Morgunblaðið - 29.12.1989, Side 1
64 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
296. tbl. 77. árg.
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
Liðsmaður byltingarinnar í Rúmeníu heldur á loft tveimur loðfeldum Elenu Ceausescu sem fundust í
tveggja hæða glæsivillu hjónanna í Búkarest. Þar eru flest tæki gulli slegin og munaðurinn slíkur að
milljarðamæringar á Vesturlöndum búa vart betur.
Tékkóslóvakía:
Dubcek kjörinn
forseti þingsins
Prag. Reuter.
ALEXANDER Dubcek, sem fluttur var í járnum til Moskvu árið 1968
eftir innrás Varsjárbandalagsins, var í gær lgörinn forseti þings Tékkó-
slóvakiu. Mun hann gegna því embætti þar til fijálsar kosningar fara
fram í landinu um mitt næsta ár. Leikskáldið Vaclav Havel, einn þekkt-
asti andófsmaður Tékkóslóvakíu í valdatið kommúnista þar, mun í
dag, föstudag, sveija embættiseið forseta landsins
Dubcek var kjörinn með 298 at-
kvæðum en einn þingmaður sat hjá.
Fulltrúar kommúnistaflokksins og
stjórnarandstöðunnar höfðu gert
með sér samkomulag um að Dubcek
tæki við embættinu. Þingið tilnefndi
Dubcek og 22 aðra menn til þingsetu
í stað harðlínumanna sem höfðu ver-
ið reknir af þingi.
„Þetta verður staður þar sem ósk-
um þjóðarinnar verður fullnægt og
réttindi hennar haldin í heiðri,“ sagði
Dubcek. Hann taldi kjörið marka
framhald umbótastefnunnar frá
1968 eða „Vorsins í Prag.“ Dubcek
var þá leiðtogi tékkneskra kommún-
ista en herafli Varsjárbandalagsins
réðst inn í landið
og batt enda á
umbótastefnu
hans. Sovétmenn
fóru fyrir innrás-
arhemum, trúir
þeirri kenningu
Leoníds Brezhn-
evs, þáverandi
Sovétleiðtoga, að
hemaðaríhlutun
væri réttlætanleg ef kommúnisman-
um væri ógnað í Austur-Evrópu.
Núverandi valdhafar í Sovétríkjunum
hafa nú hafnað kenningu þessari og
telja margir fréttaskýrendur það for-
sendu þeirra miklu breytinga sem
átt hafa sér stað í kommúnistaríkjun-
um á undanförnum vikum og mánuð-
Dubcek
Bráðabirgðasljórnin í Búkarest:
Biðja Rúmena að hefiia
sín ekki á kommúnistum
Búkarest, Vínarborg, Búdapest. Reuter og Daily Telegraph.
RUMENSK stjórnvöld höfðu í gær hendur í hári þriggja náinna
ættmenna Ceausescu-hjónanna. Systir forsetans, Elena Barbulescu,
var tekin með sem svarar fjórum milljónum króna í fórum sínum,
einnig sonur hennar, Emil, og ein af mágkonum einræðisherrans
líflátna. Sonur Ceausescus, Nicu, og dóttirin Zoia voru þegar í haldi.
Skýrt var frá því í Vín að Marin Ceausescu, eldri bróðir forsetans,
hefði fundist hengdur í kjallara húsakynna viðskiptasendinefhdar
Rúmeníu. Bróðirinn hafði starfað í Vín síðastliðin 16 ár og er talið
að hann hafi svipt sig lífi. Yfirvöld hvöttu í gær almenning til að
gefa ekki reiði sinni lausan tauminn með því að ráðast á kommún-
ista og handbendi Ceausescus. Heyrst hefur um aftökur án dóms
og laga á nokkrum stöðum í landinu.
væri allt með kyrrum kjörum í
landinu. Erlendir stjórnarerindrekar
„Við viljum ekki framhald á of-
beldinu og harðræðinu," sagði í til-
kynningu stjórnarinnar. Er frestur
sem bráðabirgðastjórnin hafði sett
liðsmönnum öryggissveita Ceaus-
escus, Securitate, til að gefa sig fram
rann út síðdegis í gær sagði sjón-
varpið í Búkarest að víðast hvar
Almenningur mun finna fljótt fyr-
ir þessum hækkunum og sem dæmi
má nefna, að nýir ávextir og græn-
meti hækka um 55 ísl. kr. kílóið eft-
ir áramót. Grænlandsverslunin er
farin að huga að innkaupum annars
staðar en í Danmörku og keypti nú
í desember ávexti og pappírsvörur
frá Kanada. Er skemmst frá því að
segja, að vörurnar voru bæði góðar
sögðust þó hafa heyrt um strjála
skothríð í borgunum Sibiu og Cluj.
Einhverjir liðsmenn sveitanna gáfust
upp eftir að tilkynnt var um frestinn
en óljóst er hve margir þeir voru.
Óttast er að margir Securitate-liðar
og verulega ódýrari en í Danmörku
og því má vænta stóraukinna við-
skipta við Kanadamenn.
Flugfargjöldin eiga að hækka um
8% 3. janúar nk. og kostar þá ferðin
fram og til baka milli Kaupmanna-
hafnar og Narssarssuaks 7.380 dkr.
eða nærri 68.000 ísl. kr. SAS, sem
flýgur til Syðri-Straumfjarðar,
hækkar fargjöld um 4,5%.
hyggist vera í felum og lifa á ýmiss
konar glæpastarfsemi. „Rúmenar
geta þurft að berjast við hryðjuverka-
menn í mörg ár,“ sagði vestrænn
stjómarerindreki. Einn af forystu-
mönnum byltingarinnar, Silviu Bruc-
an, sagði í viðtali við BBC í gær að
milli 30 og 40 velþjálfaðir liðsmenn
Securitate væru enn í Búkarest og
hygðust myrða félaga í bráðabirgða-
stjórninni. Hann sagði ráðherrana
ferðast um borgina í brynvörðum
vögnum.
Pólski Samstöðuleiðtoginn Lech
Walesa sagði í gær að Pólveijar
myndu styðja Rúmena af öllum
mætti en varaði við skyndiaftökum
á staðnum án réttarhalda og átti við
hótanir stjómvalda um að Secur-
itate-menn yrðu umsvifalaust drepn-
ir ef þeir gæfu sig ekki fram áður
en fresturinn rynni út.
Furðu lostinn almenningur fékk í
gær að skoða íburðarmikla, tveggja
hæða glæsivillu Ceausescu-hjónanna
í Búkarest, með gulli slegnum vatns-
hönum, sjónvarpstæki í hveiju her-
bergi, marmaragólfum og rándýmm
listaverkum. Herbergi eru um 40 og
gnægð var af matvælum í kæliskáp-
um, þ. á m. kjöti og ávöxtum. Fjöldi
erlendra tískutímarita og vestræn
myndbönd lá eins og hráviði um
húsið. Athygli vakti að sérstök íbúð
Elenu Ceausescu var nauðalík vistar-
verum Imeldu Marcos í forsetahöll-
inni í Manila á Filippseyjum, auk
þess sem sjá mátti módelskó,
skreytta demöntum, frá París. „Það
er erfitt að átta sig á þessu. Ég
vona að þessu verði breytt í safn
bijálseminnar,“ sagði herforingi sem
sýndi fréttamönnum dýrðina.
Erlendur sendiherra segir matar-
skortinn i landinu hafa verið slíkan
undanfarinn áratug að uppvaxandi
kynslóð væri minni vexti en fyrri
kynslóðir.
Sjá einnig fréttir á bls. 20 og 21.
um.
Þingmenn samþykktu jafnframt í
gær að gera breytingar á embættis-
eið forseta landsins og fella út setn-
ingu, sem kvað á um þá skyldu hans
að standa vörð um hagsmuni sósíal-
ismans. Leikskáldið þekkta, Vaclav
Havel, mun í dag, föstudag, sveija
embættiseið forseta en hann sætti
margvíslegum ofsóknum er komm-
únistar voru einráðir í landinu og sat
síðast í fangelsi í maímánuði á þessu
ári. Havel tekur við embættinu af
harðlínumanninum Gustav Husak
sem sagði af sér þann 10. þessa
mánaðar. Verður þetta í fyrsta skipti
frá árinu 1948, er kommúnistar náðu
völdum í landinu, sem forseti Tékkó-
slóvakíu kemur ekki úr röðum þeirra.
Reuter
Við leiði Marx
Ferðamaður virðir fyrir sér legstein Karls Marx, föður kommúnismans,
í Highgate-kirkjugarðinum í Lundúnum. Kommúnisminn er nú hvarvetna
á undanhaldi eftir að hafa verið grundvöllur stjómskipulags víða um heim
í áratugi. Byltingarástand ríkir í Austur-Evrópu þar sem kenningar
Marx höfðu náð hvað tryggastri fótfestu. í legsteininn eru grafin orðin:
Öreigar allra landa, sameinist. Andófsmenn í Austur-Evrópu hafa snúið
út úr þessum orðum og breytt þeim í: Öreigar allra landa, afsakið.
Miklar verðhækk-
anir í Grænlandi
Kuupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, fréttaritara Morgunblaösins.
Grænlenska flugfélagið Grönlandsfly heftir fengið leyfi landsstjórnar-
innar og danska samgönguráðuneytisins til að hækka fargjaldið á milli
Kaupmannahafnar og Narssarssuaks. Vöruflutningar verða einnig dýr-
ari, jafnt með flugvélum sem skipum.