Morgunblaðið - 08.10.1989, Blaðsíða 19
h
M.Q^(,;U.\^I.ADU), SUN-NtpAGUft jB, OKJÓB^R,
■«
r-
hægt er að veita samkvæmt samn-
ingnum sem viðbót við þá þjónustu
sem fyrir er og teljum að til staðar
sé óuppfyllt þörf fyrir heimahjúkrun.
Stefnan hefur í mörg undanfarin ár
verið sú að færa æ meiri þjónustu
út fyrir veggi stofnana, efla göngu-
deildaþjónustu og heimahjúkrun. Það
er með öðrum orðum verið að stytta
legutímann á sjúkrahúsunum, bæði
fyrir börn og fullorðna,“ sagði Lára
Scheving Thorsteinson, formaður
Félags háskólamenntaðra hjúkr-
unarfræðinga.
Sparnaðar- og
mannúðarsjónarmið
Sigþrúður sagði að undanfarið
hafi mikið verið rætt um sparnað í
ríkisgeiranum, sérstaklega í heil-
brigðiskerfinu. Það hlyti að vera
hagkvæmara fyrir alla aðila að sinna
fólki meira heima, ef það er hægt,
heldur en inni á stofnunum. „Flest
öll sjúkrahús eru komin á föst fjárlög
og hver legudagur inni á sjúkrahúsi
er afskaplega dýr fyrir þjóðfélagið.
Við teljum að gætu hjúkrunarfræð-
ingar starfað á eigin vegum úti í
samfélaginu yrði komið til móts við
þá stefnu, sem verið er að reyna að
vinna eftir. Auk þess vonum við að
reynslutími samningsins skeri úr um
hvort hér sé óuppfyllt þörf fyrir
heimahjúkrun," sagði Sigþrúður.
Lára bætti því við að heimahjúkrun-
in fæli jafnframt í sér mannúðarsjón-
armið. Skjólstæðingarnir væru mun
betur settir ef hægt væri að með-
höndla þá heima í þeirra eðlilega
umhverfi og mætti sérstaklega nefna
börn í því sambandi.
Hjúkrunarmiðstöð
Hjúkrunarfræðingar, sem vinna
samkvæmt samningnum, starfa í
tengslum við hjúkrunarstofu eða
miðstöð, þar sem unnt verður að leita
eftir þjónustu þeirra. Ekki hefur ver-
ið ákveðið hvar miðstöðin verður til
húsa, en ýmsir staðir koma til greina,
að sögn Láru. Ekki hefur ennþá ver-
ið gengið frá ráðningum hjúkruna-
rfræðinganna tiu, en formenn félag-
anna segja æskilegt að hjúkruna-
rfræðingar með þekkingu á hinum
ýmsu sérsviðum hjúkrunar taki við
störfunum tíu.
Samvinna er nauðsynleg
Hjúkrunarfræðingar við heima-
hjúki-un á höfuðborgarsvæðinu hafa
hingað til verið að vinna stórkostlegt
starf. Við lítum hinsvegar svo á að
með samningnum sé um hreina við-
bót að ræða og náin samvinna er
nauðsynleg á milli þeirrar þjónustu
sem er til staðar og þeirrar sem ver-
ið er að ýta úr vör nú. Það er líka
vert að geta þess að með samningn-
um teljum við að möguleiki til launa-
bóta skapist fyrir hjúkrunarfræð-
inga, því er ekki að neita, þó að
endanlegar tölur liggi ekki fyrir,“
sagði Sigþrúður.
Biyndís Ólafur
öirnir Guðmundsson
prófi við Menntaskólann við
Hamrahlíð 1979, B.Sc.-prófi í frumu-
og sameindalíffræði við University
of Washington 1984, og doktorsprófi
í lífeðlisfræði við University of Cali-
fornia Los Angeles nú i sumar. Heiti
ritgerðar Bryndísar er: Sodium-
dependent cotransporters: A study
of their ligand selectivity and elec-
trogenicity using molecular biologic-
al and electrogenicity using molecul-
ar biological and electrophysiological
techniques. Ritgerðin fjallar um eig-
inleika þeirra próteina sem feija
sykrur og ammínósýrur í þörmum
og nýrum.
Ólafur og Bryndís hafa bæði hlot-
ið margvíslegar viðurkenningar og
styrki á námsferlum sínum. Þau eiga
einn son, Einar Birnir Ólafsson. Ólaf-
ur starfar nú að rannsóknum sem
styrktar eru af Vísindasjóði Islands
og Bryndís starfar hjá G. Ólafsson hf.
Aðalfundur
Landssambands
stangaveióifélaga
verður haldinn dagana 4. og 5. nóvem-
ber í Munaðarnesi.
Þátttaka tilkynnist til Hjörleifs Gunnarssonar,
í símum 50978 og 50366 eða Rafns Hafnfjörð,
símar 22930 og 34092.
Stjórnin
KULDAVÖRN
Ullarhlíf sem smeygt eryfir öryggishjálma. Tvöfalt
öryggi. Hlíf í kulda og vindi. Hjálmurinn tollir betur.
Prófun hf.,
Eyjaslóð 9, sími 91-26085.
Það er ekki tryggt
að verkfæri iðnaðarmanna
séu notuð á löglegan
En meö nýju IÐNAÐARMANNATRYGGINGUN
frá SJÓVÁ-ALMENNUM geta iðnaðarmenn
tryggt sig eins og best verður á kosið.
IÐNAÐARMANNATRYGGINGUNNI eru allar
helstu tryggingar sem iðnaðarmenn þurfa,
settar saman á eitt skírteini.
Allir góðir fagmenn ættu að kynna sér
þessa langþráðu nýjung strax.
SJOVA
LMENNAR