Morgunblaðið - 08.11.1989, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 08.11.1989, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NOVEMBER 1989 29 fclk í fréttum VOGAR Gaf handavinnu til styrktar ung- mennafélaginu Ungmennafélagið Þrótt- ur í Vogum hóf nýlega söfnun á dósum og flöskum í þeim tilgangi að afla fjár í ferðasjóð vegna þátttöku fé- lagsins í íslandsmóti í knatt- spyrnu á næsta ári. Magnús Hlynur Hreiðars- son formaður Þróttar sagði í samtali við Morgunblaðið að félagið hefði fengið mjög góðar móttökur við söfnun- ina þau tvö skipti sem hún hefur farið fram. Hann sagði einnig að Vilborg Gunnars- dóttir sem býr í Vogum hafi haft samband við sig vegna fréttabréfs sem félagið gaf út, þar sem meðal annars var minnst á dósasöfnunina. Hún vildi styrkja félagið með öðr- um hætti. Síðan bauð hún Magnúsi í heimsókn og gaf félaginu muni sem hún hafði unnið í hándavinnu. Fyrst gaf hún 12 muni sem ruku út við sölu, en þá gaf hún fleiri Rluti eða alis 60—65 hluti sem voru síðan seldir. Þessu var mjög vel tekið og Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundssón. Vilborg Gunnarsdóttir ásamt áhugasömum knatt- spyrnudrengjum sem seldu handavinnumuni er hún gaf félaginu. seldist fyrir tæp 15 þúsund krónur. Magnús sagði að Vilborg hefði sagt að hún gæfi þetta meðal annars í minningu föður síns sem var mikill ungmennafélagsmað- ur. UngmennaféJagið ætlar í fyrsta skipti að senda lið til keppni í íslandsmótið í knatt- spyrnu á næsta ári. Það verður 5. flokkur drengja og hugsanlega í flokki stúlkna. - EG BÓKASÖFN Barnabókavika í Vestmannaeyjum Bókasafn Vestmannaeyja stóð barna- bókaviku fyrir nokkru í tilefni af 100 ára afmæli Félags íslenskra bókaútgef- enda. í vikunni var öllum börnum af dagvist- arheimilum bæjarins boðið í heimsókn á bókasafnið þar sem fram fóru sögustund- ir. Um 220 börn af dagvistarheimilum heimsóttu bókasafnið í vikunni. í lok vikunnar var síðan opnuð sýning á bókakápum sem börn á aldrinum 10 til 13 ára höfðu útbúið. Valdar voru bestu bókakápurnar og veitt verðlaun fyrir þær. í lok barnabókavikunnar var mikið um að vera á bókasafninu. Þá voru þar tveir sagnamenn sem sögðu sögur og fylgdist fjöldi fólks með þessari uppákomu. Nanna Þóra Áskelsdóttir, forstöðumað- ur bókasafnsins, sagði að barnabókavika þessi hefði tekist vel og yrði eflaust til þess að efla áhuga á íslenskum barnabók- um. Grímur Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Börn af dagvistarheimili í Eyjum í sögustund á bókasafhinu. MÁLRÆKT Söng’ur o g móðurmálskennsla Björg Baldursdóttir skólastjóri grunnskóla ísafjarðar fór fyrir göngu milli 5 og 6 hundruð nem- enda skólans og um 40 kenn- ara um götur ísafjarðar á föstudag. Þrátt fyrir kulda- nepju söng hersingin af krafti íslensk ættjarðarlög og marsa. Eftir hringferð um bæinn undir íslenskum fána og trumbuslætti endaði gangan á grunnskólalóðinni þar sem sungin voru 18 er- indi úr kvæðinu um Ólaf Liljurós. Að sögn Valgerðar Jóns- dóttur kennara var tilgang- urinn að ljúka eftirminnilega móðurmálsviku sem haldin er í öllum grunnskólum landsins. Unnið var að ýms- um verkefnum, farið yfir ambögur og slettur sem ungt fólk vill oft nota. Móður- málstímar voru ítarlegri og þar sem verkefnið féll al- mennt í góðan jarðveg voru lögð drög að ýmsum áfram- haldandi verkefnum. Val- gerður sagði að athyglisvert hefði verið hve nemendur mættu vel og að eldri nem- endur hefði sýnt hinum yngri gott fordæmi þegar til kast- anna kom. - Úlfar Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Hópgang'a grunnskólanema á Isafírði og kennara þeirra í tilefni af íslenskri inálræktarviku. FIMMTUDAGSKVOLD kl. 21-01 LÚDÓ SEXTETT 0G STEFÁN Miðaverð kr. 500,- Opnum kl. 19 fyrir matargesti. Margrómaður matseðill. Borðapantanir í síma 29098. UM HELGINA Satifá, Júlíus Saga Brjánsson Jónsdóttir Bessi Kjartan Bjarnason Bjargmundsson sýning laugardagskvöld HUÓMSVEITIRNAR: DÉ LÓNLÍ BLÚ BOJS rokksyeít RÚNARS JÚLÍUSS0NAR LÚDÓ SEXTETT OG stefAn SVEITIN MILLI SANDA HALDA UPPIFJÖRIÁ 4 HJEBUM Staður í uppsveiflu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.