Morgunblaðið - 08.11.1989, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1989
Vandi fyrirtækja:
Framkvæmdasj óð-
ur vanmegmigur
TEKJIJR Framkvæmdasjóðs
Akureyrarbæjar á þessu ári eru
13,8 milljónir króna. Þetta kom
fram í máli Heimis Ingimars-
sonar bæjarfulltrúa Alþýðu-
Trésmiðjan
Vinkill sf.
gjaldþrota
Trésmiðjan Vinkill sf. var úr-
skurðuð gjaklþrota á mánudag að
beiðni stjórnenda fyrirtækisins. I
síðustu viku var íyrirtækið innsi-
glað vegna vangoídinna gjalda.
Trésmiðjan Vinkill sf. var um það
bil tíu ára gamalt fyrirtæki og hjá
því störfuðu um tíu manng. Fyrirtæk-
ið fékkst fyrst og fremst við innrétt-
ingasmíði, svo sem eldhús- og bað-
innréttingar og smíði fataskápa.
í síðustu viku var fyrirtækið innsi-
glað þar sem ekki hafði verið staðið
í skilum varðandi opinber gjöld. Fyr-
irtækið var ekki opnað aftur, en á
föstudag lögðu forráðamenn þess inn
beiðni hjá bæjarfógetanum á Akur-
eyri um að fyrirtækið ýrði tekið til
gjaldþrotaskipta. Fyrirtækið var úr-
skurðað gjaldþrota í fyrradag. Að
sögn Arnar Sigfússonar skiptaráð-
anda er ekki Ijóst hversu miklar kröf-
ur eru í búið.
bandalagsins á fundi bæjar-
stjórnar Akureyrar í gær.
Arður frá Slippstöðinni sem
rann til Framkvæmdasjoðs vai' 1,9
milljónir króna. Frá Útgerðarfé-
lagi Akureyringa komu 6 milljónir
króna og frá Krossanesi 3 milljón-
ir. Fengnar afborganir lána námu
700 þúsund krónum. Heildartekjur
sjóðsins nema 13,8 milljónum
króna á þessu ári.
Heimir sagði Framkvæmdasjóð
vanmegnugan að mæta vanda fyr-
irtækja. Hann sagði að ástandið
væri þannig nú að fjölmargir
þeirra sem skulduðu sjóðnum
bæðu um niðurfellingu skulda eða
nauðasamninga vegna skulda
sinna.
A fundi atvinnumálanefndar
sem haldinn var í gær kom fram
að afborganir lána til sjóðsins hafa
verið mjög litlar og ráðstöfunarfé
af skornum skammti, en það gerði
nefndinni erfitt fyrir að veita að-
stoð.
Ljósmynd/EHB
Ráðstefna ogsýningá vegum Lagnafélagsins
Lagnafélag Islands stóð fyrir ráðstefnu og sýningu í Verkmenntaskólanum á Akureyri á laugardag-
inn. Þar voru flutt átta erindi og alls tóku 15 fyrirtæki þátt í sýningu sem var í málmiðnaðarverk-
stæði skólans. Þátttaka á sýningunni var aligóð. Að Lagnafélagi Islands standa pípulagningamenn,
blikksmiðir, tækni- og verkfræðingar sem vinna á þessu sviði sem og innflytjendur og framleiðend-
ur hér á landi. A myndinni eru firá vinstri Sigurður Hermannsson framkvæmdastjóri Verkfræði-
stofu Norðurlands, Haukur Jónsson frá Verkmenntaskólanum og Kristján Ottósson framkvæmda-
stjóri Lagnafélags Islands.
Atvinnumál rædd á bæjarstjórnarfímdi:
Krossanesdeilan:
Samninga-
fundur hald-
inn í gær
SAMNINGAFUNDUR í deilu
Verkalýðsfélagsins Einingar og
Krossanesverksmiðjunnar var
haldinn í gær og í gærkvöldi var
búist við að hann myndi standa
fram á nótt.
Sævar Frímannsson formaður
Einingar sagði í gærkvöldi að engar
ákveðnar tillögur hefðu verið lagðar
fram, en menn væru að þreifa fyrir
sér og leita leiða til lausnar á deil-
unni. „Menn eru að velta ýmsu fyrir
sér og mér sýnist á öllu að vilji sé
fyrir því að leysa þessa deilu,“ sagði
Sævar.
Ekki verr í stakk búnir til að
mæta erfiðleikum en aðrir
segir Sigurður J. Sigurðsson forseti bæjarstjórnar
ATVINNUMÁL voru til sérstakrar umræðu á fundi bæjarstjórnar Akur-
eyrar sem haldinn var í gær. Sigurður J. Sigurðsson forseti bæjarstjórn-
ar hóf umræðuna sem hann sagði til komna m.a. vegna hækkandi at-
vinnuleysistalna, gjaldþrots eins stærsta byggingafyrirtækis bæjarins,
Híbýlis hf., og uppsagna allra starfsmanna Slippstöðvarinnar hf. Á
fundinum lögðu fulltrúar Alþýðubandalags fram ályktun, sem sameinuð
var ályktun atvinnumálanefndar, þar sem skorað var á stjórnvöld að
móta stefnu í málefnum skipasmíða. Ályktunin var samþykkt samhljóða.
Sigurður J. Sigurðsson hóf um-
ræðu um atvinnumál og rakti hann
þróun þeirra mála síðustu árin og
ræddi hlutverk sveitarstjórna á
hveijum tíma varðandi þátttöku í
atvinnulífinu. Sigurður sagði að í
nóvember á síðasta ári hefðu farið
að koma fram tölur sem sýndu að
atvinnuleysi væri að aukast, sérstak-
lega í yngsta aldurshópnum, frá 18
til 30 ára. Hann sagði að í september-
mánuði síðastliðnum hefðu um 2.100
manns verið án atvinnu, sem væri
fjórfalt fleiri en á sama tíma árið
1987. Hvað Norðurland eystra varð-
aði væri atvinnuleysi í fullu samræmi
við landsmeðaltal þar um og væru
fimm kjördæmi í landinu með hærri
atvinnuleysistölu en er á Norðurlandi
eystra. Sigurður sagði marga þætti
spila þar inn í, m.a. hefði hagvöxtur
farið minnkandi síðustu ár, kaup-
máttur launa hefði lækkað og gert
væri ráð fyrir að hann lækkaði enn
Atvinnumálanefiid Akureyrarbæjar:
Skorar á sljórnvöld að endurskoða
tafarlaust reglur um skipasmíðaiðnað
Borgarafimdur um atvinnumál haldinn eftir hálfan mánuð
Á LÖNGUM fundi atvinnumálanefndar Akureyrar í gær var sam- andi. Á fundinn verða m.a. boðaðir
þykkt ályktun þar sem bent er á alvarlega stöðu skipasmíðaiðnaðar bæjarfulltrúar og þingmenn kjör-
í bænum og í landinu í heild. Þá var einnig lagt fram yfirlit um stöðu dæmisins.
Framkvæmdasjóðs Akureyrarbæjar, en atvinnumálanefnd hefur úr
10 milljónum króna að spila á þessu ári, en þegar er búið að ráð-
stafa þeim.
„Atvinnumálanefnd bendir á al-
varlega stöðu skipasmíðaiðnaðar í
bænum og landinu í heild. Nefndin
skorar á stjórnvöld að endurskoða
tafarlaust þær reglur sem snúa að
skipasmíðaiðnaði, þannig að þær
tryggi innlendum fyrirtækjum sam-
keppnisgrundvöll, bæði hvað varðar
nýsmíðar og viðgerðir." Þannig
hljóðar ályktun sem samþykkt var
á fundi atvinnumálanefndar Akur-
eyrar í gær.
Sigurður Ringsted forstjóri
Slippstöðvarinnar hf. kom á fund
nefndarinnar og skýrði frá stöðu
mála og þeim verkefnum sem í
gangi eru hjá stöðinni, en sem
kunnugt er var rösklega 200 starfs-
mönnum Slippstöðvarinnar sagt
upp störfum í síðustu viku vegna
verkefnaskorts. Á starfsmanna-
fundi í Slippstöðinni síðastliðinn
föstudag var skorað á atvinnumála-
nefnd að efna til borgarafundar um
atvinnumál á Akureyri og á fundi
nefndarinnar í gær var ákveðið að
halda slíkan fund í Sjallanum mið-
vikudaginn 22. nóvember næstkom-
Á fundi atvinnumálanefndar var
lagt fram yfirlit um stöðu Fram-
kvæmdasjóðs Akureyrarbæjar, en
nefndin hefur úr 10 milljónum
króna að spila á þessu ári. Hólm-
steinn Hólmsteinsson formaður at-
vinnumálanefndar sagði að á milli
16 og 18 fyrirtæki hefðu fengið
lánafyrirgreiðslu úr sjóðnum á árinu
og að það í'é sem til ráðstöfunar
er hefði þegar verið notað, þannig
að ekki sé svigrúm til að aðstoða
fleiri fyrirtæki á yfirstandandi ári.
Ilins vegar gæti nefndin veitt ráð-
gjöf og gert úttekt á fyrirtækjum
og væri töluvert um að leitað væri
eftir slíki'i aðstoð.
um 5-6% á næsta ári. Því mætti
reikna með að botninum væri enn
ekki náð og líklegt að atvinnuleysi
ykist enn á næsta’ári.
Sigurður sagðist svara þeirri
spurningu hiklaust neitandi, að at-
vinnumál á Akureyri væru með öðr-
um hætti en hjá öðrum sveitarfélög-
um, sem og einnig því að fyrirtæki
í bænum væru verr stödd en annars
staðar. Almenn rekstrarskilyrði fyr-
irtækjanna væru hins vegar ekki góð
og því hefðu nokkur þeirra þegar
fallið. „Hjól atvinnulífsins eru víða
þegar að stöðvast vegna lélegrar
afkomu og mörg fyrirtæki eru að
fækka starfsfólki. Eg tel að bæjar-
stjórn geti haft tímabundin áhrif á
þann veg að hjólin fari að snúast á
ný,“ sagði Sigurður. „Eftir að hafa
íhugað málið tel ég að Akureyri sé
ekki á neitt hátt verr í stakk búin
til að mæta þeim erfiðleikum sem
við atvinnulífinu blasa. Með sam-
stilltu átaki getum við fundið leiðir
út úr vandanum og við verðum að
beijast fyrir því að Akureyri verði
öflugt mótvægi við höfuðborgar-
svæðið.“
Sigríður Stefánsdóttir (G) benti á
að árið 1983 hefðu 81 verið á at-
vinnuleysisskrá í október á Akur-
eyri, en í síðasta mánuði hefðu 190
verið á skrá. Hún sagði ástandið
vissulega alvarlegt, en sagðist vilja
forðast að upphefja svartsýnisum-
ræðu sem áberandi hefði verið fyrir
nokkrum árum; á slíkum þyrftu
menn síst á að halda.
Sigurður Jóhannesson (B) gagn-
rýndi meirihluta bæjarstjórnar og
sagði hann hafa nítt niður atvinnulíf
bæjarins á tímum síðasta meirihluta,
en þó hefði atvinnuleysi aldrei verið
í líkingu við það sein nú væri. Hann
sagði það ekki á valdi meirihluta
bæjarstjórna hveiju sinni hvernig
atvinnulífið gengi, heldur spiluðu þar
inn í fjölmargir aðrir þættir. llann
sagðist þó ekki nota tækifærið nú
til pólitískra upphlaupa og kosta
málefnum Akureyrarbæjar til.
Freyr Ófeigsson (A) mótmælti
málflutningi Sigurðar og sagði að
hann hefði harkalega gagnrýnt at-
vinnumálastefnu síðasta meirihluta,
sem dregið hefði úr framkvæmdum
bæjarfélagsins um leið og lægð varð
í þjóðfélaginu. „Á sínum tíma bar
mest á atvinnuleysi í byggingaiðn-
aði, en ég tel að á samdráttartímum
beri að auka framkvæmdir á vegum
bæjarfélagsins og að mínu viti er
jafnvel réttlætanlegt að auka útlán
nokkuð til að halda uppi atvinnu,"
sagði Freyr.
Að loknum umræðum um atvinnu-
mál samþykkti bæjarstjórn sam-
hljóða ályktun þar sem segir að at-
vinnumálanefnd og bæjarstjórn Ak-
ureyrar skori á stjórnvöld að móta
stefnu í málefnum skipasmíða. Nauð-
synlegt sé að viðhalda og auka þá
kunnáttu sem þegar er í landinu á
þessu sviði. „Tafarlaust þarf að end-
urskoða þær reglur sem snúa að
skipasmíðaiðnaði, þannig að þær
tryggi innlendum fyrirtækjum sam-
keppnisgrundvöll bæði hvað varðar
nýsmíðar og viðgerðir."
Sundlaug Sólborgar:
Fimm buðu í
lokaáfangann
FIMM tilboð bárust í lokaáfanga
sundlaugarbyggingar við vist-
heimilið Sólborg á Akureyri, en
t.ilboðin voru opnuð í gær. Um er
að ræða innréttingar, klæðningu
í loft, vinnu við hcitan pott og lok-
afrágang þannig að unnt verði að
taka sundlaugina í notkun.
Þau fyrirtæki sem buðu í verkið
eru: Gíbó byggingaverktakar sem
bauð 8.711.134, Fjölnismenn hf.
bauð 8.615.830, Pan hf. bauð
6.736.185, Raf hf. bauð 9.020.554
og SJS verktakar bauð 7.483.622.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á
7.105.400. Lægsta tilboðið, frá Pan
hf., var 94,8% af kostnaðaráætlun,
en það hæsta, frá Raf hf., var 27%
umfram kostnaðaráætlun.