar í Áskrifendaklúbbi Stöðvar 2 fá í hverjum mánuði sérstakt mánaðartilboð: í nóvember t. d. gefst mönnum kostur á að kaupa á gjafverði 14" fjarstýrt litsjónvarp og í desember verða eigulegar bækur á sérstöku tilboðsverði til klúbbfélaga. 5. Sérstakur þáttur, „Klúbburinn“, í umsjá Helga Péturssonar verður á dagskrá Stöðvar 2 hálfsmánaðarlega á mánudagskvöldum, þjónustuþáttur við áksrifendur, tengiliður þeirra við Stöð 2 og vettvangur þar sem þeir geta komið á framfœri óskum sínum, tillögum og umkvörtunum. VericI velkomin í Áskrifendaklúbb Stöðvar 2. Með þessari afmœlisgjöf vill Stöð 2 þakka áskrifendum samfylgd og dyggan stuðning í þrjú ár. Til hamingju með afmœlið, áskrifendur Stöðvar 2: Án ykkar hefði þetta aldrei tekist. Og héma er afmœlisgjöfin til áskrifenda frá Stöð 2: Stöð 2 stofnar Áskrifendaklúbb Stöðvar 2 Áskrifendaklúbbur Stöðvar 2 tekur til starfa 1. nóvember. Sérhver áskrifandi Stöðvar 2 fœr sent með lykilnúmerinu í nóvember sérstakt klúbbskírteini. ------c

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.