Morgunblaðið - 03.12.1989, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 03.12.1989, Qupperneq 12
81r 12 ma:. mm-szm & smuitmA'jt- atMj&xgaifmtt MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1989 eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur/mynd: Árni Sæberg Á veggnum yfir bókaskápnum eru gipsmyndir af fyrirrennurum hans. „Kannski þú lendir þarna eftir tuttugu ár,“ segi ég. Hann yppir öxlum: „Æ, ég held ég kynni ekki við mig. Ég er ekki mikið fyrir minnismerki af þessu tagi. Eina listaverk þessarar gerðar sem mér hefiir þótt verulega til um er af Churchill úti fyrir breska þinghúsinu - hún minnir mig á járnsmið Ásmundar.“ Böðvar Bragason hefur verið lög- reglustjóri Reykjavíkur í fjögur ár. Gagnrýni á lög- reglu og umdeildar gerðir, eða afskiptaleysi, kemur ailtaf uppá öðru hveiju. „Lögreglan þarf aðhald og umræður eru til góðs,“ segir hann af stóískri ró. Hann hafði verið á námskeiði með nokkrum starfsmönnum um streitu og slökun. Segir að starf lögregl- unnar sé mikill streituvaldur, „vegna þess að það eru margar óþekktar stærðir í því. Og oft þarf að taka snöggar ákvarðanir og ein- att undir pressu." Ég spyr hvort honum finnist gaman að vera lög- reglustjóri. „Gaman? Nei það orð myndi ég ekki nota. En það er áhugavert og ég get vel hugsað mér áð gegna því áfram. Ég er í þjónustustarfi og það á vel við mig. Mér þykir opinberir starfsmenn í ýmsum greinum ekki alltaf hugsa út í að við erum starfsmenn fólksins, í bók- staflegri merkingu. Að mörgu leyti nýt ég starfsins en mér finnst vera hængur á hversu hægt allar breyt- ingar og umbætur innan lögregl- unnar ganga fyrir sig. Mig býður í grun að þjóðfélagið samsvari ekki nógu vel væntingum fólks, einkum ungs fólks. Það er kominn ómann- eskjulegur bragur á þetta þjóðfélag og oft ekki frítt við að embættis- menn iíti of stórt á sig og gleymi þeim sannindum að þjóðfélagið er til fyrir þegnana en ekki öfugt. Nei, ég er ekki svartsýnn þó það mætti ætla af þessum orðum. En ég var bjartsýnni þegar ég var yngri. Jákvæðari líka. Kannski örl- aði á að ég væri hugsjónamaður á minn hátt þá. það er heldúr ekki margt sem ýtir undir að'menn rækti hugsjónamennsku í nútímaþjóðfé- lagi. En ég held að við þurfum að staldra við. Við höfum farið of geyst.“ Þú varst varaþingmaður Fram- Morgunblaðið/Árni Sæberg „Ómanncskjulegur bragur á þjóófclaginu,“ scgir Böóvar Bragason lögrcglu- stjóri i Rcykjavíli í samtali um vandann í samskiplum löggæslu og borgaranna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.