Morgunblaðið - 08.11.1989, Side 2
2
G?ei ■mwm-fov. x fluoAGirawcgT* uuu, T*r/Mn?ov
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1989
Saltsíldarsalan til Sovétríkjanna:
Fullgerður samn-
ing’ur stöðvaður
SAMNINGUR um sölu saltsíldar til Sovétríkjanna, sem samninga-
nef'nd Síldarútvegsnefndar hafði náð við innkaupastofhunina
Sovrybflot síðastliðinn laugardag, var samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins stöðvaður í sjávarútvegsráðuneytinu þar eystra. Samn-
ingurinn var háður samþykki ráðuneytisins og því ekki undirritað-
ur þá og bíður hann frekari umfjöllunar stjórnvalda í Kreml að
loknum hátíðahöldum vegna byltingarafmælisins.
Samninganefndarmenn SÚN í
Moskvu vörðust. allra frétta af
gangi mála, þegar Morgunblaðið
ræddi við þá í gær. Sömu sögu
er að segja af nefndarmönnum í
Síldarútvegsnefnd og því er hvorki
vitað um hve mikið hefur verið
samið né á hvaða verði. Líklegt
er talið að samband náist við sjáv-
arútvegsráðhérra Sovétríkjanna
að loknu byltingarafmælinu eftir
miðja viku, en það hefur ekki
fengizt staðfest.
í fyrra var samið um sölu á
150.000 tunnum af hausskorinni
og slógdreginni síld og möguleika
á sölu 50.000 tunna til viðbótar
að fengnu samþykki stjórnvalda
eystra. Það samþykki fékkst ekki
þá, en söltun varð engu að síður
mikil vegna aukningar söltunar
fyrir önnur lönd.
Síldarsöltun er nú í lágmarki,
bæði vegna þess að lítið veiðist
af stærstu síldinni og þess, að
söltun upp í aðra samninga er
langt komin. Staðfest undirritun
samninga um saltsíldarsöluna hef-
ur aldrei verið jafnseint á ferðinni
og nú, og er víða uggur í saitend-
um og öðrum þeim, er afkomu
sína byggja á gjöfulli síldarvertíð
vegna þess. Einstaka saltendur
eru farnir að huga að uppsögn
starfsfólks síns vegna þessa drátt-
ar.
Tillaga meirihluta
5i V:Liíi*.
Wy- t * jjí,,
__ „ : n I ';Í!!
• 3Tí ” v»*«i S18«*s«i«tH 'IíiiiiliI«Tí.11111IL iiiii
•Í ,:k! :: piif S.**!**-, iiiii
, :: i«»:: ****>»" ${
„3] rrm w* - -«? j®L21
11 ’i . „ . . -------— —T
UltS'SST.*»
Meirihluti nefndar um sameiningu
sjúkrahúsa í Reykjavík leggur til að
Borgarspítalinn og Landakotsspítali
verði sameinaðir undir nafninu Sjúkra-
hús Reykjavíkur.
nefiidar um sameiningu spítala:
Þingsályktun-
artillaga:
Könnun á
jarðgöng-
um til Eyja
Á ALÞINGI hefúr verið lögð
fram þingsályktunartillaga
Árna Johnsen og fímm ann-
arra þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins um að ríkisstjórninni
verði falið að láta gera for-
könnun á gerð tveggja ak-
reina jarðganga milli Vest-
mannaeyja og lands. Kannaðir
verði tæknilegir möguleikar
og hagkvæmni jarðganga-
gerðar, og einnig fjárhagsleg
arðsemi með tilliti til fólks-
og vöruflutninga.
í greinargerð með þingsálykt-
unartillögunni kemur meðal
annars fram að árlega férðast
nálægt 20 þúsund manns milli
lands og Eyja með flugvélum og
skipum, en íbúar í Vestmanna-
eyjum eru um fimm þúsund tals-
ins. Vísað er til yfirstandandi
forkönnunar á gerð jarðganga
undir utanverðan Hvalfjörð, þar
sem kostnaður sé áætlaður um
þrír milljarðar króna fyrir fimm
kílómetra berggöng, og svipað
fyrir tveggja kilómetra stokk og
fyllingar yfir fjörðinn, en milli
lands og Eyja eru 10 kílómetrar
milli stranda þar sem styst er.
Borgarspítali og Landakot
verði Sjúkrahús Reykjavíkur
MEIRIHLUTI nefhdar sem heilbrigðisráðherra skipaði um samein-
ingu spítalanna í Reykjavík Ieggur til að Borgarspítalinn og Landa-
kotsspítali verði sameinaðir undir heitinu Sjúkrahús Reykjavíkur,
sem verði sjálfseignarstofhun. Lagt er til að langlegudeildir spítal-
anna verði á Landakoti en öll bráðaþjónusta á Borgarspítalanum.
Tveir nefhdarmanna, Árni Björnsson formaður læknaráðs Land-
spítalans og Davíð Á. Gunnarsson lramkvæmdastjóri, leggja til
að Landspítalinn og Borgarspítalinn verði sameinaðir, þar sem
ekki sé grundvöllur fyrir að 250 þúsund manna þjóðfélag reki tvo
háskólaspítala. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fiilltrúi Reykjavíkur-
borgar í nefhdinni segir að sameining Borgarspítalans og Landspít-
alans komi ekki til greina.
„Þetta er tillaga að ályktun
nefndarinnar sem meirihluti henn-
ar leggur til,“ sagði Olafur Örn
Arnarson formaður læknaráðs
Landakots. „Landakotsspítali
stendur að mörgu leyti á kross-
götum. Hann hefur farið illa út
úr fjárveitingum til rekstrar und-
anfarin ár. Þær hafa verið naumt
skammtaðar og erfitt að reka
spítalann með eðlilegum hætti.“
Olafur Örn sagði að vegna
þrengsla á lóðinni væru litlir
möguleikar á stærra húsnæði þar
og að mörgu leyti féllu þessir
spítalar mjög vel saman. Sjúkra-
hús Reykjavíkur yrði mjög skyn-
samleg stærð, það sem annar
hefði, skorti hinn.
Sameining spítalanna kæmi til
með að taka langan tíma. Augljós-
lega þyrfti að byggja þær deildir
upp á Borgarspítalanum sem
flyttu af Landakoti, til dæmis
skurðstofur og röntgendeild. „Við
höfum áætlað að flutningur á rönt-
gendeild muni koma til með að
kosta um 1 til 1,5 milljarða króna,“
sagði Ólafur Öm. „Það er alveg
ljóst að hvaða sameining spítala
sem rætt er um mun ekki leiða
til sparnaðar heldur þvert á móti
verulegra útgjalda í upphafi og
síðan er spurningin hvort sparnað-
Alþýðusamband Islands:
Ríkisstjórnin hefiir staðið illa
við loforð vegna kjarasamninga
MISBRESTUR hefur orðið á efndum á þeim fyrirheitum sem ríkis-
stjórnin gaf Alþýðusambandi Islands í tengslum við gerð kjarasamn-
inga í vor, að því er fram kemur í svari ASI við fyrirspurn frá Karv-
eli Pálmasyni, alþingismanni, sem Karvel kynnti á Alþingi í gær og
var hann þungorður í garð ríkissljórnarinnar. Sérstök athygli er í
brélínu vakin á því að ítrekað hafi þurft að beita ríkisstjórnina sér-
stökum þrýstingi til þess að hún stæði við loforð sín. í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi sagði Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráðherra, að hann hefði ekki kynnt sér efni bréfs ASl og vildi því
ekki tjá sig um málið.
í svari ASÍ er farið yfir bréf for-
sætisráðherra í tengslum við kjara-
samningana lið fyrir lið. Þar kemur
meðal annars fram varðandi verð-
lagsmál að ekki sé greinanlegt að
ríkisstjórnin hafi staðið fastar gegn
verðhækkun en áður hafi tíðkast,
þrátt fyrir loforð þar um og að
heildsöluverð rafmaghs frá Lands-
virkjun hafi hækkað meira en for-
sendur fjárlaga gerðu ráð fyrir.
Rakið er hvernig ákvarðanir um
hækkun á mjólk og bensíni í júní
gengu til baka að hluta til eftir
ur næst þegar fram í sækir, það
er að segja ef ekki á að skera nið-
ur þjónustu."
Gert er ráð fyrir að langlegu-
deildin í B-álmu Borgarspítalans
verði flutt í Landakot og að bráða-
þjónusta Landakots fái B-álmuna.
Með þeirri skipan er talið að ná
megi eðlilegri nýtingu á báðum
húsunum.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
leggur til að komið verði á sam-
starfsnefnd milli Sjúkarhúss
Reykjavíkur og Landspítalans.
Þannig megi ti-yggja samstarf
þessara tveggja spítala og hag-
kvæmustu lausn hveiju sinni, en
öll umfjöllun um verkaskiptingu
hefur verið í algeru lágmarki und-
anfarin ár.
mótmæli fólks meðal annars á fjöl-
mennum fundi á Lækjartorgi sem
samtök launþega stóðu fyrir. Þá
hafi hækkun mjólkurvara í septem-
ber einnig gengið til baka að hluta
eftir mótmæli samtaka launafólks.
Þá kemur einnig fram að ekki
hafi verið haft samráð við samtök
launafólks um úrbætur í skattamál-
um eins og lofað hafi verið, né sé
ASÍ kunnugt um að ríkisstjórnin
hafi látið kanna skattlagningu líf-
eyrisiðgjalda með tilliti til tvískött-
unar. Ekki hafi ASÍ heldur verið
gefin kostur á að fylgjast með und-
irbúningi virðisaukaskatts.
Tillögur um aðstoð við loðdýrarækt:
Jarðasjóði verði auð-
veldað að kaupajarðir
SAMKVÆMT tillögum nefndar
sem fjallar um vanda loðdýra-
ræktarinnar er talið nauðsynlegt
að Jarðasjóði ríkisins verði auð-
veldað að kaupa jarðir þeirra
loðdýrabænda, sem ekki geta
setið þær vegna áhvílandi skulda,
og Stofnlánadeild landbúnaðar-
ins verði gert kleyft að taka þátt
í nauðarsamningum við loðdýra-
bændur, án þess að koma þurfi
til nauðungaruppboða jarða
þeirra áður. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins stóð til að
kynna tillögurnar á fundi ríkis-
stjórnarinnar í gær, en því var
frestað um sinn.
Tillögur nefndarinnar munu vera
hugsaðar sem almennar aðgerðir
fyrir búgreinina, og miða að því að
auðvelda einstökum loðdýrabænd-
um að taka ákvarðanir varðandi
framhald búskaparins.
Gert er ráð fyrir að skuldbreyt-
ingar lausaskulda verði með ríkis-
ábyrgð vegna þess að bændur geta
í flestum tilfellum ekki lagt fram
fullnægjandi veð vegna skuldbreyt-
ingalána. Miðað verði við lífdýra-
stofn eins og hann var í ársbyrjun
1988, og verði lánaðar 7.700 krón-
ur á hverja refalæðu og 5.000 krón-
ur á minkalæðu. Gert er ráð fyrir
að lánin verði verðtryggð með 5%
vöxtum, en lánstíminn verði 12 ár,
og án afborgana fyrstu þijú árin.
Rekstrarstyrkir fyrir næsta ár,
samtals um 100 milljónir króna
miðað við óbreyttan lífdýrastofn,
eru miðaðir við að bændur fengju
fjármagn fyrir framleiðslukostnaði
án vaxta og afskrifta. Gert er ráð
fyrir samskonar rekstrarstyrkjum
árið 1991.
íslandslax:
Greiðslustöðv-
un lýkur í dag
Greiðslustöðvun íslandslax
hf. í Grindavík lýkur í dag,
og sat stjórn fyrirtækisins á
fiindi fram á kvöld í gær, þar
sem fjallað var um stöðu þess.
Að sögn Axels Gíslasonar
stjórnarformanns voru ekki
teknar neinar ákvarðanir á
fundinum, og var honum frest-
að til dagsins í dag.
íslandslaxi hf. var veitt
greiðslustöðvun til þriggja mán-
aða í byrjun júní, og 8. septem-
ber var heimildin framlengd um
tvo mánuði. Heildarskuldir fyrir-
tækisins voru taldar um 800
milljónir í júníbyijun, og eigið
fé neikvætt um 60-70 milljónir.
Við bráðabirgðauppgjör í lok
júní kom síðan í ljós að skuldirn-
ar voru um 970 milljónir. ís-
landslax er að 51 hundraðshluta
í eigu SÍS og dótturfyrirtækja
þess, en 49% eru í eigu norska
fyrirtækisins Noraqua.