Morgunblaðið - 04.11.1989, Side 13
míg. Þ'að’ vár fræriká ’mTri éiri’ ’sérii '
bjó á Óspakseyri sem kom því í kring
að ég og Jón Lýðsson á Skiiðinsenni
hittumst hjá henni. Hún hafði séð.
hann þegar Hólmavíkurkirkja var
vígð og fundist eins og hvíslað að
sér að þetta væri heppilegt manns-
efni fyrir hana Steinunni. Við Jón
sáumst þarna á Óspakseyri en töluð-
um ekkert orð saman. Um haustið
barst mér bréf þar sem hann falaðist
eftir mér sem ráðskonu. Ég ákvað
að hafa það til merkis um hvort ég
ætti að fara, hvort ég mætti hafa
með mér telpuna. Hann vildi það og
þá fór ég að Skriðinsenni sem ráðs-
kona. Hann hafði þá verið við búskap
þar í tíu ár og bjó ágætu búi. Hann
varð seinna hreppstjóri og oddviti.
Haustið eftir að ég kom að Skrið-
insenni trúlofuðumst við Jón. Fyrsta
barnið okkar fæddist árið 1924. Ég
fór suður til að fæða vegna þess að
þegar ég var í námi þar var ég grind-
armæld af Guðmundi Björnssyni
lækni. Hann sagði eftir mælinguna:
„Þér megið ekki giftast, þér hafið
of þrönga grind.“ Vegna þessara
orða fór ég suður til að fæða þó
ekki væri það átakalaust að ferðast
ófrísk á þeim tímum. En ég komst
suður og fæðingin gekk sæmilega
þó erfið væri. Ég bjó hjá vinkonu
minni, Önnu Thoroddsen, sem ég
hafði kynnst í kristilegum félags-
skap. Ég fór svo til Magnúsar Péturs-
sonar læknis sem þá var þingmaður
Strandamanna og bað hann að vera
viðstaddan fæðinguna. Hann gerði
það og deyfði mig svo ég fann ekki
eins mikið til. Þórunn mín Björns-
dóttir tók á móti barninu. Hin börnin
mín átti ég heima og gekk stundum
vel og stundum miður, öll lifðu þau
þó. Við Jón eignuðumst fimm böm,
Ónnu Jakobínu, Lýð, Ólafíu, Lilju og
Önnu Guðrúnu.
Ég átti mikið að lifa fyrir á Skrið-
insenni og kunni þar alltaf vel við
mig, sérstaklega þótti mér vænt um
að þar sá til sólar allt árið um kring.
Um deseiribersólina orti ég einu
sinni:
Dýrleg er desembersólin,
drottinn minn, lofa þig ber.
Gefðu öllum gleðileg jólin,
þá gleði sem kemur frá þér.
Á Skriðinsenni bjuggum við Jón
þar til ég var um sjötugt. Þá brugð-
um við búi og fluttum suður til
Reykjavíkur og bjuggum þar í fjögur
ár. Ég var mjög ánægð í Reykjavík
og var dugleg að starfa þar í kristi-
iegum félagskap sem ég hafði geng-
ið í þegar ég var að læra ljósmóður-
fræði forðum. Þegar hinir nemamir
fóm á böll þá fór ég á samkomur
hjá KFUK. Nú var ég komin til
starfa þar aftur. En svo fór Lilja
dóttir mín að búa á Skriðinsenni og
þá vildi Jón fara norður aftur og það
varð svo að vera þó ég sæi eftir því
að fara. Jón dó 17. ágúst 1969, átta-
tíu og tveggja ára gamall, en ég
dvaldi áfram á Skriðinsenni þar til
ég fór hingað á sjúkrahúsið. Ég
stytti mér stundir við að yrkja vísu
og vísu eins og ég hef löngum gert.
Sú nýjasta er svöna:
„Elli kerling ama fer
öll mér verkin tefur.
Rænir kröftum, ræðst að mér
og ráðrík völdin hefur."
Árið 1956 tók Steinunn Guð-
mundsdóttir á móti síðasta barninu
í sinni ljósmóðurtíð. Eftir að hún
hætti störfum fékk hún eftirlaun sem
hún hefur til þessa dags lagt óskert
til hliðar og þeir peningar hafa verið
ávaxtaðir fyrir hana. Þannig hefur
hún safnað fimm hundmð þúsund
krónum sem hún gefur í dag Kristni-
boðssambandi íslands til minningar
um mann sinn, Jón Lýðsson. „Ég
átti sælar stundir í samfélagi trú-
aðra,“ segir hún. „Ég hef aldrei ótt-
ast en treyst guði og það hefur ver-
ið óhætt. Frá því ég var barn hef
ég jafnan signt mig og beðið þænir
á morgnana og á kvöldin. Enn í dag
les ég á hverjum morgni kafla úr
Nýja testamentinu." Að skilnaði fer
Steinunn með fyrir mig fyrsta versið
í einum kvöldsálminum sínum. Það
færist barnsleg einlægni og tninað-
artraust yfir aldurhnigið andlitið
þegar hún segir versið fram með ei-
lítið titrandi röddu:
Ég lifi og ég veit, hve löng er mín bið,
ég lifi, uns mig faðirinn kallar,
ég lifi og ég bíð uns ég leysist í frið,
ég lifi sem farþegi qóinn við
uns heyri ég að Herrann mig kallar.
Guðrún Guðlaugsdóttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. NOVEMBER 1989
Islenskir dagar
efitir Pál Þ. Pálsson
Þessa dagana stendur yfir kynn-
ingarátak á vegum Félags íslenskra
iðnrekenda og Byko þar sem neyt-
endum er bent á íslenskar iðnaðar-
vörur. Átak þetta er hið fjórða í röð
svipaðra aðgerða þar sem fyrirtæki
innan vébanda FII vekja athygli á
því sem íslenskur íðnaður hefur upp
á að bjóða hvað varðar vöruúrval,
verð og gæði.
Eitt markmið slíks átaks hlýtur
alltaf að vera aukin sala og í beinu
samhengi aukin markaðshlutdeild
íslenskra iðnfyrirtækja — aukin at-
vinna eða a.m.k. aukið atvinnu-
öryggi er á þessum tímum mjög
mikilvægt. Annað meginmarkmið
slíks átaks og það e.t.v. ekki síðra
„Ætlum við gagnrýnis-
laust að horfa á iðnfyr-
irtæki neyðast til þess
að segja upp öllum
starfsmönnum sínum
vegna verkefnaskorts?"
en að gefa neytendum á augljósan
og metnaðarfullan hátt til kynna
að við emm í mörgum tilfellum
fullfær um að framleiða okkar eigin
vöru. Vöm sem ekki stendur að.
baki því sem framleitt er erlendis,
vöru sem er fyllilega samkeppnis-
fær í verði, vöm sem við getum
verið stolt af að nota.
Páll Þ. Pálsson
13
—:------------------------—r)
I þriðja lagi gefur svona átak
okkur ástæðu til þess að staldra
við og velta ögn fyrir okkur íslenskri.
atvinnustefnu. Ætlum við að flytja
inn atvinnuleysi frá öðrum löndum
eða ætlum við að halda uppi at-
vinnu hér á landi? Ætlum við gagn-
rýnislaust að horfa á iðnfyrirtæki
neyðast til þess að segja upp öllum
starfsmönnum sínum vegna verk-
efnaskorts? Ætlum við að flytja
allan fisk út óunninn í gámum eða
hver er atvinnustefna okkar? Byko
og önnur þjónustufyrirtæki sem
staðið hafa að íslenskum dögum
með okkur í FÍI eiga þakkir skildar
fyrir framtakið en þarna tel ég
hafa sannast að fyrirtæki í verslun
og iðnaði þurfa að starfa þéttar
saman ef takast á að mynda og
byggja upp íslenska atvinnustefnu.
Veljum íslenskt.
IlöfUndur er söIiLstjóri Plastprents hf.
SÝNING Á
FJALLATRÖLU
JPSuzuki Vitara er eklci bara kraft-
! mikill, lipur og þægilegur lúxusjeppi.
Hann getur auðveldlega verið fjallabíll í fremstu röð. Komið og
kynnist Suzuki Vitara sem við höfum breytt sérstaklega fyrir
fjallagarpana. Hann er upphækkaður, á stærri dekkjum
og tilbúinn til ferða hvert á land sem er, Suzuki Vitara er
farartæki sem sannir fjallamenn ættu að veita athygli.
Við sýnum hann í dag
í Faxafeni 10, Húsi Framtíðar.
Verð frá kr. 1.079.000
Opið frá 10-17 í dag.
$ SUZUKI
--«****----------
SVEINN EGILSSON ■ HÚSI FRAMTÍÐAR
FAXAFENI 10 • SÍMI 689622 OG 685100