Morgunblaðið - 04.11.1989, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJONVARP LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1989
RÍKISÚTVARPIÐ
FM 92,4
6.45 Veðuriregnir. Bæn, séra Guðmundur
Óskar Ólafsson flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 ,Góðan dag, góðir hlustendur," Pétur
Pétursson sér um þáttinn. Fréttir sagðar
kl. 8.00, þá lesin dagskrá og veðurfregn-
ir sagðar kl. 8.15. Að þeim loknum held-
ur Pétur Pétursson áfram að kynna morg-
unlögin.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn á laugardegi —
.Flvernig kokið á hvalnum varð þröngt",
eftir Rudyard Kipling. Þýðandi: Halldór
Stefánsson. Umsjón: Kristín Helgadóttir.
(Einnig útvarpað um kvöldið kl. 20.00.)
9.20 Morguntónar. Claudio Arrau leikur
tónverk eftir Chopin.
9.40 Þingmál. Umsjón: Atli Rúnar Hall-
dórsson.
10.00 Fréttir.
10.03 Hlustendaþjónustan. Sigrún Björns-
dóttir svarar fyrirspurnum hlustenda um
dagskrá Rásar 1, Rásar 2 og Sjónvarps-
ins.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Vikulok. Umsjón: Einar Kristjánsson
og Valgerður Benediktsdóttir. (Tilkynning-
ar kl. 11.00.)
12.00 Tilkynningar.
12.10 Á dagskrá. Litið yfir dagskrá laugar-
dagsins í Útvarpinu.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfre'gnir. Tilkynningar.
13.00 Hér og nú: Fréttaþáttur í vikulokin.
14.00 Leslampinn. Þáttur um bókmenntir.
Umsjón: Friðrik Rafnsson.
15.00 Tónelfur. Brot úr hringiðu tónlist-
arlífsins í umsjá starfsmanna Tónlistar-
deildar og samantekt Bergþóru Jóns-
dóttur, Péturs Grétarssonar og Guð-
mundar Emilssonar.
16.00 Fréttir.
16.05 íslenskt mál. Jón Aðalsteinn Jónsson
flytur þáttinn. (Einnig útvarpað á mánu-
dag kl. 9.30.)
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Leikrit mánaðarins: .Makbeð" eftir
William Shakéspeare. Þýðandi: Helgi
Hálfdanarson. Leikstjóri: Hallmar Sig-
urðsson. Tónlist: Lárus Grimsson. Leik-
endur: Sigurður Karlsson, Ragnheiður
Steindórsdóttir, Róbert Arnfinnsson, Hall-
dór Björnsson, Þórarinn Eyfjörð, Sigurður
Skúlason, Jakob Þór Einarsson, Kristján
Franklín Magnús, Guðmundur Ölafsson,
Andri Örn Clausen, Pétur Einarsson,
Barði Guðmundsson, Karl Guðmunds-
son, Þröstur Leó Gunnarsson, Unnur
Stefánsdóttir, Steindór Hjorleifsson, Árni
Tryggvason, Þorsteinn 0. Stephensen,
Valgerður Dan, Guðrún Þ. Stephensen,
Sigrún Edda Björnsdóttir, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Þóra Friðriksdóttir, Jón Sig-
urbjömsson, Þorsteinn Gunnarsson og
Árni Pétur Guðjónsson. (Einnig flutt ann-
an sunnudag kl. 19.31).
18.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.32 Ábætir. Fjórir kaflar úr .Samstæðum"
kammerdjassi eftir Gunnar Reyni Sveins-
son. GunnarOrmslev, ReynirSigurðsson,
Örn Ármannsson, Jón Sigurðsson og
Guömundur Steingrímsson leika; höfund-
ur stjórnar.
20.00 Litli barnatíminn — .Hvernig kokið á
hvalnum varð þröngt" eftir Rudyard Kipl-
ing. Þýðandi: Halldór Stefánsson. Um-
sjón: Kristin Helgadóttir. (Endurtekinn frá
morgni.)
20.15 Vísur og þjóðlög.
21.00 Gestastofan. Gunnar Finnsson tekur
á móti gestum á Egilsstöðum. (Frá Egils-
stöðum.)
22.00 Fréttir. Orð kvöldsins. Dagskrá morg-
undagsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Dansað með harmoníkuunnendum.
23.00 Góðvinafundur. Endurnýjuð kynni við
gesti á góðvinafundum í fyrravetur.
24.00 Fréttir.
00.10 Um lágnættið. Sigurður Einarsson
kynnir.
1.00 Veðurfregnir.
1.10 Næturútvarp á báðum rásum
RÁS2
8.05 Á nýjum degi með Margréti Blöndal.
(Frá Akureyri.)
10.03 Nú er lag. Gunnar Salvarsson leikur
tónlist og kynnir dagskrá Rásar 1, Rásar
2 og Sjónvarpsins.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Tónlist. Auglýsingar.
13.00 istoppurinn. Óskar Páll Sveinsson
kynnir. (Einnig útvarpað kl. 3.00 næslu
nótt.)
14.00 Iþróttafréttir.
14.03 Klukkan tvö á tvö. Ragnhildur Arnljóts-
dóttir og Rósa Ingólfsdóttir.
17.00 íþróttafréttir.
17.03Fyrirmyndarfólk lítur inn hjá Randveri
Þorlákssyni.
19.00 Kvöldfréttir.
19.31 Blágresið blíða. Þáttur með banda-
rískri sveita- og þjóðlagatónlist, einkum
,þluegrass“- og sveitarokk. Umsjón: Hall-
dór Halldórsson. (Einnig útvarpað í Næt-
urútyarpi aðfaranótt laugardags.)
20.30 Úr smiðjunni — ,Svona á ekki að
spila á píanó." Sigþór E. Arnþórsson fjall-
ar um nokkra rokkpíanista sem getið
hafa sér gott orð. (Einnig útvarpað að-
faranótt laugardags kl. 7.03.)
21.30 Áfram island. Dægurlög flutt af
íslenskum tónlistarmönnum.
22.07 Bitið aftan hægra. Lisa Pálsdóttir.
2.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00, 10.00, 12.20,
16.00, 19.00, 22.00 og 24.00.
NÆTURÚTVARPIÐ
2.00 Fréttir.
2.05 (stoppurinn. Óskar Páll Sveinsson
kynnir. (Endurtekinn frá deginum áður.)
3.00 Rokksmiðjan. Sigurður Sverrisson.
(Endurtekið urval frá fimmtudagskvöldi.)
4.00 Fréttir.
4.05 Undir værðarvoð. Ljúf lög undir
morgun. Veðurfregnir kl. 4.30.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
5.01 Áfram ísland. Dægurlög flutt af
íslenskum tónlistarmönnum.
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
6.01 Af gömlum listum. Lög af vinsælda-
listum 1950-1989.
7.00 Tengja. Kristján Sigurjónsson tengir
saman lög úr ýmsum áttum. (Frá Akur-
eyri.) (Endurtekið úrval frá sunnudegi á
Rás 2.)
8.05 Söngurvilliandarinnar. EinarKárason
kynnir íslerisk dægurlög frá fyrri tíð. (End-
urtekinn þáttur frá laugardegi.)
BYLGJAN
FM 98,9
8.00 Þorsteinn Ásgeirsson spilar þægi-
lega morguntónlist.
13.00 Valtýr Björn Valtýsson með það
helsta sem er að gerast í íþróttaheiminum
um helgina.
14.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson athugar
það helsta sem er að gerast um helgina
í tónlistinni.
16.00 Tónlist, sveitastíllinn verður i háveg-
um hafður.
19.00 Ágúst Héðinsson hitar upp fyrir
næturvaktina, opin lína 611111.
22.00 Hafþór Freyr Sigmundsson á nætur-
vakt.
2.00 Freymóður T. Sigurðsson með Ijúfa
tóna i næturdagskrá fram til kl. 9.
STJARNAN
FM 102,2
10.00 Kristófer Helgason.
14.00 Ólöf Marín.
17.00 Bjarni Haukur kynnir 30 vinsælustu
lögin á Islandi.
19.00 Þorsteinn Högni Gunnarsson. Allt
það nýjasta í nýbylgjupoppinu og Hipp
hoppinu.
22.00 Arnar Kristinsson. Síminn er 622939.
24.00 Bein útsending úr vinsælasta diskó-
teki landsins.
1.00 Arnar Albertsson. Siminn er 622939.
Útrás
12.00 FA
14.00 FG
16.00 IR
24.00 Næturvakt Útrásar
kveðjur.
AÐALSTÖÐIN
FM 90,9
10.00 Aðalstöðin býður góðan dag.
13.00 Anna Björk Birgisdóttir.
16.00 Bjarni Dagur Jónsson.
19.00 Darri Ólason. Tönlist og létt umræða.
22.00 Jón Axel Ólafsson. Laugardagskvöld
með rokki og léttum söng.
18.00 MH
20.00 MS
22.00 FB
Óskalög og
ÞAR SEM
NWDIRMAR
FÁST
BEAUTY & DENISE
^ MYNDIR
myndbandaleigur
Álfabakki 14, sími 79050
Austurstræti 22, sími 28319
Ríkisfj ölmiðlarnir
Að þessu sinni fjallar dálkurinn
um ríkisfjölmiðlana. Annars
vegar gömlu Gufuna og hins vegar
ríkissjónvarpið er varpaði út spjall-
þætti frá hinu háa Alþingi í beinni
útsendingu. En fyrst er það gamla
Gufan.
Slcem útsending?
Ljósvakarýnirinn hefur víst áður
kvartað undan FM 92,4 og 93,5 en
þessi bylgjusvið hýsa gömlu góðu
Gufuna. Hér er átt við útsendingar-
styrk FM 92,4 og 93,5 sem jafnast
ekki alveg á við styrk FM 90,1 er
hýsir Rás 2 eða afl FM 90,9 sem
er svið hinnar nýju Aðalstöðvar og
tíðnisviðin FM 98,9 og FM 102,2
er fleyta Bylgjunni og Stjörnunni í
loftið eru líka alla jafna aflmeiri en
svið gömlu Gufunnar og EFF EMM
95,7 er einnig býsna kraftmikil.
Svo er stundum smávægilegt suð
á FM 92,4 og 93,5 sem gæti svo
sem verið í viðtæki undirritaðs en
það er þó ólíklegt því viðtækið er
splunkunýtt.
Siðferðiö
í fyrrakveld var óvenjulegur
umræðuþáttur á dagskrá ríkissjón-
varpsins. Stjórnandi þáttarins,
Bjarni Vestmann, settist með þeim
Guðrúnu Helgadóttur forseta sam-
einaðs þings, Sigurði Líndal laga-
prófessor og Eyjólfi Kjalar Emils-
syni heimspekingi í Kringluna í
Alþingishúsinu og ræddi um sið-
ferði stjórnmálamanna. Þátturinn
var óvenjulegur að því leyti að hann
fór fram í beinni útsendingu frá
hinu háa Alþingi. Það fylgir sér-
stakt andrúmsloft þessu aldna húsi
og þetta andrúmsloft seytlaði um
sjónvarpsáruna.
í annan stað var þátturinn
óvenjulegur vegna þess að hingað
til hafa Islendingar kosið að líta á
Alþingi sem flekklausa stofnun. Það
segir sína sögu um breyttan tíðar-
anda að slíkur þáttur skuli sendur
út frá sölum hins háa Alþingis. En
þjóðfélag okkar er víst að opnast í
alla enda og ljósvíkingar sitja um
Ríkisendurskoðun, þennan mikla
refsivönd íslenskra stjórnmála-
manna. Samt virðist nokkuð í land
að íslenskir ráðamenn njóti svipaðs
aðhalds og starfsfélagarnir á Norð-
urlöndunum eða í Bretlandi og
Bandaríkjunum. Þessi munur kom
berlega i ljós er Bjarni Vestmann
skaút inn í umræðuna myndbrotum
er sýndu ýmsa stjórnmálamenn frá
fyrrgreindum þjóðlöndum á harða-
hlaupum úr embættum fyrir sakir
sem íslenskum stjórnmálamönnum
hefðu þótt fremur léttvægar og
jafnvel skálað fyrir í „Gvendar-
brunnavatni". Eða eins og Eyjólfur
Kjalar komst svo spaklega að orði:
Stjórnmálamaður getur brotið eitt-
hvað af sér sem ekki brýtur skráð-
ar reglur en sem réttlætir samt
afsögn.
Innskot Bjarna var vandað og
vel unnið og hann spurði af hátt-
vísi og skynsemi. En innskotið
minnti á ýmis skrif sem hafa birst
í blöðum að undanförnu og benda
til að full ástæða sé til að efna til
slíks umræðuþáttar í sölum Al-
þingis. 27. okt. sl. var til dæmis
sagt frá því í DV að nokkrir þing-
menn skrá lögheimili sitt úti á
landi, jafnvel hjá pabba og mömmu,
þótt þeir búi hér í Reykjavík í eigin
húsnæði. Þannig fá þessir þing-
rnenn skattfrjálsar aukatekjur á
mánuði er nema 80.625 krónum.
Það er ekki hægt að krefjast þess
að almenningur beri virðingu fyrir
slíkum mönnum þótt þeir sitji á
Alþingi. En hvernig væri, Bjarni,
að beina næst sjónum að verkalýðs-
hreyfingunni? Þar fara menn frekar
í Moskvuboðsferð en blaka við
skattpíningarráðherrum, enda
hafnarverkamenn teknir að ókyrr-
ast.
Ólafur M.
Jóhannesson