Morgunblaðið - 04.11.1989, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. NOVEMBER 1989
Stiörnu-
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
í dag er það umfjöllun um
ástarmál Tvíbura (21. maí —
20. júní) og Krabba (21. júní
- 22. júlí).
Daöur
Hinn dæmigerði Tvíburi er
daðurgjam. í samkvæmum
gengur hann á milli manna,
talar mikið og brosir í allar
áttir. Hann hefur áhuga á
fólki en er samt sem áður
ekki lauslátur því áhugi hans
beinist fyrst og fremst að þvi
að ræða við fólk. Að vísu er
sagt að Don Juan hinn frægi
elskhugi hafi verið Tvíburi,
en það segir ekki margt. Cas-
anova var til dæmis Hrútur.
Umrυa
Það sem skiptir Tvíbura aðal-
máli er að ná hugmyndalegu
sambandi við fólk. Hann vill
fyrst og fremst tala og segja
sögur. Hann er þegar allt
kemur til alls ekki líkamlega
sinnaður. Tvíburinn getur því
talað mikið um ástina og það
sama gerist þegar í rúmið er
komið. Hann vill ræða málin
og því komast ástvinir hans
iðulega seint í draumalandið
þegar ástarævintýri með hon-
um eru annars vegar.
Skemmtilegar sögur
Það sem heillar Tvíbura eru
skemmtilegar sögur úr ólíkum
áttum. Ef við segjum honum
frá leit að demöntum í Amaz-
on-frumskóginum, listagall-
eríi i New York, nýjum og
spennandi skemmtistað í
Hafnarfirði og bætum við
nokkrum nýjum sögum úr
stjórnmála-, íþrótta- eða lista-
lífínu, þá eigum við Tvíbur-
ann. „Aha, þetta er „sexý“
gæi, hann veit margt."
Frelsi
í ástarlífinu er Tvíburinn
hress og léttur. Hann vill tala
um ástina, segja brandara og
prófa sig áfram með nýjar
aðferðir. Sagt er að við þurf-
um að gefa honum langt reipi,
eða varast að ætla okkur að
eiga hann eða hefta frelsi
hans.
Kertaljós
Krabbinn er tryggur í ást og
vináttu. A þeim sviðum sem
öðrum leitar hann öryggis og
varanleika. Það tekur nokk-
um tíma að komast nálægt
honum. Þegar hann verður
ástfanginn er ástæðan yfír-
leitt sú að hann finnur já-
kvæðan tilfinningastraum
liggja á milli sín og væntan-
legs maka. Það sem átt er við
er að Krabbinn elskar fyrst
og fremst vegna þess að hann
hrífst af gáfum, ættemi, pen-
ingum eða vöðvum. Krabbinn
er tilfínningamerki og er sem
slíkur veikur fyrir rómantík
og kertaljósum.
Keleri
Hinn dærnigerði Krabbi er
kelinn og töluvert gefínn fyrir
kossa og faðmlög. Sem elsk-
hugi er hann næmur, nær-
gætinn og vemdandi. Því er
vissara að skapa rólegt og
ljúft andrúmsloft þegar koma
á Krabbanum til, setja mjúka
tónlist á fóninn og þá helst
gömul lög sem vekja upp
sælar minningar. Tunglið hef-
ur sterk áhrif á Krabbann og
því er pottþétt að bjóða honum
niður í fjöru á fullu tungli og
flytja honum ástarljóð. Þetta
er kannski einum of mikið af
því góða en ætti samt að
varpa Ijósi á ástarlíf Krabb-
ans. Karlmenn í Krabbamerk-
inu eru hijúfari en konumar
og setja oft upp skel til að
vernda sig. Þeir sem lenda í
ástarævintýri með Krabban-
um geta þurft að gæta sín.
Krabbinn er ekki merki sem
stofnar til skyndikynna heldur
læsir klónum fast í þá sem
hann þráir. Það er því hægara
að komast í en úr þegar hann
er annars vegar.
GARPUR
8E/JÚRA } GA&PU8! \/OPNI,
P&A/SESS4') SKIPSTJÓR.I! l/EL-
/<OM.NUZ HEtAA!
ET yE>AE hMthsn \/ILL afsaka
/UHG. éG VeHÐ/tÐ F/AJHA
vefkfkafb /ngana. v/e>
ÞOFFUM AP þENNAN g
DýeMÆTA FSNG !
þÓ KOMSTALIÆS
tni/TULFGA, GA, ~
/iEL/H/NGUR UPP-
SJcEBVNNA/g EE.
'ONÝTUE , 06 PA6U.
/ O/PBÓT AN
Vatns...
ÓKKUF £ve
A£> S&MN'/Wfál,
AÐAÐSTDPA
y£>AP HAtisn.
VIÐGETO/UI
'ALLTAF FAE/B
06 SÓTTANNAN
ÍS7AKA þFþÖPF
EP'A
-4«
GRETTIR
57UNPD/H F/NlMST/VlÉí?G»4/M/ÍN
A€> HOKFA A GÖTUUFf-'
BRENDA STARR
FERDINAND
SMÁFÓLK
WMAT kinp of a report
CARP I5THI5? I 60TA
P-MINU5 IN EVERYTMIN6!
Hvers konar einkunnir eru þetta?
Ég er með falleinkunn í öllum fög-
um!
L00K AT MY BACK, MARCIE..
IT'5 STRAI6HT, ISN'T IT?
P0E5N T 600P P05TURE
COUNT FOR ANVTHIN67'
Horfðu á bakið á mér, Magga... Er góður limaburður einskis virði?
er það ekki beint?
BRIDS
Umsjón: Guöm. Páll
Arnarson
Stansby og Martel virðast
hafa staðið sig best í bandaríska
liðinu á HM. Hér unnu þeir góð-
an sigur, bæði í sögnum og vöm-
Austur gefur; allir á hættu.
Vestur
♦ G93
VÁK97
♦ 1094
*K109
Norður
♦ 654
¥642
♦ G8752
♦ 52
Austur
♦ 10
¥ DG103
♦ ÁKD3
♦ 8743
Suður
♦ ÁKD872
¥85
♦ 6
+ ÁDG6
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull Dobl
1 hjarta Pass 2 hjörtu 4 spaðar
Dobl Pass Pass Pass
Utspil: spaðaþristur.
Spilið er frá leik Bandaríkja-
manna og Ástrala í undanúrslit-
unum. Suðri er vissulega vor-
kunn að reyna við geimið, en
kannski hefði hann átt að segja
það beint. Vestur myndi dobla,
en það er ekki alveg sjálfsagt
mál að austur passi í þeirri stöðu.
Á hinu borðinu fóm AV í fimm
hjörtu eftir þá byijun, einn niður.
Utspil Martels var slags virði.
Sagnhafi spilaði strax laufás og
drottningu, en fékk á sig meira
tromp. Nu gat hann vissulega
stungið lauf í blindum, en austur
komst nær inn til að spila laufi
og skapa vöminni þannig tromp-
slag.
Ef vömin byijar á því að taka
þijá slagi á rauðu litina fæst
aldrei slagur á spaðagosa. Það
dugir heldur ekki að leggja niður
hjartaás og skipa yfír í tromp.
Sagnhafí getur þá opnað sam-
ganginn með því að spila tígli á
gosann — nokkuð sem hann
getur ekki leyft sér þegar tromp
kemur út strax.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á heimsmeistaramóti unglinga
í Kólumbíu í sumar kom þessi
staða upp í skák þeirra Shirov,
(2.495) Sovétríkjunum, sem hafði
hvítt og átti leik, og J. Sörensen
(2.335), Danmörku, Svartur lék
síðast 17. - Hf8-e8?
18. Rxf7! - Kxf7, 19. De6+ -
Kf8, 20. Re4 — Dd7 (Svartur
svarar hótuninni 21. Rg5, en
sleppir valdi á riddaranum á b6.)
21. Dxb6 - Bd4+, 22. Hxd4! -
cxd4, 23. Dxd4 - Kg8, 24. B3
og svartur gafst upp, því hann á
ekkert viðunandi svar við væntan-
legri tvöföldun hvíts á löngu
skálínunni með 25. Bb2.
Heimsmeistari unglinga varð
Búlgarinn Vasil Spasov og kom
það töluvert á óvart. Það vekur
athygli að Sovétmaður hefur ekki
unnið þennan titil síðan 1982,
þrátt fyrir að tvö síðustu ár hafí
þeir átt fjóra fulltrúa á mótinu
og þá langstigahæstu.