Morgunblaðið - 04.11.1989, Side 33
MORGÚNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1989
33
Þessir hringdu . . .
Óréttlátar reglur
Kona hringdi:
„Þeir sem fá atvinnuleysis-
bætur fá auk þess 75 krónur á
dag á hvert barn sem er á þeirra
framfæri. En skuidi maðurinn hjá
Innheimtustofnun sveitarfélaga
eru þessir peningar ekki greiddir
út heldur látnir renna upp í skuld-
ina. Þetta finnst mér óréttlátt og
tel fulla ástæðu til að breyta þess-
um reglum.“
Endurnýtum allar
plastumbúðir
Umhverfisverndarsinnihringdi:
„Erlendis færist það í vöxt að
endurnýta flestar tegundir um-
búða. Hér á landi er aðeinst tekið
við umbúðum sem greitt hefur
verið skilagjald af en því miður
er það aðeins brot af þeim umbúð-
um sem falla til á heimilum og
annars staðar. Þessar umbúðir
valda jafn mikilli mengun og hin-
ar sem greitt er skilagjald af. Það
er mikið af alls konar plastumbúð-
um sem mætti endurnýta og gætu
t.d. þroskaheftir fengið vinnu við
að flokka þessar umbúðir. Ég
myndi sjálfur með ánægju safna
saman öllum plastumbúðum sem
falla til á mínu heimili. endur-
gjaldslaust ef einhvers staðar
væri tekið við þeim til endurnýt-
ingar.“
Kona hringdi:
„Um síðustu helgi auglýsti Osta
og smjörsalan sérstakt kynning-
arverð á ostum. Ég fór og keypti
stóran ost en verðið reyndist vera
það sama og verslunum í heilum
stykkjum. Með þessu finnst mér
að verið sé að koma aftan að
fólki með auglýsingum. Ég hefði
ekki farið að standa þarna í bið-
röð fyrst afsláttur var enginn,.og
finnst mér að það hefði átt að
koma fram í auglýsingunni að
ekki væru ailir ostar á kynningar-
vefði. Ég spyr í framhaldi af
þessu hvort fæstir ostanna hafi
verið á kynningarverði þarna.“
Ættfræðifélagið
Áhugamaður um ættfræði
hringdi:
„Starfsemi Ættfræðifélagsins
virðist hafa fallið niður um tíma
og hef ég verð að velta því fyrir
mér hvort félagið hefur alveg lagt
upp laupana. Ef svo er kemur það
á óvart því áhugi á ættfræði hef-
ur síst minnkað og full þörf er
fyrir félagið. Væri ánægulegt ef
forráðamenn féiagsins létu frá sér
heyra og starfsemin kæmist í
gang á ný.“
Skilríki nauðsynleg
Afgreiðslukona hringdi:
„Ég vinn við afgreiðslu í
söluturni og hef þráfaldlega orðið
fyrir þeirri reynslu að ef ég bið
um skilríki eða bankakort bregst
viðskiptavinurinn ókvæða við og
sumir verða jafvel ókurteisir. Það
er skylda afgreislufólks að biðja
um þessi skilríki og í því felst
ekki vantraust á viðkomandi við-
skiptavin. Gaman væri að vita
hvort starfsfólk í verslunum hefur
ekki almennt sömu reynslu af
þessu.“
Þakkir
Steinunn hringdi:
„Ég vil þakka bílstjóranum á
Ö-3591 fyrir að aðstoða okkur
hjónin þegar sprakk hjá okkur um
síðustu helgi. Við erum eldri hjón
og vorum í stökustu vandræðum
þegar sprakk hjá okkur á Miklu-
brautinni. Það voru margir búnir
að aka frahjá þegar þessi ungi
maður nam staðar og spurði hvort
hann gæti hjálpað okkur. Við
þökkum honum innilega fyrir
hjálpina."
Er Manila ekki höfuðborg- Filippseyja?
Til Velvakanda.
í spumingaþætti Ómars Ragn-
arssonar, Landsleiknum, á Stöð 2
þann 29. október var spurt hvað
höfuðborg Filippseyja héti. Lið
Sauðárkróks svaraði að hún héti
Manila, en Ómar sagði það rangt,
án þess þó að segja hið „rétta“ nafn
höfuðborgarinnar.
Nú hef ég flett upp í ýmsum rit-
um og öll eru þau sammála um að
borgin Manila á Luzon-eyju sé höf-
uðborg Fiiippseyja. Ef Ómar Ragn-
arsson og dómari spurningaþáttar-
ins vita betur væri fróðlegt að
heyra frá þeim.
Þá langar mig að benda Ómari
á, að það er ekki nóg að hrista
höfuðið og segja svör keppenda
röng, heldur eiga bæði þeir ogy
áhorfendur heima í stofu rétt á að
vita réttu svörin. Það er a.m.k. min
reynsla að lítið sé varið í að
spreyta sig á spurningunum ef rétt
svör eru ekki gefin upp, eins og því
miður hefur allt of oft komið fyrir
í Landsleiknum. Mig langaði að
koma með þessar vinsamlegu
ábendingar um leið og ég þakka
fyrir annars ágætan þátt.
Sjónvarpsáhorfandi
Hvers vegna er Bessastaðanes lokað?
Til Velvakanda.
I góðviðrinu í síðustu viku ákvað
ég að fara út í Bessastaðanes og
ganga um gamlar æskuslóðir og
njóta náttúrufegurðarinnar og
fugjalífsins.
Ég kom hins vegar að læstu
hliði fyrir austan Bessastaði, sem á
var Ietrað að öll umferð um svæðið
væri stranglega bönnuð. Það varð
því ekkert úr gönguferð minni um
þetta svæði.
Þetta kom mér mjög á óvart, því
ég veit ekki til þess að Bessastaða-
nesið hafi áður verið svo lokað. Á
meðan það var í einkaeign var það
öllum opið og ekki amast við göngu-
ferðum almennings. Annars staðar
á Álftanesinu er öll umferð gang-
andi fijáls og er það vel því Alfta-
nesið er mikil náttúruperla.
Því er mér spurn: Hvers vegna
er Bessastaðanesið, sem er land í
ríkiseign, bannað umferð gangandi
fólks?
Gamall Álftnesingur
Andespil (bingó) -
Foreningen Dannebrog heldur sitt árlega
matarbingó í Risinu, Hverfisgötu 105,
4. hæð, sunnudaginn 5. nóvember.
Húsið opnað kl. 20.00.
Stjórnin.
MÍR - Opið hús
í tilefni þjóðhátíðardags Sovétríkjanna og 72 ára af-
mælis Öktóberbyltingarinnar verður OPIÐ HÚS í fé-
lagsheimili MÍR, Vatnsstíg 10, laugardaginn 4. nóv.
kl. 14-18. Þar verður sitthvað á dagskrá fram eftir
degi. M.a. spjallar Leoníd Vakhtin, fulltrúi í sovéska
sendiráðinu, á íslensku um pererstrojku og nýjustu
viðhorf, kvikmyndir verða sýndar, hlutavelta, basar,
kaffiveitingar.
Allir velkomnir. - MÍR.
Jólasveinar
eruákreiki
í gluggunum
í Hafnarstræti
til að minna ykkur á, að óðum
styttist til jóla og að
betra er að hafa timann
fyrir sér ef jólagjafirnar
til vina og ættingja
erlendis eiga
að ná fram í tíma...
VIS göngum frá og sendum
jólapakkana um allan heim. ___________
Allar sendingar eru fulltryggdar
yður að kostnaðarlauau.
RAHnAGERÐIN
HAFNARSTRÆTI 19
ffll
LEIKFIMI FYRIR ALLA
HRFSS
lik/\msiu:kt cx; i;ios
BÆJARHRAUNI 4
V/KEFLAVlKURVEG
Drffðu
þig með!
Skráðu þig strax
ísíma 65 22 12