Morgunblaðið - 04.11.1989, Síða 1

Morgunblaðið - 04.11.1989, Síða 1
56 SIÐUR B/LESBOK Fjárlög norsku borgaraflokkanna: Víðtækum umbótum iofað í A-Þýskaiandi: Krenz boðar stórbreyt- ingar á stjórnmálaráðinu Borgarsljóri Leipzig segir af sér og flóttamönnum flölgar stöðugt í Prag Boða skattalækk- anir og niðurskurð Ósló. Reuler. RÍKISSTJÓRN norsku borgaraflokkanna kynnti í gær fjárlögin fyrir næsta ár en þar eru boðaöar skattalækkanir og tninni framlög til fé- lagsmála. Talsmenn Verkamannaflokksins fóru hörðum orðum uni niðurskurðinn en framfaraflokksmönnum fannst hann of lítill. í hálft annað ár í stað herskyldu. Hann sagði leiðtoga flokksins nú undirbúa víðtækar umbætur og sagði að ekki yrði aftur snúið í þeim efnum. Flokkur frjálslyndra demókrata í Austur-Þýskalandi krafðist þess í gær að ríkisstjórn landsins segði af sér. Krafa þessi birtist í málgangi flokksins Der Morgen en fram til þessa hefur hann, líkt og þrír aðrir smáflokkar í Austur-Þýskalandi, fylgt kommúnistum að málum í einu og öllu. Félagar í flokknum eru 113.000 en 52 fulltrúar sitja á þingi fyrir hann. Sagði í greininni að leið- togi flokksins, Manfred Gerlach, ætti að taka við embætti þingfor- seta. Þess var á hinn bóginn ekki krafist að hugmyndafræði kommún- ismans yrði hafnað og virtist sem tilgangur greinarinnar væri einkum sá að tryggja frekari hreinsanir inn- an austur-þýska kommúnistaflokks- ins en nokkrir háttsettir skjólstæð- ingar Erichs Honeckers, fyrrverandi leiðtoga flokksins, hafa undanfarið verið þvingaðir til að segja af sér. Þá hefur eiginkonu Honeckers, Mar- got, verið komið frá völdum en hún gegndi embætti menntamálaráð- herra. í gær stækkaði hópur þessi enn er Bernd Seitel, borgastjóri Leipzig, sagði af sér. Að sögn austur-þýsku fréttastofunnar ADN var ástæða afsagnarinnar sú að Seitel hafði glatað trausti borgarbúa en hundruð þúsunda manna hafa krafist stjórn- málaumbóta í Leipzig á undanförn- um vikum. Seitel hafði verið borgar- stjóri frá því í janúarmánuði 1986. Um 4000 austur-þýskir flótta- menn halda nú til á lóð vestur-þýska sendiráðsins í Prag. Heimildarmaður Aeuíers-fréttastofunnar taldi víst að þeim ætti eftir að fjölga á næstu dögum. Stjórnvöld í Austur-Þýska- landi gáfu í gærkvöldi leyfi fyrir því að þeir fengju að fara til Vestur- Þýskalands. Flóttamennirnir hafast við í tjöldum og er aðbúnaður allur mjög slæmur auk þess sem tekið er að kólna á þessum slóðum. Sjá „Hugsanleg sameining aft- ur á dagskrá" á bls. 17. Fyrstu mótmælin í Búlgaríu Sófíu. Reuter. UM fímmþusund Búlgarar efndu til mótmæla fyrir utan stjórnar- ráðið í Sófíu í gær, hinna fyrstu þar í landi eftir stríð. Krafðist mannfjöldinn lýðræðis og umbóta. Lögregla umkringdi torg sem fólkið safnaðist saman á en iét mótmælendur afskiptalausa. Hermt er að mótmælafundurinn hafi staðið í stundarfjórðung. „And- rúmsloftið var rafmagnað," sagði vestrænn stjórnarerindreki. Að hans sögn gerir almenningur í Búlgaríu auknar kröfur um umbætur. Meðan á mótmælunum stóð af- hentu samtök umhverfisverndar- manna, Eko-glasnost, stjórnvöldum yfirlýsingu um mengun og umhverf- isspjöll í Búlgaríu. Skjalið var undir- ritað af 11.545 manns og mun vera fyrsta áskorunarskjal sem búlgörsk stjórnvöld fá frá almenningi í 45 ár. Lamandi verkfall Hermenn leita á óbreyttum borgurum í Líma, höfuðborg Perú. Þúsundir hermanna eru við gæslustörf í borginni en þar ríkir neyðarástand vegna alls- heijarverkfalls, sem skæruliða- samtök maóista, Skínandi veg- ur, hvöttu til. Samgöngukerfi borgarinnar er m.a. lamað vegna verkfallsins. Til þess var efnt til að sýna samstöðu með skæruliðum, sem átt hafa í stríði við stjórnarher landsins í níu ár. Arne Skauge fjármálaráðherra sagði þegar hann lagði fjárlögin fyr- ir, að niðurskurðurinn kæmi fram í öllum ráðuneytum og verða engir póstar undanskildir nema þróuúar- hjálpin, framlög til löggæslu, meng- unarvarna og hersins. Verða þau söm að raunvirði og á þessu ári. Þá sagði Skauge, að skattalækkanir yrðu meiri en Verkamannaflokkur- inn hefði lagt til, eða tæpir 28 millj- arðar, og einnig væri fyrirhugað að minnka áætlaðan ijárlagahalla Verkamannaflokksstjórnarinnar um 27 milljarða ísl. kr. Er nú gert ráð fyrir, að hann verði 57,6 milljarðar ísl. kr. á næsta ári en verður rúmir 52 milljarðar á þessu. Gunnar Berge, fyrrum fjármála- ráðherra Verkamannaflokksstjórn- arinnar, sagði, að niðurskurðurinn myndi auka enn á atvinnuleysið. Framfaraflokksmaðurinn Tor Mik- kel Wara sagði hins vegar, að vissu- lega væri um að ræða skref í rétta átt en þó allt of stutt. Reuter Um 4.000 austur-þýskir flóttamenn halda nú til í sendiráði Vestur-Þýskalands í höfiiðborg Tékkósló- vakíu, Prag. Fólkið hefst við í tjöldum á sendiráðslóðinni. Austur-Bcrlín, Prag. Reuter. EGON Krenz, leiðtogi austur-þýska kommúnistaflokksins, hélt ræðu í beinni útvarps- og sjónvarpssendingu gærkvöldi þar sem hann lofaði víðtækum efnahagsumbótum, breytingum á stjórnarskrá landsins og umbótum í menntakerfinu. Jafnframt boðaði hann miklar breytingar á stjórnmálaráðinu og til þess að „hleypa nýju blóði í það“, eins og hann komst að orði, tilkynnti hann um afsögn fimm fúlltrúa í ráðinu, sem í sitja 18 menn. Þar á meðal er harðlínumaðurinn Kurt Hager, aðal hugmyndafræðingur flokksins, og Erich Mielke, yfirmaður lög- reglu landsins.' I ræðunni hvatti Krenz landsmenn til að flýja ekki til Vesturlanda. „Við þörfnumst ykkar allra,“ sagði hann. Meðal þeirra breytinga, sem Krenz hét, var að héðan í frá gætu ungir menn gegnt þegnskylduvinnu Umræður 1 færeyska lögþinginu: Endurvinnsluverið í Doun- reay sagt snilldarfyrirtæki Þórshöfn. Frá Snorra Halldórssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. FÆREYSKA Lögþingið ræddi í vikunni tillögu Lasse Kleins úr Sjálfstýriflokknum sem vill að mótmælt verði áformum Breta um að reisa stórt endurvinnsluver fyrir kjarnorkuúrgang i Dounreay í Skotlandi. Klein lagði einnig til að stjórnvöld gerðu almenningi grein fyrir mögulegri hættu á geislavirkni í hverjum mánuði. Essa Arge úr Fólkaflokknum sagði hins vegar að endurvinnsluverið væri „snilldarfyrirtæki og ég er ekki í vafa um að bresku sérfræð- ingarnir, sem mæltu með því við bresku stjórnina, hafa staðið sig vel,“ sagði Arge. „Þetta verður eins nálægt því að geta kallast eilífðarvél og mögu- legt er,“ sagði Arge en bætti þó við að úrgangurinn gæti valdið hættu. Hann sagðist álíta bresku sérfræðingana þá málefnalegustu í heiminum og þeir „féllu ekki kylliflatir" fyrir hvaða hugmynd sem væri. Arge er formaður um- hverfismálanefndar þingsins og er að öllum líkindum fyrsti Færeying- urinn sem fer lofsamlegum orðum um Dounreay-áætlanir bresku stjórnarinnar. Allir aðrir sem tóku þátt í umræðunum voru sammála því að samþykkja bæri mótmæli en á síðasta ári mótmælti Lög- þingið einnig öllum hugmyndum Vum endurvinnsluver í Dounreay. „Maggie [Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlandsj verð- ur fljótlega velt úr sessi og það getur komið sér vel fyrir okkur,“ sagði einn þingmannanna. Jogvan Sundstein, lögmaður Færeyja, skýrði frá því að næsta sumar yrði efnt til sérstakrar Do-- unreay-dagskrár í Norræna húsinu í Þórshöfn. Þar myndu sérfræðingar frá mörgum löndum, þ. á m. Bret- landi, verða meðal þátttakenda og öll sjónarmið verða viðruð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.