Morgunblaðið - 04.11.1989, Page 36
r Leikrit vikunnar
Kl. 16:20
MAKBEÐ
FLÓRIDAi*
einmitt núna
LAUGARDAGUR 4. NOVEMBER 1989
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Islendingur handtekinn í Lundúnum:
Grunaður um aðild
að stórfelldri föls-
un á dollaraseðlum
ISLENDINGURINN Jósafat Arngrímsson, sem einnig hefur geng-
ið undir nafninu Joe Grimson erlendis, hefur verið handtekinn í
Lundúnum, grunaður um að reyna ásamt fjórum öðrum að svíkja
stórfé út úr brezkum banka, National Westminster Bank. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins eru þeir grunaðir um aðild að
stórfelldri fölsun bandarískra dollaraseðla, upp á allt að 20 milljón-
um dollara eða 1,2 milljörðum íslenzkra króna.
Ríkisútvarpið greindi frá því í
gærkvöldi að Jósafat hefði verið
handtekinn um miðjan september
Yfir 30
innbrot
upplýst
Rannsóknarlögregla rikis-
ins hefur upplýst á fjórða tug
innbrota í fyrirtæki sem fram-
in voru á Vesturlandi, Suður-
landi og Austfjörðum frá
ágústlokum. Oft voru pen-
ingaskápar spenntir upp á
staðnum, eða þeir fluttir á
brott. Níu menn áttu hlut að
máfi og sitja fímm þeirra nú
í gæsluvarðhaldi.
Mennirnir níu störfuðu í
tveimur hópum og vissi hvorug-
ur af hinum. Sum innbrotanna
voru á höfuðborgarsvæðinu.
Þegar mennirnir fóru í leiðangra
út á land stálu þeir í nokkrum
tilfellum bílum af bílasölum. Oft
gerðu þeir það með þeim hætti
að fá bílana lánaða til reynslu-
aksturs en skila bílasala röngum
lykli. Náðu þeir síðan í bílinn í
skjóli myrkurs.
Jón Snorrason, deildarstjóri
hjá Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins, sagði að mennirnir hefðu
farið í þjófnaðarleiðangra út á
land, vestur um land allt til
Blönduóss og um Suðurland og
Austfirði allt að Egilsstöðum.
Hann sagði að mennirnir, sem
eru á tvítugs- og þrítugsaldri,
hefðu flestir langan afbrotaferil
að baki.
fyrir fjársvik. Ákæra á hendur hon-
um og hinum • mönnunum fjórum
væri ekki tilbúin.
Hjalti Zóphaníasson, deildarstjóri
í dómsmálaráðuneytinu, segir að
alþjóðalögreglan Interpol hafi beðið
ráðuneytið um upplýsingar um
sakaferil Jósafats og hafi sakavott-
orð hans verið sent til Lundúna.
Bogi Nilsson, rannsóknarlögreglu-
stjóri, segir að málið hafi ekki kom-
ið til kasta RLR. í sendiráði íslands
í Lundúnum feng^ust einnig þær
upplýsingar að þangað hefði ekki
verið leitað vegna rannsóknar máls-
ins.
Jósafat Arngrímsson hefur áður
verið handtekinn fyrir fjársvik. Árið
1965 hlaut hann dóm fyrir skjala-
fals og ávísanasvindl í Keflavík, þar
sem hann bjó og rak sjö fyrirtæki.
Hann afplánaði ekki allan dóminn.
Síðar flutti hann til Irlands og tók
sér nafnið Joe Grimson. Árið 1987
sat hann í ensku fangelsi í sex
mánuði fyrir tilraun til að svíkja fé
út úr banka. Á svipuðum tíma var
hann ákærður fyrir svik í viðskipt-
um við norskan skreiðarverkanda
og írskan og norskan banka. Þá var
hann í félagi við nokkra Breta.
Morgunblaðið/Björn Sveinsson
Jólaundir-
búningur
á Héraði
Egilsstöðum.
SKÓGARVINNA er hafin á veg-
um verkefhisstjórnar um rækt-
un nytjaskóga á Fljótsdals-
héraði og jólaundirbúningurinn
er raunar hafinn hjá skógar-
bændum.
Hjá skógræktinni á Hallorms-
stað er nú unnið við að merkja
þau tré sem eiga að standa i stof-
um Austfirðinga um jólin. Vinna
við 'að fella jólatrén hefst svo í
byijun desember. Gert er ráð fyr-
ir að frá Hallormsstað komi um
800 jólatré. Hjá Skógræktarfélagi
Austurlands verða felld um 250
tré. Búist er við verð á jólatijám
hækki um 25% frá því í fyrra.
- Björn
Þorbjörg Guttormsdóttir
grisjar kjarr í skóginum.
Bátur
brotnar við
sjósetningu
Skagaströnd.
ARNARBORG HU-11, sem er 70
tonna trébátur, valt á hliðina og
brotnaði nokkuð þegar verið var að
setja hann á flot úr dráttarbraut-
inni á Skagaströnd um klukkan
14.30 í gær. Brotnaði báturinn
nokkuð. Leki kom að honum fyrir
neðan sjólínu og flæddi sjór í lest.-
ina. Ó.B.
Vanskil við Byggða-
stoftiun 1,2 milljarðar
Óskar eftir 500 milljóna lántökuheimild
BYGGÐASTOFNUN hefur óskað
eftir að fá nú þegar 500 milljóna
króna aukna lántökuheimild
vegna erfiðrar fjárhagsstöðu, en
stofnunin hefur nú hætt lánveit-
ingum vegna fjárskorts. Fjallað
var um beiðnina á fundi ríkis-
stjórnarinnar í gær, en engin
ákvörðun var tekin í því sam-
bandi.
Að sögn Guðmundar Malmquist,
forstjóra Byggðastofnunar, er
ástæðan fyrir erfiðri íjárhagsstöðu
stofnunarinnar aðallega vegna lé-
legrar innheimtu á þessu ári.
Vanskil við stofnunina um síðustu
áramót voru 525 milljónir, en þau
eru 1.200 milljónir í dag, og er gert
ráð fyrir að innheimtan á þessu ári
verði um 300 milljónum lakari en
áætlað var. Þá hefur stofnunin þurft
að kaupa eignir á nauðungarupp-
boðum fyrir tæplega 300 milljónir á
árinu, en um síðustu áramót átti
stofnunin eignir fyrir 7 milljónir. Þá
hefur Byggðastofnun veitt lán að
upphæð um 1.200 milljónir á árinu,
og nú er svo komið að stofnunin er
komin í þrot, og getur ekki borgað
út meira af lánum á þessu ári nema
auknar Iántökuheimildir komi til.
Við höfum því farið fram á heimild
til að taka 500 milljóna króna erlent
lán, til þess að stofnunin geti haldið
áfram að sinna afgreiðslu á nýjum
lánum,“ sagði Guðmundur.
Fjáröflun Greenpeace:
A
Islendingar enn sagð-
ir stunda hvalveiðar
í BRÉFI, sem Greenpeace-sam-
tökin sendu til stofhana og fyrir-
tækja í Bandaríkjunum í lok ágúst
með ósk um fjárframlög, er full-
yrt að Islendingar stundi enn
hvalveiðar, þrátt fyrir alþjóðlegt
bann við hvalveiðum í hagnaðar-
skyni. Hjá skrifstofú Greenpeace
Tillögur um að 280 lög og
lagaákvæði verði felld brott
FRUMVARP, sem gerir ráð fyrir að um 280 lög og Iagaákvæði
verði felld úr gildi, verður lagt fyrir ríkisstjórnina í næstu viku
og búizt er við að frumvarpið komi fyrir Alþingi áður en því
lýkur í vor. Tilgangurinn með því er að afhema ýmis lög og
Iagaákvæði sem ekki þykja lengur hafa raunhæft gildi, og er
þetta víðtækasta lagahreinsun sem gerð hefur verið.
Ármann Snævarr lagaprófess-
or hefur einkum sinnt undirbún-
ingi frumvarpsins. Hann er for-
maður lagahreinsunarnefndar,
sem Alþingi skipaði samkvæmt
þingsályktunartillögu 1985. Ár-
mann sagði í samtali við Morgun-
blaðið að mikil og víðtæk rann-
sókn á gildandi lögum lægi að
baki frumvarpinu. Tillögur væru
gerðar um að 260 lög féllu úr
gildi, og auk þeirra 20-25 einstök
lagaákvæði.
Elztu lögin, sem frumvarpið
tekur til, eru frá 1646, og lagt
er til að mikið af lögum frá 17.,
18. og 19. öld falli brott. Tals-
vert er af lögum frá þessari öld,
sem þykja úrelt, þau yngstu frá
síðasta ári. Ármann sagði að oft
gleymdist að fella úr gildi ýmis
„einnota" lög, sem til dæmis fjöl-
luðu um einstakar lántökur, sölu
fasteigna eða eignarnám.
Ármann sagði að nefndin hefði
tekið þá stefnu að halda í ýmis-
legt fágæti í lögunum, til dæmis
kansellíbréf frá 1828, sem kveður
á um að kirkjuhurðum skuli
þannig hagað að „þeim verði lok-
ið upp að innan og gangi út“.
Þá hefði verið ákveðið að þyrma
hinum fornu lögum, til dæmis
ákvæðum úr Jónsbók frá 1281,
sem enn eru nokkur í gildi, enda
væru það skynsamleg og ágæt
lög. „Aðalsjónarmiðið er. laga-
hreinsunarsjónarmið, en á móti
kemur lagaverndarsjónarmið hjá
okkur, við viljum. vernda hin
fornu lög,“ sagði Ármann. „Við'
ætluðum að þyrma lögunum um
friðun héra, en Jpeir gerðu okkur
þann óleik á þínginu í fyrra að
afnema þau.“
í Washington var Morgunblaðinu
í gær sagt að bréfið liefði verið
ritað á meðan hvalveiðar voru enn
stundaðar og fyrir mistök hefði
það verið sent út.
Bréf Greenpeace er undirritað af
Peter Bahouth, yfirmanni Green-
peace í Washington. Hann fer fram
á fjárframlög, til að samtökunum
sé unnt að halda áfram baráttu sinni
gegn hvalveiðum og höfrungadrápi
túnfiskveiðimanna. Þá segir að ein-
mitt núna drepi skipaflotar Japana
og íslendinga hvali þrátt fyrir al-
þjóðlegt bann við hvalveiðum í hagn-
aðarskyni. í bréfinu er fjallað um
vísindaveiðar og sagt að það eina
sem komið hafi út úr „rannsóknun-
um“ séu milljóna dollara hagnaður
íslendinga af sölu hvalkjöts til Jap-
an.
Á skrifstofu Greenpeace í Wash-
ington fékk Morgunblaðið þau svör
í gær, að Peter Bahouth væri ekki
við. Hins vegar kannaðist starfsfólk
skrifstofunnar við umrætt bréf og
sagðist vita að staðhæfing um hval-
veiðar Islendinga ætti ekki við rök
að styðjast. Bréfið hefði hins vegar
verið ritað á meðan hvalveiðar voru
stundaðar, en ekki sent út fyrr en
nú í haust. Mistökin hefðu upp-
götvast fljótlega og aðeins fá bréf
komist í umferð. Starfsfólkið sagði
aðspurt, að þeim fyrirtækjum og
stofnunum, sem hefðu fengið bréfið,
hefði ekki verið send leiðrétting.