Morgunblaðið - 03.12.1989, Page 17

Morgunblaðið - 03.12.1989, Page 17
É sem ósónlagið á að vetja lífríkið fyr- ir, getur haft skaðvænleg áhrif á dýraríkið, hvort heldur sem er á láði eða í legi. „Enn er þetta nokkuð óljóst. T.d. er vitað að framleiðsla og dauði ýmissra þörunga í hafinu er mjög næmt fyrir breytingum á útfjólublárri geislun. Hér á landi hefur dr. Þórunn Þórðardóttir hjá Hafrannsóknastofun rannsakað hvaða áhrif geislun hefur á ýmsar þörungategundir, sem eru undir- staða lífríkisins í sjónum og þá fisks- ins um leið. Það varðar okkur íslend- inga, sem lifum á sjónum, því miklu,“ eins og Guðmundur bend- ir á.„Svo mikilvægt sem það er fyrir okkur, þá gildir þetta ekki aðeins um lífið í sjónum, heldur hefur þessi geislun líka áhrif á plöntulíf, dýralíf og manninn sjálfan." Vísaði Guð- mundur G. Bjarnason um það til lækna, sem eru að rannsaka þessi áhrif á manninn, m.a. vegna þess að mikil breyting hefur orðið á húð- krabba hjá hvítu fólki á undanförn- um árum. Að hans ráði var hringt til Ellenar Mooney, sérfræðings í húðlækning- um og húðmeinafræði, sem fylgist náið með því sem er að gerast á þessu sviði í heiminum. Sagði hún að útfjólubláir geislar, sem kallaðir eru UVC geislar, mundu komast í gegn ef ósónlagið væri horfið og hefðu skaðleg áhrif bæði á húðina og ónæmiskerfi líkamans. Þeir geisl- ar sem eru á styttri bylgjulengdum svo sem UVC og UVB valda krabba- meini. En mikið væri af rannsóknum í gangi á þessu sviði víða um heim MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1989 Magruð er a<ri.iao í toniium. 1986 1987 Kælikerfi og varmadælur 34.2 38.4 Harðfroðueinangrun, ínnl.frl. 20.3 30.0 Harðfroðueinangrun, ínnflutt 81.0 72.0 Mjúkfroðuframleiðsla 4.4 4.6 Efnalaugar 6.0 7.0 Uðavörur, innl. framl. 4.0 4.5 Uðavörur, innflutt 46.0 46.2 Hreinsimiðill í iðnaði 2.5 2.7 Kæli- og frystiskápar 1.8 2.2 200.2 tonn 207.6 tonn Taflan er úr skýrslu Ósónneftidar ffá 1988 og sýnir notkun klórfú- orkoleftia á Islandi árin 1986 og 1987, sem talin eru hafa eyðandi áhrif á ósónlagið. Magnið er í tonnum. og birtust greinar um það í sérfræði- ritum. Sama ferli í gangi á norðurhveli „Svokallað ósóngat, sem mælist á vorin yfir Suðurheimskautinu er mælt á hveiju vori, var fyrst upp- götvað 1985 af Bresku Suðurskauts- stofnuninni og mælingar frá gerfi- hnöttum staðfestu svo þá niður- stöðu. Þess má geta að þessar gerfi- hnattamælingar voru fram til 1985 taldar rangar sökum þess hversu lág gildin reyndust. En þá voru þær bornar saman við mælingar frá jörðu og stemmdu við þær.“ En af hveiju kemur þetta gat á ósónlagið yfir Suðurskautinu fremur en annars staðar og af hveiju ein- ungis á vorin? „Osónlagið er yfir allri jörðinni, en er breytilegt eftir árstíma og breiddargráðu. En þetta lag nær hámarksþykkt upp í 15-20 km hæð. Marktækar mælingar hafa verið gerðar yfir Suðurskautslandinu og mestar eru breytingarnar í 12-20 km hæð. En ekki er hægt að full- yrða með vissu að ósónlagið sé að minnka yfir norðurhveli jarðar. Hins vegar bendir allt til þess að sömu ferli eigi sér stað þar. Munurinn á norður- og suðurhveli felst í mismun- andi aðstæðum á flæði lofts þar yfír, þannig að loftið verður mun kaldara yfir Suðurskautssvæðinu. Þar er land, sem gerir það að verkum, ásamt öðmm landfræðilegum að- stæðum, að loftið verður einangr- aðra yfir vetrarmánuðina og hlýrra loft nær ekki að hafa þar áhrif. Af því leiðir að efnahvörf, sem verða á yfirborði ískristalla þar við þessar aðstæður, flýta fyrir ósóneyðing- unni, samkvæmt kenningu Susan Solomons. En þarna er um flókin efnafræðileg ferli að ræða, sem lítt Breiddargráða 90°l\l 70°l\l 50”N 30°l\l 10°N 10°S 30°S 50°S 70°S 90°S Jan. Feb. Mar. Apr. Maf Jún. Júl. Agú. Sep. Okt. Nóv. Des. Gerfihnattamælingar á breyting- um á ósónlaginu eftir breidd- argráðum og árstíma sýna minnkun á heildarmagni ósóns yfir jörðinni frá 1979-1987. Neðst til hægri sést ósóngatið yfir Suð- urskautslandinu og ofarlega til vinstri sést minnkun um 2% á íslandi, sem á við vetartímann. höfðu verið rannsökuð áður en ósóngatið uppgötvaðist." Við víkjum að því hvemig brugð- ist hefur verið við þessum tíðindum og Guðmundur talar um alþjóðasam- starf, sem vitanlega á við þegar um er að ræða hættu, sem ógnar allri jörðinni. „A árinu 1985 var gerður svonefndur Vínarsamningur um vernd ósónlagsins að tilstuðlan Um- hverfisstofunar Sameinuðu þjóðanna og síðan viðbót við hann í Montreal 1987, sem mjög margar þjóðir hafa gerst aðilar að, en þar er tekin sú meginákvörðun að CFC samböndin, sem send eru út í loftið, skuli minnka um 50% fyrir 1. júlí 1998 miðað við framleiðslu þessara efna á árinu 1986. Hér á íslandi skipaði þáver- andi iðnaðarráðherra 1988 ósón- nefnd, sem lagði til að ísland færi sínar leiðir við að framfylgja þessum samningi, sem íslendingar gerðust aðilar að í ágúst með gildistöku frá 27. nóvember sl. Skipuð hefur verið framkvæmdanefnd til að fylgja mál- inu eftir. En þetta mál þróast mjög hratt með nýrri vitneskju, eins og hér hefur komið fram, og Ijóst er orðið að þessi sáttmáli þykir ekki ná nægilega langt. Því hafa Norður- lönd ákveðið að ganga enn lengra. I maímánuði 1989 var því gerður sáttmáli í Helsinki, sem kveður á um að engin þessara efnasambanda verði lengur í notkun árið 2000. Gerfihnattamynd, sem sýnir mælingar á ósónmagni á suður- hveli jarðar. Rauðfiólublái litur- inn gefúr til kynna lágt ósón- magn. Suðurheimsskautslandið er á miðri mynd og Astralía efst til hægri. Norðurlöndin fjögur skrifuðu undir þennan sáttmála, en ísland átti víst engan fulltrúa í Helsinki og var því ekki með. Aðrar þjóðir eru Banda- ríkin, Efnahagsbandalagslöndin, Japan, Kórea, Indland, Kína og Brasilía. Norðurlönd vildu þarna sýna fordæmi og vera til fyrirmynd- ar, þótt heildarframleiðsla þeirra sé ekki nema 1,3% af heildarfram- leiðslu þessara efna í heiminum. Okkur sem erum í norrænu ráðgjafa- nefndinni er ætlað að fylgjast með mælingum og rannsóknum og vera stjórnvöldum til ráðgjafar um þetta mál. Næst á dagskrá er svo annar Montreal- samingur, sem gera á i mars 1990. Þá var ætlunin að fyrri samningur yrði staðfestur. Reiknað er með að þá verði fleiri þjóðir með og að sá samningur muni ganga lengra vegna þeirra viðbótarupplýs- inga sem bæst hafa við fyrri vitn- eskju. Montreal-samningurinn frá 1986 tók ekki inn í dæmið að efna- ferli á yfirborði ískristalla mundi flýta fyrir eyðingu ósóns og því hafa menn gengið of skammt í fyrra skip- tið.“ Hvað er það þá sem við, jarðar- börn, eigum von á? „Það fer eftir því hver framvindan verður og hve mikil framleiðslan verður á þessum skaðlegu efnum fyrir ósóniagið", svarar Guðmundur að bragði.„En vegna þess hve langan tíma tekur fyrir þessi ósóneyðandi efni að ber- ast upp í heiðloftið, þá mundu klór- samböndin 2-3 faldast þar á næstu öld, jafnvel þótt Montrealsamþykkt- inni væri framfylgt af öllum þjóðum strax í dag. Án þess að taka ný efna- hvörf inn í dæmið, mundi ársmeðal- tal ósóns jafnvel minnka um eitthvað 4-12% um miðja næstu öld og því meir sem nær dregur heimskauta- svæðunum. „Á norðurhveli finnast sömu ósón- eyðandi efni sem á suðurhveli, sam- kvæmt mælingum og rannsóknum frá háskólanum í Boulder, en þar eru þau við aðrar aðstæður. Vel er hægt að sjá hvað er að gerast þar, sem gefur þá bara lengri frest. Þess- vegna er ljóst að stuttur tími er til stefnu og er unnið að því að breyta sameiginlega um stefnu. Þetta er kapphlaup um tíma“, segir Guð- mundur G. Bjarnason. Ósónlagið mælt yfir íslandi fi’á 1957 En hvar og hvernig koma Islend- 17 ingar þarna inn í málið? „Við getum að vísu ekki staðið fyrir miklum rannsóknum á þessu sviði“, segir Guðmundur.„En síðan 1957 hafa íslendingar mælt heildarmagn ósóns fyrir ofan okkur. Veðurstofa íslands hefur staðið að þessum mælingum frá þeim tíma og fram á þennan dag. Þetta eru meðal bestu mælinga á ósóni á norðurhveli. Niðurstöður hafa ætíð verið sendar til gagna- banka í Toronto í Kanada, en úr- vinnsla gagna er fremur takmörkuð hérlendis. Slíkar langtíma mælingar hafa verið gerðar á 10 stöðum á norðurhveli og er Reykjavík einn af þeim. Tiltölulega lítillar breytingar hefur orðið vart, nema yfir vetrar- mánuðina, þegar magn ósóns hefur minnkað um 2% á árunum 1970- 1980 á svæðinu milli 30. og 65. breiddarbaugs. Þetta eru einu mark- tæku mælinganar sem fáaniegar eru, en heildarúrvinnsla er enn í gangi.“ Þá bendir Guðmundur á að vegna flugsins hafi farið fram frá Kefiavík háloftamælingar með loftbelgjum, sem fari allt upp í 30 km hæð eða upp fyrir ósónlagið. Þama er mælt hitastig, vindhraði og vindstefna. Nýlega hefur þessi tæknibúnaður verið endurnýjaður og keypt tæki frá Finnlandi. Bandaríkjamenn kaupa tækin, en íslendingar sjá um reksturinn gegn um Veðurstofu ís- lands.„Þessi tæki bjóða upp á ein- faldan og ódýran möguleika til áð mæla ósónlagið og skoða hvernig það breytist með hæð og tíma“, seg- ir Guðmundur G. Bjarnason, „Þetta verður gert, hvort sem íslendingar gera það eða aðrir. Það gæti orðið lítið framlag til málsins frá okkur, enda er einfalt og tiltölulega ódýrt að bæta ósónnema við þessi tæki og Veðurstofa Islands mundi sjá um framkvæmd mælinganna einu sinni í viku, ásamt því sem þeir mæla nú þegar í háloftunum. Starfsfmenn Veðurstofunnar hafa sýnt fram- gangi þessa máls mikinn áhuga. Við þurfum ekki að gera annað _en að bæta við einum ósónnema. Ég tel að íslendingar ættu að hafa frum- kvæði í þessu, m.a. vegna þess hve góðar Reykjavikurmælingarnar á ósónmagninu hafa verið og æskilegs samanburðar á þeim og ósónlaginu eftir hæð frá jörðu. Þá gætum við vitað í hvaða hæð mestu breyting- arnar verða og það gefur möguleika á að greina betur hvað veldur breyt- ingum á ósónlaginu. Fleiri möguleika um hugsanleg afskipti íslendinga af rannsóknum á ósónlaginu, nefndi Guðmundur G. Bjarnason, sem undanfarið hefur verið að kanna málið á íslandi. Hann benti á að Gísli Jónsson, prófessor í rafmagnverkfræði, sem hefur mik- inn áhuga á ljóstækni, hefur verið að byggja upp aðstöðu til að mæla útíjólubláa geislun frá jörðu. Hann vinnur að því að afia tækjabúnaðar til þess að mæla útijólubláa geislun undir berum himni, eins og m.a. hefur verið 'gert að undanförnu við Suðurheimskautssvæðið. Áformar hann byija á þessu næsta haust, ef ijárveiting fæst til þess. „Þá gæti það spilað saman við bæði heildar- ósónmælingarnar hér og mælingar í háloftunum frá Keflavíkurflug- velli“, segir Guðmundur. „Hvarfhraðar í ýmsum efnahvörf- um, sem taka þátt í efnaferlinu, eru ekki vel þekktir‘‘, segir Guðmundur ennfremur.„En Ágúst Kvaran efna- fræðingur hefur yfir að ráða leysilit- rófstækni, sem gerir kleift að mæia suma þessa hvarfhraða hér í Há- skóla Islands, þar sem hægt er að skapa svipaðar aðstæður á rann- sóknastofu og eru í heiðhvolfinu. Við erum að skoða þetta með tilliti til ósónlagsins og mælinga á því. í fljótu bragði sýnist mér að þessi tækni gæti komið þar að gagni.“ Að lokum ræðum við um þær gífurlegu og öru breytingar, sem orðið hafa á ótrúlega skömmum tíma á þekkingu á öllu sem viðkemur ósónlaginu, sem umlykur jörðina. Og Guðmundur G. Bjarnason segir að jafnvel sérfræðingar megi hafa sig alla við að fylgjast með því sem er að gerast, svo hratt berist vitn- eskjan að, og til þess sé nauðsynlégt fyrir hann að halda við öllum sínum samböndum erlendis, ætli hann að verða hér að gagni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.